Morgunblaðið - 30.03.2004, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 49
MICHAL Hvorecký býr í Brat-
islava, höfuðborg Slóvakíu sem eitt
sinn var í slagtogi við Tékkland
undir nafninu Tékkóslóvakía. Í
Bratislava er brakandi menningar-
líf, þar er sitthvað að gerast í tón-
list og bókmenntum og Michal á
einmitt hljómsveitaferil að baki og
hefur tekið þátt í að skipuleggja
tónlistarhátíðina Wilsonic Music
Festival. Strákur er dugnaðarfork-
ur, hefur gefið út þrjár bækur og
tilheyrir kynslóð yngstu rithöfunda
Slóvaka. Fyrsta bók hans var smá-
sagnasafnið Sterk hreinleikatilfinn-
ing (1998) en með næstu bók sló
hann í gegn, hún hét Veiðimenn &
safnarar (2001) og varð metsölubók
ársins í Slóvakíu á sviði skáldverka.
Tékknesk þýðing bókarinnar er ný-
lega komin út.
Svo var það í fyrra sem Michal
sendi frá sér bókina Posledný hit,
sem útleggst Síðasti smellurinn.
Söguhetjan er íslenskur plötusnúð-
ur sem er mótaður af borgarlífi
Reykjavíkur en fer víða og lendir í
hinum skrautlegustu ævintýrum.
Um hvað er sagan í stuttu máli?
„Aðalpersóna bókarinnar er
Alfred Raff, heimsþekktur íslensk-
ur tónlistarmaður og plötusnúður,
sem gerist meðlimur í strákahljóm-
sveit. En frami hans fer eiginlega
úr böndunum, hann flækir sig í
veröld móðursjúkra aðdáenda,
leyndardómum ruslmenningarinnar
og jafnvel gamaldags málum eins
og ást. Honum er rænt af hópi
hryðjuverkamanna sem beita aug-
lýsingaherferðum í stað sprengju-
hótana og hversdagslíf hans um-
breytist í furðulega háskaför
umhverfis heiminn, frá Reykjavík,
um Bratislava, til Bandaríkjanna
og Dubai. Þetta er mikil rússíbana-
reið um brjálaða veröld sem lýst er
með írónísku ívafi. Og allan tímann
bíður hann eftir því að lagið hans,
Lokasmellurinn, drynji í hátölurum
heimsins.“
Hvers vegna ákvaðstu að hafa
aðalpersónuna þína frá Íslandi?
„Ég hef ferðast mjög mikið en
hef því miður ekki komið til Ís-
lands ennþá. En svo langt sem
vitneskja mín nær, sýnist mér ýmis
líkindi með Bratislava og Reykja-
vík. Báðum stöðum er oft lýst sem
„minnstu höfuðborgum heims“ og
unga fólkið sem þar býr bæði elsk-
ar og hatar heimabæinn.
Hetjan mín er annars einungis
Íslendingur að upplagi en býr í
Mið-Evrópu og ferðast um allan
heim vegna tónlistarinnar. Í hvert
sinn sem mig vantaði stað-
fræðilegar upplýsingar
eða svör við spurn-
ingum um lífsstíl ungu
kynslóðarinnar á Ís-
landi, hafði ég einfald-
lega samband við vin
minn Herb Legowitz
[Magnús Guðmundsson]
úr Gus Gus, en honum
kynntist ég hér í Brat-
islava þegar ég skipu-
lagði framkomu þeirra
á Wilsonic Music
Festival.“
Hvernig ímyndarðu þér íslenskt
hversdagslíf?
„Í skáldsögunni vinn ég talsvert
með klisjuna um Ísland, ímyndina
sem fjölmiðlar alþjóðavæðing-
arinnar færa fólki. Það eru allir ís-
jakarnir, freðmýrarnar, endalausi
veturinn, besta „indie“-senan,
Kaffibarinn, Sigur Rós, áfengis-
orgíur og aðrir fáránlegir hlutir.
Ég þykist alls ekki vera
neinn innanbúðarmaður
á Íslandi, í bókinni. Þess
vegna gegna aðrir staðir
mikilvægara hlutverki í
ævintýrum hetjunnar,
svo sem Dubai í Samein-
uðu arabísku furstadæm-
unum, þar sem ég hef
sjálfur dvalið lengi og
þekki vel. En ég vonast
til þess að koma fyrr en
síðar til Íslands.“
Hvernig myndirðu lýsa lífsstíl
ungra Slóvaka? Og hvað einkennir
þína kynslóð rithöfunda?
„Landið okkar fer nú í gegnum
mikla umbrotatíma. Í maí göngum
við loksins í Evrópusambandið,
sem er mjög mikilvægt fyrir fram-
tíð Slóvakíu sem var um fjörutíu
ára skeið undir pólitískum þrýst-
ingi frá Rússlandi, alveg til 1989.
Við höfum nú tileinkað okkur lýð-
ræði, tjáningarfrelsi, ferðafrelsi og
flesta aðra kosti vestrænnar menn-
ingar. Að sjálfsögðu skapa umbæt-
urnar ýmiss konar vandræði í efna-
hagslífinu, en ég held að almennt
séð stefnum við í rétta átt.
Sem sjálfstæður rithöfundur,
blaðamaður og textahöfundur aug-
lýsinga finn ég endalausan inn-
blástur í Bratislava. Ég er fæddur
1976 og tilheyri kynslóð svonefndra
einstaklingshyggju-höfunda. Hér er
enginn skáldahreyfing eða fagur-
fræðilegur skóli, hver skrifar á sinn
hátt. Það eina sem við eigum sam-
eiginlegt er að ekkert okkar lifir af
skrifunum – það er vonlaust á
svona fámennum markaði. Í Sló-
vakíu búa ekki nema 6 milljónir
manna. En sambandið við lesendur
er ágætt, ég tek oft þátt í upp-
lestrum og umræðum um bæk-
urnar mínar.“
Hvernig viðtökur fékk Síðasti
smellurinn?
„Ég hef fengið mjög mismunandi
dóma fyrir allar bækurnar mínar.
Mjög góða eða mjög slæma – ekk-
ert þar á milli. Mér finnst það fínt
því það merkir að textarnir mínir
kalla á sterk viðbrögð. Og ég er
himinlifandi yfir þeirri miklu fjöl-
miðlaumfjöllun sem verkin mín
hafa fengið, ég bjóst aldrei við því
þegar ég byrjaði að vasast í bók-
menntum fyrir tólf árum. Mér
finnst alveg magnað að einhver
gangi inn í bókabúð og kaupi og
lesi bók eftir mig. Það er heiður
fyrir ungan höfund, ekki síst á okk-
ar tímum þegar hundruð nýrra
bóka koma út í hverri viku.“
Og næstu skref?
„Ég vinn að nýrri skáldsögu sem
ég vonast til þess að ljúka við áður
en árið er úti.“
Íslenski plötu-
snúðurinn
Alfreð? Einmitt
Ungur rithöfundur í Slóvakíu fékk skrýtna flugu í
höfuðið; að skrifa skáldsögu um íslenskan plötu-
snúð, án þess að hafa sjálfur til Íslands komið. Sig-
urbjörg Þrastardóttir spurði hvernig hefði gengið.
Bratislava-búinn Michal Hvorecký
hefur skrifað þrjár bækur.
Kápan á Síðasta smellinum.
Í skáldsögunni
vinn ég tals-
vert með klisj-
una um Ísland,
ímyndina sem
fjölmiðlar al-
þjóðavæðing-
arinnar færa
fólki.
V. Fellsmúla • S. 588 7332
Opi›: Mán. - föst. 9-18,
laugardaga 10-14
www.i-t.isÖ l l t i l bo› okkar e r hægt a› sko›a á : www. i - t . i s
Páskatilbo›
Sturtuklefar - Sturtuhorn - Ba›karshlífar
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
2
00
4-
11
WC me› stút í
vegg e›a gólf
Hör› seta og
festingar fylgja.
Ver› frá kr.
17.900,-
Sturtuhorn
65-80 sm.
75-90 sm.
Hvítt e›a króm
4-6 mm gler
Ver› frá
20.900,-
Ba›kars-
vængur
130x76
e›a 140x85 sm.
Öryggisgler.
Ver› frá
kr. 13.900,-
Heilir sturtuklefar í
horn
Öryggisgler,
segullæsing, sturtusett,
blöndunartæki, botn og
vatnslás.
70x70 sm.
Kr. 49.900,- stgr
80x80 sm.
Kr. 52.900,- stgr
75x90 sm.
Kr. 59.900,- stgr
90x90 sm.
Kr. 61.900,- stgr
Rúnna›
sturtuhorn
65-80 sm.
75-90 sm.
Hvítt e›a króm
4-6 mm gler
Ver› frá
37.950,-
Heilir rúnna›ir
sturtuklefar í horn
Öryggisgler,
segullæsing, sturtu-
sett, blöndunartæki,
botn og vatnslás.
80x80 sm.
Kr. 68.900,- stgr
90x90 sm.
Kr. 72.900,- stgr
Handlaugar í bor›
47x39
53x41, 56x47 sm.
Ver› frá 7.900,-
Handlaugar á vegg
45x35 sm, 50x24 sm
55x45 sm
Frá kr 3.250,-
Teka 2443
83x44 sm.
Kr 7.900,-
Stylo hitast‡r›
tæki fyrir sturtu e›a ba›.
Me› hita- og
vatnsöryggi.
Ver› frá
kr. 9.800,-