Pressan - 12.03.1992, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992
29
K A R L A R
HINN
KÆR-
LEIKSRÍKI
06 VIÐ-
KVÆMI
MJÚKI
MAÐUR
Hinn kærleiksríki og viðkvæmi
mjúki maðurer á undanhaldi fyrir nýrri
ímynd. Karlmaðurinn nú sýnir á sér
ólíkar hliðar og bregður sér í ýmissa
kvikinda líki, ef honum sýnist svo. Það
ræðst þó af félagsskapnum hverju
sinni. Með konum er hann blíður og
ástúðlegur, með strákunum villtur og
kærulaus. Hann er kameljón tíunda ára-
tugarins.
Þessi nýja ímynd má teljast fáguð út-
gáfa af þeirri gömlu; harða naglanum
sem lét sér fátt fyrir brjósti brenna.
Karlmennskan er aftur komin í fram-
sætið og ef til vill var mjúki maðurinn
aldrei til, nema heist í auglýsingum og
tálvonum kvenna...
6001R
5IOIR,
MENNIN6
06 LÍKA
MENNT
Til frekari glöggvunar má skoða
nýja sveininn nánar. en hann er á þrí-
tugsaldri. menningariega sinnaður og
vel menntaður. Hann er meðvitaður um
allar helsui kurteisisreglur og ber merki
þess að fylgjast vel með sveiflum
tísku- og auglýsingaheimsins. Orð sín
velur hann af nákvæmni og varar til
dæmis áheyrendur sína við áður en
hann lætur dónabrandarana íjúka. Nýi
maðurinn er hins vegar þroskaðri en sá
gamli og að sama skapi skemmtilegri
en hinn mjúki kynbróðir hans. Sá gat
nú alla drepið úr leiðindum...
í MÓO AÐ
OREKKA
SÆTTVÍN
Ef þú vilt kenna þig við nýja mann-
inn verðurðu að kunna ýmislegt fyrir
þér. Það að kunna með vín að fara er
mikilvægt. sérstaklega með kvenfólk-
inu — kannski síður með strákunum.
Nú er til dæmis ..í móð'' að drekka sætt
\ ín og það þykir betra en áður. Drekktu
það þó ekk'i með eftirréttinum. þá
færðu of stóran skammt af sykri. Betfa
er að neyta þess með kiydduðum mat
og ostum...
Gleraugnamiðstöðin
Laugavegi 24 - Sími 20800 & 22702
ÚTI AO
VERA
FORM-
LE6UR
Tískuheimurinn fylgir sveiflum eftir-
spumar og stíllinn hefur aldrei verið
þægilegri en nú. Það er ,.úti“ að vera
formlega klæddur, línumar eru einfald-
ar, stílhreinar og léttar. Fáar afsakanir
em fyrir notkun hefðbundins jakkafatn-
aðar og skyrtur ásamt viðeigandi háls-
taui fá að Ijúka fyrir bolum og afslapp-
aðri stíl. Það er líka leyfílegt að vera
frumlegur í litavali; köflótt, röndótt.
doppótt. Allt þetta og meira til...
EI6IN
5TÍLL
Reyndu að finna þinn eigin stíl.
Vaxtarlag hefur mikið að segja en per-
sónuleikinn ekkert síður. Það er þó
regla að feitlögnum mönnum fer bctur
að vera í laussniðnum buxum og
grönnum í þrengra sniði. Varastu að
vera í of stuttum buxum en í guðanna
bænum hafðu þær ekki of síðar heldur.
Almennt séð mega víðar buxur vera
síðari en þröngar. Nú er í tfsku að vera
Franski fatahönnuðurinn Jean Paul
Gaultier hefur ekki farið troðnar slóðir í
stíl sínum. Hann hefur gert að þjóni
sínum klæði sem inniheldur efnið
lycra. Það gerir föt teygjanleg og sló í
gegn í sportfataiðnaði á síðasta ártug.
Gaultier notar þetta efni í þröngar bux-
ur fyrir karlmenn, en hefur reynst erfltt
að sannfæra þá um ágæti þeirra. Seint á
átjándu öldinni taldist slík flík hins
vegar til hinnar mestu tísku á Englandi,
en var þá saumuð úr ullarefnum. Bux-
umar þóttu þó sýna helst til mikið og
fengu þarlendar meyjar til að roðna...
afslappaður. Hættu því að streSsa þig á
því hvernig öðrum finnst þú líta út.
Notaðu sjálfstæðið, við lifúm á „vertu
þú sjálfur“-tímum...
FRETTIR
AF
6AULTIER