Pressan - 06.02.1992, Page 44
44
______FIMMTUDAGUR PRESSAN 6. FEBRÚAR 1992_
LÍFIÐ EFTIR VINNU
LIFÐI AF
OC KEMUR
HINÚAÐ
Við gátum ekki stillt okkur
um að birta þessa mynd af
Ginger Baker. Einu sinni þótti
nefnilega fullvíst að hann
myndi aldrei lifa að sjá árið
1970. Svo voru svakalegar
sukksögurnar af Ginger. Það
var fyrir aldarfjórðungi og nú
kvað hann vera á leiðinni til
íslands. En hver er þá Ginger?
Jú, einu sinni taldi hann sig
vera besta trommara í heimi
(og reyndar voru margir á
sama máli) og reifst um þá
nafnbót við djassarann Bud-
dy Rich. Á fyrstu árum rokks-
ins þótti ekki skipta miklu
máli að popparar væru góðir
á hljóðfæri; Ginger Baker og
meðspiiarar hans Eric Clap-
ton, Jack Bruce og Steve Win-
wood breyttu því.
Einar Guðmundsson er
nítján vetra nemi í Fjöl-
brautaskólanum í Garða-
bæ. Hann er formaður
Rökréttar, sem tengist
ekki búskap á nokkurn
hátt heldur sér um allt sem
viðkemur hinni miklu
mælskulist, þar sem þeir
Garðbæingar hafa staðið
framariega í flokki undan-
farin ár.
Hvað borðarðu í morg-
unmat? „Ég borða ávallt ser-
íos með íslenskri nýmjólk,
miklu af rúsínum og örlitlum
sykri. Rúsínurnar eru fyrir
meltinguna."
Hvar vildirðu helst búa
ef þú ættir þess ekki kost
að búa á íslandi? „í Noregi.
Hvernig stelpur eru
mest kynæsandi? „Ef þær
eru hreinar undir nöglunum
eru þær fínar.“
Hefurðu lesið biblíuna?
„Já já, að langmestum hluta."
Gætirðu hugsað þér að
reykja hass? „Nei.“
Syngurðu í baði? „Já,
mikið og aðallega Frank Sin-
atra-lög (My Way).
Hvaða rakspíra notarðu?
„Lacoste. Annars er ég mest
gefinn fyrir náttúrulega lík-
amslykt, að táfýlu undanskil-
inni.“
Ertu daðrari? „Það fer
bara eftir veðri."
Ef ég gæfi þér fyrir fegr-
unaraðgerð hvað mynd-
irðu láta iaga? „Ég hef alltaf
verið mjög sáttur við sjálfan
mig í einu og öllu.
Hvaða orð lýsir þér best?
„Hugljúfur."
Áttu þér eitthvert mottó í
lífinu? „Ást.“
UppÁ^Alds
Lúöuík Geirsson
formaður Blaðamannafélags
íslands
„Uppáhaldsrauöuínid mitt
erMarquis de Riscal. Eg uerö
einnig aö nefna gin og tónik,
því mér þykir sá drykkur
góöur."
Glnger Baker; taldi sig besta trommara í heimi.
LISTAVERK FYRIR SUBARU
1.8DL4WD WAOON
„Listaverk fyrir Subaru
1.8DL 4WD Wagon" er heitið
á. myndverki sem þessa dag-
ana er til sýnis á götum
Reykjavíkur. Það er reyndar
undir hælinn lagt hvort og
hvernig listunnendur geta
nálgast verkið, því það er
staðsett í geymsluhólfi Su-
baru-bifreiðar sem er í eigu
Helga Þorgils Friðjónssonar
og Möggu konu hans. Keyra
þau bílinn meðan á sýning-
unni stendur.
Höfundur þessa óvenjulega
listaverks heitir Ólafur Gísla-
son og er búsettur í Þýska-
landi. Ólafur er frekar stór-
tækur þessa dagana, því auk
hinnar hreyfanlegu sýningar
h'efar hann sett upp verk á
tveimur stöðum í bænum. í
Galleríi einn einn á Skóla-
vörðustíg sýnir hann „lista-
verk fyrir kaffi, öskubakka
o.fl.“ og er ekki laust við að
það minni á hversdagslífið á
íslenskum vinnustað. Þar
sýnir hann einnig ögn hefð-
bundnara verk (sem hlýtur
þó að teljast öfugmæli),
„staðlaðar myndstærðir"
sem hann kallar í sjö hlutum.
Og heima hjá Helga og
Möggu, þar sem heitir Galll-
erí Gangur á Rekagranda,
sýnir Ólafur „póstsendingu".
Það er gulur bylgjupappa-
kassi sem þýski pósturinn
notar, stærð nr. 2. Ferlið er
Hamborg-Reykjavík.
Listaverkið er í bíl Helga og Möggu.
CAMAN CAMAN CAMANLEIKHÚS
„Gamanleikhúsið er orðið
rúmlega sex ára og hefur sett
upp átta verk. Við höfum far-
ið á leiklistarhátíðir erlendis
og einnig staðið fyrir nám-
skeiðum hér heima á sviði
leiklistar," segir Magnús Geir
Þórdarson, leikari, mennta-
skólanemi, leikstjóri, stofn-
andi Gamanleikhússins og
hver veit hvað.
Magnús ánetjaðist Talíu
strax á unga aldri og síðan
hefur fátt annað komist að en
ieiklistin. Og það þarf engum
að koma á óvart svo sem að
hann stefnir á Leiklistarskól-
ann og síðar á nám í leik-
stjórn.
í upphafi var Gamanleik-
húsið leikfélag barna, en þau
börn hafa nú fullorðnast og
þá sér náttúrlega hver maður
að núna er Gamanleikhúsið
unglingaleikhús. Eða leikhús
ungs fólks eins og Magnús vill
kalla það. Magnús segir
metnaðinn hafa aukist með
árunum og viðfangsefnin
vera orðin annars eðlis. Nú
æfir unga fólkið af miklum
krafti Grænjaxla eftir Pétur
Gunnarsson og Spilverkið.
Frumsýning er áætluð þann
29. febrúar í Borgarleikhús-
inu, en Gamanleikhúsið er
fyrsta áhugaleikfélagið sem
þar sýnir.
Og það á ekkert að fara að
hætta þessu? „Nei nei nei, við
hættum aldrei," svarar Magn-
ús.
Spilverksins.
Harpa Björnsdóttir
myndlistarkona
PRESSAN fékk Hörpu til að
stilla upp kvöldverðarboð-
inu í þetta sinn. Hún hafði
eins og venja er frjálsar
hendur með val gesta og er
listi hennar á þennan veg:
Willian Heinesen
því ég held að hann hafi
verið svo skemmtilegur.
Tóta
því hún er svo mikill lífs-
kúnstner.
Guðbergur Bergsson
vegna samræðu- og frá-
sagnarsnilli.
Ragnhildur Vigfúsdóttir
(Dussa)
sem yrði fyrirtaks veislu-
stjóri og hefði ýmislegt að
segja við Guðberg.
Paul Klee
•til að örva samræður um
listina.
Ásta Ólafsdóttir
því hún segir svo góðar
sögur.
Sigurður Guðmundsson
því hann sér hlutina frá
óvenjulegu sjónarhorni og
myndi taka nikkuna með.
Sóley Eiríksdóttir
því hún er svo skemmti-
leg.
Sókrates
til að dansa við.
Þá er framumlan besta fyrsta
lielgi í mánuði á öllu árinu.
Kannanir mínar sýna að ein-
mitt nú, þegar jóla-Visa-
reikningamir koma, fari flest-
ir út að skemmta sér og séu
lausastir á fé. Það er eina
ráðið sem þessir grey Visa-
þrselar hafa til að að þreyja
þorrann; bseta aðeins við
skömmina. Og við hinir; við
njótum ávaxtanna. Maður
sest bara út í liom, setur upp
skilningsríkan svip og bt'ður
eftir að einhver þrsellinn birt-
ist. Þegar hann dæsir þá dæs-
ir maður líka. Þegar hann
bölvar jólunum þá bölvar
maður þeim einnig. Og áður
en varir er maður kominn
með glas í hönd.
KLASSÍKIN
• Myndir á sýningu. Hrun komm-
únismans i Sovét varð aldrei jafn
dramatískt og mikilúðlegt og mynd-
irnar á sýningu Mússorgskis, sem
var furðufugl, örlagafyllibytta og
mikið tónskáld þótt hann raunar
kynni svo litið í músík að önnur tón-
skáld urðu að útsetja verk hans fyrir
hljómsveit. Það er raunar allt í lagi,
útkoman verður mögnuð heild enda
hafa fáir kunnað betur að nota
hljómsveitina en Ravel sem utsetti
Myndir á sýningu. I kaupbæti á
EMMYLOU HARRIS
AT THE RHYMAN
Það er nokkurn veginn
hægt að treysta Emm-
ylou til að gera góða
hljómplötu. Þessi er
tekin upp með nýrri
hljómsveit og nýju
efni. Sýnir platan að
hún nýtur sín best á
hljómleikum. Tónlistin
er meira í blue-
grass-stíl en undanfar-
ið. Tekur lög eftir
Springsteen, Fogerty,
Clements og fleiri.
Fær 8 af 10 möguleg-
um.
þessum Sinfóníutónleikum nýtt
verk, Sinfónía nr. 2 eftir John
Speight. Fim. kl. 20.
• Margrét Boasdottir og Trió
Reykjavikur fara til Akureyrar um
helgina og halda tónleika i Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju, sem er ein-
hver glúrnasta bygging á íslandi og
minnir helst á álfabyggð. Þau leika
meðal annars verk eftir þann kvalda
snilling Shostakovich. Lau. kl. 77.
MYNDLIST
• Grétar Reynisson. Grétar er ein
skærasta stjarnan í hópi ungra
myndlistarmanna sem eru að kom-
ast á miðjan aldur. Hann er óhrædd-
ur við að prófa nýjan efnivið og finna
honum form sem passar. Hann er
lika svo snjall leikmyndasmiður að
hann á það til að bera leikstjóra sem
eru minni spámenn ofurliði. Grétar
opnar tiundu einkasýningu sína á
laugardag í Galleril G15 á Skóla-
vóröustíg og sýnir teikningar unnar
á þessu ári, aðallega með blýantl og
kaffi (svo) á pappír.
• Edvard Munch. Sjálfsmynd með
beini. Sjálfsmynd með sigarettu.
Veika stúlkan. Kossinn. Kvöld
(þunglyndi). Aðdráttarafl. Þetta eru
nöfn nokkurra þeirra grafíkmynda
eftir Munch sem Listasafn islands
byrjar að sýna á laugardag. Menn
skyldu semsagt ekki búast við nein-
um gleðilátum. En seiðmagnið, dul-
úðin, lífsangistin — að þvílíku getur
maður gengið vísu hjá þessum
mikla listamanni.
• Ingibjörg Eyþórsdóttir. Myndirn-
ar minna dálítið á Georg Guðna,
mínus mystíkina. Samt er sýningin
vel þess virði að henni sé gaumur
gefinn, líklega er þarna visirað meiri
afrekum á listabrautinni. i Gallerí
Nýhöfn, en allt búið eftir helgi.
ÓKEYPIS
• Vaxmyndasafnið. Þjóöminja-
safnið hefur loksins dustað rykið af
LÁRETT: 1 hranalega 6 fínn 11 aur 12 dund 13 áfjáða 15 kóng 17
eiri 18 berji 20 muldi 21 fyrirgefa 23 harmur 24 tala 25 hlutdeild 27
ónytjungur 28 spjaldið 29 rusl 32 blað 36 kramur 37 vex 39 stelpa
40 kista 41 galdurs 43 eyðing 44 krankur 46 stilli 48 svipuhögg 49
áhugi 50 lúsarlegri 51 myrkrinu.
LÓÐRÉTT: 1 ídýfuna 2 skip 3 gröf 4 uppspretta 5 stútskál 6 grátur
7 heyúrgangi 8 frjóangi 9 ærslast 10 vitskert 14 truflun 16 athuga-
semd 19 drollari 22 pallur 24 skammir 26 leðja 27 mjöll 29 fjárleit
30 sárakanna 31 hreinsitæki 33 drap 34 frumeind 35 kroppinu 37
farsæld 38 óttinn 41 skjótur 42 skóbotn 45 lykt 47 byrðingur.