Pressan - 12.03.1992, Side 39

Pressan - 12.03.1992, Side 39
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992 9it)jar tðlciiðltnv |>]ÓÍ»ðÖflUV undan og fóru með nán- ast fullfermi af góðum fiski til Þórshafnar. Áður en Siglfirðingarnir komu til Þórshafnar sendi áhöfn togarans Þórshafn- arbúum kveðju í óska- lagaþætti sjómanna, „Á frívaktinni“, og með því tókst að slökkva á um- kvörtunum heimamanna vegna fiskleysis. Lagið sem þeir sendu var ,,Ég er á leiðinni". í næsta þætti, viku síðar, fékk áhöfnin kveðju frá Þórshafnarbúum með lag- inu; „Komdu aftur kæra vina“. (úr sjómannasögum) Siglfirðingar keyptu til landsins togarann Sigur- vík fyrir nokkrum árum. Þeir fengu að kaupa skip- ið gegn því skilyrði aö þeir lönduðu hluta aflans á Þórshöfn, en þar var erfitt atvinnuástand. Þessi kvöð var sett þar sem Siglfirð- ingar létu ekki skip á móti, það var í úreldingu. Þrátt fyrir skilyröið lönd- uöu þeir ekki á Þórshöfn. Eftir mikinn þrýsting frá Þórshafnarbúum, blaöa- skrif og fleira létu þeir loks „Þetta er ekki eróbikk," segir Kristinn Þór um áreynsluna við pílukastiö. pressan/Jim s™ Eitt gramm getur breytt heilum helling segir Kristinn Þór Kristinsson, íslandsmeistari í pílukcisti, um þá óbærilegu nákvæmni sem þarf að beita til að hitta í mark. Þeir taka þetta framyfir allt annað. Em bókstaflega alltaf að, standa grafkyrrir og kasta. Spennan er fólgin í að hitta og menn gjörsamlega rifna úr monti þegar vel gengur. Þetta er það skemmtilegasta sem þeir gera. Þessir menn em pílukast- arar. Einn þeirra er Kristinn Þór Kristinsson. Og hann er þeirra bestur. Að minnsta kosti er hann íslandsmeistari í pílukasti. Tekurðu þetta framyfir lands- leiki? ,Já, það er engin spuming, svo getur maður alltaf farið í heimsókn til félaganna og þeir em flestir með spjald hangandi uppi, við spilum þá frekar en að horfa á sjónvarpið," segir Krist- inn Þór. Hvað hefurðu stundað þetta lengi og hvaðan kemur áhug- inn? „Fimm ár og ég byrjaði að spila þetta í vinnunni. Það byija flestir svoleiðis. Þá kepptu allir félagamir saman og við fómm meira að segja út til keppni. Þetta er spilað mikið hjá Kanan- um á Vellinum og sennilega er áhuginn fyrir þessu þaðan kom- inn.“ Eru margir í þessu? „Það eru nokkrir tugir sem keppa reglulega en það er spilað út um allt. Það er gjaman spilað í vinnunni en margir eru líka með spjöld hangandi uppi á vegg heima hjá sér. Þetta er voðalega gott sport upp á það að maður getur dundað við það heima hjá sér. Það em alls konar týpur í þessu. Sjónvarpið var til dæmis með spjald hangandi uppi og eins Vélsmiðjan — ekki beint líkir vinnustaðir. Þetta er þó aðallega karlasport og fáar stelpur hafa gefið sig í það.“ Fer þetta þá ekkert í taugarn- ar á konunum og kœrustunum? „Sjálfsagt gerir það það stundum, en það er með þessa íþrótt eins og aðrar að hún tekur tíma.“ Hvað er leyndarmálið á bak við gott kast? „Það er einbeitnin og þjálfun- in að sjálfsögðu.“ Hvað er svona skemmtilegt við pílukast? „Það er spennan þegar vel gengur og félagsskapurinn." Leikreglur? „Spjaldið þarf að vera í vissri fjarlægð, 2,37 m, og hangir í 173 sentimetra hæð.“ Voðalega þarf þetta að vera nákvœmt. „Já, ef spjaldið er þremur sentimetmm neðar en það á að vera hittir maður ekkert á það spjald. Það skiptir miklu ntáli í pílukasti, til dæmis getur það breytt alveg hellingi ef maður hættir að nota 21 gramms pfiu og fer að nota 25 gramma; það er allt öðmvísi. Ef maður spilar mikið finnur maður muninn ef maður tekur óvart pílu sem er grammi léttari." En sport er oftar en ekki hugsað sem þjálfun, er einhver þjálfun íþessu? „Þetta er ekki eróbikk, en ef maður ætlar að ná árangri þarf maður að hafa þann hæfileika að geta staðið grafkyrr. Það þarf ekki einungis einbeitingu: Ef þú ert að kasta þremur pflum verð- urðu að kasta þeim öllum frá sama punkti og því má alls ekki breyta um stellingu. I þetta þarf ákveðinn styrk. Svo er mikil- vægt að menn séu með stöðuga hönd.“ Er þetta hugaríþrótt um leið? „Þú þjálfar hugann með því að vera stöðugt að reikna. Spjaldið er með tölum ffá ein- um upp í tuttugu og þú lærir töl- umar og reikninginn. Þetta væri meira að segja sniðugt fyrir krakka í skóla, að vera í sporti og læra reikning í leiðinni, — það ætti að taka jtetta upp í skól- um!“ Þetta er hœgt að stunda fram í ellina? „Já, erlendis eru oft gamlir menn í þessu,“ segir Kristinn Þór. RIMSÍRAMS Tómatsósan hét Libbís Auglýsingar eru boðflenn- umar í Íífi okkar. Þær em eins og ókunnur gestur sem treður sér inn í fermingarveislumar, brúðkaupin, jarðarfarimar eða bara partfin okkar og tekur þar öll völd - fer að skipuleggja samkvæmisleiki, hlæja ógnar- hátt og halda ræður um að það sé einmitt honum að þakka að við skulum vera svona kát. Enginn bauð honum. Enginn þolir hann. Allir umbera hann, bíða eftir því að hann ljúki sér af svo hægt sé að halda áffam. Eða hvers vegna er það ann- ars sem tómatsósuauglýsingin er svona nístandi leiðinleg, juð- ast á taugaendum okkar? Það er af því að hún er boðflenna, það er ruðst inn í helgidóm minninganna og reynt að gera tómatsósu að meginkennileiti þar. Það er vitaskuld ffáleitt, og það vita auglýsendur ofurvel og búa því til nokkurs konar skopstælingu á væminni aug- lýsingu með því að láta ein- hvern mann gaula ámátlega gamalt dægurlag sem á að láta mann hlæja. Um leið er sýnt úr lífshlaupi hjóna sem eru ein- mitt eins og við viljum líta út þegar við emm komin á afa- og ömmualdurinn. Gaulið og tóm- atsósan gera grín að þeim. Par- ódían nær ekki alla leið. Ut- koman verður hálfvelgja - óþolandi auglýsing sem gerir ekki grín að sjálffi sér og sínum absúrd skilaboðum, eins og ætlunin hefur kannski verið, heldur dárast með okkur, drauma okkar, minningar okk- ar, helgidóm okkar. Gerir þetta allt lítilsiglt og ómerkilegt og hlálegt. Nei góðir hálsar: tómatsósan hét Libbís en ekki og kókið var kók Þegar ég var lítill drengur og fór meÖ pabba mínum í leikhúsið og það kom hlé þá sagði hann við mig: Og rimsí- rams drengur minn og flimsíflams, viltu kók? Hönts og hún bjargaði oft ýs- unni og þegar flaskan hafði lokið því hlutverki sínu var hún höfð undir mjólkina til að hafa með í skólann þar sem maður drakk hana og maulaði Samanlagt... Vörumerkin eru nefnilega kennileiti í lífi okkar, fá þar einkalega og óskiljanlega merkingu, hjúpast kenndum, framkalla draugagang, fram- haldslíf eða hvað við viljum kalla það. Að koma inn í gamaldags sjoppu jafngildir hreinasta miðilsfundi, séu öll móttökuskilyrði í lagi. Látnir ástvinir sem vom manni vænir í bernsku stíga fram, verði manni litið á réttu karamelluna, súkkulaðikexið, lakkrísinn, gosið... Einmitt já. Gosið. Því er þessi pistill. Allir sem hafa snefil af viti á gosi vita að kók er best gosa, og að besta kókið er í litlu kókunum. Eg sem undrast ævinlega gosþamb landsmanna úr hinum náttúru- lausu lítraplastflöskum legg áherslu á að fá mér litla kók þegar ég fer í bíó og jtegar ég fer í leikhús. Þegar ég var lítill drengur og fór með pabba mín- um í leikhúsið og það kom hlé þá sagði hann við mig: Og rimsírams drengur minn og flimsíflams, viltu kók? - og fór svo og sagði við afgreiðslu- stúlkuna: Ég ætla að fá einn kók, nei hafðu þá annars tvo... þegar þessi stund rann upp var það kannski ekki merkileg stund og skipti kannski ekki sköpum, en ég man hana; þetta er mín minning. Og þessa minningu vil ég heiðra af og til með því að fara í leikhúshléi og biðja um einn kók og fá litla og ískalda kók. En það er ekki lengur hægt. Þegar ég fór á Þrúgur reiðinnar um daginn í Borgarleikhúsinu - fín sýning, mikið leikhús, maður verður afar þyrstur - þá komst ég að raun um að það er ekki nóg með að einungis sé þar boðið upp á hið bragðlausa kóklíki sem kallast Pepsí, heldur er það bara í dollum sem er sérlega leiðinlegt fiát og illa hannað, og svo er manni ætlað að sjúga drykkinn úr röri, eins og fífl. Ég hef heyrt því fleygt að Pepsímenn borgi sérstaklega fyrir að ekki sé boðið upp á kók á ýmsum stöðum svo að við sem viljum bergja á eðal- gosi af og til neyðumst til að fara í vatnskranann. Er það satt? Er það löglegt? Hvar er vörður að veija minningar mín- ar fyrir boðflennunni Pepsí?

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.