Morgunblaðið - 30.03.2004, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 23
AÐALBRANDARINN frá því að þú
fæddist hefur snúist um hvað þú ert
morgunsvæf. Þetta segi ég að þú
hafir frá pabba þínum, þú vaknar
ekki fyrr en um ellefu.
Sjálf hef ég alltaf verið morgun-
manneskja og hef aldrei þekkt það
að sofa lengi út eins og kallað er. Um
helgar hef ég frekar
verið farin fram úr
snemma, lagað kaffi
og lesið blöðin. Þetta
breyttist með þér. Allt
í einu er ég farin að
sofna seinna á kvöldin og sef bara
þar til þú vaknar. Þegar þú ert síðan
vöknuð gengur allt út á að þjónusta
þig þar til þú sofnar aftur. Skipta um
bleiu, gefa þér að drekka, baða þig
og klæða. Oft er ég því ekki komin á
fætur sjálf fyrr en um eða upp úr há-
degi. Þar sem þetta er nokkuð föst
dagskrá hjá okkur er fólk vinsam-
legast beðið um að hringja ekki í
okkur fyrr en eftir klukkan ellefu á
morgnana. Hvað þá að nokkur sé
velkominn í heimsókn fyrr en þá!
Auðvitað hefur þetta ýmiss konar
áhrif. Til dæmis þekkjum við það
ekki að fara á mömmumorgna í
kirkjunni okkar, enda byrja þeir
morgnar kl. 10. „Er þetta ekki bara
spurning um að mamman veki döm-
una?“ spurði presturinn okkar í
skírninni þegar þetta var eitthvað
rætt yfir kaffibollunum. „Jú, vænt-
anlega,“ svaraði ég og kímdi. Innst
inni vissi ég nefnilega að þetta er
ekki bara spurning um þig, ég er
sjálf ekki vöknuð klukkan 10!
Reyndar held ég því fram að þú
sofir meira á næturnar en ég. Annað
eyrað mitt er á „vaktinni“ og fyrstu
vikurnar þínar stóð ég mig oft að því
að athuga hvort þú andaðir ekki
örugglega. Þessa athugun fram-
kvæmi ég oft enn, geri það með því
að koma aðeins við þig þannig að þú
sýnir einhverja hreyfingu. Mágkona
mín sagði mér að hún gerði þetta
líka við sína dóttur, sem er ellefu
vikum eldri en þú. „Ég athuga hjart-
sláttinn,“ sagði hún mér, enda löngu
þekkt fyrirbæri að einhvers konar
athugun framkvæma víst flestar
mæður á nýfæddum börnum.
DAGBÓK MÓÐUR
Morgunsvæf
eins og pabbi
Meira á morgun.
ÁSTARHVÖTIN er lík hungurhvötinni; gömul og gróin í
taugakerfi mannsins. Það er a.m.k. niðurstaða dr. Helen
Fisher mannfræðings. Fisher hefur nú gefið út bók um vís-
indalegar niðurstöður sínar á rómantískri ást. Bókin heitir
Ástæða ástarinnar: Eðli og efnafræði rómantískrar ástar
(Why We Love: The Nature and Chemistry of Romantic
Love (Henry Holt & Company, 2004)).
Ástin er erfið viðfangs fyrir fræðimenn sem reyna að
hneppa hana í hugtök, en það vafðist ekki fyrir Helen Fish-
er. Hún setti sér það markmið að skilgreina ástina alveg
niður í smæstu sameindir og það gerir hún í bókinni.
Fisher rekur uppruna ástarinnar til sögu spendýra og
teflir fram boðefni eins og dópamíni í leit sinni. Hún skrifar
þessu til stuðnings að lyf eins og Prosac og Zoloft dragi úr
viðleitini manna til að stunda kynlíf, verða ástfanginn og
leita maka. Lyfin sljóvga ákveðnar tilfinningar en fólk í
djúpri ástarsorg sækist einmitt eftir því. Ef það heldur aft-
ur á móti áfram að taka þau eftir að sorgin er liðin hjá getur
það misst af nýjum elskendum.
„Fólk lokar á möguleg viðbrögð þegar draumamakinn
líður hjá ef það er á þessum lyfjum,“ skrifar höfundurinn og
að það sé of sljótt til að taka eftir tækifærunum. „Ástæðan
er falin í áhrifum lyfjanna á serótónín-efnaflæðið í heil-
anum.“
Fisher kemst að þessari niðurstöðu eftir langtímarann-
sókn á 40 einstaklingum sem voru annaðhvort ástfangnir
eða glímdu við ástarsorg eftir að hafa verið hafnað. Fisher
notað heilaskanna og segulómtæki til að fylgjast með áhrif-
um ástarinnar á heilann.
Niðurstöður sýndu að ástin „hitar“ ákveðin svæði heilans
meira en önnur – og af þeim ástæðum telur höfundurinn að
ástin sé fyrirbæri í sama flokki og hungrið: Frumhvöt.
Fisher veltir ýmsu fleiru fyrir sér í bókinni eins og t.d.
hvernig fólk nælir sér í maka, hvernig ástin þroskast, og
helst út hjónabandið eða deyr.
Fyrri bækur Helen Fisher heita: The First Sex, og The
Anatomy of Love.
TILFINNINGAR
Ástin í heilanum
Reuters
Ástin: Frumhvöt ekki síður en hungrið.
H
ugmyndaflugið fær svo
sannarlega notið sín í
smiðju dagþjónustu
fatlaðra við Gylfaflöt í
Grafarvogi, en þar er
unnið úr ýmsum efniviði, sem til fell-
ur í nágrenninu jafnt sem í nátt-
úrunni. Smiðjan er handverksher-
bergi dagþjónustunnar Gylfaflatar,
sem rekin er af Svæðisskrifstofu mál-
efna fatlaðra í Reykjavík og fyrst var
opnuð fyrir fjórum árum.
Gylfaflöt er dagþjónusta fyrir fötl-
uð ungmenni á aldrinum 16–25 ára.
Boðið er upp á heilsdags-
og hálfsdagspláss fyrir
allt að þrjátíu ungmenni í
einu. Skjólstæðingunum
er skipt í þrjá hópa. Í
tveimur þeirra eru ung-
menni með ólíkar fatl-
anir og í þeim þriðja
eru einhverfir
einstaklingar.
Um helmingur
ungmennanna,
sem sækja dag-
þjónustuna, búa í
heimahúsum, en
hin eru á sam-
býlum eða í sjálf-
stæðri búsetu.
Aðalmarkmið
Gylfaflatar er að
efla lífsleikni ung-
mennanna enda
eru kjörorðin: virðing, samvinna,
ábyrgð, starfsgleði og sjálfstæði.
„Við erum að stuðla að því að auka
líkamlegan og andlegan þroska, sjálf-
stæði og frumkvæði einstaklingsins,
viðhalda líkamlegri færni, auka færni
til samvinnu og félagslegrar getu og
efla sjálfsmynd og vitund ein-
staklingsins,“ segir Dagbjörg Bald-
ursdóttir, forstöðukona Gylfaflatar,
sem hafði starfað sem félagsráðgjafi í
Noregi um nokkurra ára skeið áður
en hún kom að Gylfaflöt.
Félagsleg samvinna
Á Gylfaflöt eru nítján
stöðugildi, en að sögn
Dagbjargar er þjónustu-
hópurinn breiður. „Hjá
okkur eru ungmenni
með ólíkar þarfir og
er lögð mikil
áhersla á sam-
vinnu og fé-
lagslega færni
auk ýmissa ann-
arra þátta. Þau, sem
þurfa á sjúkraþjálf-
un að halda, sækja
hana annað þar sem
hún er ekki í boði hjá
okkur.“
Auk Gylfaflatar
rekur svæðisskrif-
stofan dagþjónustu fyr-
ir fatlaða og vinnustofu fyrir
einhverfa í Iðjubergi í Reykjavík fyr-
ir þá sem komnir eru yfir 25 ára ald-
ur. Styrktarfélag vangefinna rekur
svo fleiri dagþjónustur og vinnustof-
ur í borginni.
„Starfsemi Gylfaflatar er byggð
upp svipað og í skólum. Við styðjumst
við stundatöflu og fylgjum fyrirfram
ákveðnum tímum. Í hverjum tíma eru
tvö til sex ungmenni og einn til fjórir
starfsmenn og ræðst stærð hópa af
getu einstaklinganna. Fjölbreytt og
þroskandi tilboð eru í gangi hverju
sinni, svo sem tölvutilboð, umræðu-
hópar, vinnuverkefni, tjáning, snyrt-
ing, íþróttir, skynörvun, málörvun,
handavinna, ræsting, eldhússtörf,
göngu-, hesta-, sund- og vettvangs-
ferðir. Auk þess erum við í samvinnu
við ungt fólk í Evrópu um ýmis sér-
verkefni,“ segir Dagbjörg og nefnir
að í tengslum við Evrópusamstarfið
hafi ungmennin á Gylfaflöt sameinast
um útgáfu ljóðabókar fyrir jólin sem
hafi að geyma upplifanir þeirra úr
náttúrunni. „Við fórum í nokkrar
ferðir í fyrrasumar í Heiðmörk,
Öskjuhlíð og Esjurætur til að hreinsa
rusl. Einnig fórum við að Sólheimum
í Grímsnesi og gróðursettum þar tré.
Krakkarnir voru svo beðnir um að
yrkja saman ljóð, sem lýst gæti upp-
lifunum þeirra. Ruslið var víðs fjarri í
kveðskapnum, en til urðu fjölmörg
falleg ljóð um náttúruna, sólina, gras-
ið, blómin, árstíðirnar og síðast en
ekki síst varð til ljóð um pöddurnar,
sem hér verður að lokum látið fylgja:
Pöddur eru litlar og stórar.
Sumar eru ljótar,
sumar lifa lengi og sumar lifa stutt.
Pöddur skríða út úr fjöllunum.
Sumar skríða út úr steinunum og sumar
skríða í rúmið.
Flöskupokar, kaffikönnuhettur, púðar og tréhús
eru meðal þeirra muna sem verða til í höndum and-
legra og líkamlegra fatlaðra einstaklinga, sem
sækja dagþjónustuna við Gylfaflöt. Jóhanna
Ingvarsdóttir fór í heimsókn.
Morgunblaðið/Eggert
Regboginn: Dagbjörg Baldursdóttir,
forstöðukona Gylfaflatar, stendur
hér við myndlistarverk, sem ung-
mennin unnu sameiginlega að.
Í Smiðjunni: Ásdís Ásgeirsdóttir saumar og Hlynur Steinarsson þæfir ull
undir handleiðslu Sigrúnar Hallgrímsdóttur og Hafdísar Sverrisdóttur.
join@mbl.is
FATLAÐIR|Vinna fjölbreytileg listaverk úr margskonar ólíkum efniviði
Lífsleikni í
hávegum höfð
Sköpunarverkin:
T.d. tækifæriskort,
tréhús og púðar.
DAGLEGT LÍF