Morgunblaðið - 30.03.2004, Side 17
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Mikil spenna ríkir á Selfossi meðal bygg-
ingarverktaka og þeirra sem standa að
byggingariðnaðinum. Mjög mikil þensla
hefur verið á Selfossi og mikið byggt. Í
dag verður dregið um það hverjir fá þær
60 lóðir sem til úthlutunar eru í Suð-
urbyggðinni á Selfossi. Umsóknir um þess-
ar lóðir eru samtals 415 sem sýnir vænt-
ingar markaðarins til svæðisins. Til að
tryggja að allt fari löglega fram þá verður
sýslumaðurinn á Selfossi viðstaddur drátt-
inn.
Á vörum allra sem ræða lóðamál á Sel-
fossi eru hugsanleg viðbrögð svo ekki
myndist lóðaskortur sem er eitur í beinum
byggingaverktaka. Næsta byggingasvæði
sem hefur verið skipulagt er vestan núver-
andi hverfis í Suðurbyggðinni með 84 lóðir.
Hægt er að koma því svæði í gagnið á
skömmum tíma þegar skipulagið hefur
veirð auglýst. Einnig svæðinu sunnan nýj-
asta byggingasvæðið í Fosslandi. Hvað
gerist veit enginn en málið er ofarlega á
baugi enda Selfoss sterkt iðnaðarsvæði og
fjöldi manna með atvinnu af þeirri upp-
byggingu sem nú stendur yfir.
Stangaveiðimenn á Selfossi eru komnir
með veiðifiðringinn eins og aðrir veiðimenn
á landinu. Fiðringur stangaveiðimanna hér
er þó meiri því von er til þess að netaveið-
ar hætti á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Á
nýlegum fundi í Þingborg kom fram að
vilji er fyrir þessu hjá landeigendum sem
ráða nýtingu þeirrar auðlindar sem laxinn
er á þessu vatnasvæði. Þar er því komin
vaxandi veiðivon hjá stangaveiðimönnum
sem eykur vel á fiðringinn. Þessi tilfinning
kom vel fram á aðalfundi Stangaveiðifélags
Selfoss þar sem mættu yfir 50 manns.
Ferðamannahópar verða áberandi á göt-
um bæjarins eftir því sem líður á vorið
enda Hótel Selfoss fullt um hverja helgi.
Fyrst um sinn eru þetta Íslendingar en
þegar líða tekur á apríl og maí verða er-
lendir ferðamenn meira áberandi. Nýir
eigendur og rekstraraðilar á Hótel Selfoss
munu taka nýjan veitingasal í notkun 15.
maí en úr honum geta gestir virt fyrir sér
hinn sjónræna margbreytileika Ölfusár.
Úr
bæjarlífinu
SELFOSS
EFTIR SIGURÐ JÓNSSON FRÉTTARITARA
Ræktunarmenn bíðaþess nú í ofvæniað skógarþrestir,
glókollar og fleiri skógar-
fuglar flykkist til Eyja og
setjist að í hinum uppvax-
andi Hraunskógi. Aukið
fuglalíf er einn hinna fjöl-
mörgu jákvæðu þátta sem
fylgja skógræktinni og
hvetur Skógræktarfélagið
bæjarbúa til að leggjast á
sveif með félaginu og
fjölga sem mest trjám á
Heimaey svo hún megi
verða viði vaxin milli fjalls
og fjöru í framtíðinni.
Þetta kemur meðal ann-
ars fram í fréttatilkynn-
ingu frá Skógræktarfélagi
Vestmannaeyja sem birt
er á vef Frétta. Þar er
einnig sagt frá baráttu fé-
lagsins í landnytja- og
landgræðslumálum und-
anfarin ár. Þar hafi þokast
í rétta átt þótt við sé að
eiga öflugan þrýstihóp
tómstundabænda.
Skógrækt
Búðardalur | Sauð-
fjárræktarfélagið Logi
hélt fund þar sem sauð-
fjárbændur í Suðurdölum
hittust og fóru yfir hvern-
ig standa ætti að útfyll-
ingu í gæðahandbók
sauðfjárbænda. Á mynd-
inni sjást Finnur Haralds-
son, Jón Skarphéðinsson
og Birgir Baldursson.
Á fundinum var skipu-
lögð skemmti- og
fræðsluferð sem fara á
norður á Strandir til að
skoða þar fyrirmyndarbú.
Þess má geta að slíkar
ferðir eru orðnar algeng-
ar hjá sauðfjárrækt-
arfélögum á Vesturlandi.
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Gæðastýrð sauðfjárrækt
Það hefur verið góðtíð að undanförnu,sem varð til þess að
menn fóru að yrkja vorvís-
ur. Jón Ingvar Jónsson
orti eftir að hafa lesið
nokkrar innblásnar vor-
vísur:
Sólin gyllir vík og vog,
vekur allt af leti,
dýrðleg blómin dafna og
deyja í páskahreti.
Hallmundur Kristinsson
orti um vor:
Nú er sól og sunnanvindur.
Signir vorið Eyjafjörð.
Nítján hross og nokkrar kindur
naga illa gróinn svörð.
Jón Ingvar orti líka „fram-
sóknarlegt“ vorljóð:
Ógnarfargi’ er af mér létt,
á mér lyftist brúnin:
bráðum mun vor bændastétt
bera skít á túnin.
Þá rifjaðist upp fyrir Birni
Ingólfssyni að einu sinni
orti hann vorvísu með
framsóknar- og
sveitamannayfirbragði:
Óðum lætur undan síga
allt sem fyrr var dimmt og kalt.
Fara út að morgni að míga
menn í björtu um landið allt.
Blessað vorið
pebl@mbl.is
Hrunamannahreppur | Tölu-
vert snjóaði í uppsveitum Ár-
nessýslu í fyrradag og fram á
nótt og þegar íbúarnir vökn-
uðu í gærmorgun var þó nokk-
ur snjór yfir. Færð var þó
ágæt um alla vegi. Krakkarnir
í Miðfellshverfinu nýttu sér
aðstæðurnar og fóru út að
leika við hundana og renna sér
á sleðum. Ragnheiður Björk
Einarsdóttir er hér með Töru
og Elís Arnar Jónsson með
Kappa. Bæði börnin eru fimm
ára.
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Leikið við hundana
Snjór
AÐALFUNDUR
félags opinberra
starfsmanna á
Vestfjörðum
felldi tillögu um
að félagið sam-
einaðist öðrum
félögum opin-
berra starfs-
manna á Vestur-
og Norðurlandi í
nýju félagi sem
hlotið hefur nafnið Kjölur. Að því er fram
kemur í Bæjarins bestu hefur stjórn
FOSVest undanfarna mánuði unnið að
sameiningunni og á sínum tíma fór fram
skoðanakönnum meðal félagsmanna þar
sem meirihluti svarenda lýsti stuðningi
við sameiningu.
Á aðalfundinum sem haldinn var á Hót-
el Ísafirði á laugardag voru mættir 57 fé-
lagsmenn. Einungis 12 þeirra vildu sam-
einingu en 45 voru á móti. Á fundinum
fór einnig fram stjórnarkjör og var Gylfi
Guðmundsson, starfsmaður Orkubús
Vestfjarða, kosinn nýr formaður félags-
ins. Ólafur Baldursson, fráfarandi for-
maður, gaf ekki kost á sér til áframhald-
andi formennsku.
Sameining op-
inberra starfs-
manna felld
Í FERÐ FERLIR, gönguklúbbs rann-
sóknardeildar Lögreglunnar í Reykjavík,
um nágrenni Reykjanesvita síðastliðinn
laugadag rákust þátttakendur á áletrun við
op Skálafellshellis. Á heimasíðu FERLIR
er birt mynd af áletruninni og óskað eftir
upplýsingum um hana, til dæmis hver hún
er og hversu gömul. Félagsmenn hafa
gengið mikuð um Reykjanesskagann og
skráð fjölda menningarverðmæta.
Áletrun við op
Skálafellshellis