Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 39
möndlutré eða kirsuberjatré.
Við getum þó litið okkur nær til
að finna runna sem blómgast áður
en þeir laufgast. Flestar víðiteg-
undir blómgast fyrir laufgun. Þótt
hvert blóm sé ósköp lítið og óásjá-
legt þá eru þau verulegt skraut
þegar þau koma mörg saman í rekl-
um, sem eru oft eins og dúnhnoðrar
á greinunum þegar þeir eru að
springa út. Frjó-
hnappar karlreklanna
(því víðirinn er sér-
býlisplanta) eru
stundum í skærum lit-
um; ljósgulum eða
rauðum og það er
gaman að láta af-
skornar víðigreinar
minna sig á vorið,
jafnvel þótt úti sé
regn eða fjúk.
Í garðinum má líka
finna runna sem
blómgast áður en þeir
laufgast. Allra fyrst til
að blómstra er töfra-
tréð; Daphne mezer-
eum. Þótt runninn sé
lítill, mitt töfratré er
tæplega hálfur metri að hæð, þótt
það sé bráðum tvítugt, fer það alls
ekki framhjá neinum þegar það
blómstrar. Blómin eru hátt í 1 cm
að stærð, fjórskipt og það eru bik-
arblöðin sem eru skrautið því engin
eru krónublöðin. Blómin eru sterk-
rósrauð á litinn og þar sem þau
vaxa eins og í skrúfu upp eftir vaxt-
arsprota síðasta árs eru þau alveg
ótrúlega falleg, þetta er hreinasta
töfratré. Ilmurinn er mjög ljúfur og
væri sjálfsagt vinsælt ef hægt væri
að kaupa hann á flöskum, það væri
sjálfsagt sannkallaður töfrailmur.
Þegar líður á blómgunina fara blöð-
in að koma í ljós, fyrst sést ljós-
grænn blaðbrúskur á greinaendun-
um ofan við blómskrúðið og loks
verður runninn alþakinn grænum
NÚ FARA páskar í hönd, mesta
hátíð kristinnar trúar, hátíð sem er
full af fyrirheitum um von og upp-
risu. En páskar hafa líka veraldlega
tengingu; vorið er á næstu grösum,
jafnvel komið suður í Evrópu.
Margir þeir siðir, sem við tengjum
við páska, eru ættaðir frá öðrum
löndum. Páskaeggin ómissandi úr
skreyttu súkkulaði eiga rót sína að
rekja til skreyttra
hænueggja, en víða í
Evrópu var og jafnvel
er sá siður í heiðri
hafður að mála egg í
öllum regnbogans lit-
um fyrir þessa hátíð.
Það mun líka hafa
verið hluti af skatt-
greiðslum til léns-
herrans að færa hon-
um körfu af eggjum á
páskum. Litlu gulu
hænuungarnir, sem
lengi hafa skreytt
súkkulaðipáskaeggin,
minna okkur á þessi
tengsl. Það er erfitt
að sjá hvernig við eig-
um að tengja það nýj-
asta nýja í eggjaskrautinu – plast-
púkana, sem eru auglýstir hvað
mest – við sakleysislega hænuunga
en margt er sér til gamans gert,
einu sinni voru það strumpaegg,
sem seldust eins og heitar lummur.
En gróðurinn hefur líka sínar
tengingar við páskana. Þótt páska-
liljurnar fallegu séu ekki alltaf
blómstrandi á páskum – ég tók þó
inn fyrstu páskaliljurnar 20. mars í
ár – finnst mörgum tilheyra að taka
inn úr garðinum þótt ekki sé nema
birkigreinar til að láta þær laufgast
inni. Í blómaverslunum má fá
greinar af ýmsum trjátegundum
sem blómstra áður en þær laufgast
svo sem Forsythiu-greinar alþakt-
ar gulum blómum eða Prunus-teg-
undir með bleikum blómum, s.s. af
laufblöðum, sem minna mikið á lár-
viðarlauf. Í ágústmánuði verður
litla töfratréð aftur skrautlegt, þeg-
ar fagurrauð, glansandi berin
þroskast. Fuglar eru mjög sólgnir í
þessi ber og áður en við er litið eru
þeir búnir að hreinsa öll berin af
runnanum. Það er líka eins gott, því
ekki mega þau fara í barnamunna;
talið er að 12 ber séu nóg til að
drepa úlf og á sumum málum er
töfratréð kallað úlfabani. Þeir sem
prófað hafa segja að krakkar séu
skynugri en svo að þau muni borða
sér til óbóta af þessum berjum, þau
séu römm og bragðvond, en þar
sem lítil börn eru er best að taka
enga áhættu og leyfa berjunum
ekki að þroskast.
Daphne er allstór ættkvísl, sem
vex villt bæði í Evrópu og Asíu,
þetta eru nálægt því 70 tegundir
runna, sem sumir eru sígrænir, og
margir lágvaxnir og sóma sér þann-
ig vel í steinhæð eða blómabeði.
Nöfn á jurtum segja oft skemmti-
lega sögu. Daphne vísar til grísku
goðafræðinnar. Daphne var dís,
dóttir árguðsins. Appolló sonur
Seifs gat ekki séð neinn pilsfald í
friði frekar en karl faðir hans og
gerðist heldur nærgöngull við
Daphne. Til að losna við áreitnina
óskaði Daphne sér að breytast í lár-
viðartré og henni varð að ósk sinni.
Síðan er lárviðurinn tengdur App-
olló, guði tónlistar, söngs og ljóða
og hann gjarnan sýndur með lárvið-
arkrans um höfuð sér og listaskáld
jafnvel krýnd lárviðarsveig, lárvið-
arskáld. Seinna nafnið er ekki eins
rómantískt; mezereum er komið úr
persnesku og þýðir að drepa, vísar
til eiturverkunar plöntunnar.
Töfratréð, sem mér finnst svo
veikburða og varnarlaust þegar það
blómstrar, er alls ekki eins við-
kvæmt og ætla mætti. Það vex villt
í Suður-Noregi, alveg upp í 1250 m
hæð í Jötunheimum, og þrífst um
allt landið í görðum. Norðmenn
kalla það Tysbast, sem mætti út-
leggjast sem Týs-trefjar eða Týs-
fjötrar. Nú kemur norræna goða-
fræðin til sögunnar. Loki Laufeyj-
arson var talinn meðal goðanna
þótt hann væri jötnaættar. Hann
gerðist fóstbróðir Óðins og komst
þannig í goðahópinn. Loki var fríð-
ur sýnum em bragðvís og slævitur
og kom ásum oft í slæman bobba,
sem hann leysti þó oft úr sjálfur.
Kona Loka hét Sigyn og áttu þau
tvo syni. En Loki var ekki við eina
fjölina felldur því hann fæddi
Sleipni, hinn áttfætta hest Óðins,
og með tröllkonu eignaðist hann
Fenrisúlf, Miðgarðsorm og Hel,
heldur ófrýnilega þrenningu. Þegar
æsir höfðu fengið sig fullsadda á
brögðum Loka var hann loks tekinn
höndum og fjölskyldunni tvístrað.
Fenrisúlfur var alinn upp í Ásgarði
og gaf Týr honum að borða. Úlf-
urinn óx mjög hratt og spádómar
um að hann yrði ásum skeinuhætt-
ur hræddu þá svo að þeir reyndu að
fjötra úlfinn. Fyrst gerðu þeir all-
sterkan fjötur, Læðing, sem þeir
báðu úlfinn að reyna, en hann leyst-
ist úr Læðingi auðveldlega. Næst
gerðu þeir annan fjötur hálfu sterk-
ari og töldu úlfinn á að prófa hann.
Hann braust um hart og lamdi
fjötrinum við jörðu svo hann hrökk
í sundur; svo drap hann sig úr
Dróma. Nú fannst ásum nóg komið
og leituðu til dverga um að smíða
þriðja fjöturinn. Sá var gerður úr
sex hlutum; dyn kattarins, skeggi
konunnar, rótum bjargsins, sinum
bjarnarins, anda fisks og fugls
hráka. Þennan fjötur kölluðu þeir
Gleipni og sögðu að það yrði auð-
velt fyrir Fenrisúlf að slíta hann.
Úlfinum leist illa á, þar sem fjöt-
urinn var sléttur og blautur sem
silkiræma, og grunaði að brögð
væru í tafli, en féllst á að prófa ef
einhver legði hönd sína í munn
hans, meðan hann glímdi við fjöt-
urinn. Loks varð Týr til þess. Fjöt-
urinn harðnaði eftir því sem úlfur-
inn braust harðar um; þá hlógu allir
nema Týr, hann lét hönd sína.
Hvernig sem ég velti þessu fyrir
mér kem ég ekki litla töfratrénu
inn í söguna, nema ef vera skyldi að
fyrsti fjöturinn, Læðingur, hefði
verið úr barkartrefjunum, væri
þannig Týsbast, hver veit?
S.Hj.
Töfratré 15. mars 2004.
TÖFRATRÉ
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
508. þáttur
– Daphne mezereum
Toyota Land Cruiser árg. '97, ek.
228 þús. Til sölu Toyota Land
Cruiser 90 VX árg. '97, 8 manna,
ekinn 228 þús., vel með farinn,
góð þjónustubók, aukahl., drátt-
arkúla, cd og sportgrind. Verð
1.650 þús. Uppl. s. 867 2011.
Subaru Legacy Stw árg. '01, ek.
43 þús. km. 4WD, 2000cc, silfur-
grár, 1.830 þ. kr. Útvarp/geisla-
spilari, rafdr. rúður og útispeglar,
vökvastýri, ABS, samlæsingar,
sjálfskiptur, þjónustubók. Bílasala
Suðurlands, sími 480 8000.
Renault Megane Scenic, ek. 60
þús. km. Góður bíll, sjálfskiptur,
krókur, cd, nýtt púst, ný sumar-
og vetrardekk. S. 693 1701.
Mercedes Benz Sprinter, ek. 22
þ. km. Sem nýr. Sjálfsk. Klæddur,
einangraður. Tilvalinn húsbíll.
Sími 669 9838.
Mercedes Benz húsbíll,
árg. '63. 4x4, ökuhæfur.
Upplýsingar í síma 695 3600.
Kia Sorento TDI. árgerð 9/2002,
ekinn 32 þús., blár, 32" dekk, sjálf-
skiptur, rafmagn o.fl. Verð 3.170
þús. Ath. skipti á ódýrari.
Upplýsingar í síma 822 3001.
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun - alþrif.
Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22
sími 564 6415 - gsm. 661 9232.
Jeppapartasala Þórðar, Tangar-
höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum
okkur með varahluti í jeppa og
Subaru. Nýrifnir: Patrol '95,
Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol
'92, Legasy '92, og Vitara '91-'97
Gabríel höggdeyfar, sætaáklæði,
ökuljós, spindelkúlur, stýrisendar,
vatnsdælur, gormar, handbremsu-
barkar og drifliðshlífar.
GS varahlutir,
Bíldshöfða 14, sími 567 6744.
Aðalpartasalan
Sími 565 9700, Kaplahrauni 11.
Eigum varahluti í Hyundai, Honda,
Peugeot, Mazda , MMC, Opel o.fl.
Kaupum bíla til
niðurrifs.
31“ kr. 12.990 stgr.
33“ kr. 13.990 stgr.
35“ kr. 14.990 stgr.
Gerið verðsamanburð
Verðlækkun
á 38“
Mudder
jeppa-
dekkum
Aðeins kr. 34.965 stgr.
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ökukennsla - Akstursmat. Kenni
á Ford Mondeo. Aðstoð við end-
urnýjun ökuréttinda. Fagmennska
í fyrirrúmi. www.sveinningi.com
- Sveinn Ingi Lýðsson ökukennari,
KHÍ, s. 892 2860 og 586 1342.
Mega vinsælu íþrótta-
brjóstahaldararnir nýkomnir aft-
ur á súper verði kr. 1.995,-
Úrval páskabrjóstahaldara og
auðvitað ýmsar buxur í stíl
brjóstahaldarar kr. 1.995,-
buxur kr. 995,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 2070. Opið kl. 12-18
mán.-fös. og lau. kl. 11-14.
Húsf. Svarthömrum 38-46 augl.
eftir tilboðum í málun og viðgerðir
á sameign. Nánari uppl. fást hjá
gudlaug72@simnet.is og í síma
587 9093 á kvöldin.
Skóþurrkarinn, ómissandi á öll
heimili, sumarbústaði og leik-
skóla. Sýndu auglýsinguna og
fáðu 10% afslátt af ST2 þurrkar-
anum.
Expert, Skútuvogi 2.
Útsala - Útsala
Sængurfatnaður, handklæði
og leikföng.
Smáfólk, Ármúla 42.
Opið frá kl 11.00.
Sólarlandafarar - sólarlanda-
farar Sundbolir, bikiní, mikið úr-
val, stærðir 36-54. Meyjarnar,
Háaleitisbraut 68, s. 553 3305.
www.midlarinn.is
Hlutir tengdir bátum og smábát-
um. Net, teinar, vélar, drif, spil,
dælur, rúllur, kranar, skip og bát-
ar. Sími 892 0808.
midlarinn@midlarinn.is
Þarftu að auglýsa bílinn þinn?
Mundu tilboð til áskrifenda í Bíla-
blaðinu á miðvikudögum. Auglýs-
ing með mynd á kr. 995.
Pantanafrestur er til kl. 12 á
þriðjudögum.
Auglýsingadeild Morgunblaðsins,
sími 569 1111.
Netfang: augl@mbl.is