Morgunblaðið - 30.03.2004, Síða 20
SUÐURNES
20 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grindavík | Fjölveiðiskipið Vilhelm
Þorsteinsson EA-11 tók niðri á mal-
arrifi í Grindavíkurhöfn stundar-
fjórðungi fyrir klukkan tólf í gær er
hann var að koma með fullfermi af
kolmunna, um 2.500 tonn. Ágætis-
veður er í Grindavík og ýttu björg-
unarskipið Oddur V. Gíslason og
lóðsinn við skipinu og þá losnaði það
eftir að hafa verið strandað í um 20
mínútur.
Ekki er nægt dýpi í allri höfninni
fyrir jafnstór skip og Vilhelm og
þurfa skipstjórnarmenn að beygja í
stjór og bakka að löndunarbryggj-
unni. Virðist skipið hafa beygt of
snemma, samkvæmt upplýsingum
starfsmanns Grindavíkurhafnar.
Ákveðið hefur verið að dýkpa
höfnina við löndunarbryggju loðnu-
skipanna í sumar og stórt svæði í
höfninni. Malarrifið sem Vilhelm
steytti á í gær hverfur við þá fram-
kvæmd.
Vilhelm Þorsteinsson er í eigu
Samherja hf. Skipið lagðist að
bryggju eftir að það náðist af rifinu
og var byrjað að landa úr því farm-
inum til fiskimjölsverksmiðju Sam-
herja. Ekki var reiknað með að
skemmdir hefðu orðið á botni skips-
ins.
Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson tók niðri á malarrifi í Grindavíkurhöfn
Rifið hverfur við dýpkun-
arframkvæmdir í sumar
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Laus: Vilhelm Þorsteinsson losnaði af rifinu þegar lóðsinn og björgunarbáturinn ýttu við stefni hans.
Reykjanesbær | Efnt verður til
Erlingskvölds í Duushúsum í
kvöld, á afmælisdegi Erlings
Jónssonar listamanns. Að
þessu sinni verður dagskráin
helguð Kristni Reyr og verkum
hans.
Auk kynn-
ingar á verk-
um Kristins
mun Leikfélag
Keflavíkur
leiklesa eitt
verka hans,
nokkur laga
hans verða
flutt ásamt
ljóðum og Faxafélagar munu
minnast Kristins. Þess má geta
að í haust verður verk Erlings
Jónssonar, Himnasmiður, sem
sprottið er upp úr kveðskaps
Kristins, sett upp í Reykja-
nesbæ.
Dagskráin hefst klukkan 20 í
kvöld og er öllum opin á meðan
húsrúm leyfir.
Auk Bókasafns Reykjanes-
bæjar standa menningar-
fulltrúi Reykjanesbæjar, Penn-
inn – Bókabúð Keflavíkur,
Leikfélag Keflavíkur, Mál-
fundafélagið Faxi og Áhuga-
hópur um stofnun Listasafns
Erlings Jónssonar að Erlings-
kvöldi.
Erlings-
kvöld haldið
til heiðurs
Kristni Reyr
Kristinn Reyr
STÆRÐFRÆÐIKEPPNI grunn-
skólanna á Suðurnesjum fór ný-
lega fram í sjöunda sinn. Fjöl-
brautaskóli Suðurnesja stóð fyrir
keppninni og eins og áður í sam-
vinnu við Flensborgarskólann í
Hafnarfirði.
Keppendur voru færri en á síð-
asta ári en það var metár. 117
nemendur úr þremur efstu bekkj-
um grunnskólanna tóku þátt.
Flestir voru í Holtaskóla í Kefla-
vík, 38 talsins.
Undankeppnir voru í skólunum
og úrslitakeppnin var síðan háð í
Gerðaskóla í Garði í því þriðja.
Karl Njálsson úr Gerðaskóla
varð efstur nemenda í 10. bekk,
Bogi Rafn Einarsson úr Grunn-
skóla Grindavíkur annar og Dína
María Margeirsdóttir úr Grunn-
skóla Grindavíkur þriðja.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja veitti
viðurkenningarskjöl fyrir tíu efstu
sætin í hverjum árgangi. Íslands-
banki veitti þremur efstu pen-
ingaverðlaun og þrír efstu úr 10.
bekk fengu að auki grafískan vas-
areikni frá Verkfræðistofu Suð-
urnesja.
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Keppnin var nokkuð jöfn, að því er
fram kemur á vef FSS.
Sigtryggur Kjartansson úr Heið-
arskóla í Keflavík varð hlutskarp-
astur af áttunda bekkjar nem-
endum, Davíð Hildiberg
Aðalsteinsson úr Heiðarskóla varð
annar og Sólveig Dröfn Jónsdóttir
úr Grunnskóla Grindavíkur þriðja.
Margrét Ingþórsdóttir úr Sand-
gerðisskóla sigraði í 9. bekk, Sara
Sigurðardóttir úr Grunnskóla
Grindavíkur varð í öðru sæti og
Sigurður Freyr Ástþórsson úr
Verðlaunaveiting: Verðlaunahafar í stærðfræðikeppni grunnskólanna á Suðurnesjum stilltu sér upp til mynda-
töku að lokinni verðlaunaveitingu ásamt fulltrúum Fjölbrautaskóla Suðurnesja og stuðningsfyrirtækja.
Hnífjafnt í stærðfræðikeppni
Garður | Kostnaður Sveitarfélagsins
Garðs við að uppfylla ákvæði reglu-
gerðar um hreinsun skólps og leiða
það á haf út er áætlaður 250 til 300
milljónir. Bæjarráð hefur samþykkt
að óska eftir heimild umhverfisráðu-
neytisins til að framkvæma þetta á
einfaldari hátt en það er talið kosta
30 til 35 milljónir kr.
Sveitarfélög á borð við Garð eiga
að hafa komið frárennslismálum sín-
um í lag fyrir lok árs 2005. Reglu-
gerðin kveður á um að hreinsa skuli
allt skólp með tveggja þrepa hreins-
un og leiða það 20 metra út fyrir
ströndina eða 5 metra niður fyrir
stórstraumsfjöru. Unnt er að sækja
um undanþágu þannig að skólp verði
grófhreinsað og leitt um langa útrás-
arleiðslu út í hafstrauma.
Byggð er dreifð í Garðinum og út-
rásir því margar og langt á milli
þeirra. Yrði því mjög kostnaðarsamt
að koma frárennslismálum í þetta
horf. Verkfræðistofa Suðurnesja
áætlar að kostnaður við fullhreinsun
yrði 250 til 300 milljónir kr. en kostn-
aður við undanþáguleiðina yrði 100
til 150 milljónir.
Mengun verður hverfandi
Bæjaryfirvöld fólu Verkfræðistof-
unni að gera tillögur um útrásarkerfi
sem hreinsi fjörur af aðskotahlutum
og tryggi að þynning mengunarefna
verði viðunandi, en með minni kostn-
aði. Fram kemur í skýrslu stofunnar
að Garður liggi að sjó þar sem haf-
straumar eru miklir og viðtaki
skólps því hagstæður og dreifing og
þynning mengunarefna mikil.
Bent er á að fiskvinnslan noti mik-
ið vatn og skili meginhluta þeirra líf-
rænu efna sem fari í frárennsliskerf-
ið. Áætlað er að frá fiskvinnslu-
fyrirtækjunum komi fimmfalt meira
magn lífrænna efna en frá íbúunum.
Þetta efni megi auðveldlega endur-
nýta.
Verkfræðistofan leggur til að fisk-
vinnslustöðvunum verði gert að
hreinsa skolvatnið áður en það fer í
fráveitukerfið. Settar verði upp rot-
þrær í stað útrása sem tengdar eru
við fá hús. Stærri útrásir verði lagð-
ar á þremur stöðum. Þar verði komið
fyrir síubrunnum þar sem allt skólp
verði grófsíað og útrásirnar fram-
lengdar þannig að endi nái niður á
tveggja metra dýpi undir meðal stór-
straumsfjöru.
Heildarkostnaður við þessa tillögu
er áætlaður 30 til 35 milljónir. Verk-
fræðingurinn metur það svo að
mengun af völdum frárennslis verði
hverfandi, verði ráðist í þessar fram-
kvæmdir. Hann bendir jafnframt á
að áfram verði mengun af völdum
rotnandi þara sem oft safnist á fjörur
á þessu svæði og valdi ef til vill meiri
óþægindum fyrir íbúa og gesti held-
ur en núverandi mengun frá skólpút-
rásum.
Bæjarráð hefur samþykkt að óska
eftir heimild umhverfisráðuneytisins
til að fara þessa leið. Í drögum að
þriggja ára áætlun sveitarfélagsins
Garðs er gert ráð fyrri að ráðist
verði í þessa framkvæmd á árunum
2006 og 2007.
Vilja fara nýja leið við hreinsun skólps
Brot af kostnaði
við fullhreinsun
00024í fyrra voru farnar
Vissir þú að...