Morgunblaðið - 30.03.2004, Side 45
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 45
ÍSLENSKU landsliðsmennirnir
höfðu á orði við komuna til Albaníu
að KR-ingurinn Kristján Finnboga-
son væri líklega þekktasti leikmaður
íslenska landsliðsins í Albaníu enda
Kristján í fjórðu ferð sinni til Alban-
ía. Kristján varði mark U-21 árs
landsliðsins sem tapaði fyrir Albön-
um árið 1991. Árið 1993 lék hann
með ÍA í Evrópukeppninni og fyrir
tveimur árum lék hann með KR-ing-
um í undankeppni Meistaradeildar-
innar.
„Þetta er örugglega heimsmet.
Það hefur enginn útlendingur komið
oftar til Albaníu en ég,“ sagði Krist-
ján og glotti við þegar Morgunblaðið
spjallaði við hann eftir æfingu lands-
liðsins í Tirana í gær. Kristján er
aldurforsetinn í íslenska landsliðs-
hópnu. Hann verður 33 ára gamall í
maí en Kristján er í landsliðinu að
nýju eftir sex ára fjarveru en síðast
lék hann gegn Slóvenum á Kýpur ár-
ið 1998.
„Ég á enn eftir að vinna hérna í
Albaníu. Við gerðum jafntefli í U-21
árs leiknum en leikirnir með ÍA og
KR töpuðust báðir svo vonandi næ
ég að vera í sigurliði núna. Það er
mjög gaman að vera kominn í lands-
liðshópinn á nýjan leik. Valið kom
mér á óvart en vonandi stend ég und-
ir því. Ég á ekki von á öðru en að
Árni Gautur verði markvörður núm-
er eitt en ég verð honum til halds og
trausts og set í leiðinni smá þrýsting
á hann,“ sagði Kristján sem á 19
landsleiki að baki fyrir Ísland.
Fjórða ferð Kristjáns
Maður býst alltaf við einhverj-um örðugleikum í svona
ferðalögum en það sem kom mér
mest á óvart var
hversu illa austur-
ríska flugfélagið
stóð sig. Vissulega
hefðum við kosið að
fá allan hópinn á sama tíma en við
látum það ekkert slá okkur út af
laginu. Við bætum bara einni æf-
ingu við á morgun [í dag] og förum
yfir það sem við þurfum að fara yf-
ir,“ sagði Ásgeir við Morgunblaðið.
Tvö stór skörð voru höggvin í ís-
lenska liðið þegar fyrirliðinn Eiður
Smári Guðjohnsen og Hermann
Hreiðarsson urðu að afboða sig í
leikinn vegna meiðsla. Ásgeir segir
vissulega súrt að vera án þeirra en
hann vonar að það komi ekki að
sök annað kvöld.
„Það er ekkert við þessu að
gera. Eiður og Hermann eru báðir
meiddir en það verður bara til
þess að aðrir fá tækifæri til að
sanna sig og vonandi nýta þeir
það. Það fer ekkert úr skorðum í
okkar undirbúningi þó svo að Eið
og Hermann vanti. Við vitum ná-
kvæmlega hvað þeir geta og fjar-
vera þeirra gefur okkur einfald-
lega tækifæri til að prófa aðra
leikmenn. Þessi leikur er byrjunin
á undirbúningi liðsins fyrir und-
ankeppnina í haust og við tökum
þessum vináttuleikjum gegn Alb-
aníu og Lettlandi í næsta mánuði
fegins hendi. Það er mjög mik-
ilvægt fyrir liðið að fá verkefni og
það gerir okkur kleift að undirbúa
liðið eins vel og mögulegt er þegar
keppnin hefst í haust. Við sáum
það í leiknum við Mexíkó í vetur
að það eru margir strákar að
banka á dyrnar og þeir hafa sýnt
að það er treistandi á þá. Því er
mjög mikilvægt að hver einasti
leikmaður sem tekur þátt í þessum
verkefnum sýni sitt rétta andlit
því það eru margir sem bíða. Við
þurfum að nota svona leiki til að
prófa okkur áfram og skoða fleiri
leikmenn því við getum ekki alltaf
keyrt á sama mannskapnum,“ seg-
ir Ásgeir. Ásgeir segir leikinn við
Albani annað kvöld mjög góða
prófraun á íslenska liðið. Hann
segir að Albanir hafi sýnt það og
sannað á undanförnum árum að
þeir séu í mikilli sókn og gott
dæmi um það sé að þeir hafi ekki
tapað heimaleik í tæp þrjú ár.
„Við gerum okkur alveg grein
fyrir því að það verður við ramm-
an reip að draga. Albanska liðið er
mjög erfitt heim að sækja og í
þeirra liði eru margir leikmenn
sem spila í Þýskalandi, Belgíu og
Ítalíu. Albanía hefur tekið stórt
stökk fram á við í knattspyrnunni.
Hans Peter Briegel hefur náð að
búa til gott skipulag í sínu liði og
það ásamt léttleikandi leikmönnum
gerir það að verkum að Albanir
eru komnir með mjög frambæri-
legt lið sem getur unnið nánast
hvaða lið sem er á heimavelli. Alb-
anirnir hafa spilað leikkerfið 3:5:2.
Þeir eru líkamlega sterkir, spila
agaðan varnarleik og mesta breyt-
ingin hjá þeim er að hversu lið
þeirra er orðið skipulagt. Við verð-
um því að ná fram toppleik gegn
þeim ef okkur á að takast að ná
hagstæðum úrslitum.“
Ásgeir segir að það verði mjög
spennandi að sjá hvernig leik-
mönnunum sem spila á Englandi
tekst til og sérstaklega hjá þeim
sem mikið til hafa verið úti í kuld-
anum hjá sínum liðum í vetur.
„Þeir fá kærkomið tækifæri til að
sýna sig og ef þeir gera það sem
fyrir þá er lagt þá verð ég ánægð-
ur. Við munum nota leikinn gegn
Lettum í næsta mánuði til að
skoða fleiri leikmenn. Þá verða
deildirnar í Noregi og Svíþjóð
komnar af stað og þá ættu menn
almennt að vera í betra leikformi.“
Ásgeir segir að stefna hans og
Loga sé að bæta ofan á þann ár-
angur sem náðist í síðustu stór-
keppni en eins og menn muna áttu
Íslendingar möguleika á að kom-
ast í úrslitakeppni Evrópumótsins
allt fram á síðustu stundu eða fyrir
leikinn gegn Þjóðverjum í Ham-
borg sem tapaðist 3:0.
„Stefnan er að taka skrefið upp
á við og í versta falli að halda okk-
ur í þeim styrkleika sem við erum
í. Þetta kostar auðvitað heilmikla
vinnu en mér sýnst að leikmenn
séu almennt tilbúnir í að fórna sér
í verkefnið. Við erum í erfiðum
riðli í undankeppni HM en aðal-
atriðið að mínu mati er að hóp-
urinn verði samstilltur og að við
Logi finnum réttu blönduna í liðið.
Við höfum smátt og smátt verið að
taka framförum og með sama
hugsunarhætti og metnaði er ég
bjartsýnn á að við höldum áfram
að bæta okkur.“
Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari
um leikinn gegn Albönum annað kvöld
Menn fá
tækifæri til
að sanna sig
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
frá Tirana
Morgunblaðið/Kristinn
Þórður Guðjónsson verður fyrirliði íslenska landsliðsins í vináttulandsleiknum við Albana í
Tirana á morgun í sínum 50. landsleik sem jafnframt er hans fyrsti með fyrirliðabandið.
ÁSGEIR Sigurvinsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, segir að með
leiknum gegn Albönum í Tirana annað kvöld hefjist tímabil lands-
liðsins og undirbúningur fyrir undankeppni HM sem hefst í sumar.
Ásgeir reiknar með mjög erfiðum leik gegn Albönum sem hafa tekið
stórstígum framförum undir stjórn Þjóðverjans Hans Peter Briegel.
Ásgeir og Logi Ólafsson voru með fyrstu æfingu landsliðsins fyrir
leikinn gegn Albönum síðdegis í gær en aðeins tíu leikmenn úr 17
manna landsliðshópnum gátu tekið þátt í henni.
ÞÓRÐUR Guðjónsson leikur á
morgun sinn 50. landsleik þegar
Íslendingar mæta Albönum á Qe-
mal Stafa-leikvangnum í Tirana í
Albaníu. Að því tilefni mun Þórð-
ur bera fyrirliðabandið í fyrsta
sinn en Þórður, sem verður 31
árs gamall í haust, hóf feril sinn
með landsliðinu 1993. Þórður
tekur við fyrirliðabandinu í fjar-
veru Eiðs Smára Guðjohnsen og
Hermanns Hreiðarssonar, vara-
fyrirliða. Árni Gautur Arason og
Kristján Finnbogason eru þeir
einu í 17 manna hópnum sem
hafa verið fyrirliðar – Árni fjór-
um sinnum og Kristján einu
sinni. „Við getum vonandi fagn-
að þessum tímamótum Þórðar
með sigri. Þórður á það vel skilið
enda kom hann mjög sterkur inn
í hópinn aftur eftir að hafa dottið
út í tíma. Það er mjög gott að
vinna með honum og hann legg-
ur sig alltaf 100% fram,“ sagði
Ásgeir Sigurvinsson.
Þórður fyrirliði í 50. leik sínum
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu hóf í gær undirbúning sinn
fyrir leikinn gegn Albönum sem
fram í Tirana í Albaníu á morgun.
Ekki gekk þó þrautalaust fyrir sig
að fá allan hópinn á áfangastað.
Hann kom í fjórum áföngum. Sá
fyrsti, sem í voru ÓlafurBjarnason
og Kristján Sigurðsson, var kominn
til Tirana seint á sunnudagskvöld.
Eftir hádegi í gær komu Kristján
Finnbogason, Þórður Guðjónsson,
Arnar Þór Viðarsson, Pétur H.
Marteinsson, Indriði Sigurðsson,
Marel Baldvinsson og Veigar Páll
Gunnarsson. Gylfi Einarsson kom
frá Spáni þar sem hann var í æf-
ingaferð með Lilleström í gær-
kvöldi en síðasti hluti hópsins skil-
aði sér ekki fyrr en á tíunda
tímanum í gærkvöldi, þá komu Árni
G. Arason, Heiðar Helguson, Jó-
hannes K. Guðjónsson, Bjarni Guð-
jónsson, Brynjar B. Gunnarsson og
Ívar Ingimarsson. Síðasttaldi hóp-
urinn flaug frá London til Vín-
arborgar en þegar hann ætlaði að
skrá sig í flug frá Vín til Tirana fyr-
ir hádegi í gær var búið að ráðstafa
sætum þeirra og þar sem uppbókað
var með vél síðar um kvöldið var af-
ráðið að sexmenningarnir færu frá
Vín til Belgrad og þaðan til Tirana.
Þeir komu því ekki inn á hótelið í
Tirana fyrr en klukkan 22 á stað-
artíma í gær. Það voru því aðeins
tíu leikmenn sem gátu tekið þátt í
fyrstu æfingunni síðdegis í gær.
Það voru aðeins tíu á
fyrstu æfingunni í Tirana