Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 25
Listasafn Íslands kl. 12.10–
12.40 Rakel Pétursdóttir, deild-
arstjóri fræðsludeildar, verður
með leiðsögn um sýninguna Ís-
lensk myndlist 1900–1930. Sýn-
ingin fjallar um þann gróskutíma í
íslenskri myndlist sem hófst í byrj-
un 20. aldar.
Goethe-Zentrum, Laugavegi 18
kl. 20 Holly-Jane Rahlens les upp
úr bók sinni „Prinz William, Max-
imilian Minsky und ich“. Fyrir
bókina hreppti hún Þýsku ung-
lingabókaverðlaunin árið 2003. Áð-
ur hafði Rahlens skrifað skáldsög-
urnar „Becky Bernstein goes
Berlin“ og „Mazel Tov in Las
Vegas“.
„Þetta er háalvarleg, bráðfyndin,
afar vel sögð saga um það að verða
fullorðinn – sem höfðar jafnt til
þeirra sem eru orðnir fullorðnir og
þeirra sem eiga eftir að verða
það,“ segir í kynningu.
Höfundur bókarinnar, Holly-Jane
Rahlens, móðir átta ára sonar,
fæddist og ólst upp í New York.
Að loknu námi í leikhúsfræðum og
bókmenntum flutti hún til Berl-
ínar. Þar starfar
hún sem leik-
stjóri og rithöf-
undur í lausa-
mennsku og
jafnframt sem
þáttastjórnandi í
sjónvarpi.
Langholtskirkja
kl. 20 Söng-
sveitin Fílharm-
ónía endurtekur
tónleika sína frá því síðastliðinn
sunnudag.
Fyrra verkið sem flutt verður er
Dixit Dominus. Verkið er fyrir
fimmradda kór og fimm einsöngv-
ara ásamt strengjasveit. Síðara
verkið er Pákumessa, (Missa in
tempore belli).
Einsöngvarar eru Hlín Péturs-
dóttir, sópran, Xu Wen, sópran,
Sesselja Kristjánsdóttir, alt, Eyj-
ólfur Eyjólfsson, tenór og Davíð
Ólafsson, bassi. Stjórnandi er
Óliver Kentish.
Miðasala er í versluninni Tólf tón-
um, Skólavörðustíg 15, hjá kór-
félögum og við innganginn.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Davíð
Ólafsson
Á VEGUM Íþróttafræðamiðstöðv-
arinnar í Árósarháskóla var haldin
fyrir skemmstu málstofa með stuðn-
ingi danska menningarmálaráðu-
neytisins með yfirskriftinni Norræn-
ar bókmenntir um íþróttir og
líkamsmennt – þverfagleg sjónar-
horn. Þátttakendur voru um 20 frá
öllum Norðurlöndunum, auk eins frá
Bandaríkjunum. Fyrir Íslands hönd
voru Júlían M. D’Arcy frá Háskóla
Íslands og Guðmundur Sæmundsson
frá Kennaraháskóla Íslands á Laug-
arvatni. Júlían fjallaði í erindi sínu
m.a. um íþróttaupplifunina, þá al-
sælu sem íþróttamaðurinn upplifir
þegar honum tekst hvað best upp og
hvernig þessi upplifun birtist í bók-
menntum eða öðrum listformum og
mannlegt, heimspekilegt og fagur-
fræðilegt gildi hennar.
Guðmundur flutti erindi um
íþróttir í norrænum fornbókmennt-
um og helstu álitamál þeirra fræða
sem þörf væri að rannsaka betur, svo
sem gildi hetjuhugsjónar fornmanna
og áhrif hennar á íþróttaiðkun þeirra
sjálfra og norræna íþróttahugsjón
samtímans, þátttöku / þátttökuleysi
kvenna og helstu íþróttagreinar til
forna.
Þeir vinna nú að grein sem fjallar
um íþróttabókmenntir sem sérbók-
menntagrein, bæði í víðari merkingu
og í fornnorrænum og nútíma ís-
lenskum bókmenntum.
Íþróttabók-
menntir á
Norðurlöndum
Frelsarinn hinn lifandi Jesús Kristur
nefnist ný bók eftir Gunnar Dal. Bókin
fjallar um starfsár
Krists. Í frétta-
tilkynningu segir
að brugðið sé upp
nýju ljósi á sögu-
legar aðstæður
hins andlega
meistara og læri-
sveina hans og
róttækur boð-
skapur Guðs son-
ar dreginn upp. Í bókinni birtist m.a. í
fyrsta sinn á Íslandi upphafleg þýðing
Faðirvorsins.
Útgefandi er Lafleur útgáfan. Bókin
er 312 bls.
Trú
♦♦♦
Borgartúni 28, símar 520 7901/520 7900
www.ef.is
• Hagstætt verð