Pressan - 12.03.1992, Síða 37

Pressan - 12.03.1992, Síða 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992 37 M 1» Aikið hefur verið spáð og spek- úlerað í þá óskhyggju ráðamanna að breyta Landsbankanum og Búnað- arbankanum í hluta- félagabanka. Við heyrum að Jón Sig- urðsson og félagar hafi fengið nóg af vangaveltum og brátt líti dagsins ljós frumvarp þessa efn- is, þar sem gert er ráð fyrir að breyt- ingarnar taki gildi 1. nóvember í haust. Þetta ætli Jón sér að fram- kvæma áður en hann sest í stól seðlabankastjóra . . . F JL—lins og kunnugt er héldu Jon Ottar Ragnarsson. fyrrverandi sjónvarpsstjóri Stöðvar 2, og sam- býliskona hans, Margrét Hrafns- dóttir, utan til Bandaríkjanna fyrir skömmu. Þar ytra fæddist þeim son- ur um miðjan febrúar. Hefur hann verið skírður Einar Ragnar, seinna nafnið í höfuð afa síns, Ragnars í Smára ... I skýrslu fjármálaráðuneytisins um ríkisfjármál 1991 kom fram að greiðslur vegna útflutningsuppbóta hefðu hækkað úr fjárlagatölunni 1.427 milljónum í út- komuna 2.426 millj- ónir og tíundaðar ástæður þær helstar að kjöt hefði verið flutt út til Mexíkó, að „útflutningsþörf" á mjólkurafurðum hefði verið meiri en vænst var og að greiðslur skuldbindinga frá fyrri ár- um hefðu reynst meiri. Þegar PRESSAN sendi Magnúsi Péturs- syni, ráðuneytisstjóra fjármála- ráðuneytisins, fyrirspurn um nánari sundurliðun þessara hækkana vís- aði hann málinu til Þórhails Ara- sonar deildarstjóra, sem síðan sendi erindið til landbúnaðarráðu- neytisins. Þar tók á móti erindinu Jóhann Guðmundsson, deildar- stjóri fjármála- og rekstrarsviðs. Að- spurður sagði Jóhann að í raun lægju engar tölur fyrir og ekkert BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNID ÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar uppgjör væntanlegt fyrr en í haust. Ástæðan er sú að í landbúnaðar- ráðuneytinu væri heildaruppgjör miðað við „verðlagsár" á meðan aðrir miða við almanaksár. Meira að segja er verðlagsárið frá hausti 1990 til hausts 1991 enn óuppgert. Og vegna þessa getur landbúnaðar- ráðuneytið ekki svarað einföldustu spurningum um greiðslur og um- framgreiðslur til tiltekinna og jafn- vel löngu liðinna verkefna .. . M ITAilli stjornarflokkanna er að upphefjast ágreiningur vegna undir- búnings á breytingum á lögum um Seðlabanka íslands. Það er Jón Sigurðs- son viðskiptaráð- herra sem hefur fal- ið Yngva Erni Kristinssyni, starfsmanni Seðla- bankans, og Finni Sveinbjörnssyni, starfsmanni ráðuneytisins, að smíða frumvarps- drög. Meðal þess sem gert er ráð fyrir er að í stað þriggja seðlabanka- stjóra komi einn yfirbankastjóri og einn eða tveir undirbankastjórar. Sjálfstæðismenn eru á móti þessu og óttast um hag Birgis ísleifs Gunnarssonar. Líklegt þykir að Tómas Árnason fari senn að hætta sökum aldurs, í síðasta lagi á næsta ári, og Jóhannes Nordal er sömu- leiðis að nálgast tímamörk, er tæp- lega 68 ára. Birgir ísleifur er hins vegar unglamb, aðeins 55 ára. í bankaheiminum eru menn ekki í vafa um að Jón Sigurðsson vilji knýja fram þessar breytingar til að setjast síðan sjálfur í stól yfirbanka- stjóra, en sem kunnugt er hefur það verið talið borðleggjandi að Jón víki fyrir Guðmundi Árna Stefáns- syni á þingi. . . F A_lftir svosem mánuð, eða rúm- lega það, mun væntanleg frá Máli og menningu sjálf Grágás, sú mikla lög- bók íslenska þjóðveldisins. Þetta grundvallarrit hefur ekki verið til í neinni aðgengilegri útgáfu, heldur hafa menn helst þurft að notast við allgamlar útgáfur erlendar. Upp- IANDSBANKI i ( L A N D * n-Am-a-w NÁMU-NÁMSSTYRKIR Landsbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um 5 styrki sem veittir verða NÁMU-félögum 1 Einungis aðilar að NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. 2 Allir þeir, sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI fyrir 16. mars 1992, eiga rétt á að sækja um þessa styrki. 3. Hver styrkur er að upphæð 150 þúsund krónur. Þeir verða afhentir í apríl 1992 og veittir NÁMU-félögum skv. eftirfarandi flokkun: 2 styrkir til háskólanáms á íslandi, 1 styrkur til náms við framhaldsskóla hérlendis, 1 styrkur til framhaldsnáms er- lendis og 1 styrkur til listnáms. 4. Umsóknum, er tilgreini námsferil, heimilisfang og framtíðaráform, skal skilað til Landsbanka íslands eigi síðar en 16. mars næstkomandi. 5. Umsóknir sendist til: Landsbanki íslands, Markaðssvið, b.t. Ingólfs Guðmundssonar, Austurstræti 11, 155 Reykjavík. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna runalega var ráðgert að bókin kæmi út fyrir jól, en þá varð dráttur á, en nú styttist semsagt biðin. Ritstjóri útgáfunnar er Gunnar Karlsson prófessor, en honum til halds og trausts Kristján Sveinsson sagn- fræðinemi og Mörður Árnason blaðamaður . . . * Islendingar eiga óvenjumargar kvikmyndir á þeirri miklu norrænu kvikmyndahátíð sem er nýhafin í Rúðuborg í Frakklandi. Er það mikil breyting frá fyrra ári, þegar enga ís- lenska mynd var að sjá á hátíðinni. í samkeppni hátíðarinnar eru þrjár myndir héðan; Ryð, Börn náttúr- unnar og Hvíti víkingurinn. Þeim fylgja meðal annars leikarar úr þess- um myndum, Egill Ólafsson og Sigríður Hagalín. Á sérstakri yfir- litsdagskrá íslenskrar kvikmynda- gerðar verða sýnd fjölmörg verk, gömul og ný, allt frá Höddu Pöddu Guðmundar Kambans til Ókunnra dufla Sigurbjörns Aðal- steinssonar. íslendingar eru semsé í stóru hlutverki í Rúðuborg, þótt dagskrá sem átti að tileinka Hall- dóri Laxness hafi verið frestað um ár . . . Samvinnuháskólinn -rekstrarfræði Rekstrarfræðadeild Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræöum miðar aö því aö rekstrarfræðingar séu undirbúnir til forystu-, ábyrgöar- og stjórnunarstarfa í atvinnulífinu. Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði- eöa vióskipta- brautum eða lokapróf í frumgreinum við Samvinnuháskólann eða annað sambærilegt nám. Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, viðskipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjármálastjórn, starfsmannastjórn, stefnu- mótun, lögfræði, félagsmál, samvinnumál o.fl. Námstími: Tveir vetur, frá september til maí. Frumgreinadeild til undirbúnings rekstrarfræðanámi. Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á framhaldsskólastigi án til- lits til námsbrautar. Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvugreinar, enska, ís- lenska, stærðfræði, lögfræði og félagsmálafræði. Einn vetur. Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir á Bifröst í Borg- arfirði ásamt vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barna- heimili og grunnskóli nærri. Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætluð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur. Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnuháskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina og um fyrri störf. Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er innganga umsækjendum af öllu land- inu. Þeir umsækjendur ganga fyrir, sem orðnir eru eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Námið hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því sem skólarými leyfir. Samvinnuháskólanám er lánshæft. Samvinnuháskólinn á Bifröst, 311 Borgarnesi - sími 93-50000. Verktakar - Vörubílstjórar! BORCO Tæknimaður frá BORCO vagnaverksmiðjunum í Bandaríkjunum verður til viðtals dagana 17. - 20. mars næstkomandi. Tryggið ykkur véla- eða malarvagn fyrir sumarið á mjög hagstæðu verði. Ráðgjöf - sala - þjónusta. Skútuvogur 12A - Reykjavík - 0 812530

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.