Pressan - 07.05.1992, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 7. MAÍ 1992
11
L
/andslið karla í fótbolta og svo
landslið skipað leikmönnum 21 árs og
yngri halda til Grikklands á laugardag,
en liðin eiga að leika
í Grikklandi eftir
helgi. Alls fara tíu
fararstjórar, þjálfarar
og aðstoðarmenn
með hópnum. Þeir
sem fara til annars en
að spila fótbolta eru;
Eggert Magnússon,
formaður KSÍ, Guðmundur Péturs-
son varaformaður, Jón Gunnlaugsson
stjómarmaður, Ásgeir Elíasson þjálf-
ari, Gústaf Björnsson aðstoðarþjálfari,
Sigurjón Sigurðsson læknir, Þor-
steinn Geirharðsson, Þór Símon
Ragnarsson, stjórnarmaður í KSÍ,
Viðar Halldórsson, fynum landsliðs-
fyrirliði, og Sveinbjörn Sveinbjörns-
son...
T ^æknirinn sem var dæmdur fyrir
að falsa erfðaskrá heitir Sæmundur
Kjartansson og er húðsjúkdómalæknir
í Reykjavík. Það hefur komið fram að
Sæmundur var dæmdur í tólf mánaða
fangelsi og þar af eru níu mánuðir skil-
orðsbundnir, sem þýðir að Sæmundur
þarf ekki að sitja þann tíma af sér, bijóti
hann ekki frekar af sér...
Þ,
að dylst engum að íþróttadeild
ríkissjónvarpsins hefur orðið illa úti í
samkeppninni á síð-
ustu vikum. Það hefur
verið broslegt að
skipta yfír á íþrótta-
þætti RÚV á sama
tíma og Stöð 2 hefúr
verið með beinar út-
sendingar frá leikjum
FH og Selfoss. í gær var RÚV með
beina útsendingu frá Lissabon þar sem
Logi Bergmann Eiðsson lýsti leik
Werder Bremen og Mónakó. Það
merkilega er að Logi Bergmann er nú í
Lissabon. Það kom mörgum á óvart,
þar sem Ingólfur Hannesson hefur
verið að kvarta yfir hversu litla peninga
hann hefur til umráða. Ingólfur hafði
efni á að senda Loga til Lissabon en
enginn verður sendur til að lýsa leik ís-
lendinga og Grikkja í heimsmeistara-
mótinu sem háður verður í Aþenu...
S
i íþróttablaðinu, sem er nýkomið út,
er spá um hver lokastaða íyrstu og ann-
arrar deildar í fótboltanum verður í
sumar. Samkvæmt þeirri spá verður
Fram Íslandsmeistari, ÍA í öðru sæti,
Valur í þriðja og núverandi Islands-
meisturum í Víkingi er spáð fjórða sæti.
Vesturbæingunum í KR er spáð fimmta
sæti. ÍBK og Stjömunni er spáð efstu
sætum annarrar deildar og Fylki er spáð
þriðja sæti annarrar deildar...
frESH NATURAL H.AVC
VACUUM f'ACHtO
NPT ........... AC.A
Skútuvogi 10a - Sími 686700
aVTTAL
SJAMPO
OG
1992
1992
ESCORT/ORION
Nýr Ford á aðeiras 899.000
Þú verður að koma og prófa nýju Ford Escort og Ford Orion bílana hjá Globus, þvi annars sérðu
þessa kraftmiklu þýsku gæðagripi fljúga framhjá þér, með einhvern annan undir stýri. betta eru
ótrúlega kraftmiklir bílar og aksturseiginleikarnir eru slíkir að þú hefur tæpast kynnst öðru eins.
Nýju Ford Escort og Ford Orion eru fjölskyldubílar nútímans, rúmgóðír, vandaðir, öflugir og
sparneytnir. Og þú færð þá á aðeins frá 899 þúsund krónum með ryðvörn og skráningu.
Hefur þú ekið Ford.....ný!ega?
G/obusH
-heimur gceda!
Lágmúla 5, sími 91- 68 15 55