Pressan - 12.03.1992, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 12. MARS 1992
31
Um
ÍMARK
1 síðasta tölublaði Pressunnar er
lítill dálkur þar sem segir að verð-
launaveiting í samkeppni ÍMARK
fyrir athyglisverðustu auglýsingu
ársins þyki bera nokkurn keim af
því hverjir sitja í dómnefndinni og
er í því sambandi bent á setu Björns
Br. Björnssonar hjá Hugsjón sem
nánast vinni eingöngu fyrir Hvíta
húsið sem fékk mestan fjölda verð-
launa . . .
í fyrsta lagi er það fjarri öllu lagi
að Hugsjón vinni nánast eingöngu
fyrir auglýsingastofuna Hvíta húsið.
Við höfum, sem betur fer, átt mjög
gott og árangursríkt samstarf við
Hvíta húsið á undanförnum árum,
en við vinnum einnig fyrir margar
aðrar auglýsingastofur, fyrirtæki og
samtök. Þannig fóru hagsmunir
okkar í umræddri keppni ekki sam-
an því þar var tilnefnd til verðlauna
sjónvarpsauglýsing sem Hugsjón
vann fyrir auglýsingastofuna Gott
fólk og Ríkissjóð Islands.
í öðru lagi er það regla við dóm-
nefndarstörf í ÍMARK-keppninni að
þeir aðilar sem tengjast á einhvern
hátt verkum sem þar koma til álita
verða að víkja af fundi þegar tilnefn-
ingar og verðlaun eru ákveðin í
þeim flokkum. Þannig var undirrit-
aður ekki í herberginu þegar Hvíta
húsinu var úthlutað tvennum af
fernum verðlaunum sem það fékk.
I þriðja la^i er þess að geta að
dómnefnd IMARK-keppninnar er
skipuð níu fagmönnum, á ýmsum
sviðum auglýsinga- og kynningar-
mála, og úrslit ráðast í leynilegri at-
kvæðagreiðslu þannig að einum
manni er með öllu ómögulegt að
,,ráða" niðurstöðu dómnefndar.
Að lokum má geta þess, að í
keppni sem þessari, þar sem dóm-
nefnd er skipuð fagfólki, er óhjá-
kvæmilegt að flestir dómnefndar-
menn séu með einhverjum hætti
tengdir þeim hlutum sem þar vinna
(eða vinna ekki). Markaðurinn er
einfaldlega of lítill til að hægt sé að
komast hjá slíku. Þannig unnu þeir
þrír fulltrúar auglýsingastofa sem
voru í dómnefndinni í ár allir til
verðlauna, þótt þeir tækju sjálfir
ekki þátt í umræðum eða atkvæða-
greiðslu í þeim flokkum.
Ekkert kerfi er að sönnu galla-
laust en aðalatriðið er að gera enn
betur og vinna bara næst.
Björn Br. Björnsson
FÓRNARIÖMB
SLYSA
EFTIR
ÁCðTUNNI
Samtök endurhæföra mænu-
skaddaöra vinna nú höröum
höndum aö því aö byggja nýtt hús
meö sérhönnuöum íbúöum fyrir
fatlaða. Slíkt hús auöveldar
mænusködduöum aö lifa sem
eölilegustu lífi eftir endurhæfingu.
Öflugur stuöningur landsmanna
geröi okkur kleift á sínum tíma aö
byggja glæsilegt 20 íbúöa hús fyrir
mænuskaddaöa, sem viö erum
verulega stolt af. Þess vegna
hefjumst viö nú handa á ný, full af
bjartsýni og ætlum okkur aö gera
nýtt hús aö veruleika.
Leggöu okkur liö viö aö létta
mænusködduðum lífiö
- þú vinnur á því.
Allur ágóöi af SEM happdrættinu
rennur i húsbyggingarsjóö.
SEM
Húsbyggingarhappdrætti
Samtok endurhætöra mænuskaddaöra
SOLUMENN - KVOLDVINNA
PRESSAN óskar eftir áreiðanlegum sölumönnum til áskriftarsölu.
OÓD SÖLULAUN í BOÐI
Nánari upplýsingar veita Erla og Haukur í síma 621313 frá 9.00-17.00 næstu daga.