Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.02.2004, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Biblíudagurinn 2004 ÁRLEGUR Biblíudagur verður haldinn næstkomandi sunnudag, 15. febrúar. Guðsþjónustur í kirkjum landsins verða þá sérstaklega helg- aðar Biblíunni og mikilvægi hennar fyrir kristna kirkju. Við guðsþjónustu í Lindaskóla mun Jón Pálsson, framkvæmda- stjóri Biblíufélagsins, predika. Prestur er sr. Guðmundur Karl Brynjarsson. Kirkjukór Lindakirkju ásamt organistanum Hannesi Bald- urssyni annast tónlistarflutning. Guðsþjónustunni verður útvarpað. Biblíufélagið býður alla hjartanlega velkomna til guðsþjónustunnar. Starfs Hins íslenska Biblíufélags er minnst á Biblíudegi en félagið hefur staðið að útgáfu Biblíunnar frá stofnun þess árið 1815. Meg- inviðfangsefni Biblíufélagsins und- anfarin 13 ár hefur verið ný þýðing Gamla testamentisins og sér nú fyrir endann á því starfi. Endurskoðun á bréfunum og Opinberunarbók Nýja testamentisins er jafnframt langt komin. Hið íslenska Biblíufélag er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi Sameinuðu Biblíufélaganna og hef- ur á Biblíudaginn verið safnað til verkefna á vegum þess. Að þessu sinni verður safnað til styrktar þýðingarstarfinu í Konsó og Bórana. Á meðal tveggja þjóð- flokka í Eþíópíu er núna unnið að þýðingu Biblíunnar og koma Íslend- ingar að því starfi bæði beint og með fjárstuðningi. Í Bórana stýrir Har- aldur Ólafsson kristniboði þýðingu Biblíunnar yfir á Bóranamál og í Konsó er nú að hefjast þýðing Gamla testamentisins, en Biblíu- félagið hefur stutt þýðingu Nýja testamentisins í Konsó í gegnum tíð- ina. Áfram er mikilvægt að styðja við bakið á þýðingarstarfinu í Konsó og Bórana. Söfnun Biblíudagsins í ár er helguð þessu verkefni. Til að starfið geti haldið áfram af fullum krafti vantar nauðsynlega aðstöðu eins og tölvur og prentara. Það eitt er þó ekki nóg því slík tæki eru gagnslaus án rafmagns. Með sól- arrafhlöðum má leysa það vanda- mál. Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að setja upp aðstöðuna og nýta sólina, en nóg er af henni í Afríku, til að knýja þessi tæki. Styðjum kirkjurnar í Konsó og Bórana við þýðingu Biblíunnar. Framlög í söfnun Biblíufélagsins verða notuð til að koma upp nauð- synlegri aðstöðu til að svo megi verða. Söfnunarreikningur fyrir Konsó og Bórana er nr. 0101-26-3555. Hið íslenska Biblíufélag. Fræðsludagur í Frí- kirkjunni í Reykjavík NÆSTKOMANDI sunnudag klukk- an 11:00 verður almenn guðsþjón- usta í Fríkirkjunni í Reykjavík Eftir guðsþjónustuna verður farið upp í safnaðarheimili á Laufásvegi 13 þar sem við munum borða saman, allir eru hvattir til að hafa með- ferðis eitthvað gott á sameiginlegt hlaðborð. Þegar við höfum matast (um klukkan 12:30–45) verður fræðslustund í safnaðarsalnum. Við- fangsefni þessa fræðsludags er „Biblían – Orð guðs“. Meðan á fræðslustund stendur er sérstök söngstund fyrir þau yngstu í baðstofunni á þriðju hæð. Allir vel- komnir. Safnaðarstarf Fríkirkjunnar í Reykjavík. Drottinn er minn hirðir GUÐSÞJÓNUSTAN í Dómkirkjunni kl. 11 á biblíudaginn hefur að þema 23. Davíðssálm. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson segir frá honum og áhrifum hans á kveð- skap, aðrar bókmenntir og kvik- myndir í hugleiðingu dagsins. Sig- urður Skagfjörð Steingrímsson syngur sálminn undir lagi Dvoráks og Dómkórinn og Kjartan Sig- urjónsson flytja m.a. sálma sem ortir eru út af honum. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson leiðir guðsþjónustuna. Æðruleysismessa í Dómkirkjunni ÆÐRULEYSISMESSA, tileinkuð fólki sem leitar bata eftir tólf- sporaleiðinni, verður í Dómkirkj- unni sunnudaginn 15. febrúar kl. 20. Einhver mun segja þar af reynslu sinni úr baráttunni við áfengissýk- ina. Anna Sigríður Helgadóttir, Hjörleifur Valsson og Birgir og Hörður Bragasynir sjá um stemmn- ingsríka tónlist. Sr. Karl V. Matt- híasson flytur hugleiðingu. Sr. Jak- ob Ágúst Hjálmarsson leiðir samkomuna og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir fyrirbæn. Kyrrðardagar fyrir þá sem eru að styrkja vitundarsamband sitt við Guð verða undir leiðsögn sr. Jakobs í Skálholti 26.–28. mars og tekur skrifstofa skólans við innritunum. Sjá heimasíðu Dómkirkjunnar, www.domkirkjan.is. Kvennakirkjan í Laug- arneskirkju KVENNAKIRKJAN heldur guðs- þjónustu í Laugarneskirkju sunnu- daginn 15. febrúar kl. 20.30. Minnst verður 11 ára afmælis Kvennakirkjunnar undir yfirskrift- inni: Að verða til, vera og vaxa. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar. Fermingarstúlkur Kvennakirkj- unnar lesa ritningarlestra. Kór Kvennakirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn Aðalheiðar Þorsteins- dóttur. Á eftir verður kaffi í safn- aðarheimilinu. Næsta námskeið Kvennakirkj- unnar nefnist: Samskipti þín og hinna. Hvaða áhrif hefur þú á annað fólk og hvaða áhrif hefur fólk á þig? Hverju skiptir það þig hvernig er talað við þig, hvað er sagt og hvað er ekki sagt, hvernig þú ert snið- gengin og hvernig er alls ekki tekið eftir þér? Hvaða áhrif hefur það hvernig þú umgengst annað fólk? Námskeiðið verður tvö mánudags- kvöld, 23. febrúar og 1. mars, frá klukkan 17.30–19. Nánari upplýs- ingar eru í síma 551 3934. Biblíudagurinn í Fella- og Hólakirkju Á MORGUN, biblíudaginn, verður fjölbreytt helgihald í Fella- og Hóla- kirkju. Guðsþjónusta dagsins verður kl. 11 að venju. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Lilju Hallgrímsdóttur djákna. Organisti er Lenka Mátéová og kór kirkjunnar syngur. Þorvaldur Hall- dórsson mun einnig syngja í mess- unni við eigin undirleik. Í upphafi guðsþjónustunnar munu prestar kirkjunnar, sr. Svavar og sr. Guð- mundur Karl Ágústsson, afhenda öllum börnum í sóknunum, sem fædd eru árið 1999, bókargjöf frá kirkjunni. Það er bókin Kata og Óli fara í kirkju. Því er öllum börnum í sóknunum sem fædd eru árið 1999 boðið sérstaklega ásamt fjöl- skyldum þeirra. Sr. Guðmundur mun síðan í framhaldinu fylgja börnunum í sunnudagaskólann með fræðurunum þar sem sunnudaga- skólinn verður. Á undan og eftir guðsþjónustu og sunnudagaskóla verður sýning á Biblíum og skýringarbókum í hús- næði kirkjunnar. Þar gefur að líta Biblíur á ýmsum tungumálum, sum- ar myndskreyttar og ætlaðar fólki á ýmsum aldursskeiðum. Margar þessara bóka eru í eigu kirkjunnar en vinir og velunnarar kirkjunnar hafa góðfúslega lánað Biblíur úr einkaeign. Sýningin er óvenju fjöl- breytt en Lilja djákni hefur haft veg og vanda af uppsetningu hennar. Kirkjugestum er boðið upp á kaffi og ávaxtasafa á eftir. Allir velkomn- ir í Fella- og Hólakirkju á biblíudag- inn. Kvöldmessa í Grensáskirkju ANNAÐ kvöld, sunnudagskvöldið 15. febr., verður kvöldmessa í Grensáskirkju og hefst að venju kl. 20. Í kvöldmessunni er lögð áhersla á hlýlegt og kyrrlátt andrúmsloft. Formið er einfalt og sungnir léttir söngvar við píanóundirleik. Töluðu máli er stillt í hóf en gefið svigrúm fyrir lofgjörð og bæn. Altarisganga fer fram í messunni og tekin verða samskot til starfs Hins íslenska Bibl- íufélags enda er Biblíudagurinn á sunnudaginn. Siðfræði og geðrækt í Hallgrímskirkju Á FRÆÐSLUMORGNI í Hallgríms- kirkju sem hefst kl. 10 f.h. næstkom- andi sunnudag mun dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson flytja erindi sem hann nefnir: Orð Guðs og ábyrgð mannsins. Dr. Sigurjón Árni hefur nýlega gefið út viðamikið verk um kristna siðfræði í ljósi evangelísk-lúth- erskrar guðfræði þar sem hann leit- ast einnig við að staðsetja kristna siðfræði í almennri siðfræðium- ræðu. Hann hefur því af miklu að miðla bæði lærðum og leikum. Messa hefst síðan kl. 11 með þátt- töku fermingarbarna þar sem þau leika á hljóðfæri, lesa texta og flytja bænir. Að messu lokinni mun Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi flytja erindi um efnið: Áhrifavaldar á líð- an fólks í daglegu lífi. Prestsvígsla í Dómkirkjunni PRESTSVÍGSLA verður í Dóm- kirkjunni sunnudaginn 15. febrúar kl. 14:00. Biskup Íslands vígir cand theol Lenu Rós Matthíasdóttur sem skipuð hefur verið prestur í Graf- arvogsprestakalli, Reykjavík- urprófastdæmi eystra. Séra Vigfús Þór Árnason sókn- arprestur, lýsir vígslu.Vígsluvottar eru: séra Anna Sigríður Pálsdóttir, séra Bjarni Þór Bjarnason, séra Jón Helgi Þórarinsson og séra Kristján Valur Ingólfsson. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson, dómkirkjuprestur þjónar fyrir altari. Organisti er Kjartan Sigurjónsson. Dómkórinn syngur. Biblíusýning í Hafnarfjarðarkirkju NÆSTKOMANDI sunnudagur, 15. febrúar, er Biblíudagur Þjóðkirkj- unnar. Af því tilefni fjallar sr. Þór- hallur Heimisson um Biblíuna við messu dagsins í Hafnarfjarð- arkirkju sem hefst kl. 11.00. Eftir messuna mun hann sýna Biblíusafn sitt í safnaðarheimili kirkjunnar, en hann hefur um margra ára skeið safnað Biblíum frá fjölmörgum þjóðlöndum. Í Bibl- íusafninu er m.a. að finna græn- lenska, rússneska, kínverska og lat- neska Biblíu svo eitthvað sé nefnt. Gefst kirkjugestum kostur á að bera saman ólíkar útgáfur Faðirvorsins á mörgum tungumálum, en engin bók hefur verið þýdd á fleiri tungumál en einmitt Biblían, eins og alkunna er. Kirkjustarf ÍSLANDSMEISTARAMÓT í samkvæmis- dönsum með frjálsri aðferð fór fram í Laug- ardalshöllinni um síðastliðna helgi. Sagt var frá mótinu í Morgunblaðinu í gær en mistök urðu við vinnslu fréttarinnar og er hún því endurbirt í heild. Í samkvæmisdönsum er keppt í tveimur greinum. Eru það annars vegar s-amerískir dansar og hins vegar standarddansar og eru fimm dansar í hvorri grein. Keppt var til Ís- landsmeistaratitils í öllum aldursflokkum, þ.e. frá 12 ára og upp úr nema í flokki seniora. Þeirri keppni var frestað þar sem tvö paranna sem keppa í þeim flokki voru stödd í Belgíu að taka þátt í heimsmeistaramóti í standarddönsum. Samhliða þessu móti var keppni fyrir dans- pör sem styttra eru komin í dansinum og dansa með grunnaðferð. Einnig fór fram bikarmót í línudansi. Keppni í línudönsum hófst kl. 11 að morgni sunnudags og voru tíu hópar línudans- ara skráðir í keppnina. Klukkan 13 var setningarathöfn sem hófst með innmarsi allra keppenda og fánakveðju. Þá flutti Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, ávarp og setti mótið. Rúmlega eitt hundrað pör voru skráð á mótið og af þeim voru 20 pör sem kepptu í dansi með frjálsri að- ferð og þ.a.l. til Íslandsmeistaratitils. Yngsti keppnisflokkurinn í dansi með frjálsri aðferð er Unglingar I (12–13 ára). Þar keppti einungis eitt par og kepptu þau í báðum grein- um. Það voru þau Magnús Arnar Kjartansson og Ragna Björk Bernburg frá Dansíþrótta- félagi Kópavogs. Þetta var þeirra fyrsta mót í dansi með frjálsri aðferð. Þau eru mjög áferð- arfallegir og sterkir dansarar. Vonandi eigum við eftir að sjá fleiri pör bætast í þennan hóp á næstunni. Næsti hópur er hópurinn Unglingar II (14–15 ára). Þar voru skráð til keppni átta pör í standarddönsum og níu pör í s-amerískum dönsum. Íslandsmeistarar í standarddönsum urðu Haukur Freyr Hafsteinsson og Denise Margrét Yaghi frá Dansíþróttafélaginu Hvönn. Þau byrjuðu að dansa saman í haust og er þetta fyrsta mót þeirra saman. Þau eru bæði frábærir dansarar en Haukur á það til að missa höfuðið fram og þarf að laga það. Í öðru sæti voru þau Eyþór Smári Þórbjörns- son og Hanna Rún Óladóttir einnig frá Dans- íþróttafélaginu Hvönn. Þau eru einnig nýlega farin að dansa saman og er gaman að geta þess að Hanna Rún dansaði áður við Hauk Frey og unnu þau marga titla saman. Mér finnst þau sterkari í standarddönsunum en í þeim s-amer- ísku. Þau eru með mjúka áferð og ná að lenda vel niður sem eykur jafnvægið. Mér fannst að vísu Vínarvalsinn vera þeirra lakasti dans og þarf Hanna Rún að passa að stíga fram í hæla á áfram-skrefum. Í þriðja sætu höfnuðu Björn Ingi Pálsson og Ásta Björg Magnúsdóttir frá Dansíþróttafélag- inu Gulltoppi. Þau voru glæsileg á gólfinu og náðu góðri yfirferð í dönsunum. Ásta þarf stundum að passa að missa ekki höfuðið niður og stundum myndar Björn of brotið „sway“ í stað þess að gera sveigjuna frá toppi til táar. Í s-amerísku dönsunum stóðu Haukur Freyr og Denise Margrét einnig uppi sem sigurveg- arar. Haukur er mjög sterkur á gólfi og með mikinn rytma í líkamanum. Hann þarf aðeins að nota táberg og ökkla betur. Denise var ekki eins örugg á gólfinu og Haukur en hann geislaði af öryggi og fangaði athygli áhorfenda auðveld- lega. Í öðru sæti voru þau Björn Ingi og Ásta. Þau eru mjög stílhreinir dansarar og er Björn Ingi með mjög góða notkun á fótum og ökklum. Mér fannst Ásta ekki ná sér alveg á strik í þessari keppni. Í þriðja sæti voru Alexander Mateev og Erla Björg Kristjánsdóttir frá Dansdeild ÍR. Þau eru mjög létt og lífleg á gólfinu en stundum finnst mér vanta upp á að þau klári hreyfingar og rétti úr hnjám. Næstelsti hópurinn sem keppti á Íslands- meistaramótinu er hópurinn Ungmenni (16–18 ára). Þar voru skráð til leiks sjö pör í hvorri grein og er langt síðan þessi aldurshópur hefur verið svona fjölmennur. Þarna er á ferðinni frekar jafn og sterkur hópur og var mjög spenn- andi að horfa á þau keppa. Íslandsmeistarar ungmenna í standarddönsum urðu þau Þorleif- ur Einarsson og Ásta Bjarnadóttir frá Dans- deild ÍR. Þau hafa verið að berjast um sigursæti í mörg ár. Ég hef ekki séð þau betri og hafa þau bætt sig frá því að ég sá þau síðast keppa. Finnst mér danshaldið ekki eins snúið og áður. Í öðru sæti höfnuðu Jónatan Arnar Örlygs- son og Hólmfríður Björnsdóttir frá Dans- íþróttafélaginu Gulltoppi. Þau hafa verið í fremstu röð um árabil í sínum aldursflokki. Þau dönsuðu mjög yfirvegaðan og léttan dans. Stundum vantar upp á að sporin fljóti vel saman og að þau klári hlutina betur áður en farið er af stað í næsta spor. Í þriðja sæti voru Arnar Georgsson og Tinna Rut Pétursdóttir. Þau eru ávallt glæsileg á gólfinu en mér fannst þau þyngri í dansinum en áður og ekki ná að sýna sitt besta. Þorleifur og Ásta sigruðu einnig í s- amerísku dönsunum. Þetta var greinilega þeirra dagur því mér fannst þau ná að sýna sín- ar bestu hliðar í þessari keppni. Þau voru mjög létt á gólfinu og finnst mér vera kominn meiri hreyfing í líkamann á Þorleifi. Í öðru sæti voru Jónatan og Hólmfríður. Þau eru með allt annan stíl í dansinum, ná að dansa mjög vel saman og sýna vel hlutverk karls og konu. Það var mjög spennandi að horfa á þessi tvö pör og tel ég víst að það hafi verið mjótt á mununum. Í þriðja sæti höfnuðu Stefán Claessen og María Carrasco frá Dansdeild ÍR. Þau dönsuðu mjög vel framan af í úrslitunum en misstu aðeins dampinn í síðasta dansinum sem er Jive. María er mjög kvenlegur dansari og mjög áberandi á gólfinu. Stefán þarf að sýna meiri hreyfingu í mjöðmum og líkaman- um. Flokkurinn Fullorðnir (19–35 ára) var elsti flokkurinn sem keppti til Íslandsmeistaratitils á þessu móti. Þar keppti eitt par og keppti ein- ungis í s-amerískum dönsum. Það voru þau Gunnar Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr Magn- úsdóttir frá Dansíþróttafélaginu Gulltoppi. Þau voru frábær, að vanda mjög kraftmiklir dans- arar og lífleg. Það var synd að ekki tóku fleiri pör þátt í þessum flokki en vonandi á það eftir að breytast í framtíðinni. Það má segja að keppnin hafi gengið vel fyrir sig. Tímaplan stóðst nokkuð vel og það komu ekki fram neinir hnökrar á keppninni. Mér finnst reyndar að þegar pör þurfa að dansa beint úrslit eins og gerðist í hópi ungmenna og hópurinn er 6–7 pör þá er æskilegt að pörin dansi aukaumferð til þess að gefa dómurum meiri tíma til þess að bera pörin saman. Fimm erlendir dómarar dæmdu keppnina. Það voru: Heinz Riehn frá Þýskalandi, Lars Kromann frá Danmörku, Elisabeth Sandström frá Svíþjóð, Johan Eftedal frá Noregi og Vera Randall frá Englandi. Mótanefnd tók í haust þá ákvörðun að hafa tvo íslenska dómara í dómarahópnum og hafa þá alls sjö dómara. Því miður var ákveðið að draga þá ákvörðun til baka. Það er mín skoðun að við þurfum að eiga góða og frambærilega dómara til þess að dæma danskeppnir hér heima sem og erlendis. Þeir þurfa að fá meiri þjálfun við dómgæslu og er fyrir löngu orðið tímabært að fá það fagfólk sem til er í landinu til þess að vera í dómnefnd hér heima. Öll úrslit keppninnar eru birt á heimasíðu Dansíþróttasambands Íslands, www.danssport- .is. Góð þátttaka í Ís- landsmeistaramótinu Morgunblaðið/ Jón Svavarsson Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobs- dóttir sigurvegarar í flokki Unglinga I K-riðli. DANS Laugardalshöll SAMKVÆMISDANSAR Íslandsmeistaramót í 5 og 5 dönsum fór fram sunnu- daginn 8. febrúar sl. Kara Arngrímsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.