Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 15

Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 15 PURE PLAN VEGA Nú er 20% afsláttur af öllum Vega vítamínum. WELLMAN Við hlustum! T ilb o ð in g ild a ti l 6 .4 . 2 00 3 Mig vantar orku. Hverju mælirðu með? G O T T F Ó LK M cC A N N · 2 5 7 7 0 1.443 1.748 Fjölvítamín fyrir karla sem eykur styrk og þol. Áður: 1.698 kr. Frábær úthreinsun – inniheldur virkar jurtir og grænt te. Góð andoxun. Áður: 2.186 kr. 20% Af Vega línunni Wellman orkudrykkur fylgir með. www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Með kveðju. Sveinn, sími 695 9808. SÉRBÝLI Í GARÐABÆ ÓSKAST Mér hefur verið falið að leita eftir 130- 160 fm sérbýli í Garðabæ. Um er að ræða fjársterka aðila sem eru tilbúnir að veita ríflegan afhendingartíma sé þess óskað. Verðhugmynd frá 23 til 28 millj. Áhugasamir vinsamlega hafið samband og ég mun fúslega veita nánari upplýsingar. Þú hefur sérhæft þig í evrópskri nútímasögu. Hver telur þú að verði framtíð Evrópusambands- ins og þýska risans, sem gegnt hefur lykilhlutverki í samrunaferl- inu í Evrópu? Nýlega flutti ég fyrirlestur í Washington sem kallaðist „Endalok Evrópu“ en þar færði ég rök fyrir því að samrunaferlið í Evrópu hafi allt frá fimmta áratug síðustu aldar oltið á getu og vilja Þýskalands til að greiða með því – ekki síst með bein- um fjárframlögum sínum í sjóði sambandsins. Þetta munu Þjóðverjar hins veg- ar ekki gera lengur, held ég, nokkuð sem skýrist af tilkomu Efnahags- og myntbandalagsins og þeirri stað- reynd að Þýskaland hefur ekki leng- ur sjálfræði í peningamálum. Hugs- anlegt er að ESB umbreytist á næstu árum úr verndartollabanda- lagi í fríverslunarbandalag. Í bókinni The Pity of War kemstu að þeirri niðurstöðu að rangt hafi verið af Bretum að fara yfir Erm- arsundið 1914 til að heyja stríð við Þjóðverja. Hvers vegna? Niðurstaða mín var sú að Bret- land hefði staðið frammi fyrir tveimur raunhæfum kostum: að taka upp herskyldu, viðhalda henni um margra ára skeið, og hefja annan undirbúning fyrir hefðbundið stríð. Í kjölfarið grípa til hernaðaríhlut- unar (þó að það hefði kunnað að reynast ónauðsynlegt ef undirbúningur Breta hefði hrætt Þjóðverja frá því að hefja stríð). Hinn kosturinn fólst í því að taka ekki upp neina her- skyldu og grípa heldur ekki inn í málin á meginlandinu á nokkurn hátt. Stjórn frjálslyndra í Bretlandi hafði hins vegar aðra stefnu og hún fólst í því að ekki var tekin upp herskylda en engu að síður ráðist í hern- aðaríhlutun, nokkuð sem varpaði Bretlandi út í stríð sem landið var hrikalega illa í stakk búið til að heyja. Afleiðing þessa var sú að sigur í stríðinu, þegar hann var tryggður, kostaði óheyrilega miklar fórnir. Það hefði ekki verið jafn slæmt fyrir Bretland og menn almennt gefa sér ef Þýskaland hefði unnið stríð á meginlandi Evrópu. Þetta reyndi ég að sýna fram á í bók minni. Þú hefur einnig rætt á almennari nótum um hvað það er sem veldur því að stríð brjótast út. Hverjar eru helstu niðurstöður þínar í þeim efnum? Almennt talað þá bresta stríð á þegar stjórnvöld í að minnsta kosti einu ríki misreikna þann hag sem þau munu hugsanlega hafa af hernaðaraðgerðum, með hliðsjón af kostnaði stríðsins og líkunum á sigri. Efna- hagsþættir koma mjög augljóslega við sögu í sumum stríðum – sem dæmi má nefna stríð verslunarveldanna á átjándu öld – en í flestum tilfellum skipta þeir ekki máli. Raunar er það þannig að yfirleitt gengur sú ákvörðun að hefja stríð þvert gegn öllum efna- hagslegum forsendum. Það er t.a.m. útbreiddur misskilningur að stríðs- reksturinn í Írak í fyrra hafi snúist um olíu. Þú hefur sömuleiðis lýst efa- semdum um þá algengu skoðun að velmegun stuðli að lýðræð- isþróun og síðan öfugt, að lýð- ræði stuðli að velmegun. Á hverju byggirðu mál þitt? Í bókinni The Cash Nexus reyndi ég að færa rök fyrir því að það væru engin óvefengjanleg tengsl milli þessara tveggja ferla; efnahags- og lýðræðisþróunar. Það sem skiptir sköpum fyrir hið fyrra er vöxtur stofnana sem ýta undir það að frjálsir markaðir virki sem skyldi; einkum og sér í lagi lagalegar og efnahagslegar stofnanir. Við vissar aðstæður geta kjörnar stofnanir hjálpað til við þá þróun. En ekki allt- af. Það er t.d. mjög auðvelt að finna dæmi um að árangur hafi náðst í efnahagsmálum án þess að lýðræðisvæðing hafi átt sér stað á sama tíma: ég get nefnt Singapúr, Chile og auð- vitað Kína. Það má færa sterk rök fyrir nauðsyn og mikilvægi lýðræðis en þau rök eru pólitísk, ekki efnahagsleg. Í nýjustu bók þinni, Empire: How Britain Made The Modern World, heldurðu því fram að ólíkt því sem jafnan er haldið fram hafi breska heimsveldið haft jákvæð áhrif á sögu mannkyns. Ertu þeirrar skoð- unar að menn hafi dæmt „heimsveldi“ of hart? Já. Við erum sumpartinn enn fangar þeirrar orð- ræðu sem skaut rótum þegar menn snerust gegn heimsvaldastefnu og nýlenduveldishugmyndum – að ekki sé talað um þjóðernishyggjuna, rökrétta afleið- ingu þessara hugmynda. Þarfnast veröldin nýs heimsveldis, þ.e. bandarísks? Það er erfitt að nefna tímabil í sögu mannkyns þar sem ekkert heimsveldi var fyrir hendi. Í dag er staðan sú að til staðar er bandarískt heimsveldi, hvort sem veraldarbúum líkar það betur eða verr. Spurningin er fremur sú hvort Bandaríkjamenn eru tilbúnir til að við- urkenna þetta fyrir sjálfum sér og átta sig á því að þú getur ekki umbreytt útlagaríkjum í frjálslynd lýðræð- isríki á minna en tveimur árum. Heimsveldi okkar tíma er því miður í afneitun gagnvart eigin tilvist og þjáist í staðinn af viðvarandi athyglisbresti. Spurt og svarað | Niall Ferguson Bandaríska heims- veldið er í afneitun Breski sagnfræðingurinn Niall Ferguson er ekki enn orðinn fertugur en hefur birt fjölda rita sem vakið hafa athygli. Nú síðast hefur hann tekið að velta fyrir sér hlutverki heimsvelda og væntanleg er frá honum bókin Colossus: the Rise and Fall of the American Empire. Ferguson svaraði nokkrum spurningum sem Morgunblaðið lagði fyrir hann. Dr. Niall Ferguson ’ Það hefði ekkiverið jafn slæmt fyr- ir Bretland og menn almennt gefa sér ef Þýskaland hefði unnið stríð á meg- inlandi Evrópu. ‘ Davíð Logi Sigurðsson | david@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.