Pressan - 12.03.1992, Blaðsíða 44

Pressan - 12.03.1992, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR PRESSAN 12. MARS 1992 Hilmar Karlsson er tvítug- ur nemi á eðlisfræðibraut Menntaskólans við Sund. Hilmar er einn af tækjavörð- um skólans, hann er vog og er á föstu. Hvert er hlutverk tækja- varða? „Að sjá um að allar samkundur í skólanum gangi upp. Við setjum upp hátalara- kerfi, ljós og annað slíkt, þetta er svona rótarastarf." Hvað borðarðu í morgun- mat? „Ég þamba yfirleitt svolít- ið kók og fer svo út. Ef ég hef tíma fæ ég mér brauð með pep- peroni." Kanntu að elda? „Já, ég er bráðflinkur kokkur.“ Hvar vildirðu búa ef þú ættir þess ekki kost að búa á Islandi? „I Bandaríkjunum, það er svo gott að vera læknir þar.“ Hvernig stelpur eru mest kynæsandi? „Eins og kærastan mín.“ Hefurðu lesið biblíuna? „Nei, ekki opnað hana.“ Trúirðu á líf eftir dauðann? „Nei, ég held það verði allt svart.“ Gætirðu hugsað þér að reykja hass? „Nei.“ Hvaða rakspíra notarðu? „Borsalino.“ Hvað er þér verst við? „Hippa og hæfileikalausa framapotara." Ferðu einn í bíó? „Nei, no way.“ Syngurðu í baði? „Ef ég er einn heima.“ Hefurðu verið til vandræða drukkinn? „Nei, ég er sóma- maður þegar ég er drukkinn." Hefurðu áhuga á stjórn- málum? „Ég hef áhuga á að komast í stjóm í Háskólanum og afnema allar vísindaferðir. Það er mín pólitíska hugsjón." Attu þér eitthvert mottó í lífinu? „Að komast sem lengst með sem minnstri fyrirhöfn.“ PLATTER5 í MÁNUO Hin gamalkunna hljóm- sveit Platters er væntanleg til landsins enn á ný. Að þessu sinni verður dvöl þeirra nokk- uð löng því þau ætla að skemmta á Hótel Islandi næstu fjórar helgar. Allir ættu að kannast við lög eins og Only you, Smoke gets in your eyes og Twilight time. I Platters nú em tveir af upprunalegu stofnendunum, einnig er þar ung stúlka, dótt- ir eins af þeim upprunalegu, sem nú er látinn. I dag, fimmtudag- inn 12. mars, kemur hingað til lands franska leikkonan Nathalie Roussel. Þeir sem sáu þá frábæru mynd „Heiður föður míns“ ættu að kannast við þessa fallegu konu, en í myndinni lék hún móður ffanska rithöfundarins Marcels Pagnol. Tilefni heimsóknarinnar er að Regnboginn er nú að fara að frum- sýna myndina „Le Chateau de ma Mere“ eða Kastali móður minnar. Kastali móður minnar er sjálfstætt framhald af Heiðri föður míns og eins og í henni leikur Roussel móður Pagnols. Báðar þessar myndir voru metaðsóknarmyndir í Frakklandi og þóttu hreint yndislegar. Roussel hefur nú nýlokið við að leika í dýrustu kvikmynd sem Frakkar hafa framleitt, hún kostaði 140 milljónir ffanka eða um 1,4 milljarða íslenskra króna. Þessi kvikmynd segir frá armenskri fjöl- skyldu er flyst til Frakklands og vandamálum er hún lendir í vegna kynþáttafordóma. Á móti Roussel leikur gamla brýnið og stór- sjarmörinn Omar Sharif og án alls efa fáum við að sjá þá kvikmynd einhvem tíma í náinni framtíð. VINIÐ Gísli Ágúst Gunnlaugsson „Ég á etfitt með að nefna eitt ákveðið uppút- haldsvín, þar sem ég hef fremur lagt mig eftir góðu víni sem ég hcfekki hragð- að áður en að binda mig við tiltekið vín. Eg verð þó að játa að ég stenst sjalclan að kaupa mér Chat- eau-Figeac, Saint-Emilion premier cru classé þegar tök eru á. Eg hef hragðað marga árganga afþessu vfni, meðal annars 1975 og 1976, sem eru hreint stór- kostlegir." FRON5K KVIKMYN DASTJ AKN A TIL LAND5IN5 EFTIR VINNU VINIR FINNSÁSÖCU Hinn landskunni hljómlistar- maður Finnur Eydal hefur eins og kunnugt er átt við veikindi að Stríða undanfarið. Hann hefur því þurft að fljúga ffá Akureyri til Reykjavíkur þrisvar í viku síð- ustu ár þeirra erinda að fara í gervinýra. Félagar hans og vinir hafa nú staðið fyrir söfnun til kaupa á gervinýra sem komið yrði fyrir á heimili Finns. Nýrað er nú komið til landsins en enn vantar herslumuninn upp á að nógu mikið fé hafi safnast. Nú hafa vinir og velunnarar Finns ákveðið að standa fýrir stórtónleikum í Súlnasal Hótels Sögu næstkomandi sunnudags- kvöld klukkan níu. Það eru Zontasystur og Jazzvakning sem standa að tónleikunum, en þar koma fram margir frábærir lista- menn. Þama verða Sveiflusextett- inn, Kristján Magnússon og hljómsveit, Ámi Scheving og fé- lagar, Bjöm Thoroddsen og Steingrímur Guðmundsson og þeirra lið allt, Kuran Swing, Hljómsveit Ólafs Gauks og Anna Mjöll, Tríó Carls Möllers ásamt söngvumnum Ellý Vil- hjálms, Andreu Gylfadóttur og Ragnari Bjamasyni. Síðast en ekki síst kemur fram Hljómsveit Finns Eydals, en þar em innan- borðs meðal annarra Ingimar Eydal og Helena Eyjólfsdóttir. Veislustjórar verða Hermann Gunnarsson og Vemharður Linnet. Sveiflan verður í algleymingi og þótt tilefnið sé vissulega al- varlegt verður gleðin allsráð- andi. Miklir listamenn og verð- ugt málefni og vonandi tekst að hjálpa Finni að svínga sem lengst. JE5Ú5 ERGARPYRKJUMAÐUR Freyvangsleikhúsið ræðst ekki á garð- inn þar sem hann er lægstur í verkefna- vali. „Jú, auðvitað er þetta gífurlega erfitt en þó ekki það erfitt að það sé óyfirstígan- legt. Þegar áhugi og metnaður fara saman er ýmislegt hægt,“ segir Ingólfur Jó- hannsson, garðyrkju- maður á Akureyri. Ingólfur leikur aðal- hlutverkið í söng- leiknum Jesus Christ Superstar sem Frey- vangsleikhúsið í Eyja- firði frumsýnir á föstudagskvöldið klukkan hálf- níu. Það þarf ekki að taka það fram að Ingólfur leikur Jesúm sjálfan. Freyvangsleikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur með þessari uppsetn- ingu. Leikendur em um fjömtíu talsins og Ingólfur segir að mikla útsjónarsemi þurfi til að koma þessu öllu saman vel fyrir á litla sviðinu í Freyvangi. Ingólfúr er 25 ára og hefur áður staðið á sviðinu í Freyvangi, meðal ann- ars sungið þar og leikið í kabar- ett. Hlutverkið í Jesus Christ er þó það langstærsta sem hann hefur glímt við. Hann neitar því ekki að hann langi til að gera meira af því að leika og syngja, þetta sé það skemmtilegasta sem hann fáist við. Leikstjóri sýningarinnar er Kolbrún Halldórsdóttir, tónlist- arstjóri er Jón Ólafsson en söng- stjóri Þórdís Karlsdóttir. Verður þetta góð sýning? , Já, ég veit það og ég trúi því. Það er mín skoðun að þetta verði mjög góð sýning og ég stend og fell með þeirri skoðun.“ 'J DINNER RÓSA GUÐNÝ PÓRSDÓTTIR þula og leikkona PRESSAN bað Rósu Guð- nýju að sjá um kvöldverð- inn þessa vikuna. Gestir hennar em Almodovar til að sjá um maiseldina Anthony Hopkins til að skera steikina Gerard Depardieu til að velja vínið Albert Finney til að sjá um sterku diykkina Daniel Day-Lewis til að skræla kartöflumar Sam Shepard til að hella upp á könnuna Chaplin UI að þjóna til borðs Shakespeare til að fara með borðbæn Woody Allen til að sjá um dinnemiúsík Þrjár systur til að sjá um uppvaskið Ekki skil ég hvað það fólk er að fara sem setur saman dag- skrár útvarpsstöðvanna. Um það leyti sem það er að komast ró á heimili mitt æsist upp mús- íkin í útvarpinu og einhverjir voða hressir gaurar fara að óska manni til hamingju með dag- inn. Þótt eflaust sé til fólk sem rífur sig upp fyrir allar aldir þá hengi ég mig upp á að það á ekki við um alla. Og af hverju fáum við hin þá ekki okkar morgunþátt; svona rétt upp úr hádeginu? Það mætti vera létt leikfimi í honum. Að minnsta kosti veitir mér ekki af að fara að hreyfa mig dálítið. þar á meðal hefur hún nýskeð sett verk eftir þá Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Nordal á geisladisk. Af því tilefni kemur sveitin hingað og leikur íslenska og danska nútímatónlist, en líka barokkmúsík. Skálholt lau. kl. 15. & Norræna húsiö, sun kl. 17. • Mozart. Margir alfremstu hljóö- færaleikarar okkar leggja hönd á plóg og spila Mozart, kvartett, kvint- PLATAN COWBOY JUNKIES BLACK EYED MAN Pað er erfitt að flokka „Black Eyed Man“ en það má reyna þjóð- laga-popp-kántrl eða jafnvel blús. Platan er fínpússaðri í útsetnlng- um en fyrri þrjár plötur hljómsveitarinnar. Hún heldur þó einkennum Cowboy Junkies en tekur örlitlu lengri tíma að venjast — er þó al- veg hreint indæl. Fær 9 af 10. ett og tríó. Ætli sé ekki nóg aö nefna Einar Jóhannesson, Daða Kol- beinsson, Hafstein Guðmundsson, Joseph Ognibene og Bryndísi Höllu Gylfadóttur. í aðalhlutverki er þó Guðríður Sigurðardóttir slaghörpu- leikari, enda eru öll verkin sem hóp- urinn spilar smíðuð kringum píanó- ið. Geröuberg, mán. kl. 20.30. • Pétur Grétarsson. Pétur, sem er hámenntaöur slagverksleikari, stendur fyrir allóvenjulegum kons- ert. Hann ætlar að leika fjögur ein- leiksverk fyrir alls konar trommur, en líka tvo dúetta — annan með Kjart- ani Óskarssyni hornleikara og hinn með Eiríki Erni Pálssyni trompetleik- ara. Öll verkin eru nýleg, þaö elsta tuttugu og fimm ára, og þrjú þeirra heimatilbúin hér á Fróni. Borgarleik- hús, þri. kl. 20.30. MYNDLIST • Kristin Þorkelsdóttir. Fyrir utan að vera bisnesskona sem rekur volduga auglýsingastofu er Kristín framarlega í flokki myndlistar- manna. Hún heldur sig nær ein- göngu við vatnsliti, þar standa henni fáir á sporði; það er dálítið líkt og myndirnar flökti á mörkum þess að vera afstraksjónir og replíkka af ís- lensku landslagi eins og það gæti birst manni í draumi. Diddú, sem er hérumbil frænka Kristínar, ætlar að syngja við opnun sýningarinnar í Hafnarborg á laugardag. • Þorbjörg Höskuldsdóttir. Mynd- irnar hennar Þorbjargar hafa svo- sem ekki tekiö miklum breytingum hin síðari ár. Hún er ennþá að tefla saman íslenskum fjallasölum og marmaralandslagi af klassískri sort. Málverkin eru eins og sköpuð fyrir fínheitin í galleríinu Nýhöfn; að minnsta kosti ríma marmaragólfin hennar Þorbjargar ákaflega vel við marmaragólfiö þar inni. ÓKEYPIS • Þjóöminjasafnið. Það stendur vist til að fara að taka niður fasta- sýninguna sem hefur staðið í Þjóð- minjasafninu svona hérumbil frá því þaö var opnaö. Það á að gera safn- ið nútímalegra. Nú er hins vegar al- veg Ijóst að téð sýning hefur staðið svo lengi að hún hefur orðið menn- ingarsögulegt gildi. Því er spurning hvort ekki eigi að varðveita hana, kannski setja hana á safn. Og í framhaldi af því má einfaldlega leggja til aö Þjóðminjasafnið verði sett á safn, svona alveg eins og það leggur sig, plús gömlu góðlegu kon- urnar sem hafa passað munina af kostgæfni, þótt stundum hafi þær reyndar sofnað við prjónana. • Bfó og djús. Heldur fer þaö nú hljótt, en á sunnudögum eru iðulega kvikmyndasýningar fyrir börn og unglinga vestur í Norræna húsi. Aö- gangur er ókeypis og myndirnar oft hinar ágætustu, eins og til dæmis núna um helgina þegar verða sýnd- ir tveir þættir úr þeirri bráðskemmti- 1 2 3 3 5 1 7 5 9 TB— ■ " ■ 13 14 11 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 1 46 47 ■ 48 49 ■ 50 51 ÞUNGA GÁTAN LÁRÉTT: 1 skip 6 rökkurlauf 11 guðir 12 leyna 13 fróður 15 lífemi 17 espað 18 slór 20 leynd 21 innyfli 23 fljótfæmi 24 nabbi 25 þvoir 27 alir 28 hægfara 29 vemdarveru 32 jakar 36 hræðsla 37 barði 39 ríkja 40 tíu 41 borðaðs 43 háttur 44 flosna 46 rotnunina 48 sytm 49 band 50 tré 51 deildi LÓÐRÉTT: 1 bikar 2 lúinn 3 óðagot 4 gyðja 5 karlmannsnafn 6 skráma 7 bombrött 8 varg 9 kolvitlaus 10 hópar 14 bjálka 16 golþorskur 19 vesalingur 22 sópa 24 hreyfir 26 skolla 27 hæfur 29 lagfærðum 30 ákefð 31 hani 33 dauða 34 skelin 35 þrefaði 37 stólpi 38 eyðileggja 41 múli 42 heilablóðfall 45 óvild 47 atgervi

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.