Morgunblaðið - 30.03.2004, Side 4

Morgunblaðið - 30.03.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ISO 9001 gæðastaðall er okkar styrkur og þín trygging fyrir gæðavöru Allar TEKNOS vörur framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli TEKNOS hágæðamálning fæst nú á öllum norðurlöndunum. TEKNOS er ein vandaðasta málningin á markaðnum í dag. M Á LN ING ARTILB O Ð frá kr. 2 98- lt r. Hágæða lakkmálning Gljástig 15, 40 og 80 Hágæða Akrýl innimálning Gljástig 3, 7 og 20 NÝGERÐIR kjarasamningar Flóa- bandalagsfélaganna og Starfs- greinasambandsins við Samtök at- vinnulífsins voru samþykktir af 28 aðildarfélögum en samningarnir voru felldir í tveimur félögum, á Höfn í Hornafirði og í Vestmanna- eyjum. Talningu atkvæða lauk í gær og voru úrslitin birt síðdegis. Í aðildarfélögum Starfsgreina- sambandsins, að Flóabandalaginu undanskildu, voru 68,1% samþykk samningunum en nei sögðu 29%. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 31,3%. Kjarasamningur Flóabandalags- félaganna þriggja, Eflingar – stétt- arfélags, Hlífar og Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur og nágrennis, við Samtök atvinnulífsins var samþykktur með 64,2% atkvæða en 27,9% sögðu nei. Atkvæðisrétt höfðu 11.898 félagsmenn á kjörskrá, en 2.298 greiddu atkvæði, sem er samtals um 19,2% kosningaþátttaka. Vökull, stéttarfélag, á Hornafirði felldi samninginn með rúmlega 51% atkvæða; 79 samþykktu samninginn, en 86 voru á móti. Verkalýðsfélagið Drífandi í Vestmannaeyjum felldi samninginn með 52% atkvæða; 88 samþykktu samninginn, en 102 voru á móti. Atkvæðagreiðslan um samn- ingana stóð frá 15. mars sl. og lauk á hádegi í gær. Nýgerðir kjarasamningar voru samþykktir með um tveimur þriðju atkvæða í félögum innan SGS 28 félög sögðu já en tvö félög nei Morgunblaðið/Jim Smart Talningu atkvæða um kjarasamningana lauk í gær og lágu úrslit í öllum aðildarfélögunum fyrir síðdegis. Tvö félög felldu samningana.                                     ! "#  $ %  $ &  '   $ (!   $ ") *  $ "+ ,    $ "-  -+  $   (.  $      $ (!  '    $ .   ( "*  (&  % "  $  "    $  /+ %   $ . '    $ 01 +  $ 2     $     $ 2) + %   $ $ %   &      &   $ ( " !  $ (! '  $ "      $ 3   *)+ *  $ ,'    $ "  "*  . & * & * ","4     ! "#4 5567 8967 8:;7 8;;7 957 ;;57 8<67 ;987 5867 <<7 8=67 5>57 >997 ::;7 :=97 8<<<7 8<<<7 >?:7 8?97 :5=7 ;>>7 5>67 :687 :6>7 :697 >;7 :<>7 :867 8?57             9897 :::7 ?>97 =;57 >;>7 9>97 =>67 =9?7 =687 <<7 6857 9<97 6857 6>?7 >9?7 65>7 8<<<7 >:87 6957 >997 ;6:7 6:>7 99<7 >9=7 ;;?7 6<97 6<<7 96=7 9;57                :::7 <<7 967 8>=7 ;>>7 5><7 8;:7 88;7 85?7 <<7 5687 :957 56;7 5<<7 :?57 55>7 <<7 ;<97 5:=7 ;<57 >8>7 5>57 :857 :>57 >5<7 5?;7 :<<7 5=?7 56?7                             ARI Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, lýsir ánægju með að samþykki kjarasamninganna skuli liggja fyrir. Samningarnir hafi þó verið felldir í tveimur félögum á lands- byggðinni. Nið- urstaðan sé nokk- uð afgerandi sem bendi til þess að almenn ánægja sé með samn- ingana í samfélaginu. Eðlilegur gangur í viðræðum við önnur félög Aðspurður hvort þessi niðurstaða muni hafa jákvæð áhrif á viðræður við önnur landssambönd og félög sem ósamið er við, sagði Ari að menn hafi almennt verið bjartsýnir á að niðurstaðan yrði jákvæð í at- kvæðagreiðslu aðildarfélaga SGS. „Ég tel vera ágætan gang í við- ræðunum við iðnaðarmannafélögin vegna virkjanasamnings annars veg- ar og svo í viðræðunum undir stjórn sáttasemjara í málum versl- unarmanna og reyndar einnig í mál- um sjómanna,“ segir Ari. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins Úrslitin benda til almennrar ánægju FÉLAGAR í Verkalýðsfélaginu Drífanda í Vestmannaeyjum felldu nýgerðan kjarasamning Starfs- greinasambands- ins og Samtaka atvinnulífsins. Arnar Hjaltalín, formaður félags- ins, segir óánægju ríkja með hversu litlar kjarabætur séu í samningnum. Hann bendir einnig á að deilt hafi verið um sér- stakt kaupaukaákvæði, upp á 2% ofan á taxta, sem samið var um fyrir fiskvinnslufólk í Vest- mannaeyjum 1988 í kjölfar harðvít- ugrar vinnudeilu. „Síðan þá hefur verið annar taxti fyrir fisk- vinnslufólk í Eyjum en annars staðar,“ segir hann. Arnar segir að atvinnurekendur hafi viljað losna við þetta ákvæði og telur hann að óánægja með það hafi ráðið úrslit- um um að samningurinn var felld- ur. Á byrjunarreit „Nú erum við á byrjunarreit,“ segir Arnar. „Við verðum með fund í Alþýðuhúsinu næstkomandi mið- vikudagskvöld og þar mun ég tala við mitt fólk og heyra í því hljóðið. Ég mun nota tímann fram að þeim fundi til að skoða málin og hvað er í stöðunni,“ segir hann. Auk Drífanda í Vestmannaeyjum felldu félagsmenn í Vökli á Höfn nýgerða samninga. Arnar bendir á að sambærileg staða hafi komið upp í kjaradeilunni 1988 en þá voru verkalýðsfélögin í Vestmanna- eyjum og Höfn einu félögin sem felldu kjarasamninga sem þá voru bornir undir félagsmenn. Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda í Vestmannaeyjum Deilt um kaupauka- ákvæði frá 1988 HALLDÓR Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, er ánægður með niðurstöður at- kvæðagreiðslna í aðildarfélög- unum um kjara- samningana. „Þeir eru sam- þykktir í 28 fé- lögum af 30 sem eru í samband- inu,“ segir Hall- dór. 25 af 27 landsbyggð- arfélögum, þ.e. að frátöldum Flóa- bandalagsfélögunum, samþykktu samninginn en tvö félög felldu samninginn. „Ég tel þetta mjög góða útkomu og miklu betri en menn áttu von á,“ segir Halldór og bendir á að ef tek- ið væri mið af því sem heyrst hefði í umræðunni hefðu menn allt eins átt von á að samningarnir stæðu tæpt í fleiri félögum. 32% þátttaka hjá SGS og tæp 20% hjá Flóa- bandalagsfélögunum Þátttakan í atkvæðagreiðslunni kemur Halldóri ekki á óvart. „Það er eins og fólki komi félagsmál ekkert við. Þetta er bara þver- skurðurinn af þjóðfélaginu eins og það er. Hjá landssambandinu sjálfu var þátttakan um 32% og tæplega 20% hjá Flóanum. Auðvitað hefði verið betra ef þátttakan hefði verið meiri en aðalatriðið er að fá úrslit. Samningarnir fara fyrir hvert ein- asta félag og hvert félag greiðir at- kvæði um þá. Lýðræðislegra getur þetta ekki verið,“ segir Halldór. Spurður hvað hann telji að hafi valdið því að samningarnir voru felldir á Höfn og í Vestmanna- eyjum sagði Halldór að formaður verkalýðsfélagsins Vökuls á Höfn hefði sagt samningana vera lélega, „og ef það hefur síast út til hennar félagsmanna þá er ekki von á því að annað komi upp á tenginginn,“ segir hann. Halldór kveðst ekki vita hvað hafi orðið til þess að samningurinn var felldur í Eyjum og kom sú nið- urstaða honum nokkuð á óvart. Gert upp á grundvelli nýrra samninga frá og með 1. mars Kjarasamningarnir öðlast nú gildi afturvirkt frá og með 1. mars sl. en að sögn Halldórs er ekki ljóst hvort marsmánuður verður gerður upp á grundvelli hinna nýju samn- inga núna um mánaðamótin eða í apríl/maí. Halldór Björnsson, formaður Starfs- greinasambandsins Betri útkoma en menn áttu von á SIGURÐUR Bessason, formaður Eflingar – stéttarfélags, er mjög ánægður með úrslit atkvæðagreiðsl- unnar um kjara- samning Flóa- bandalagsfélag- anna og segir niðurstöðuna mjög afgerandi. Hann segir að lítil þátttaka í at- kvæðagreiðsl- unni, sem var 19,2%, valdi von- brigðum. „Við hefðum gjarnan viljað sjá að fleiri en 2.300 greiddu at- kvæði um samninginn,“ segir Sig- urður. Bætir stöðu launafólks til framtíðar Kjarasamningurinn gildir til næstu fjögurra ára og segir Sig- urður ýmsar mikilvægar kjarabætur í samkomulaginu. Þó ekki sé kveðið á um háar prósentutölur í samn- ingnum felist verðmæti í nýrri launatöflu sem samið var um. „Þarna eru einnig ýmis önnur rétt- indi sem fólk hefur greinilega talið til tekna, m.a. tryggingaákvæðið sem kveður á um hækkun trygginga vegna slysa og bætt er tveimur pró- sentustigum við lífeyrissjóðsrétt- indin. Nú eru starfsmenntasjóðirnir líka komnir endanlega á koppinn. Ég tel því ýmislegt í þessum samn- ingi sem bætir stöðu launafólks til framtíðar,“ segir Sigurður. Sigurður Bessason, formaður Eflingar – stéttarfélags Afgerandi niðurstaða                                 !"   # $   %   # &'''''  &  # (  #   )  *&$+ ,        '    *& # & )  &  &   # #  )  -#   . /'''"   &0* 1*  # #  )  *&# &      Þátttaka í kosningunum talsvert minni en vænst var

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.