Pressan - 15.10.1992, Síða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.0KTÓBER 1992
9
Hinir ákærðu í málningarfötu-hassmálinu:
Stefán Einarsson viðskiptafræð-
ingur. Rúm tvö ár eru síðan
ákæra var gefin út gegn
honum og Hallgrimi
Mássyni. Stefán á fasteign
við Boðagranda, ekur
um á nýlegum Mercedes
Benz og rekur fyrirtæki
við Klapparstíg. Félagi
hans Hallgrímur rekur
tvo veitingastaði, en er
ekki skráður fyrir bifreið
og fyrir skömmu var ibúð
hans í verkamanna-
bústaðakerfinu slegin
á uppboði að kröfu
fjölmargra aðila.
AFULLUI
BISSNES8
MEMN
KBFBS
Ákæra gegn Hallgrími Mássyni og Stefáni Einarssyni var gefin út fyrir rúmlega
tveimur árum en hefur aldrei verið birt þeim. Þeir geta því óáreittir stundað
veitingarekstur og snyrtivöruframleiðslu.
Á sama tíma og embætti saka-
dómarans í ávana- og fíkniefna-
málum hefur ekkert aðhafst í
„málningarfötumálinu“ svokall-
aða, sem snýst um innflutning og
sölu Hallgríms Mássonar veit-
ingamanns og Stefáns Einarsson-
ar viðskiptafræðings á 60 til 70
kflóum af hassi, hafa hinir ákærðu
stundað atvinnurekstur óáreittir.
Tvö ár og þrír mánuðir eru Iiðnir
frá því að ákæra á hendur þeim
var gefin út, án þess að ákæra hafi
verið birt þeim Hallgrími, sem nú
rekur veitingastaði á tveimur
stöðum í borginni, og Stefáni, sem
nú framleiðir andlitskrem úr há-
karlalýsi í húsnæði við Klappar-
stíg.
HEFUR RYKFALLIÐ HJÁ
FÍKNIEFNADÓMSTÓLNUM
ÍRÚMTVÖÁR
Fréttir Stöðvar tvö nú af „máln-
ingarfötumáli“ þeirra Hallgríms
og Stefáns og seinaganginum í því
eru ekki nýjar fréttir. PRESSAN
fjallaði ítarlega um málið í mars
síðastliðnum, þar sem fram kom
að ákæra hefði ekki verið birt
mönnunum þótt eitt og hálft ár,
nú tvö, hefðu liðið frá því að
ákæra var gefrn út. Ekkert hafði
því verið gert í málinu og bar
dómari við sakadóm í ávana- og
fiíkniefnamálum því við að ástæð-
an væri að meira væri að gera hjá
embættinu en það gæti afkastað.
Hallgrímur var handtekinn árið
1988 þar sem hann var að koma
fýrir málningarfötum í bílskúr við
Giljaland í Fossvogshverfi. f máln-
ingarfötunum fundust rúmlega 10
kíló af hassi og síðar kom í ljós að
heildarmagnið var yfir 60 kíló.
Hallgrímur játaði brot sitt og síðar
beindist grunur að Stefáni. Rann-
sókn málsins gekk vel og það var
fljótlega talið upplýst og sent ríkis-
saksóknara, sem gaf út ákæru í
júlí 1990 eftir eins árs afgreiðslu-
tíma. Síðan, nú í tvö ár, hefur ekk-
ert verið aðhafst og málið sofið
Arnargrill í Breið-
holti. Á daginn rekur
Hallgrimur Másson
þar Arnargrill en
býður síðan upp á
næturþjónustu í
Næturgrillinu.
Grillið í Hafnarstræti
9, sem Hallgrímur
rekur. Þar er Hall-
grímur skráður með
aðsetur samkvæmt
símaskránni. Hann er
hins vegar þinglýstur
eigandi íbúðar í
verkamannabú-
staðakerfinu í Há-
bergi 3, en íbúðin var
seld á nauðungar-
uppboði fyrir rúmum
tveimur vikum.
1 þessu rislitla hús-
næði rekur Stefán
Einarsson efnafram-
leiðslu og framleiðir
andlitskremið Lovísu
úr hákarlalýsi. Hann
hefurað öðru leyti
rekið eigin bókhalds-
þjónustu.
1 verslunarmiðstöðinni í Neðra-Breiðholti er
þetta húsnæði sem Póstur og simi átti. Hall-
grímur Másson keypti húsnæðið, en seldi
það síðar Vilhjálmi Svan Jóhannssyni veit-
ingamanni, sem hugðist opna þar krá. Ekkert
varð úr því vegna mótmæla íbúanna í
grennd.
svefninum langa, þótt um sé að
ræða stærsta fíkniefnamál hér á
landi, miðað við magn.
MEÐ TVO VEITINGASTAÐI
OG KEYPTIUNDIR ÞANN
ÞRIÐJA
Hallgrímur Másson er 49 ára að
aldri, fyrrum málari. Hann setti
upp Arnargrill við Arnarbakka 2
fyrir nokkrum árum í leiguhús-
næði og síðar keypti hann Nætur-
grillið af manni sem hafði verið
staðinn að sprúttsölu til unglinga.
Hallgrímur rekur Arnargrill og
Næturgrillið samhliða, en á mis-
munandi tímum sólarhringsins.
Þá rekur Hallgrímur veitingastað-
inn Grillið í Hafriarstræti 9. Hann
rekur þessa staði í eigin nafni, sem
er fremur fátítt í veitingabransan-
um.
Fyrir nokkrum árum ætlaði
Hallgrímur að auka við sig í Breið-
holtinu er hann keypti húsnæði
Pósts og síma í sömu verslunar-
miðstöð og hugðist stofna þar
veitingastað. Af því varð ekki og
samkvæmt heimildum blaðsins
seldi hann þá nafntoguðum veit-
ingamanni húsnæðið, Vilhjálmi
Svan Jóhannssyni. Vilhjálmur
ætlaði að opna hverfiskrá þar, en
vegna mótmæla verslunareigenda
og íbúanna í kring varð ekkert af
því. Eftir því sem næst verður
komist fór húsnæðið aftur í eigu
Póstsog síma.
UPPBOÐ Á ÍBÚÐ HALL-
GRÍMS AÐ KRÖFU10 AÐILA
Hallgrímur þykir rólegur og
hann berst ekki mikið á. Hann er
ekkjumaður og er engin bifreið
skráð á hann persónulega. Hins
vegar er sendibiffeið skráð á veit-
ingareksturinn í Breiðholti. Hall-
grímur var skráður eigandi íbúðar
í Hábergi 3, sem er verkamanna-
bústaður, en þar var auglýst fram-
hald uppboðs 27. september sl. og
gerðarbeiðendur margir: Blikk og
stál hf., Gjaldheimtan í Reykjavík,
Reykvísk trygging hf. (Skandia),
Sjóðir Félags starfsfólks veitinga-
húsa, Tandur sf., efnaverksmiðja,
Verðbréfamarkaður Fjárfestingar-
félagsins, Bjarni Árnason, Geir
Borg, aðalræðismaður Tælands á
íslandi, Sigurður Gunnarsson og
Háskóli íslands.
Uppboðið fór fram, en' hvort
Hallgrímur missir eignina kemur
endanlega í ljós þremur mánuð-
um effir sölu, þ.e. í lok ársins.
FRAMLEIÐIR ANDLITS-
KREM ÚR HÁKARLAI.ÝSI
Stefán Einarsson er 43 ára og
útskrifaðist sem viðskiptafræðing-
ur frá Háskólanum 1980. Hann
hefur starfað á eigin vegum með
bókhaldsþjónustu og einnig rekur
hann litla efnaverksmiðju á
Klapparstíg 40b, þar sem hann
mun framleiða andlitskremið
„Lovísu“ úr hákarlalýsi. Þá er
hann orðaður við sjálfstæða lána-
starfsemi.
Þegar ljósmyndari PRESS-
UNNAR mætti þangað til
myndatöku brást Stefán hinn
versti við og brunaði á brott á ný-
legum Mercedes Benz. I bifreiða-
skrá er hann hins vegar skráður
fyrir 16 ára gömlum AMC-jeppa.
Hann á íbúð við Boðagranda og
fasteignina við Klapparstíg keypti
hann fýrir um tveimur árum.
FLEIRIMÁL DAGAR UPPI
HJÁ FÍKNIEFNADÓM-
STÓLNUM
Frásögn PRESSUNNAR af
„málningarfötumálinu“ í mars
síðastliðnum einskorðaðist ekki
við það mál, hvað seinagang varð-
ar. Fleiri mál lágu í dvala hjá dóm-
stólnum.
Nokkru eftir að rannsókn lauk
á „málningarfötumálinu“ eða í
maí 1989 var Bryndís Valbjörns-
dóttir handtekin í Leifsstöð og
fundust í fórum hennar fjögur kíló
af hassi. Bryndís kom talsvert við
sögu „málningarfötumálsins", en
hún er m.a. ákærð fyrir að hafa
selt sjö til átta kíló af hassi fýrir þá
Hallgrím og Stefán. Eftir því sem
næst verður komist er ekki enn
búið að birta Bryndísi ákæruna,
þó skal það ekki fullyrt.
f „stóra kókaínmálinu*1 svokall-
aða, sem kom upp árið 1989 og
snerist um smygl á kílói af kóka-
íni, voru gefnar út ákærur í tveim-
ur hlutum. Alvarlegri hluti máls-
ins var látinn í hendur Guðjóni
Marteinssyni, sakadómara við
Sakadóm Reykjavíkur. Hann
dæmdi í þessum hluta í júní 1990.
Dómnum var áfrýjað og málið
gekk einnig nokkuð greiðlega í
gegnum Hæstarétt.
Sá hluti sem sat eftir hjá emb-
ætti sakadómarans í ávana- og
fíkniefnamálum lá hins vegar
óhreyfður að mestu, þótt sá hluti
teldist minni að umfangi og létt-
vægari.
TÁLBEITUMÁLIÐ í SALTI
ÞRÁTT FYRIR ÍTREKUN
RÍKISSAKSÓKNARA
Og eins og frarn kom í umfjöll-
un PRESSUNNAR um kókaín-
málið, sem kom upp í ágúst síð-
astliðnum, á tálbeitan sem notuð
var í því máli, Jóhann Jónas Ing-
ólfsson, óafgreitt mál hjá fíkni-
efnadómstólnum. Hann var tek-
inn með þrjú kíló af hassi í febrúar
1990 og var ákæra gefin út í febrú-
ar í fýrra. Þrátt fýrir ítrekun ríkis-
saksóknara hefur málið ekki verið
tekið fýrir.
Getgátur voru uppi um að Jó-
hann hefði tekið að sér tálbeitu-
starfið fyrir lögregluna gegn lof-
orði um ívilnun í þessu máli, en
fíkniefnalögreglan kvaðst í skýrslu
til Rannsóknarlögreglunnar engu
hafa lofað honum. Sjálfur vildi
hann ekki tjá sig um það eða ann-
að sem málinu tengdist þegar
PRESSAN leitaði eftir því.
Friðrik Þór Guðmundsson
ásamt Karli Th. Birgissyni