Morgunblaðið - 14.02.2004, Síða 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Nuka Arctica kemur
og fer í dag.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Félags-
heimilið er opið frá kl.
9–17 virka daga.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Fræðslu-
nefnd FEB stendur
fyrir leikhúskynningu
Mánudaginn 16. febr-
úar kl. 14–15.30 í Borg-
arleikhúsinu undir yf-
irskriftinni: „Hvað er á
fjölunum“? Umsjón,
Sigrún Valbergsdóttir
frá Leikfélagi Reykja-
víkur. Gefst tækifæri
að ganga um húsakynni
leikhússins og kynnast
því sem liggur að baki
misfellulausum kvöld-
sýningum. Meðal ann-
ars æfingar nýrra
verka á leiksviðum
hússins. Mæting í
Borgarleikhúsið kl. 14.
Skráning á skrifstofu
félagsins í síma
588 2111.Námskeið í
framsögn hefst 25.
febrúar leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson
skráning á skrifstofu
FEB.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á fimmtud.
almenn handavinna
m.a. speglaskreytingar
og silkimálun frá kl.
13–16.30. Á föstuda-
göum kl. 9–16.30 opnar
vinnustofur, m.a. fata-
breytingar og skreyt-
ingar.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Breiðfirðingafélagið.
Félagsvist í Breiðfirð-
ingabúð, Faxafeni 14, á
morgun, sunnudag, kl.
14. Annar dagur í fjög-
urra daga keppni.
Kaffiveitingar.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
GA-Samtök spilafíkla,
Fundarskrá:
Þriðjud.: Kl. 18.15, Sel-
tjarnarneskirkja, Sel-
tjarnarnes. Miðvikud.:
Kl. 18, Digranesvegur
12, Kópavogur og Eg-
ilsstaðakirkja, Egils-
stöðum. Fimmtud.: Kl.
20.30, Síðumúla 3–5,
Reykjavík. Föstud.: Kl.
20, Víðistaðakirkja,
Hafnarfjörður. Laug-
ard: Kl. 10.30, Kirkja
Óháða safnaðarins,
Reykjavík
og Glerárkirkja, Ak-
ureyri. Kl. 19.15 Selja-
vegur 2, Reykjavík.
Neyðarsími: 698 3888.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa samtökin. Átröskun
/ Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is og
síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leiðir 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Fífan Dalsmára 5 í
Kópavogi, tart-
anbrautir eru opnar al-
mennu göngufólki og
gönguhópum frá kl. 10–
11.30 alla virka daga.
Blóðbankabílinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blodbank-
inn.is.
Karlakór Reykjavíkur.
Aðalfundurinn fyrir ár-
ið 2003, sem frestað var
26. janúar sl. verður
haldinn í Tónlistarhús-
inu Ými mánudaginn
23. febrúar, kl. 20. Dag-
skrá: Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Minningarkort
Minningarkort Minn-
ingarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga fást á eftirtöldum
stöðum: Norðurland:
Blómabúðin Bæj-
arblómið, Húnabraut 4,
Blönduós, s. 452 4643
Blóma- og gjafabúðin,
Hólavegi 22, Sauð-
árkróki, s. 453 5253
Blómaskúrinn, Kirkju-
vegi 14b, Ólafsfirði, s.
466 2700 Hafdís Krist-
jánsdóttir, Ólafsvegi
30, Ólafsfirði, s.
466 2260 Blómabúðin
Ilex, Hafnarbraut 7,
Dalvík, s. 466 1212
Bókabúð Jónasar,
Hafnarstræti 108, Ak-
ureyri, 462 2685 Bóka-
búðin Möppudýrið,
Sunnuhlíð 12c, Ak-
ureyri, s. 462 6368
Penninn Bókval, Hafn-
arstræti 91-93, Ak-
ureyri, s. 461 5050
Blómabúðin Akur,
Kaupangi, Mýrarvegi,
Akureyri, s. 462 4800
Blómabúðin Tamara,
Garðarsbraut 62,
Húsavík, s. 464 1565
Bókaverslun Þórarins
Stefánssonar, Garð-
arsbraut 9, Húsavík, s.
464 1234, Skúli Jóns-
son, Reykjaheiðarvegi
2, Húsavík, s. 464 1178
Skúli Þór Jónsson,
Boðagerði 6, Kópasker,
s. 465 2144 Rannveigar
H. Ólafsdóttur, Hóla-
vegi 3, 650. Laugum, s.
464 3181.
Í dag er laugardagur 14. febr-
úar, 45. dagur ársins 2004, Val-
entínusdagur. Orð dagsins: Gjör-
ið ekkert af eigingirni eða
hégómagirnd. Verið lítillátir og
metið aðra meira en sjálfa yður.
(Fil. 2, 3.)
Margrét Sverrisdóttirskrifar um lýðræði á
vef Frjálslynda flokksins.
„Löggjafarvaldið hefur
verið að veikjast og fram-
kvæmdavaldið hefur fært
sig stöðugt upp á skaftið
á kostnað löggjafarvalds-
ins,“ skrifar Margrét.
„Harkalegasta dæmið um
yfirgang framkvæmda-
valdsins gagnvart lög-
gjafarvaldinu var ákvörð-
un um stuðning íslensku
þjóðarinnar við innrásina
í Írak. Forsætisráðherra
og utanríkisráðherra
tóku þessa afdrifaríku
ákvörðun án minnsta
samráðs við löggjaf-
arsamkunduna og þar
með þjóð sína. Hvar lá þá
það vald sem alþingi á að
hafa yfir framkvæmda-
valdinu? Í raun lá það
kylliflatt vegna þess að
stjórnarmeirihlutinn
sýndi algjört ósjálfstæði
gagnvart framkvæmda-
valdinu sem öllu ræður.
[…]Alþingi á að kjósa sér
forseta við upphaf hvers
þings, en nú bregður svo
við að um leið og ráð-
herrastólum var útdeilt í
næstu ríkisstjórn, þá var
þessu embætti jafnframt
ráðstafað þannig að til-
tekinn þingmaður fengi
það eftir tæp tvö ár. Hvar
er þingræðið í þessu til-
viki?“
Margrét segir enn-fremur: „Varðandi
lýðræðið þá skiptir líka
máli sú þróun að völdin
hafa verið að færast til
fjármagnsins. Sameign
þjóðarinnar hefur verið
gefin – örfáum ein-
staklingum, og þjóðbank-
arnir seldir á hálfvirði –
örfáum einstaklingum.
Þar kom engin dreifð
eignaraðild til eins og lof-
að hafði verið. Þeir sem
fjármagninu ráða styðja
síðan þá stjórnmála-
flokka sem vernda hags-
muni þeirra best. Þess
vegna er það enn eitt
dæmið um veiklun lýð-
ræðis okkar að fjármál
stjórnmálaflokka skuli
ekki vera opinberuð sam-
kvæmt lögum eins og
gert er í öðrum löndum.
Sumir flokkar harðneita
að upplýsa hvernig þeir
hafa aflað offjár til kosn-
ingabaráttu þar sem fjár-
magnið ræður jafnvel úr-
slitum um niðurstöðu
„lýðræðislegra“ kosn-
inga!
Ekki má gleyma fjórða
valdinu, fjölmiðlum.
Framkvæmdavaldið gín
yfir ríkisfjölmiðlunum og
stjórnmálaflokkar fá
mjög misjafna umfjöllun
þar, svo ekki sé meira
sagt. Efnt var til hátíð-
arráðstefnu í Háskóla Ís-
lands sl. föstudag sem bar
yfirskriftina: Hvar liggur
valdið? Í kynningu var
sagt að viðfangsefni ráð-
stefnunnar væri „sam-
skipti þingsins og fram-
kvæmdavaldsins“. Ég sat
þar í pallborði og fannst
óhjákvæmilegt að nefna
nokkur þeirra atriða sem
ég hef farið yfir hér að
framan sem dæmi um
samskipti þings og fram-
kvæmdavalds. Fyrir vikið
var í ríkisfjölmiðlum rætt
við alla sem áttu sæti í
pallborðinu nema und-
irritaða. Furðuleg til-
viljun?“
STAKSTEINAR
Þingræðið
fótum troðið?
Víkverji skrifar...
Víkverji sá myndina Glötuðþýðing með Bill Murray í
vikunni og skemmti sér hið
besta, enda hreint frábær
mynd. Víkverja þótti hins vegar
lítið til þjónustunnar í kvik-
myndahúsinu koma. Þegar aug-
lýsingum var að ljúka og mynd-
in að hefjast voru dyrnar fram á
gang ennþá opnar. Það var ekki
fyrr en framtakssamur gestur
stóð upp og lokaði sem dimmt
varð í salnum.
Þetta er kannski lítill þáttur í
þjónustunni sem kvikmynda-
húsin veita en engu að síður
þykir Víkverja að starfsmaður
eigi að sjá um svona. Sérstaklega
þegar fjórir starfsmenn eru á kjafta-
törn í sjoppunni meðan á þessu
stendur.
x x x
Víkverja þykja ommelettur, eðaeggjakökur, sérlega ljúffengur
matur. Nýverið fékk hann að bragða
á einni slíkri í heimahúsi. Hún var
svo góð að Víkverji átti hreint ekki
til orð yfir eldamennskuna. Aldrei
hefur Víkverja tekist að útbúa svo
indæla ommelettu. Þessi tiltekna
ommeletta minnti Víkverja á það
hversu einfaldir hlutir geta nú verið
frábærir. Eggjakaka er, eins og
nafnið gefur til kynna, nánast ekkert
nema egg. Annað hráefni er svo
hægt að nota að vild. Afskaplega ein-
föld matargerð. Þar sem Víkverji
leggur sig fram um að halda þeim sið
að geta glaðst yfir litlu þykir honum
ástæða til að minna á hversu einfald-
ur matur getur verið ljúffengur.
x x x
Víkverji bjó um tíma á Ítalíu þarsem mikið er lagt upp úr mat-
argerð. Þar skiptir gott hráefni öllu
máli. Stundum saknar Vík-
verji alls þess sem ítalskar
verslanir hafa upp á að bjóða
í úrvali. Þó er ástæða til að
gleðjast yfir því hversu úrval
í íslenskum matvöruversl-
unum hefur aukist á und-
anförnum árum. Víkverji get-
ur nánast látið eins og hann
sé á Ítalíu, keypt ítalska
skinku, osta og ýmsar pasta-
sósur. Varan er nánast sú
sama en Víkverji finnur
kannski helst mun á budd-
unni.
Þegar verðlagið á þessum
innfluttu vörum gengur al-
gjörlega fram af Víkverja þá finnst
honum gott að vita til þess að hann
getur alltaf bara gripið með sér
eggjabakka og framreitt ommelettu.
Sé hún vel gerð getur hún runnið svo
ljúflega niður að allar innfluttar
munaðarvörur frá Ítalíu virðast full-
komlega óþarfar. Af hverju þessar
ítölsku vörur, eins og til dæmis
parmesan-ostur, eru svona hátt
verðlagðar er svo annað mál. Vík-
verji myndi gjarnan vilja gæða sér
oftar á ítölskum skinkum og ostum,
en lætur eggin líklega duga meðan
verðið lækkar ekki.
Egg geta verið efniviður í ljúffenga máltíð, séu
þau rétt framreidd.
Adams og
Benetton
MIG langar að þakka versl-
uninni Adams í Smáralind-
inni fyrir frábæra þjónustu.
Þannig var að börnin mín
fengu gjöf frá Adams í
október sem ég þurfti að
skipta. Ég hafði samband
við verslunina um miðjan
janúar þar sem ég hafði
ekki ennþá farið með fötin
til skipta. Mér var tjáð að
ég gæti komið með þau hve-
nær sem var. Ég fór síðan
með fötin og var þá útsala.
Mér var boðið að fá útsölu-
verð fyrir fötin sem ég var
með og gat þá valið þau föt
sem voru á útsölu eða að fá
innleggsnótu og koma síðar
þegar útsalan var búin og
fá þá fullt verð fyrir fötin.
Þetta þykir mér frábær
þjónusta og var ég alsæl og
hlakka til að fara í Adams
þegar nýjar vörur koma.
Síðasta sumar fékk dótt-
ir mín buxur að gjöf frá
Benetton. Þurfti ég að
skipta þeim og fá stærri.
Ég fór með buxurnar u.þ.b.
einum og hálfum mánuði
eftir að þær voru keyptar í
Benetton til að fá þeim
skipt.
Viðmótið sem ég fékk hjá
eiganda búðarinnar var al-
veg ótrúlegt. Buxurnar
kostuðu 2.450 kr. (þær eru
ennþá inni í skáp, ónotaðar
með verðmiðanum á)! Eig-
andi Benetton sem af-
greiddi mig, tjáði mér að
þessar buxur væru nú
komnar á markað og kost-
uðu 500 kr., hún gæti ekki
tekið við þeim! Mér þótti
þetta ansi lélegt og rök-
ræddi nú aðeins við hana
um þetta hvernig gæti stað-
ið á því að vara sem kostaði
2.450 kr. fyrir tveimur
mánuðum, þá ný vara, væri
orðin svo gömul að hún
væri komin á 500 kr. á
markað.
Eigandi Benetton var
mjög ósamvinnuþýð og hélt
sínu striki, að hún gæti eng-
an veginn tekið við buxun-
um, henni datt ekki einu
sinni í hug að bjóða mér
innleggsnótu eða neina
samningaleið, svona væri
þetta nú bara.
Ég gekk út úr verslun
Benetton og skildi ekki
hvernig hægt væri að koma
svona fram við viðskipta-
vini og var ákveðin í að fara
aldrei aftur í Benetton.
Manneskja með eitthvert
viðskiptavit veit að það
skiptir miklu máli að hafa
viðskiptavini sína ánægða
og hvað þá eigandi verslun-
arinnar. Ég hef ekki stigið
fæti inn í Benetton síðan og
mun ekki gera það. Sá mest
eftir að hafa ekki skrifað
um þetta í blöðin strax, en
geri það hér með, sérstak-
lega þar sem ég upplifði
svona frábæra afgreiðslu í
versluninni Adams í
Smáralindinni, það skiptir
máli hvort maður verslar
við A eða B.
Svala Jónsdóttir.
Dýrahald
Kettlingar
fást gefins
2 KETTLINGAR, 9 vikna,
fást gefins. Kassavanir og
skemmtilegir. Upplýsingar
í síma 587 3356.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 gamansemi, 4 málms, 7
starfsvilji, 8 glerið, 9
pikk, 11 sjá eftir, 13
skriðdýr, 14 sjái eftir, 15
verkfæri, 17 þva›ur, 20
blóm, 22 illa þefjandi, 23
slæmt hey, 24 hlaupa, 25
erfðavísirinn.
LÓÐRÉTT
1 vinnuflokkur, 2 stakar,
3 hugur, 4 raup, 5 dáið, 6
sól, 10 getur, 12 flýtir, 13
málmur, 15 karldýr, 16
hnötturinn, 18 ávöxtur,
19 stíf, 20 elska, 21 ófús.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 greinileg, 8 kolan, 9 jaðar, 10 ana, 11 apann, 13
norpa, 15 bjórs, 18 smeyk, 21 kát, 22 lokka, 23 illur, 24
þrásinnis.
Lóðrétt: 2 rella, 3 innan, 4 iðjan, 5 eiður, 6 ekla, 7 þráa,
12 nýr, 14 orm, 15 boli, 16 óskar, 17 skass, 18 stinn, 19
efldi, 20 kári.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16