Morgunblaðið - 30.03.2004, Side 21
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 21
VERKFRÆÐI – TÆKNIFRÆÐI
• Vél- og rafeindatæknifræði (mekatronik)
• Veikstraumstæknifræði
• Upplýsingatæknifræði (IT-dipl.ing)
• Tölvutæknifræði (data dipl.ing)
• Hönnunartæknifræði (interaktiv design dipl. ing)
• Véla- og rafeindaverkfræði (mekatronik)
• Aðfararnám
KYNNING Á NÁMI VIÐ SYDDANSK UNIVERSITET
SÖNDERBORG (ÁÐUR SÖNDERBORG TEKNIKUM)
VERÐUR Í VERKFRÆÐINGAHÚSINU ENGJATEIGI 9
ÞRIÐJUDAGINN 30. MARS NK. KL. 19.00
Neskaupstaður | Það er óhætt að segja að Neskaup-
staður hafi ekki verið þekktur fyrir að hlúa að gömlum
húsum sem varðveita sögu staðarins. Mörg hús hafa ver-
ið rifin í áranna rás og segja gárungarnir að það skipti
litlu þó að elsta húsið sé rifið, alltaf hafi eitthvert annað
hús orðið elsta húsið. Stöku hús hefur þó varðveist, m.a.
Lúðvíkshúsið svokallaða á Neseyrinni sem er bæj-
arprýði.
Undanfarið hefur orðið breyting á og með ein-
staklingsframtaki hafa tvö gömul hús verið endurbætt
og setja þau nú heilmikinn svip á miðbæ Neskaupstaðar.
Annað húsið er gamla Bakkabúðin sem lengi var í eigu
feðganna og kaupmannanna Björns Björnssonar eldri og
yngri. Bakkabúðin var farin að láta verulega á sjá en
með framtaki hjónanna Þorfinns Hermannssonar og Jó-
fríðar Gilsdóttur hefur húsið nú tekið stakkaskiptum og
fær senn það göfuga hlutverk að hýsa sportbar.
Hitt húsið er gamalt sjóhús í fjörunni neðan við kirkj-
una en það hefur nú verið endurbætt fyrir tilstilli feðg-
anna Ara Benediktssonar og Benedikts Sigurjónssonar.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Gömul hús fá nýtt líf: Fremra húsið er gamalt sjóhús, hið aftara gamla Bakkabúðin í Neskaupstað.
Gömul hús fá nýtt líf
Neskaupstaður | Á laug-
ardagskvöld fór fegurð-
arsamkeppni Austurlands
fram í Hótel Egilsbúð í
Neskaupstað. Sjö glæsi-
legar stúlkur tóku þátt í
keppninni að þessu sinni
og var það Jónína Brá
Árnadóttir, 18 ára
menntaskólamær frá Eg-
ilsstöðum, sem bar sigur
úr býtum. Jónína Brá var
jafnframt kosin Oroblu-
stúlkan og Ljósmyndafyr-
irsæta Austurlands.
Lilja Rós Aðalsteins-
dóttir, 22 ára há-
skólanemi frá Höfn, var
kjörin netstúlka Símans
og Hrafnhildur Ragn-
arsdóttir, 19 ára mennta-
skólamær frá Neskaup-
stað, kjörin vinsælasta
stúlkan.
Jónína Brá og Hrafn-
hildur verða fulltrúar
Austurlands í keppninni Ungfrú
Ísland í vor.
Það voru Guðrún Smáradóttir,
danskennari í Neskaupstað, og
Kolbrún Nanna Magnúsdóttir frá
Egilsstöðum sem sáu um skipulag
og framkvæmd keppninnar sem
var hin glæsilegasta.
Ungfrú Austurland krýnd í Egilsbúð
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Fulltrúar austfirskrar fegurðar: Jónína Brá
Árnadóttir og Hrafnhildur Ragnarsdóttir.
Jónína Brá fegurst
austfirskra fljóða
Neskaupstaður | Á föstudag veitti
starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað viðtöku nýjum maga-
og ristilspeglunartækjum af full-
komnustu gerð.
Það voru nokkur félagasamtök og
fyrirtæki í Fjarðabyggð sem sýndu
sjúkrahúsinu velvild sína í verki með
þessari höfðinglegu gjöf. Gefendur
eru Krabbameinsfélag Austfjarða,
samtök í Neskaupstað sem ekki vilja
láta nafns síns getið, Rauðakross-
deildir Neskaupstaðar, Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar, Sparisjóður Norð-
fjarðar, Eskja og Kvenfélag Reyð-
arfjarðar og höfðu Hollvinasamtök
Fjórðungssjúkrahússins umsjón
með söfnuninni og kaupum á tækj-
unum.
Að sögn Þóris Aðalsteinssonar,
rekstrarstjóra Fjórðungssjúkra-
hússins, er þetta stærsta gjöf sem
gefin hefur verið Fjórðungssjúkra-
húsinu. „Það er ánægjulegt að finna
þennan velvilja og liðsstyrk,“ sagði
Þórir þegar tækjunum var veitt við-
taka.
Að mati Jóns Sen, yfirlæknis
handlækningadeildar, er þetta nýja
tæki mikil framför og ekki hægt að
líkja getu þess saman við gamla tæk-
ið sem var komið til ára sinna.
Mikill vöxtur á liðnu ári
Starfsemi Fjórðungssjúkrahúss-
ins hefur verið í mikilli sókn undan-
farin ár og hefur hún aldrei verið
meiri en á síðasta ári. Aukning hefur
orðið á öllum sviðum, m.a. hefur
verkum á skurðstofu fjölgað, fæðing-
um á fæðingardeild hefur fjölgað,
rannsóknarstofunni hefur vaxið fisk-
ur um hrygg, sérfræðingar eru fleiri
og koma oftar svo eitthvað sé nefnt.
Í máli Björns Magnússonar, for-
stöðulæknis FSN, kom fram að nú
væri búið að ná hámarksnýtingu og
að ekki væri fyrirsjáanlega mikil
aukning á næsta ári miðað við núver-
andi mannskap.
Læknaskortur og uppgangur
Framundan er þó uppgangur í
starfseminni, en nú þegar er hafinn
undirbúningur að því að efla bráða-
þjónustu sjúkrahússins sem er mjög
mikilvægt, sérstaklega með þeim
auknu umsvifum sem fyrirsjáanleg
eru á Austurlandi á næstu árum.
Jafnframt þarf að bæta við læknum,
en erfitt hefur reynst að ráða lækna í
Fjarðabyggð. Þá verða endurbætur
á gamla enda Sjúkrahússins boðnar
út í sumar.
Auk þess að veita nýjum tækjum
viðtöku opnaði Stefán Þorleifsson,
fyrrum framkvæmdastjóri FSN og
félagi í Hollvinasamtökum FSN,
nýjan vef við sama tækifæri;
www.sjukrahusfsn.is. Vefurinn er
gjöf frá Hollvinasamtökunum.
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað fær ný speglunartæki
Stærsta gjöf sem
FSN hefur fengið
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Jón Sen, yfirlæknir handlækningadeildar FSN, sýndi gefendum og öðrum
gestum hvers nýja tækið er megnugt.
fórst þú með?
ferðir fyrir Vildarpunkta
icelandair.is/vildarklubbur