Pressan - 12.03.1992, Page 18

Pressan - 12.03.1992, Page 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992 M E W N * Islenski gagnagrunnurinn Hörður Sigurgestsson / lagi á meðan hann syngur ekki á aðalfundum Það hefur verið sagt að spár Þjóðhagsstofnunar séu brilljant, — það þurfi bara að finna þjóð sem þær passi við. Nú er óska- bam þjóðarinnar, Eimskip, kom- ið í svipaða stöðu. Það þarf að finna sér þjóð sem hæfir stærð þess og stórhug. Bamið er vaxið þjóðinni yfir höfuð. A sama hátt og hugur unglingsins leitar æ meira út fyr- ir heimilið eftir því sem tognar úr honum er Eimskip farið að leita sér að nýjum og stærri heima- „Hörður vinnur við að hugsa og það er ekki hœgt að hugsa alltaf um það sama. Hann gœti allt eins verið enn niðri í fjármála- ráðuneyti. “ mörkuðum. Áður en þjóðin veit af mun sjást æ minna af baminu og einn daginn áttar hún sig á að það lætur bara sjá sig á stórhátíð- um; það rétt lítur inn, er með hugann við annað og er rokið í burtu. Þannig hafa kálfar alltaf launað ofeldið og þannig munu þeir sjálfsagt halda áffam að launa það. Þegar allt gengur í haginn vilja þeir hlaupa af sér homin og lifa eigin lífi; þegar illa gengur kemur vanalega í ljós að þeir hafa veðsett hús foreldra sinna. Þá koma kálfamir heim og kallast týndir sauðir og krefjast þess að slátrað sé kálfi þeim til heiðurs. Síðast hét sauðurinn Hafskip og kálfurinn Utvegsbankinn. Nú ætla Hörður Sigurgests- son og Eimskip að reyna fyrir sér. Þetta er eins og í ævintýmn- um, nema hvað söguþráðurinn er á haus. I þeim fór stóri bróðurinn alltaf á undan út í heim. Auðvitað er það skiljanlegt að Hörður sé orðinn hundleiður á að tuðrast þetta á íslenskum heimamarkaði. Það er í sjálfu sér voða gaman að græða 300 millj- ónir á einu ári en það verður hversdagslegt til lengdar. Það em takmörk fyrir því hvað hægt er að heimta há flutningsgjöld undir komflexpakkann til Is- lands. Það em því ekki miklar líkur til að þessar 300 milljónir verði 500 eða 1.000 ef engir em til að borga nema Islendingar. Og hvað á Hörður líka að gera á daginn annað en að teygja sig inn á annarra þjóða heima- markaði? Eftir að hann kom öll- um daglegum verkefnum yfir á ffamkvæmdastjórann hefúr hann stokkað Eimskip upp átta sinn- um og stjómað með öllum mögulegum og ómögulegum stjómunaraðferðum. Það getur líka verið leiðinlegt til lengdar. Hörður vinnur við að hugsa og það er ekki hægt að hugsa alltaf um það sama. Hann gæti allt eins verið enn niðri í fjármálaráðu- neyti. Þess vegna er Hörður farinn að hugsa um nýja markaði og þess vegna líður Herði betur í vinnunni. Það er því allt í besta lagi ef hann bara heldur áfram að láta hluthafana fá milljónimar sínar og ef honum fer ekki að líða jafn rosalega vel og Björg- ólfi Guðmundssyni á sínum tíma. Þetta er allt í lagi þangað til Hörður fer að syngja á aðalfund- um. Ef hann tekur upp á því er fjandinn laus. Þá er best að selja Landsbankann í hvelli til að bjarga honum frá slátraranum. ÁS Síðasta laugardag var íslenski gagnagmnnurinn boðinn upp á nauðungaruppboði borgarfóg- etaembættisins. Það var að kröfu ríkissjóðs sem á sínum tíma tók veð í gagnagrunninum fyrir 25 milljóna króna söluskattsskuld Svarts á hvítu, en Islenski gagna- gmnnurinn hf., útgefandi skuldabréfsins, var dótturfyrir- tæki þess. Var bréfið gefið út um áramótin 1988—'89. Þetta var ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi fjármálaráðherra, en flokks- bræður hans stjómuðu Svörtu á hvítu. Er ljóst að ríkissjóður hef- ur þar með tapað kröfu sinni. Samkvæmt lýsingum sjónar- votta á uppboðinu vakti það nokkra kátínu þegar Jónas Gúst- afsson borgarfógeti bauð gagna- gmnninn upp. Jónas veifaði ein- hverju blaði þar sem kom fram lýsing á því sem verið væri að bjóða upp. Var íyrsta tilboð upp á 1.000 krónur og orsakaði það hlátur meðal uppboðsgesta. Næst vom boðnar 5.000 krónur en síðan kom tilboð upp á 40.000 krónur. Þá bauð Ingólfur Friðjónsson héraðsdómslög- maður 100.000 krónur fyrir hönd ríkissjóðs og var sleginn gripurinn. Eftir því sem komist verður næst veit enginn hvað á að gera við gagnagmnninn, en íyrstu hugmyndir em að gefa hann Há- skóla Islands. Það er því spum- ing af hverju ríkissjóður var að eyða 100.000 kallinum? Ólafur Ragnar Grímsson: Gagnagrunnurinn, sem hann samþykkti sem veö fyrir 25 milljóna króna sölu- skattsskuld flokksbræöra sinna, var sleginn rfkissjóöi á 100.000 krónur. Þaö var reyndar langhæsta tilboöiö f grunninn. Eyjólfur Konráö Jónsson. Hann er í andstöðu viö aöra stjórnendur ísnó um hvaö gera á til aö bjarga fyrirtækinu. Eyjólfur Konrái berst vii njaldbrot Fiskeldisíyrirtækið ísnó á í vemlegum rekstrarerfiðleikum þessa dagana. Eyjólfur Konráð Jónsson stjómarformaður sagði það rétt að staða fyrirtækisins væri erfið, hins vegar væri hann jtess fullviss að það tækist að bjarga því ffá gjaldþroti. Sem dæmi um stöðu fyrirtæk- isins má nefna að Isnó hefur ekki getað greitt starfsmönnum nema lítinn hluta þeirra launa sem þeir eiga inni frá áramótum. Eyjólfúr Konráð sagði það slæmt að geta ekki greitt fólkinu það sem það ætti inni. Búið væri að greiða hluta af launum frá áramótum og hann gerði sér einnig vonir um að geta greitt það sem á vantaði innan fárra daga. Eyjólfúr Konráð sagði að sem stendur væm starfsmenn fá- ir en að þeim fjölgaði á næstunni þar sem brátt þyrfti að slátra um eitt hundrað tonnum af fiski. Óeining er innan stjómar fyr- irtækisins um hvað gera á til að leysa vandann. Ef ekki verður gripið til ráðstafana, greiðslu- stöðvunar eða nauðarsamninga, er hætt við að starfsemi fyrirtæk- isins stöðvist. Eyjólfur Konráð hefúr verið manna mest á móti því að leitað verði eftir greiðslu- stöðvun eða reynt að fá kröfú- hafa til að falla frá hluta [reirra 500 milljóna króna sem ísnó skuldar. Undantekning þar á er að stjómendur ísnó hafa leitað til opinberra sjóða um skuldbreyt- ingu. Friðrik Sigurðsson fram- kvæmdastjóri lætur af störfúm hjá Isnó um næstu mánaðamót og tekur við starfi ffamkvæmda- stjóra Kísilgúrverksmiðjunnar við Mývam. Eigendur Bors hf., Bygginga og ráðgjafar Ákærðir fyrir að stela söluskatti Sakadómur Reykjavíkur hef- ur til meðferðar mál ákæmvalds- ins á hendur Sveini Agli Úlfars- syni og Bimi Jóhanni Jóhanns- syni vegna meintra undanskota frá söluskatti. Þeir félagar ráku fyrirtækið Bor hf., Byggingar og ráðgjöf öðm nafni, sem nú er gjaldþrota. Engar eignir fundust í þrotabúi Bors hf. en kröfumar sem lýst var í búið voru samtals rétt tæpar sjötíu milljónir króna. Bor hf. var úrskurðað gjald- þrota í febrúar 1989. Ekki var skipaður bústjóri yfir búinu. Skiptaráðandi tók aðeins afstöðu til þriggja launakrafna, sem sam- tals námu 820 þúsund krónum. Ekki þótti ástæða til að taka afstöðu til annarra krafna þar sem sýnt var að engar eignir vom til á móti þessum háum kröfum. Ríkissaksóknari höfðaði mál á hendur Sveini Agli Úlfarssyni og Bimi Jóhanni Jóhannssyni, eigendum Bors hf., með ákæm sem gefin var út í desember 1991. Búið er að birta þeim ákæmna í málinu. 1 henni em þeir sakaðir um að hafa dregið sér rúmar sjö milljónir af sölu- skatti sem þeir innheimtu á ámn- um 1986 og 1987. Málið er nú til meðferðar í Sakadómi Reykjavíkur. Eigin- leg dómsmeðferð er ekki hafin og ekki hægt að búast við dómi fyn en með vorinu. Erfitt er að segja til um rétt- mæti allra krafnanna þar sem ekki var tekin afstaða nema til sáralítils hluta þeirra, eða ein- ungis til forgangskraína eins og áður sagði. Sem dæmi má nefna að tollstjórinn lýsti 20 milljóna króna kröfu í búið og er sölu- skatturinn sem ákært er vegna hluti af kröfu tollstjóra. 20 millj- óna króna krafan er að hluta til áætlun og þar sem ekki var tekin afstaða til allra krafna, eins og áður sagði, er óvíst hversu mikill hluti af kröfu tollstjóra var raun- vemlegur. Ekki var gengið frá gjald- þrotaskiptunum fyrr en í ljós kom hvað fengist út úr við- skiptasamningum sem Bor hf. halði gert. Það fór með þá eins og reiknað haíði verið með; ekk- ert fékkst út úr þeim sem styrkti stöðu þrotabús Bors hf. Sveinn Egill Úlfarsson. Hann var annar eigenda Bors hf. Eigendurnir hafa veriö ákæröir fyrir aö skila ekki söluskatfi. Fyrirtækiö er gjaldþrota. Kröfurnar voru 70 milljónir króna en engar eignir voru í búinu.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.