Pressan - 15.10.1992, Side 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.0KTÓBER 1992
ÞETTA
BLAÐ
LEGGUR
ALLT
UNDIR
... eins og alþýðu-
flokksmenn í Reykjavík
eru tilbúnir að gera í
næstu borgarstjórnar-
kosningum. Á blaðsíðu
lOmásjáaðþeireru
meira að segja tilbúnir
að leggja sjálfa heilaga
Jóhönnu Sigurðardótt-
ur undir sem borgar-
stjórnarefni.
... eins og þeir sem
hafa stundað spilavítin
í Reykjavík, sem lesa má
um á blaðsíðu 12. Lögg-
an var hins vegar ekki
tilbúin að leggja allt
undir. Hún lokaði að-
eins tveimur affjórum
þekktum spilaklúbbum.
... þóekkiásamahátt
og Mengele, engill
dauðans, gerði í nafni
læknavísindanna. Á
blaðsíðu 19 má lesa um
hvernig hann fékk úr
því skorið hvort ein-
hverjar afklikkuðustu
kenningum hans um
mannslíkamann stæð-
ust. Hann gerði tilraunir
á tvíburum sem enn
þann dag í dag þurfa
að líða fyrirþær.
... eins og mennirnir
sem fluttu inn hass i
málningardósum. Þeir
lögðu æru sina og frelsi
að veði fyrir von um
skjótan hagnað. Og
þrátt fyrir að þeir væru
gripnir glóðvolgir fyrir
fjórum árum hafa þeir
enn ekki þurft að gjalda
það sem þeim ber. Það
er regla frekar en und-
antekning hjá ávana-
og fíkniefnadómstóln-
um eins og sjá má á
blaðsíðu 9.
Af hverju réðst þú ekki ein-
hvern af þessum mönnum sem
brugga og græða á því, í stað
þess að gefast upp og selja
áfengisframleiðsluna,
Höskuldur?
,Ætli það hefði verið svo góður
kostur, ég er ekkert viss um að
ágóðinn af kunnáttu þessara
manna hefði lent í ríkiskassan-
um.“
Umfangsmikið bruggmál upplýstist í
Grafarvogi í vikunni og viðurkenndu
tveir ungir menn að hafa framleitt og
selt hátt í 600 lítra af landa frá því í sum-
ar. öll áfengisframleiðsla Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins hefur verið seld,
þar sem hún stóð ekki undir sér.
Höskuldur Jónsson er forstjóri ÁTVR.
F Y R S T
F R E M S T
HÖRÐUR SIGURGESTSSON. Eimskip vill helst ekki byggja hótel án
spilavítis. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON. Skemmti sér með
kraftakörlum í gleðisölum ríkisins.
EIMSKIP BÍÐUR ÁTEKTA
EFTIRSPILAVrn
Undanfarna daga hefur verið
mikið fjaðrafok út af spilavítum á
íslandi og víst að ýmsir eiga erfitt
með að bíða þess dags að þau
verði lögleyfð hérlendis. Einn
þeirra aðila mun vera Eimskipafé-
lagið, en sem kunnugt er hefur
Hörður Sigurgestsson forstjóri
mikinn áhuga á byggingu stórs
hótels og hefur verið tekin frá lóð
við Skúlagötuna í þessu skyni.
Eimskipafélagsmenn hafa hins
vegar ekkert verið að flýta sér að
ráðast í bygginguna þótt teikning-
ar séu nánast tilbúnar. Ein ástæð-
an mun vera sú að þeir bíða þess
að fjárhættuspil verði leyft hér líkt
og í öðrum löndum. Munu þeir
vart telja sér fært að ráðast í bygg-
ingu svo stórs og glæsilegs hótels
nema hægt verði að bjóða upp á
fjárhættuspil.
jÓN BALDVIN MEÐ AL-
ÞÝÐLEGASTA MÓTl
Síðustu daga hafa birst í fjöl-
miðlum ótal myndir frá mikilli
bjórhátíð á Eiðistorgi. Þar hefur
meðal annars mátt sjá Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráð-
herra, þar sem hann vaggar sér
við hljómfall þýskra bjórsöngva,
einna glaðværastur manna í góð-
um hópi.
Jón Baldvin hefur reyndar verið
fram úr hófi alþýðlegur upp á síð-
kastið. Ekki eru margir dagar síð-
an hann tók að sér gestgjafahlut-
verkið í veislu fýrir kraftajötnana
ógurlegu sem kepptu um nafhbót
sterkasta manns í heimi. Það at-
vikaðist reyndar þannig að Jón og
Bryndís Schram voru stödd í
Borgartúni 6, gleðihúsi ríkisins, í
afmælisveislu Jóhönnu Sigurð-
ardóttur. En þegar aðrir gestir
héldu heim eftir afrnælisfagnað fé-
lagsmálaráðherra mættu krafta-
karlarnir galvaskir og héldu utan-
ríkisráðherrahjónin áfram og
skemmtu sér með þeim fram á
nótt. Að auki hefur mátt sjá þau
hjón á Ítalíuhátíðum á Café Míl-
anó þannig að óhætt er að segja að
Jón Baldvin sjáist orðið við fleiri
slík tækifæri en Dóra Einars.
ÓLAFUR RAGNAR OG
SVAVARÍ ATHYGLIS-
KEPPNI
Það getur varla hafa farið fram-
hjá neinum hvernig þeir Ólafur
Ragnar Grímsson og Svavar
Gestsson fara hamförum í fjöl-
miðlum þessa dagana og greini-
legt að þeir eru komnir í hat-
ramma keppni um hvor fær meiri
athygli. Svavar hefur varla verið
meira áberandi í áraraðir, ekki
einu sinni þegar hann var
menntamálaráðherra. Telja marg-
ir að það hafi kviknað svona ær-
lega í honum eftir að Ólafúr Ragn-
ar sá til þess að hann yrði ekki
þingflokksformaður í sumarlok.
í þeirri orrahríð flokksbræðr-
anna sem nú stendur yfir var það
Ólafur Ragnar sem átti fyrsta út-
spilið þegar hann bauð ríkis-
stjórninni upp á nýjar stjórnar-
myndunarviðræður. Svavar svar-
aði jafnóðum með því að boða
blaðamenn á fund þar sem hann
kynnti sáttagjörð alþýðubanda-
lagsmanna í Reykjavík sem fólst í
því að myndað var kjördæmisráð.
Svavar hefur heldur ekki látið
neitt tækifæri ónotað til að láta
ljós sitt skína á þingi og er
skemmst að minnast þess þegar
hann krafði dómsmálaráðherra
um svör vegna málningarfötu-
málsins svokallaða nú í vikunni.
Ýmsir velta því fyrir sér hvort
þetta sé forsmekkurinn að frekari
baráttu miili þeirra flokksbræðr-
anna, enda sé ljóst að sátt náist
ekki þeirra í milli eftir að Svavari
var neitað um þingflokksfor-
mennskuna. Spurningin sé hvort
hann sé ekki þess fysandi að fella
Ólaf Ragnar í kjöri á næsta lands-
fundi og ná aftur formannssætinu
í flokknum.
KRISTINN ÆTLAR ALDREI
í PERLUNA
í síðasta tölublaði Vestfirska
jféttablaðsins er mikið viðtal við
Kristin H. Gunnarsson, þing-
mann Alþýðubandalagsins fyrir
Vestfirði. Kristinn lætur ýmislegt
flakka og segist meðal annars vera
sjálfstæðismaður í eðli sínu —
með Iitlu essi. Fram kemur að í
Jagger og McCartney
hugleiða íslandsför
Svo gæti farið að Islendingar eigi þess kost að horfa á Paul
McCartney eða Mick Jagger á tónleikum hérlendis á næstunni. Að-
standendur Skagarokks, með Sigurð Sverrisson í broddi fylkingar,
eru að leita leiða til að vinna upp tapið af Skagarokkinu, sem að mestu
átti rætur í lélegri aðsókn að tónleikum Black Sabbath. Sigurður stað-
fesíi í samtali við PRESSUNA að þeir félagar væru að hugleiða „stórt
nafn“ til tónleikahalds hér, en engin ákvörðun hefur verið tekin enn.
Hann vildi ekki gefa upp hver eða hverjir það væru, en áreiðanlegar
heimildir blaðsins herma að það séu Jagger og McCartney. Fyrst mun
hafa verið farið á fjörumar við Jagger og hann vera tilbúinn að koma, ef
saman gengur um kostnað og dagsetningu. Niðurstaða
fæst væntanlega nú um helgina. Von er á sólóplötu frá
Jagger á næstunni og ef af tónleikum hér yrði væri það
„frumsýning“ eftir útkomu plötunnar. Möguleikinn á að
fá McCartney kom síðar til sögunnar og viðmælendur
blaðsins væntu niðurstöðu í
því máli á næstu dögum.
McCartney hefur áður lýst yfir
áhuga sínum á að koma til fs-
lands, en þetta mun vera í
fyrsta sinn sem gerð er alvöru-
tilraun til þess. Þess má svo
geta að tæknimennirnir sem
fylgdu Jethro Tull og Black
Sabbath hingað til lands voru
yfir sig ánægðir með alla að-
stöðu á Skaganum og þótti tón-
leikahaldið heppnast tæknilega
mjög vel. Ef af frekari tónleik-
um verður er þó ljóst að þeir
verða haldnir í Reykjavík — af
fjárhagsástæðum.
Sigurður Sverrisson og Skagarokks-
menn reyna nú að fá aðalsprautur
Bítlanna og Rolling Stones til tón-
leikahalds hér til að borga niður hall-
ann af Black Sabbath.
fyrsta sinn sem Kristinn kaus þá
greiddi hann Sjálfstæðisflokknum
atkvæði sitt. Hann útskýrir það
með því að hann hafi haft nokkurt
álit á Matthíasi Bjarnasyni.
Faðir Kristins er Gunnar
Kristinsson, hitaveitustjóri í
Reykjavík. Kristinn er samt harð-
ur andstæðingur Perlunnar og
hann er spurður að því hvort
pabbi hans hafi ekki átt sinn þátt í
byggingu Perlunnar. Kristinn seg-
ir svo ekki vera, faðir sinn sé emb-
ættismaður en ekki pólitíkus og
bygging Perlunnar hafi verið pól-
itísk ákvörðun. „Mér finnst þetta
(Perlan) nú svona eitt ljótasta
dæmið sem maður hefur séð um
misnotkun valds og sóun peninga.
Ég hef ekki farið þarna inn og hef
ekki hugsað mér að gera það,“
segir Kristinn.
Kristinn segir það sína spá að
Davíð Oddsson verði ekki lang-
lífur sem pólitíkus, það eigi annað
betur við hann: „Leikari, Ijóð-
skáld, það svona liggur betur fyrir
honum.“ Um forsætisráðherra
framtíðarinnar segist Kristinn vel
geta séð þá Halldór Ásgrímsson
og Steingrím J. Sigfússon fyrir
sér í því embætti, „...ég held að
þeir séu mjög heilsteyptir báðir
tveir“.
KÁRI KEMURSUÐUR
MEÐ KJÖTIÐ
Kári Þorgrímsson, bóndi í
Garði í Mývatnssveit, er á góðri
leið með að verða hálfgerð þjóð-
hetja á íslandi, að minnsta kosti á
meðal þeirra sem eru lítið hrifnir
af landbúnaðarbákninu. En það er
víst að Kári hefur ekki valið auð-
veldustu leiðina. Á Húsavík var
honum til dæmis gert að greiða
rúmar 170 krónur í sláturkostnað
fyrir hvert lamb meðan aðrir
bændur greiddu um 70 krónur.
Kári þiggur ekki styrki frá ríkinu
og telja margir að barátta hans sé
næsta vonlítil.
En hann virðist ekki á þeim
buxunum að gefast upp og um
helgina er von á honum hingað á
mölina með kjötið. Á laugardag-
inn verður Kári í Kolaportinu og
selur sjálfur kjötið sitt. Er sagt að
þetta sé í fyrsta sinn í marga ára-
tugi að íslenskur bóndi mætir
sjálfur á markað og selur lamba-
kjöt milliliðalaust til neytenda.
ÓLAFUR RAGNAR GRlMSSON. Tekst honum að yfirgnæfa Svavar? SVAVAR GESTSSON Ætlar ekki að
láta í minni pokann fyrir Ólafi. KÁRI ÞORGRÍMSSON. Selur kjötið í Kolaportinu. KRISTINN H. GUNN-
ARSSON. Fæst ekki til að heimsækja pabba sinn í Perlunni.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Égfœ hugmyndirþegar ég horfi á sjón-
varp eðaferðast. Fékk t.d. ágcetis hug-
myndþegar ég var staddur í Bláa lóninu á
dögunum. Þar er hœgt aðfá nóg í eittgott
olíumálverk með gufuna og bláa himin-
inn, þokuna og margtfleira. “
mmm^m^mmmm^^^m lcdr randall nelson yfirsjoppukarl
Hann fær þó ekki lán
í Búnaöarbankanum
„Nú er kjörtími Kolla frænda eins
og Kolkrabbinn er nefndur um
þessar mundir.“
^ Guðni Ágústsson
forni
/
Höskuldur er
alveg fjallskýr!
„Það segir sig sjálff að þegar eftir-
spurnin minnkar um 7 til 8 pró-
sent eins og verið hefur hjá okkur
á þessu ári hljóta menn að spyrja
sig hvort verðið sé ekki of hátt.“
Höskuldur Jónsson
Kosturinn áið
(estrarkunnáttuna
„Myndin kom mér ekki
á óvart enda hafði ég lesið
handritið mörgum sinnum og
finnst flest hafa skilað sér eins
og það átti að gera.“
Bjöm Jörundur Friðbjörnsson
leikari
Ekkert er nýtt
undir sólinni
„Ég hef séð svona tillögur frá Al-
þýðubandalaginu sem hafa verið
dálítið sérkennilegar.“
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
brennivínsfursti
Aðalatríðíð er
jú að líða vel!
„Það er ekki sjálfgefið að
Islendingar haldi efnahagslegu
sjálfstæði sínu.“
Ólafur Ragnar Grímsson
þingmaður
Hann er minn maður hann Guðmundur L. Jóhannes-
son, dómarí í Hafnarfírði. Eins og allir vita dæmdi hanii
mann sem sveik 200 þúsund krónur út af krítarkorti 1
tveqqja ára fangeisi. Það er synd að Hæstiréttur skyldi*-
draga úr refsingunni. Eg vil að mæiistika Guðmundar
verði notuð á fíeirí en þennan greiðslukortamann. Til
dæmis ætiar Friðrik öophusson að fara 6,5 milljarða
framúr á ríkissjóðsheftinu. Hann á að fá 63.000 ára
fanqeisi. Stjórnendur Alafoss fóru 1,5 miWjarða framúr á
sínu hefti og eiqa að fá 15.000 ára fanqelsi. Fersónuieqa
skrifaði ég einu sinni út 750 króna ávísun sem éq átti
ekki fyrir og er tilbúinn að sitja af mér þá tvo daqa oq 17
klukkustundir sem éq á skilið fyrír það.