Pressan - 12.03.1992, Page 43
FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992
43
LÍFIÐ EFTIR VINNU
POPPIÐ
• Exizt er rokksveit sem heldur
sína fyrstu tónleika í kvöld og þaö
ætla þeir að gera á Púlsinum. Sveit-
ina skipa Guðlaugur Falk gítarspil-
ari, Eiður Örn Eiðsson söngvari,
Sigurður Reynisson trumbuslagari
og Jón Guðjónsson er leikur á
bassa. í enda mánaðarins er von á
breiðskífu frá hljómsveitinni en á
þessum tónleikum heyrum við for-
smekkinn.
• Risaeölan verður á Tveimur vin-
um í kvöld. Þessi firnaskemmtilega
sveit er öllum aö góöu kunn og
klikkar varla þarna frekar en fyrri
daginn.
• Laglausir eru hafnfirsk hljóm-
sveit og þeir ætla ekkert að fara úr
firðinum því þeir verða á Firðinum á
föstudagskvöldið. Okkur minnir
endilega aö þetta band hafi unnið
Músfktilraunir á sínum tíma og það
hljóta að teljast meðmæli (það er að
þeir hafi unnið, ekki að okkur minni
það).
STARKtB
iWÍANN
[r,|St ICH1
Uoino S*
andorö -
i Íoríiörr*
A FORSI’
PLAYBOY
:UTSCH>-At»P
ÍINE PFEíEfei Í
. PtAYöO v
tlE l-USt
;ifefeER
tn.mpfhu---
nö afidaie
iobeítoser:
Vas
M&t auf
er ao minnsta kosti að sjá
Vogue undir sig og fjölmargra
Hápunktur vikunnar
verður þegar Bókaversl-
un Sigfúsar Eymunds-
sonar tekur upp sending-
una af þýsku blöðunum.
I henni er nefhilega
marshefti þýska Play-
boy-tímaritsins með
Bertu Maríu Waagfjörð
á forsíðunni.
Það verður sjálfsagt
fjölmenni hjá Eymunds-
syni að fýlgjast með því
þegar Islendingar ná enn
einum áfanganum. Síð-
ast var það heimsmeist-
aratitill í kraftlyftingum
(reyndar aðeins skamma
hríð), þar áður Bermúda-
skálin og 'einhvem tím-
ann í fymdinni unnu
„strákamir okkar“ B-
heimsmeistarakeppni.
En nú hafa „stelpumar
okkar“ slegið þeim við.
Þær hafa fyrir löngu lagt forsíðu
OER NEUE
5PAÐAR SPILA ÞRISVAR HRATT í C
Sumir koma saman til að spila brids en félagarnir í Spöðum
koma saman til að spila þjóðlög frá Balkanskaga.
leikur á gítar og það gerir líka sálfræðingur plokkar kontra-
sagnfræðingurinn Magnús Har- bassa og Helgi Guðmundsson
aldsson, Guðmundur Ingólfsson kennari blæs í munnhörpu.
nrmviuiaiai
Eyþór Arnalds
tónlistarmaður
(Eyþór, Móeiöur Júníusdóttir
(kærastan) og Sigríbur Eyþórsdóttir
(mamma) tala öll Inn á simsvarann)
„Þetta er 29445 og þetta er
Sigga, þetta er Eyþór, þetta er
Móa. Þar sem ekkert okkar er
heima þessa stundina þá vin-
samlegast talaðu inn á símsvar-
ann eftir að hljóðmerkið hefur
verið gefið. Þakka þérfyrir and
God bless you. “
• Sú Ellen ætlar að koma í bæinn
þessa helgina og spila á Gauknum
fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Það tekur því náttúrlega
ekkert að koma í bæinn fyrir minna
en þetta.
• Undir fálkanum er hljómsveit
sem ætlar að spila á Staðið á önd-
inni á föstudags- og laugardags-
kvöld. Hún hefur spilaö þarna áður
og stóð sig víst bara vel og vakti
lukku.
• Sniglabandiö er tekiö til starfa á
ný eftir hvíld. Þeir koma þríefldir til
leiks eftir friðinn og róna og heim-
sækja Tvo vini sína bæði á föstudag
og laugardag. Skúli Gautason,
Björgvin Ploder, Einar drösull og
Þorgils Björgvinsson spila á þaö
sem til þarf til aö búa til almennilega
„Við reynum að velja þá af
mikilli kostgæfni sem við spilum
fyrir. Þetta er sú hljómsveit sem
dreymir síst um frægð og
frama,“ segir Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur.
Það er sjálfsagt ekki mörg-
um, sennilega mjög fáum, kunn-
ugt um að Guðmundur Andri er
söngvari, saxófón- og trompet-
leikari í stórhljómsveit. Nánar
tiltekið er þar um að ræða súper-
grúppuna Spaða. Hann er náttúr-
lega ekki einn í Spöðum, þar eru
löca Gunnar Helgi Kristinsson
lektor, Sigurður Valgeirsson hjá
Iðunni og pistlahöfundur á Rás 2
spilar á trommur, Jón Thorodd-
sen heimspekingur leikur á bon-
gótrommur og fleira, Aðalgeir
Arason lífffæðingur leikur á
mandólín, Guðmundur Guð-
mundsson matvælafræðingur
músík og þeir syngja líka allir eins
og englar blessaðir. Svo eru þeir
alltaf að semja ný lög sem þeir ætla
að spila og bráðum kemur plata.
• Zappa-klúbburinn veröur meö
Frank Zappa-kvöld á Púlsinum
þriðjudagskvöldiö 17. mars. For-
svarsmaöur þessa klúbbs mun vera
maöur að nafni Sverrir Tynes. Ekki
vitum við alveg hvað þeir félagar í
þessum klúbbi ætla sér að gera
þetta kvöld, en sjálfsagt verður það
snjallt í anda þess merka manns
Zappa. Það er bara ekki hægt ann-
að en mæla með öllu því sem
Zappa viökemur.
VEITINGAHÚS
• Einu sinni gekk þessi litli veitinga-
staður undir heitinu Bixið, og var
varla miklu fínni en nafniö gefur til
kynna. Þá tók við veitingamaður
sem ætlaði aö laöa til sín gesti og
fannst að því takmarki yrði helst náð
með því að skipta um nafn. Um tíma
hét hann Greifinn af Monte Christo.
Nú er hins vegar vandséð að stað-
urinn þurfi að breytast neitt að
marki, að minnsta kosti ekki næstu
ár. ítalfa er nefnilega fyrirtaks veit-
ingahús, sem rís undir sínu stóra
nafni. Þar er til dæmis hægt aö
snæöa einhvern allrabesta fiskrétt
sem fæst á íslenskum veitingastað,
smálúðu sem er framreidd með bak-
aðri kartöflu, sveppum og blaðlauk.
Pastaréttirnir eru vel yfir meðallagi
og pizzurnar góðar, þótt þær séu í
dýrari kantinum. Þjónustan er lipur
og alúðleg, en ekkert tiltakanlega
prófessjónal. Kórónan er svo ágæt-
ur listi sérpantaðra vína frá (talíu —
frascati - hvítvínið er óborganlegt.
Staðurinn er ekki stór. Helsti gallinn
hvað stundum veröur heitt þar inni.
LEIKHÚS
• Bannaö ab hlæja. fslenskt
Auðunn
Sigurðsson
skrifstofumaður
hjá Austurbakka
Hvað ætlar þú að gera
um helgina Auðunn?
„Um helgina ætla ég
á skíði til Akureyrar.
Þar er að vísu enginn
snjór en ég œtla samt
að fara og skoða lífið
og fara í Sjallann. Það
getur vel verið að ég
fari líka í leikhús þeirra
Akureyringa. “
„Hljómsveitin spilar næstum
því eingöngu fmmsamda
gömludansa. Þetta er gömlu-
dansasveit. Við spilum hratt
þrisvar í c,“ segir Guðmundur
Andri um tónlistarlega stefnu
sveitarinnar. Hann segir að þeir
spili líka talsvert af tónlist sem á
rætur að rekja til Balkanskaga.
Spaðar hafa gefið út tvær
spólur með tónlist sinni, en sveit-
in er nú að verða tíu ára og Guð-
mundur Andri segir að þeir séu
elsta bílskúrsband landsins.
„Þetta er eingöngu okkur til
skemmtunar og við spilum helst
ekki fyrir fólk ef við komumst
hjá því. Það er aðallega að við
spilum fyrir vini og kunningja í
afmælum og brúðkaupum og
öðm slíku.“
brúðuleikhús hefur verið alveg
mátulega merkilegt, en kannski nær
það að sllta barnsskónum endan-
lega f þessari sýningu, sem er
makalaust góð og indæl. Hér er lagt
út af Völuspá, sem með talsverðu
skáldaleyfi er færð inn í nútíma
mengunar og annarrar óáranar.
Höfundurinn Hallveig Thorlacius á
heiöur skilinn, líka leikstjórinn Þór-
hallur Sigurðsson og tónskáldið Ey-
þór Arnalds. Fríkirkjuvegur 11, lau.
& sun. kl. 15.
• Vojtsek. Leikfélög framhalds-
skólanna keppast viö aö setja upp
stór og dramatísk verk. í kjölfar Ma-
hagonny og Sölku Völku kemur nú
Thalfa, leikfélag Menntaskólans við
Sund, og setur á svið Vojtsek,
klassískt verk eftir Georg Buchner.
Rúnar Guðbrandsson er höfundur
leikgerðar og leikstjóri, en þau eru
fleiri snillimennin sem koma við
sögu: Við getum nefnt Steingrím
Eyfjörð Guðmundsson sem samdi
músíkina og Daníel Inga Magnús-
son sem hafði yfirumsjón meö að
búa til leikmynd. Menntaskólinn viö
Sund, lau. kl. 20.30.
KLASSÍKIN
• Kammersveit Kaupmannahafn-
ar er uppfull af íslandsvinum og þar
fer fremstur stjórnandinn Steen
Lindholm, sem hefur komiö sautján
sinnum hingað norðureftir, hvorki
meira né minna. Sveitin hefur verið
iöin við að spila fslenska tónlist og
ÆSKUMYNDIN
Það er ekki það sama; afhjúpunarblaðamaður og sjálf-
stæður gallerítör, það má glöggt sjá á honum Úlfari Þor-
móðssyni. A þeim tíma sem hann fletti ofan af frímúrara-
reglunni (það er, skrifaði hveijir vom í hvaða reglu) var
hann bjartur yfirlitum og allur eitthvað svo vammlaus.
Eftir að hann settist að í Gallerí Borg er yfirbragð hans
hins vegar orðið tvíræðara og margbrotnara; eins og listin
sem hann selur. Svona mótar lífið okkur.
VlÐ
MÆLUM
MEÐ
Að Cicciolinu verði boðið til fs-
lands
hún er fiáskilin og hefur reynslu af
þingstörfúm, og vantar ekki smáást í
þingið?
Að tollpóststofunni verði lokað
fyrir fullt og fast, og starfsmennimir
sendir á námskeið í jákvæðu viðmóti
Að fólk noti höfuðfot
þau gera mannhaftð svo litskrúðugt,
sérstaklega ef þau eru svolítið skrít-
in, og koma heilabúinu ófrosnu
gegnum veturinn
INNI
Álafossúlpan. Nei annars, ekki hún,
heldur frummynd jreirrar úlpu, hinn
engilsaxneski „duffelcoat". Úlpa
eins og Gregory Peck var svo djöfiill
glæsilegur í jregar hann var hetjan í
Byssunum frá Navarone. Úlpa eins
og offíserar í breska sjóhemum
sveipuðu utan um sig og einhvem
tíma líka foringjamir í íslensku land-
helgisgæslunni. Og líka breskir
bítnikkar, fyrir tíma Bítlanna. En
joetta er ekki Álafossúlpan, hún var
aldrei annað en ódýr eftinmynd, hún
snobbaði niður á við, og þess vegna
varð hún svona hentugur einkennis-
búningur fyrir unga vinstrisinnaða
me tntamenn sem sáu mest eftir því
að vera ekki fæddir í tæka tíð fyrir
'68. Þótt „duffelcoat“-úlpan beri
með sér ákveðin enduróm þessa
tíma, sé að vissu leyti endurtekning,
er merking hennar líka önnur, hún er
ömgg, varfæmisleg, tekurenga
sénsa, ber vott um frjálslyndi, víð-
sýni og nokkum kúltúr, án þess þó
að ganga út í neinar öfgar. Hún er
málamiðlun og — ólíkt því sem áð-
ur var — er hún, að vissu leyti, til
hægri.
ÚTI
Öll hálsbindin í skápnum hjá Stein-
grími Hermannssyni, og reyndar öll
hálsbindi sem ekki em úr silki,
handmáluð eða handofin og þar af
leiðandi tándýr. Ltka klúbbbindi, að
maður tali ekki um fölsk eða fölsuð
klúbbbindi. Bindi með dýramynd-
um. Bindisnælur em vond latína,
sérstaklega séu þær sérsmíðaðar hjá
gullsmið, bindi eiga að flaksast
fijálslega. Slaufur em líka á svarta
listanum, nema þá slaufúr sem em
hnýttar með ærinni fyrirhöfn og til-
gerð, slaufur með teygju em botn-
inn. Franskir klútar em úti og varla
neinir sem setja slikt á hálsinn á sér
nema Hans Kristján Amason og ark-
ítektar sem nota slíka klúta sem
nokkurs konar einkennisbúning.
Franskir klútar með teygju verða
engum til álitsauka. Vasaklútar em í
lagi, en jxi aðeins ef [reirem nánast
ósýnilegir og samstæðir við skyrtu
eða bindi. Búidishnútar em svo kap-
ítuli út af fyrir sig: Þeir eiga að vera
fínlegir, látlausir, en breiða bindis-
hnútinn er hvergi að finna nema í
Framsóknarflokknum. Það em áhrif
frá Steingrími — annaðhvort láta
framsóknarmenn Steingrím hnýta
fyrir sig á hvetjum morgni eða þá að
breiði hnúturinn er kenndur í Sam-
vinnuskólanum smekkinn.