Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 51

Morgunblaðið - 30.03.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MARS 2004 51 www.laugarasbio.is Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16. Charlize Theron: fyrir besta leik í aðalhlutverki. Jack Black fer á kostum í geggjaðri grínmynd sem rokkar! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15 Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. (Píslarsaga Krists)  SV MblSkonrokk HP. Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Skonrokk Páskamynd fjölskyldunnar „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. MIKE MYERS Ekki eiga við hattinn hans. Kötturinn með hattinn Frábær mynd fyrir alla fjölskylduna. Byggð á hinni sígildu bók sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. Sýnd kl. 4.30. Íslenskt tal. Sýnd kl. 4. Ísl texti Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Besta frumsamda handrit www .regnboginn.is Sýnd kl. 5.40 og 8. HP. Kvikmyndir.com Ein umtalaðasta og aðsóknarmesta mynd allra tíma Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. (Píslarsaga Krists) Kvikmyndir.is  Skonrokk Páskamynd fjölskyldunnar „Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna“ Þ.Þ. Fbl. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.30. Með íslensku tali Sýnd kl. 10.10. Frábær gamanmynd frá leikstjóra There´s Something About Mary og Shallow Hal Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir þessa vikuna í Bæjar- bíói myndina Akahige (Rauðskeggur) eftir Akira Kuro- sawa frá 1965. Með Rauðskegg átti að verða til kvikmynd svo ómótstæðileg að enginn kæmist hjá að sjá hana. Mynd- in var lengur í töku en nokkur önnur japönsk mynd fram til þessa, Kurosawa veiktist tvisvar og aðalleikararnir urðu einnig veikir á upptökutímanum. Myndin segir frá lækni, Kyojo Niidé að nafni, oftast kallaður Rauðskeggur, sem tekur að sér ungan lækna- nema, Yasumoto. Yasumoto hafði búist við betri stöðu eft- ir námið auk þess sem honum finnst Rauðskeggur ósveigj- anlegur harðstjóri. Þegar fram líða stundir lærir Yasumoto að meta Rauðskegg að verðleikum og hvað það þýðir í raun og veru að vera læknir. Rauðskeggur Kurosawa Rauðskeggur verður sýndur í kvöld kl. 20 og á laugardag kl. 16. Miðaverð kr. 500. KVIKMYNDAKLÚBBUR Alliance française og Filmund- ur standa fyrir sýningum á myndinni Slæmt blóð (Mauvais sang) í Háskólabíói. Myndin er eftir leikstjórann Leos Car- ax og er frá árinu 1986. Í aðalhlutverkum eru Denis Lav- ant, Hans Mayer, Juliette Binoche og Michel Piccoli. „Í hræðilegu hitakófi sem stafar af plán- etunni Halley, kemur upp veirusýking í París sem hef- ur þær afleið- ingar fyrir íbúana að drepa þá sem elskast án þess að vera ástfangnir. Þá fara tvær óvinaklíkur að slást um veiruna sem veldur sýking- unni og hægt er að nota til að búa til mótefni og bjarga íbú- unum,“ segir í tilkynningu um myndina. Aðgangur er ókeypis fyrir fé- laga í Alliance française, sem sýna félagsskírteini og persónuskilríki við innganginn. Kvikmyndaklúbbur Alliance Hættulegir ástarleikir Juliette Binoche er á meðal þeirra sem leika aðalhlutverk í myndinni. Slæmt blóð er sýnd í Há- skólabíói í kvöld kl. 20, miðviku- dag kl. 22.30 og fimmtudag kl. 17.45. française og Filmundur Breski leikarinn SirPeter Ustinov erlátinn, 82 ára gam-all. Ustinov hlaut m.a. Óskarsverðlaunin fyrir kvikmyndaleik en á síðari ár- um lét hann einkum til sín taka í mannúðarmálum og var lengi sérlegur sendiherra UNICEF, barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Ustinov fæddist 16. apríl 1921 í Lundúnum. Hann var einkasonur rússneskrar lista- konu og blaðamanns. Ustinov sagðist einnig hafa sviss- neskt, eþíópískt, ítalskt og franskt blóð í æðum, allt nema enskt. Ustinov kom fyrst fram á leiksviði 19 ára gamall og lék eftir það í fjölda kvikmynda og leikrita. Hann lék m.a. spæjarann Hercule Poirot í nokkrum kvikmyndum en fékk tvívegis Ósk- arsverðlaun fyrir bestan leik í auka- hlutverki í myndunum Spartacus árið 1960 og Topkapi árið 1964. Að auki var hann tvisvar sinnum tilnefndur og hlaut fjölda annarra verðlauna, þ.m.t. Silf- urbjörninn í Berlín og Golden Globe- verðlaunin bandarísku. Ustinov lék í hátt í hundrað kvikmyndum og sjónvarpsþátt- um. Síðasta kvikmyndin sem hann lék í var þýska myndin Luther frá 2003 um líf Marteins Lúthers. Græskulaus og mannlegur Ustinov var þó ekki aðeins annálaður leikari, því hann var einnig virt leikrita- skáld, kvikmyndaleikstjóri, fræðimaður, sögumaður og eftirherma hin besta, eins og Matthías Johannessen þáverandi rit- stjóri Morgunblaðsins komst að er Ust- inov heimsótti Ísland í október árið 1969. Var hann kominn til að vera viðstaddur frumsýningu í Þjóðleikhúsinu á leikverki sínu Betur má ef duga skal, sem blaða- maður Morgunblaðsins Óli Tynes, er tók á móti Ustinov á flugvellinum, lýsti sem „nútímaleikriti“ um „hippía, eða kannske frekar um föður hippíanna“. Hafði Þjóð- leikhúsið þá áður sýnt tvö verk eftir Ust- inov, Romanoff og Júlíu árið 1957 og Endasprett árið 1966. Í lýsingu sinni á Ustinov, eft- ir að hafa fengið að „fljóta með honum og Þjóðleikhússtjóra“ Guðlaugi Rósinkranz til Þing- valla, segir Matthías þennan „þúsund þjala smið“ allan í frá- sögninni: „Sögupersónur hans lifna á vörum hans og þegar honum tekzt bezt upp verður frásögn hans að tragikómískum einþátt- ungi. Svo fellur tjaldið og Ust- inov verður hann sjálfur, hann einn …En hann leikur einnig það hlutverk vel – að vera hann sjálfur: hlýr, græskulaus og mannlegur; opinskár og það sem mestu máli skiptir, óspillt- ur.“ Það var mál manna sem til frásagnar voru af heimsókn þessari að fáir menn væru Ust- inov fyndnari. „Hann segir al- varlega fyndni og fyndna alvöru af svo mikilli list að helst minnir á Pál Ísólfsson, þegar honum tekst bezt upp,“ komst Matthías að orði enda liði honum greini- legt best þegar hann fengi aðra til að hlæja. Mikill málamaður Hann var og víðlesinn áhugamaður um heimsbókmenntir. Sagðist m.a. í viðtali við blaðamann Morgunblaðsins árið 1969 hafa lesið Laxness og haft gaman af þeirri lesningu. Þá mætti segja að Ustinov hafi talað tungum því hann mælti reiprennandi á þýsku, ensku, ítölsku, rússnesku og spænsku, auk þess sem hann gat bjargað sér á tyrknesku og grísku m.a. tungu- mála. Ustinov var þrígiftur og átti fjögur börn. Dótturina Tamöru með fyrstu eig- inkonu sinni, Isolde Denham, sem var hálfsystir Angelu Lansbury, og Pövlu, Andreu og Igor sem hann átti með ann- arri eiginkonu sinni Suzanne. Eftirlifandi eiginkona hans er Helene du Lau d Al- lemans’ en þau giftust 1972. Ustinov var maður orðheppinn og margt eftir honum haft, misjafnlega satt og rétt. Um söguna á hann að hafa sagt: „Það merkilega við mannkynssöguna er hversu aðlögunarhæf hún er.“ Óspilltur snillingur Ustinov var í essinu sínu er hann sagði sögur. Hér rifjar hann upp með tilþrifum í þýskum sjónvarpsþætti árið 2001. Morgunblaðið/Sveinn Þormóðsson Peter Ustinov við komuna til Íslands 1969 þegar hann var viðstaddur frum- sýningu á leikverki sínu Betur má ef duga skal í Þjóðleikhúsinu. skarpi@mbl.is Reuters Sir Peter Ustinov 1921–2004

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.