Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 27
Æ OFTAR láta sjúklingar þá
ósk í ljós að vera meðhöndlaðir á
„náttúrulegan hátt“. Hinn mikli
áhugi á náttúrulækningum sem
stöðugt nær meiri útbreiðslu hefur
hins vegar leitt til þess hin síðari
ár að alls kyns meðferðir hafa ver-
ið settar undir þeirra hatt án þess
að eiga þangað er-
indi. Afleiðingin hef-
ur aftur orðið sú að
hugtakið um nátt-
úrulækningar er
óljóst og hefur oft
valdið misskilningi.
Bæði smáskammta-
lækningar, antró-
pósófísk lækn-
isfræði, hinar
svokölluðu óhefð-
bundnu lækningar
sem og hluti estorik
hafa oft verið flokk-
uð undir nátt-
úrulækningar en það
er ekki rétt. Til
hinna hefðbundnu
náttúrulækninga má
nefna líföndun (kein
joga), meðferð sem
byggist á breyttu
mataræði sem mið-
ast við heilsu sjúk-
lingsins sem í hlut á
og handfjöll-
unarmeðferðir þar
sem mikil áhersla er
lögð á þekkingu á
líkamanum. Auk
þess má nefna ljósa-
meðferð og jurtalækningar. Það er
mjög mikilvægt fyrir leikmenn að
þekkja hvaða meðferðir eru skyn-
samlegar og læknisfræðilega
nauðsynlegar, meðal annars svo
þeir kasti ekki peningum á glæ.
Ef fólk lendir í því að eyða mikl-
um peningum án þess að fá neitt
út úr því hefur verið beitt óábyrg-
um aðferðum.
Hefðbundnar læknisaðferðir og
náttúrulækningar eru ekki í mót-
sögn hvorar við aðrar. Þvert á
móti geta aðferðirnar bætt hvor
aðra upp. Þess vegna er mikilvægt
að fara fyrst í læknisrannsókn og
fá greiningu á sjúkdóminum áður
en leitað er óhefðbundinna lækn-
inga.
Hin mikla list felst í því að
þekkja mörkin á milli læknisfræði
og náttúrulækninga, sem eru þau
að læknisfræði fæst við alvarlega
eða ólæknandi sjúkdóma en nátt-
úrulækningum má beita þegar um
minniháttar kvilla eða truflun á
líkamsstarfsemi er að ræða. Nátt-
úrulækningar geta gagnast vel til
dæmis ef sjúklingur
kvartar yfir verkjum
án þess að hægt sé að
greina ákveðinn sjúk-
dóm í einhverju líffæri.
Auk þess má lækna
vægan lasleika eins og
kvef með náttúrulækn-
ingum.
Til dæmis má ekki
nota handfjöll-
unarmeðferðir eins og
nudd af miklum krafti
ef um mikinn sársauka
er að ræða, það er
varasamt og getur gert
illt verra.
Þegar um lífs-
hættulega sjúkdóma er
að ræða eiga aðferðir
hinnar mjúku lækn-
isfræði ekki við. Það er
líka óviðeigandi og
jafnvel hættulegt þegar
meðferðaraðilar líta svo
á að einhver ein aðferð
sé sú eina rétta. Nátt-
úrulækningar verða
stöðugt að skoðast í
heildrænu meðferð-
arsamhengi. Úrslita-
atriðið hér er að hver
og einn meðferðaraðili verður að
þekkja sín takmörk, meira að
segja útlærður nuddari.
Margir hafa litla skoðum á
læknisfræði og velja helst þá að-
ferð þar sem ekkert er lagt upp úr
því að þeir sjálfir þurfi að taka
þátt í lækningaferlinu. Sjúklingar
sem fá meðhöndlun samkvæmt
náttúrulækningum hrökkva oft í
baklás þegar þeir sjá að þessar
aðferðir krefjast aga og virkni af
hálfu þeirra sjálfra. Þar má nefna
breytingar á mataræði, sjúkra-
þjálfun og einnig Ordnungs-
therapie eða heildræna meðferð
sem hefur unnið sér sess innan
náttúrulækninga. Hún gengur út á
það að fá einstaklinga til að koma
betra skipulagi á líf sitt, hreyfa
sig meira og slaka á, fara snemma
í rúmið, drekka áfengi í hófi og ef
mögulegt er að hætta að reykja.
Skipulagt líf sem hæfir lífshrynj-
andinni er skilyrði fyrir því að
náttúrulækningar, svo og aðrar
læknisfræðilegar aðferðir, beri ár-
angur. Náttúrulækningar krefjast
þáttöku og ábyrgðar sjúklingsins
og meiri þolinmæði af hans hálfu
en hefðbundin læknisfræði.
Elsta meðferðarformið –
Jurtalyflækningar
Jurtalyflækningar eru elsta nátt-
úrulækningameðferðin. Tveir
þriðju hlutar mannskynsins nota
jurtalyf (stundum kallað grasa-
lækningar). Þá er oft litið framhjá
því að hefðbundin læknisfræði
notar jurtalyf. Lækningamáttur
jurta er grunnur allrar lyfjaþróun-
ar. Látið samt ekki blekkjast til
að taka jurtalyf sem ekki fylgja
nægar skýringar.
Jurtalyf, eins og allar nátt-
túrulækningar, virka á þann hátt
að þau hjálpa líkamanum að tak-
ast sjálfur á við orsakir sjúkdóma
og sigrast á þeim.
Við getum einnig talið krydd til
lyfja, það vissu áar okkar og á
miðöldum gátu margir sem veikir
voru þakkað kryddkonunni ef þeir
læknuðust. Til dæmis getur einir
læknað hósta því hann er slímlos-
andi.
Hann örvar matarlystina, kem-
ur í veg fyrir magaverk og hefur
góð áhrif á blóðrásina. Annað
dæmi er paprika sem er næstum
undralyf. Hún örvar meltinguna,
er bólgueyðandi og kvalastillandi,
losar um stíflur í nefi, örvar blóð-
rás og einnig svitamyndun.
Líföndun er ekki það sama og
jóga. Hún er hins vegar sérstök
tegund meðferðar. Öndun er
ómeðvitað ferli. Með líföndun lær-
ir maður að endurheimta hina
eðlilegu öndun.
Það auðveldar manni að skynja
tilfinningar sínar. Með því að
finna hinn eðlilega öndunartakt er
mögulegt að ná aftur samhljómi
við lífið eins og það kviknaði í
brjósti manns við hinn fyrsta and-
ardrátt.
Hjálpaðu þér
sjálfur – þá verður
þér hjálpað
Birgitta Jónsdóttir Klasen
skrifar um náttúrulækningar
Birgitta
Jónsdóttir
’Náttúrulækn-ingar krefjast
þátttöku og
ábyrgðar sjúk-
lingsins og
meiri þolinmæði
af hans hálfu en
hefðbundin
læknisfræði. ‘
Höfundur er með BA-gráðu í nátt-
úrulækningum, svæðameðferð og sál-
fræðimeðferð og rekur eigin meðferð-
arstofu á Flughóteli í Keflavík.
SVÞ-SAMTÖK verslunar og
þjónustu hyggjast ekki hefja rit-
deilur við fram-
kvæmdastjóra Mast-
erCard-Kreditkorta
hf. þótt hann kunni
ekki að meta tilsögn í
háttvísi – góðu við-
skiptasiðferði eins og
það er helst nefnt
núna. Hann reynir að
snúa út úr þeim at-
hugasemdum sem
gerðar eru við miklar
hækkanir á gjaldskrá
fyrirtækis hans og
laumað inn án þess að
söluaðilum væri til-
kynnt um þær. Í
Morgunblaðinu laug-
ardaginn 27. mars sl.
segir hann það alrangt
að gjöldin á söluaðila
hafi hækkað verulega.
Hækkun á hámarks-
þóknun debetkorta-
færslna hinn 11. nóv-
ember sl. úr 110 kr. í
190 kr.(73%) og
18.mars sl. úr 190 kr. í
212 kr. (12%) telja
SVÞ verulega. Einnig
hækkun á lágmarks-
gjaldi úr 5 kr. í 7 kr.
(40%) Jafnframt
hækkun á álagi á út-
lend debetkort úr
0,25% í 0,50% (100%)og útlend
kreditkort úr 0,50% í 0,75% (50%).
Að kalla þetta ekki verulega
hækkun og finnast torskilið af
hverju landssamtök verslunar og
þjónustugreina, SVÞ, amist við að-
gerð sem hann telur réttlætismál
innbyrðis í hópi félagsmanna sam-
takanna er svo ósvífið að fá dæmi
finnast til samjöfnunar. Varðandi
síðara dæmið má benda á að
stærra greiðslukortafyrirtækið,
Visa, sem býr við sömu starfsskil-
yrði og er í eigu sömu aðila, inn-
heimtir ekki slíkt álag á þjónustu
við ferðamenn sem hingað koma.
Jafnframt hefur því
verið lýst yfir hjá
Visa, að ekki sé þörf
fyrir hækkun á há-
og lágmarksþóknun
debetkorta, m.a.
vegna hagræðingar
og hagkvæmni í kerf-
inu. Einn banki hefur
líka nýverið ákveðið
að lækka færslugjöld
korthafa debetkorta
sinna.
Það er ekki hygg-
inna manna háttur að
hreyta hnýfilyrðum í
þá sem af vinsemd í
garð fyrirtækis reyna
að leiða stjórnendur
þess af óheillabraut.
SVÞ og aðildarfyr-
irtæki þeirra þurfa
að eiga samskipti við
MasterCard-
Kreditkort hf. vegna
greiðslumiðlunarkerf-
isins og vilja að sjálf-
sögðu að þau séu
sem best og þurfi
ekki að rekast í gegn
um Samkeppn-
isstofnun eða álíka
eftirlitsaðila. Vonandi
átta menn sig á því
að heppilegast er í
viðskiptum að sýna viðskipta-
mönnum sínum eðlilega virðingu
og viðhafa þau vinnubrögð sem
samrýmast góðu viðskiptasiðferði.
Laumulegar gjaldskrárhækkanir
samrýmast ekki almennum við-
miðunum um góða viðskiptahætti.
SVÞ árétta athuga-
semdir við hátterni
MasterCard
Sigurður Jónsson
svarar Kreditkortum hf.
’Það er ekkihygginna
manna háttur
að hreyta hnýf-
ilyrðum í þá
sem af vinsemd
í garð fyrir-
tækis reyna að
leiða stjórn-
endur þess af
óheillabraut. ‘
Sigurður Jónsson
Höfundur er framkvæmdastjóri SVÞ
– Samtaka verslunar og þjónustu.
SÍÐASTA mánudag var haldinn
háskólafundur í Háskóla Íslands.
Fundinum var ætlað
að taka ákvörðun um
hvort óska á eftir
heimild til að inn-
heimta skólagjöld.
Þögnin í kringum
þetta mál hefur verið
þrúgandi. Einhverra
hluta vegna hefur lítil
sem engin umfjöllun
verið um þetta í fjöl-
miðlum og þetta hefur
farið alveg framhjá al-
mennri umræðu. Ég
verð að viðurkenna að
ég er fyrst núna að
gera mér grein fyrir
alvöru málsins. Ég
hef einfaldlega ekki
geta trúað því að
skólagjöld væru val-
möguleiki sem há-
skólasamfélagið íhug-
aði alvarlega.
Okkur er sagt að
fundarmenn hafi skipst til helm-
inga, með og á móti skólagjöldum.
Getur virkilega verið að innan
Háskóla Íslands sé stór hluti
kennara sem sér enga aðra lausn
á fjárhagsvandanum? Er há-
skólafólk kannski einfaldlega orðið
þreytt á endalausu peningasvelti
og hefur þannig verið pínt til að
fara fram á þessa heimild svo
stjórnvöld geti spilað
sig stikkfrí? Ef beiðni
um að fá að leggja á
skólagjöld kemur frá
stjórn Háskólans
auðveldar það stjórn-
málamönnum að taka
þá ákvörðun án þess
að þurfa sjálfir að
axla nokkra ábyrgð.
Á fundinum var því
frestað að taka
nokkra ákvörðun en í
staðinn var boðað til
nýs fundar eftir sex
vikur. Við andstæð-
ingar skólagjalda höf-
um verið alltof þögul.
Við höfum sofnað á
verðinum en fengið
sex vikna gálgafrest.
Þessar vikur þurfum
við að nýta vel og láta
í okkur heyra. Ekki
bara skólafólk heldur
allir sem láta sig velferð þjóð-
arinnar nokkru varða.
Hvað get ég gert?
Stefán Ágúst Hafsteinsson
skrifar um skólagjöld
Stefán Ágúst
Hafsteinsson
’Við andstæð-ingar skóla-
gjalda höfum
verið alltof
þögul.‘
Höfundur er fulltrúi hjá RÚV.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111