Pressan - 12.03.1992, Page 46
Bandarískur vísindamaður
TÓKST AÐ RÆKTA
LAMBAKÓTILETTUR
í TILRAUNAGLÖSUM
Veit ekkert hvað ég á að gera
við þetta, — segir Harald Kilroy,
forsvarsmaður vísindahópsins
Kennarar setja fram nýja kröfugerð
VILJA FÁ
ÖSKUPOKA
FRÁ RÍKINU
Skortur á öskupokum
hefur eyðilagt þennan frídag
okkar mörg undanfarin ár,
— segir Svanhildur Kaaber.
Samtök Eystrasaltsríkja
HEFÐUM VIL.JAÐ FÁ
JÓN BALDVIN SEM
ÁHEYRNARFULLTRÚA
Hefði verið æðislegt að hafa hann
nálægt án þess að hann mætti
segja eitt einasta orð,
— segir Uffe Elleman Jensen
Petta er ekkert nema fita og bein ásamt smátuggu af kjöt- Svanhildur segir fáránlegt að kennurum skuli ætlaö aö UHe Elleman segist ekkert hafa á móti Jóni Baldvini; sér
meti, — segir dr. Kilroy um iambakótiletturnar. sauma sína eigin poka. finnist bara gaman aö hlusta á hann þegja.
líibi rl I' féöífe\ tNí
STOFNUÐ 1990
10. TÖLUBLAÐ, 3. ÁRGANGUR HAFA SKAL ÞAÐ ER BETUR HLJÓMAR l-IMMTUDAGURINN 12.
Mundi ekki þiggja vinnu
þótt mér væri borgaö fyrir
þaö, — segir Torfi Gísla-
son.
ALLT
ANNAÐ
LÍF
Segir Torfi Gíslason,
sem er búinn að vera
atvinnulaus í tvö ár
Revkiavík. 12. mars
„Veistu, mér var boðin
vinna um daginn. Ég sagði
nei takk og þurfti ekki að
hugsa mig um,“ sagði Torfi
Gíslason, sem er búinn að
vera atvinnulaus í rúm tvö
ár.
Torfi var mjög ófús að
koma í viðtal við GULU
PRESSUNA undir nafni.
„Kunningi minn fór í
svona viðtal um daginn og
það rigndi yfir hann og blaðið
allskyns atvinnutilboðum. Ég
held hann sé kominn í vinnu
vestur á Granda. Ég sá honum
bregða fyrir um daginn og
það var ekki sjón að sjá
hann,“ sagði Torfi.
Torfi segist taka daginn
rólega. „Ég fer á kaffihús,
skrepp í Ijós og lyfti lóðum ef
ég nenni. Mér finnst ég vera
til í fyrsta sinn á ævinni," seg-
irTorfi.
Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar
STEFÁNI
HJALTASY
VÍSAÐ AF
LANDIBROTT
Við erum búnir að fá nóg af þessum gæja, — segir Friðrik Sophusson
Nú þegar Stefán Hjaltason er
farinn úr landi má búast viö aö
efnahagslífiö taki fjörkipp.
Revkiavík. 12. mars
„Þegar við skoðuðum
styrkjakerfi ríkissjóðs og ým-
issa stofnana ríkisins kom í Ijós
hver var ástæðan fyrir óheyri-
legum halla á undanförnum
árum. Hún heitir Stefán
Hjaltason og er 43 ára skóla-
tannlæknir í Breiðholti,“ sagði
Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra þegar hann tilkynnti
að Stefáni Hjaltasyni hefði
verið vísað úr landi.
Stefán þessi hefur þegið
margskyns styrki úr ríkissjóði og
sjóðum í eigu ríkisins. Meðal
annarra styrkja má nefna;
þriggja mánaða laun úr rithöf-
undasjóði til að semja endur-
mirtningar sínar, styrk úr land-
græðslusjóði til að rækta upp
garðinn sinn, styrk úr kvik-
myndasjóði til að undirbúa
handrit að mynd um tannrótar-
bólgu í íslenskum skólabömum,
ferðastyrk frá sjávarútvegsráðu-
neytinu til að kynna sér neta-
veiðar við Vestur-Grænland og
styrk úr vísindasjóði til að skrá
niður reiðiköst konu sinnar.
„Þetta er bara fátt eitt af því
sem Stefán fékk,“ sagði Friðrik.
„Stóru upphæðimar komu úr
fiskveiðasjóði og Byggðastofh-
un. Svo fékk hann líka styrk ffá
Seðlabanka Islands til að reyna
að festa kaup á uppstoppuðum
hval í Nýju-Gíneu.“
„Ég vil ekkert segja. Þetta var
ágætt á meðan á því stóð,“ sagði
Stefán þegar hann sté upp í flug-
vél á leið til Kanada.
Stefán tók með sér öll ffum-
drög sín að kvikmyndum, endur-
minningum, vísindaskýrslum og
svo framvegis. Garðurinn hans
verður hins vegar eftir og hefur
ríkisstjómin ákveðið að breyta
honum í almenningsgarð.
Uppljóstranir GULU PRESSUNNAR
MATTI BJARNA SÖNG
FYRIR ÁRNA JOHNSEN
Á FLESTUM PLÖTUNUM
Árni var ekki einu sinni í stúdíóinu þegar Gölli
Valdason var tekinn upp
Vestmannaevium. 12. mars
„Ég veit ekki til hvers þið
viljið fara að grúska í þessu
núna. En það er rétt; ég gerði
þetta fyrir strákinn. Hann
þurfti eitthvað að skreppa og
ég raulaði þetta fyrir hann,“
sagði Mattías Bjarnason þing-
maður þegar GULA PRESS-
AN bar undir hann hvort
hann hefði sungið Göila
Valdason inn á plötu Árna
Johnsen.
Eftirgrennslan hefúr leitt í ljós
að Matti söng mun fleiri lög á
plötum Áma. Sumir heimilda-
manna GULU PRESSUNNAR
héldu því meira að segja fram að
Ámi hefði ekki einu sinni sungið
eina laglínu.
Matti Bjarna söng lagiö um
Gölla Valdason en ekki Árni.
„Hann kom héma einu sinni
og hellti upp á kaffi, svo var
hann rokinn," sagði upptöku-
stjóri sem vildi ekki láta nafhs
getið.
„Ég bað hann ekki um þetta,“
sagði Ámi, þegar GULA
PRESSAN bar þetta undir hann.
„Hann hefur tekið þetta upp hjá
sér sjálfum."
„Auövitaö heföi ég viljaö sameina Landakot einhverjum
öörum spítala en systurnar sögöu alltaf nei.
Landakotsspítali
SAMEINAÐUR
DÝRASPÍTALANUM
Systurnar settu það sem skilyrði að St. Bern-
harðshundar yrðu teknir í meðferð, — segir Sig-
hvatur Björgvinsson heilbrigðisráðherra
Revkiavík. 12. mars
„Eg get ekki lýst því hvað
ég er feginn að þessu máli
skuli vera lokið,“ sagði Sig-
hvatur Björgvinsson heil-
brigðisráðherra er hann
kynnti sameiningu Landa-
kotsspítala og Dýraspítalans.
Auðvitað hefði ég viljað
sameina Landakot einhveijum
öðrum spítala en systumar
sögðu alltaf nei. Svo datt mér
Dýraspítalinn í hug og fór að
taia um öll dýrin. Um leið og ég
minntist á St. Bemharðshunda
slógu systumar sér á lær og
samþykktu sameininguna. Eða
það skildist mér að minnsta
kosti,“ sagði Sighvatur.
Sighvatur sagðist telja að
einhvers konar trúarleg afstaða
lægi að baki ákvörðun systr-
anna.
„Þær sögðust þekkja Sankti
Bemharð og hans fólk. Þær
vissu hins vegar ekkert um
jtennan Davíð Á. Gunnarsson
og alla hina sem við reyndum
að bjóða þeim,“ sagði Sighvat-
Utanlandsferðir
á innanlands-
fargjöldum
Kaupmannahöfn
alla þriðjudaga og föstudaga
frá 1. mai til 30. september.
London
alla þriðjudaga og föstudaga
frá 1. mai til 30. september.
Verð frá 13.
tíi
Verð frá 15.
Ui
Glasgow
alla miðvikudaga
frá 10. maí til 30. september.
Verð frá 11.
TTÍ
Amsterdam
alla sunnudaga
frá 3. mai til 27. september.
Verð frá 15.
iTi
Alltaf með lægsta verðið
— PllinPgRPiR
= SLJLRRFLUG
Vesturgötu 17, sími 620066
Staðgreiðsluverð miðast við gengi 3.1.92.
Flugvallargjöld og forfallagjald ekki innifalið i verði.
LANDA
FERÐIR
SPÁNN -
ÍTALÍA
PORTÚGAL
GRIKKLAND
OG KÝPUR