Morgunblaðið - 30.03.2004, Síða 2

Morgunblaðið - 30.03.2004, Síða 2
FRÉTTIR 2 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kíktu í heimsókn Velkomin í ævintýraheim Holtasmára 1 • 201 Kópavogur Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309 Netfang: langferdir@langferdir.is Heimasiða: www.langferdir.is Opnunartímar skrifstofu: 10:00-17:00 alla virka daga. SJÖ RÍKI GANGA Í NATO Sjö ríki í Mið- og Austur-Evrópu gengu formlega í Atlantshafs- bandalagið við athöfn í Wash- ington í gærkvöldi og er þetta mesta fjölgun aðildarríkja í sögu NATO. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, bauð ríkin velkom- in í bandalagið en rússnesk stjórn- völd létu í ljósi áhyggjur af stækk- un þess, einkum inngöngu þriggja fyrrverandi sovétlýðvelda, Eist- lands, Lettlands og Litháens. Auk þeirra fengu Búlgaría, Rúmenía, Slóvakía og Slóvenía aðild að bandalaginu. Samstarfið í óvissu Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í kvöldverðarboði á Bessa- stöðum um helgina að viðræðurnar við bandarísk stjórnvöld um varnir landsins væru enn í óvissu og þar með framtíð varnarsamningsins. Allir hlytu að skilja að íslensk stjórnvöld myndu ekki hafa áhuga á að halda varnarsamstarfinu áfram, stæði það ekki undir mik- ilvægustu skuldbindingunni um að tryggja öryggi Íslands með lág- marksviðbúnaði í landinu sjálfu. Samþykkja samninga Flóabandalagsfélögin og flest önnur aðildarfélög Starfsgreina- sambandsins hafa samþykkt ný- gerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins. Tvö stéttarfélög, í Vestmannaeyjum og á Höfn, felldu samninginn. Forsvarsmenn Starfs- greinasambandsins segja yf- irstandandi kjaradeilu við ríkið í hnút og munu að öllum líkindum leita eftir heimild til verkfallsboð- unar meðal félagsmanna á næstu dögum vegna starfsmanna sem starfa hjá ríkisstofnunum. Komi til vinnustöðvunar mun hún einkum koma niður á heilbrigðisstofn- unum. 480 þús. kr. hámarksþak Setja á hámark á mánaðarlegar greiðslur Fæðingarorlofssjóðs til foreldra í fæðingarorlofi sam- kvæmt frumvarpi til laga sem Árni Magnússon félagsmálaráðherra hyggst leggja fram á Alþingi á næstu dögum. Í frumvarpinu er lagt til að hámarkið miðist við meðaltals-mánaðartekjur foreldra eða 600 þúsund krónur þannig að mánaðarleg útgreiðsla sjóðsins til foreldris verði að hámarki 480 þús- und krónur. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 31 Viðskipti 12 Viðhorf 32 Úr verinu 13 Minningar 32/35 Erlent 14/16 Kirkjustarf 36 Höfuðborgin 18 Brids 36 Akureyri 18/19 Blómaþáttur 39 Suðurnes 20 Bréf 40 Austurland 21 Dagbók 42/43 Landið 22 Íþróttir 44/47 Daglegt líf 23 Fólk 48/53 Listir 24/25 Bíó 50/53 Umræðan 26/27 Ljósvakar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FLJÓTSDALSHREPPUR og Norður-Hérað, sveitarfélögin sem rúma virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka, hafa ekki séð útsvarsgreiðslur af erlendum starfsmönnum Impregilo og annarra er- lendra undirverktaka frá því að framkvæmdir hóf- ust sl. sumar. Sveitarstjóri Norður-Héraðs, Jónas Þór Jó- hannsson, segir að menn séu að missa þolinmæð- ina og svo virðist sem önnur lögmál gildi um þess- ar framkvæmdir en aðrar hér á landi. „Það virðist vera afskaplega djúpt á þessum greiðslum. Þær eru ekki að skila sér eins og við ætluðumst til. Nú hefur Impregilo verið að störf- um þarna í bráðum ár. Af um 500 til 600 erlendum starfsmönnum þeirra eru upp undir 100 manns í aðalbúðunum við Laugarás með skráð lögheimili í Norður-Héraði. Aðrir eru á utangarðsskrá en við höfum engar greiðslur séð frá þessum mönnum,“ segir Jónas og bendir á að ekki aðeins sveitar- félögin séu að missa spón úr aski sínum heldur ekki síður ríkissjóður þar sem staðgreiðslan og önnur opinber gjöld virðist ekki enn hafa skilað sér af erlendum starfsmönnum Impregilo. „Það virðist ganga mjög illa að koma mönnum inn á þjóðskrána. Ef erlent starfsfólk er fengið í fiskvinnslu er það ekki látið vinna mikið fyrr en það er komið á skrá. Þarna virðist eitthvað allt annað gilda og maður er orðinn algjörlega rasandi yfir þessu. Þetta er allt með ólíkindum,“ segir Jón- as Þór. Greiðslur skila sér frá Fosskrafti í Fljótsdal Sveitarfélögin hafa verið með lögmenn á sínum snærum sem hafa átt samstarf í þessu máli, Bjarni Björgvinsson hdl. fyrir N-Hérað og Kristinn Bjarnason hrl. fyrir Fljótsdalshrepp. Aðalvinnu- búðirnir eru í Laugarási við Kárahnjúk, innan marka N-Héraðs, en vinnubúðir við Teigsbjarg og Axará eru innan umdæmis Fljótsdalshrepps, svo og vinnubúðir í sjálfum Fljótsdal sem Fosskraft hefur reist vegna byggingar stöðvarhúss virkjun- arinnar. Að sögn Kristins hafa greiðslur af erlend- um starfsmönnum Fosskraft skilað sér en ekki frá Impregilo. Bjarni segir þá Kristin hafa um langa hríð verið í samskiptum við skattayfirvöld vegna þessa máls en án þess að það hafi nokkru skilað fyrir sveit- arfélögin. Þau eigi reyndar ekki beina aðild að málinu heldur fyrst og fremst skattayfirvöld. Ástandið geti engu að síður ekki talist eðlilegt og svo virðist sem einhver tregða sé ríkjandi í kerf- inu. Bjarni bendir einnig á að talsverður fjöldi er- lendra starfsmanna hafi komið til tímabundinna starfa á virkjunarsvæðinu en sé farinn fyrir fullt og allt, án þess að hafa greitt krónu í skatt hér á landi. Að sögn Bjarna er um stóra hagsmuni að tefla. Miðað við fjölda erlendra starfsmanna við Kára- hnjúka ættu um fimm milljónir króna að skila sér mánaðarlega til N-Héraðs. Kristinn segir að ekki sé um jafnmarga erlenda starfsmenn að ræða sem skráðir eru í vinnubúðum innan Fljótsdalshrepps en sjónarmiðin engu að síður þau sömu og staða málsins óviðunandi. N-Hérað og Fljótsdalshreppur að missa þolinmæðina gagnvart Impregilo Útsvar af erlendum starfs- mönnum skilar sér ekki Morgunblaðið/Þorkell Margir starfsmenn eru farnir af landinu án þess að hafa greitt krónu í skatt hér á landi. VIÐRÆÐUR eru í gangi á milli Landeigendafélags Laxár og Mý- vatns og Landsvirkjunar. Stjórnar- fundur verður væntanlega haldinn í félaginu í dag og segir Atli Vigfús- son, formaður Landeigendafélags- ins, að línur muni þá skýrast. „Það er búið að gera uppkast að bréfi sem yrði þá undirritað bæði af Landsvirkjun og Landeigendafélag- inu þar sem við óskum eftir því við umhverfisnefnd Alþingis og um- hverfisráðherra að bráðabirgða- ákvæðið fari út. Þegar það fer út á að vera grundvöllur fyrir viðræðum um lausn á rekstrarvanda Laxár- virkjunar sem yrði þá gert í fullu samráði við Landeigendafélagið og þann samning sem gerður var um verndun Laxár og Mývatns,“ segir Atli. Enginn talar lengur um 10–12 metra háa stíflu Atli segist að svo stöddu ekki geta tjáð sig um það út á hvað lausnin muni ganga en enginn sé lengur að tala um 10–12 metra háa stíflu sem myndir hafi birst af í fjöl- miðlum. „Það liggur ljóst fyrir að það er mikill vilji til að leysa rekstr- arvanda virkjunarinnar þannig að hún geti starfað til framtíðar í sátt við það umhverfi sem hún er í. Við teljum að það eigi ekki að vera vandkvæði á því,“ segir Atli. Bráðabirgðaákvæði frumvarpsins fellt út Formaður Landeigendafélags Laxár segir grundvöll fyrir viðræðum DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, verður heiðursgestur og aðalræðumaður á ársfundi Íslensk-ameríska versl- unarráðsins sem haldinn verður í Norræna húsinu, „Scandinavia House, Nordic Center in America“ í New York miðvikudaginn 14. apríl nk. Aðild að ráðinu eiga helstu fyrirtæki á sviði við- skipta milli Íslands og Banda- ríkjanna. Þriðjudaginn 13. apríl opnar forsætisráðherra sýningu á verkum Errós í Greys Art Gallery í New York, en það er rekið í tengslum við New York-háskóla. Sýningin er samstarfsverkefni Greys Art Gallery og Listasafns Reykjavíkur. Erró verður viðstaddur opnunina og tekur þátt í umfangsmikilli dagskrá, sem helguð er list hans, á vegum Goethe-stofnunarinnar í New York og Greys Art Gallery. Forsætisráðherra til New York Heiðursgestur á árs- fundi verslunarráðsins Davíð Oddsson Morgunblaðið/RAX Kraftdrekabrun KRAFTDREKAR kallast vængir, líkir svifvængjum, sem notaðir eru til að draga fólk á skíðum, snjóbrett- um, hjólabrettum eða vatnsbrettum. Í gær voru þeir Einar Garðarsson og Cyrille Collard uppi á Sand- skeiði og létu kraftdrekana draga sig á skíðum í mjöllinni. Þeir voru ásamt þremur öðrum á Mýrdals- jökli síðastliðinn sunnudag og brunuðu um jökulinn eins og drekarnir drógu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.