Pressan - 15.10.1992, Side 16
16
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.0KTÓBER 1992
Hagur lífeyrissjóða fer batnandi en byggist á hárri ávöxtun
Eignir lífeyrissjóða
400 milljarð
um aldamót
Nokkrir af 88 lífeyrissjóðum landsins hafa
að þeir eiga fyrir skuldbindingum sínum, en
öðrum er um stórt gat að ræða sem þarf a<
annaðhvort með hækkun iðgjalda
Miðað við óbreyttar aðstæður
má búast við að eftir tólf eða þrett-
án ár muni lífeyrissjóðir landsins
greiða jafnmikið í lífeyri á ári og
þeir fá inn með iðgjöldum. Undir
þeim kringumstæðum verða sjóð-
irnir þá að ávaxta sig með afborg-
unum lána og háum vöxtum. Á
þeim tíma munu þeir aftur á móti
hafa safnað upp gífúrlegum eign-
um; varlega áætlað má búast við
því að lífeyrissjóðirnir eigi um 300
milljarða í árslok 1998, sem sam-
svarar landsframleiðslunni í ár, og
að þeir eigi um 400 milljarða í árs-
lok 2001. Nú má áætla heildar-
eignirnar nálægt 175 milljörðum
króna.
NÆSTSTÆRSTISJÓÐURINN
MEÐ 70 MILLJARÐA GAT
Staða flestra lífeyrissjóða hefur
batnað verulega á síðustu árum,
eftir verulegt eignatap í verð-
bólgubálinu og óverðtrygging-
unni 1970 til 1979. Margir þeirra
eru að ná því marki að eiga í raun
fyrir skuldbindingum sínum. Það
hefur gerst með hárri ávöxtun,
bæði vegna verðbréfa og útlána til
sjóðsfélaga. Meðalávöxtun allra
lífeyrissjóða, sem hlutfall af eign-
um að rekstrarkostnaði frádregn-
um, var á síðasta ári 6,5 prósent,
en almennt er talið að ávöxtunar-
hlutfallið fari lækkandi á næstu
árum.
Þótt staðan fari batnandi er
„endingartími" sjóðanna háður
ávöxtuninni. Fyrir liggur að
nokkrir sjóðir hafa skuldbundið
sig langt umffam núverandi eign-
ir. Þannig átti Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, annar
stærsti lífeyrissjóður landsins,
eignir upp á 16,5 milljarða að nú-
virði um síðustu áramót, en þá
hljóðuðu skuldbindingar sjóðsins
upp á yfir fimm sinnum hærri
tölu eða 84,6 milljarða. Lífeyris-
sjóður sjómanna, sá þriðji stærsti,
átti 12,8 milljarða en var búinn að
skuldbinda sig upp á 20,4 millj-
arða. Þá má nefna Lífeyrissjóð
hjúkrunarkvenna, sem átti 2,1
milljarð upp í 8,5 milljarða skuld-
bindingar. Og staða Lífeyrissjóðs
bænda var mjög óhagstæð vegna
þess hversu sjóðsfélagar voru al-
mennt gamlir þegar sjóðurinn var
stofnaður. Staða Lífeyrissjóða ráð-
herra og þingmanna var síðan ær-
ið sérstök. Þessir sjóðir áttu engar
eignir en skuldbundnar greiðslur
stóðu í 2,6 milljörðum króna.
Þessir tveir sjóðir væru vitanlega
Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSl, Magnús L. Sveinsson, formaður VR, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VS(, og Magnús
Gunnarsson, formaður VSl. Þessir menn hafa nú þegar mikil völd í gegnum eignaveldi lífeyrissjóðanna og þau völd eiga eftir að aukast.
Um aldamót má búast við að eignir lífeyrissjóðanna verði komnar upp í 400 miiljarða og eignirnar verði þá helmingurinn af öllum pen-
ingalegum sparnaði landsmanna (hlutfallið er nú um 37 prósent).
gjaldþrota ef þeir hefðu ekki ör-
uggan bakhjarl; skattgreiðendur.
Hið sama má reyndar segja um
Lífeyrissjóð bænda.
SJÓÐUR BYGGINGAR-
MANNA: 3,5% ÁVÖXTUN
ÞÝÐIR 3 MILLJARÐA GAT
Sem dæmi um hve ávöxtunin
skiptir miklu máli má taka Lífeyr-
issjóð byggingarmanna, eins og
hún var í árslok 1990. Þá voru
eignir sjóðsins 2,9 milljarðar að
núvirði. Miðað við 3,5 prósenta
ávöxtun hljóðaði skuldbinding
sjóðsins upp á 5,9 milljarða og því
um 3 milljarða gat að ræða. Þá
þyrfti sjóðurinn annaðhvort að fá
17,5 prósenta iðgjald eða skerða
lífeyrisréttindin um 26 prósent. Ef
ávöxtunin verður hins vegar 5,5
prósent að meðaltali duga eign-
imar fyrir skuldbindingum sjóðs-
ins.
En staða flestra lífeyrissjóða
hefur farið batnandi á síðustu ár-
um og má segja að nokkrir þeirra
eigi eignir til að dekka skuldbind-
ingar sínar. Þetta eru sjóðir eins
og Lífeyrissjóður verslunar-
manna, sá stærsti, Lífeyrissjóður
verkfræðinga og Söfnunarsjóður
lífeyrisréttinda. Sem dæmi um
batnandi stöðu annarra sjóða má
nefna að eignir Lífeyrissjóðs
Sóknar voru taldar duga fyrir 73
prósentum skuldbindinga í árslok
1989, en nú er hlutfallið komið
upp í um 85 prósent. Hjá Lífeyris-
sjóði verkstjóra hefur hlutfaliið á
sama tíma farið úr 60 prósentum í
78 prósent. Og það bil brúast
væntanlega fljótt því ávöxtun
sjóðsins var 8,2 prósent á síðasta
ári.
HÁTT í FIMMFÖLDUN
EIGNAFRÁ UPPTÖKU
VERÐTRYGGINGAR
Eignir lífeyrissjóðanna hafa
aukist ævintýralega á síðustu ár-
um, að raungildi um 15 prósent á
ári að meðaltali ffá 1981. Heildar-
eignirnar voru að núvirði 34,5
milljarðar í árslok 1980, en um
síðustu áramót voru eignirnar
orðnar 157 milljarðar. Sem hlut-
fall af öllum peningalegum spam-
aði landsmanna hafa eignir sjóð-
anna vaxið úr 22 prósentum árið
1980 í 37 prósent á síðasta ári. Um
næstu áramót má búast við að
eignirnar verði komnar upp í 170
til 175 milljarða og hafa þær þá
fimmfaldast að raungildi á tólf ár-
um. Fyrir aldamót verða eignimar
að óbreyttu komnar í 300 millj-
arða og er þá miðað við „aðeins“
10 prósenta aukningu á ári.
Á sama tíma hefur ráðstöfúnar-
fé sjóðanna aukist úr 11,6 millj-
örðum 1980 í 30,4 milljarða króna
1991. Reiknað er með að ráðstöf-
unarféð verði um 37 milljarðar á
næsta ári. Þetta er það fé sem
sjóðirnir hafa til að lána út eða
kaupa fyrir. Það skiptist annars
vegar í iðgjöld og hins vegar í eigið
framlag sjóðanna; afborganir og
vexti að frádregnum rekstrar-
kostnaði. Fyrir um áratug vom ið-
gjöldin að jafnaði 55 til 65 pró-
sentum hærri tekjupóstur en eigið
framlagið, en þetta hefur breyst
allverulega. Á síðasta ári var eigið
framlag um 40 prósentum hærra
en heildariðgjöldin.
LÁN TIL SJÓÐSFÉLAGA AÐ-
EINS 11% AF RÁÐSTÖFUN
SJÓÐANNA
Og notkunin á ráðstöfúnarfénu
hefur breyst talsvert á tímabilinu.
Árin 1980 til 1985 fóru 40 til 60
prósent ráðstöfunarpeninganna í
að lána sjóðsfélögum. Slíkar lán-
veitingar hafa dregist saman niður
í 11 prósent, á sama tíma og lán-
veitingar til ríkis, sveitarfélaga en
þó einkum til fjárfestingarlána-
sjóða hafa aukist til muna. Tísku-
fyrirbrigðið í heimi lífeyrissjóð-
anna undanfarin ár er þó hluta-
bréfakaup, sem hófúst fyrir alvöru
um 1987 að frumkvæði Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna. í árslok
1987 taldist hlutabréfaeignin alls
um 240 milljónir að núvirði, en
um síðustu áramót áttu lífeyris-
sjóðirnir 2,7 milljarða í hlutabréf-
um. Á síðasta ári einu saman jókst
virði hlutabréfanna um nær millj-
arð króna.
Svo undarlega sem það kann að
hljóma eru lífeyrissjóðir landsins,
88 að tölu, með eignir upp á ná-
lægt 170 milljörðum króna, alger-
lega skattfrjálsar og lausar við eft-
irlit. Þeir borga með öðrum orð-
um hvorki tekju- né eignaskatt og
ekkert fyrirfinnst í gildandi lögum
um að opinberir aðilar geti hlutast
til um málefiii sjóða ef talið er að
einhverjir þeirra séu í hættu, það
er að réttindi sjóðsfélaga séu ekki
tryggð. I fyrravor voru að vísu
samþykkt lög um að sjóðirnir skili
Bankaeftirlitinu ársreikningum,
en samþykktinni fylgdi takmark-
að eftirlitsákvæði.
ÁVÖXTUN UMFRAM VERÐ-
LAG MÁ EKKIFARA UNDIR
5 PRÓSENT
Það kann að hljóma eins og
argasta þversögn þegar sagt er að
flestir lífeyrissjóðanna stefni að
óbreyttu í gjaldþrot vegna þess að
eignir muni ekki duga fyrir skuld-
bindingum, á sama tíma og sagt
er frá gríðarlegri eignamyndun
sjóðanna. Staðreyndin er hins
vegar sú að ávöxtun þeirra af
eignum þessum þarf að vera 5 til 7
prósent umfram launa- og verð-
lagsbreytingar á ári til að kerfið
gangi upp. Þeir sjóðir sem eiga
litlar eignir, búa við hlutfallslega
háan rekstrarkostnað og hafa tek-
ið á sig miklar skuldbindingar
eiga litla möguleika á slíkri ávöxt-
un.
Dæmi um sjóði sem hafa búið
við mikinn rekstrarkostnað eru
Lífeyrissjóður Iðju á Akureyri, Líf-
eyrissjóður trésmiða á Akureyri,
Lífeyrissjóður ffamreiðslumanna,
Lífeyrissjóður Félags garðyrkju-
manna og Lífeyrissjóður verka-
manna á Hvammstanga. Hjá
þessum sjóðum var rekstrar-
kostnaðurinn að meðaltali 16,4
prósent af iðgjöldum árið 1989 og
hafði hlutfallið farið vaxandi. Hjá
SAL-sjóðunum var meðalhlutfall-
ið til samanburðar 5,7 prósent og
hafði farið lækkandi.
Dæmi um sjóði sem bjuggu við
hlutfallslega lága ávöxtun á síðasta
ári eru Lífeyrissjóður starfsmanna
Vestmannaeyjabæjar (1,9 pró-
sent), Eftirlaunasjóður Lands-
banka og Seðlabanka (3,4 pró-
sent), Lífeyrissjóður hjúkrunar-
kvenna (4,2 prósent) og Lífeyris-
sjóður trésmiða á Akureyri (4,3
prósent). Síðasttaldi sjóðurinn bjó
því bæði við lága ávöxtun og mik-
inn rekstrarkostnað, en tekur nú
þátt í sameiningaráformum sjö
eða átta lífeyrissjóða á Norður-
landi. Auk hagstæðrar ávöxtunar
eru það einmitt sameining og hag-
ræðing sem skipta sköpum fyrir
sjóðina í' framtíðinni._______
Friðrik Þór Guðmundsson
Eignabólga lífeyrissjóðanna
Lífeyrissjóðir landsins hafa frá 1980, eða frá því verð-
trygging fór að virka, aukið heildareignir sínar úr 34,5
milljörðum að núvirði í 157 milljarða eða um 355 prósent
að raungildi. Á sama tfma hefur ráðstöfunarfé sjóðanna
aukist úr 11,6 milljörðum í yfir 30 milljarða (162 prósent),
en lífeyrisgreiðslur úr 3,4 milljörðum í 6,7 milljarða. Allar
tölur í meðfylgjandi töflu eru í milljónum króna að nú-
virði.
Ár: Heiidar- Ráðst. Lífeyris- Iðgjöld Rekstr.
eignir fé greiðslur brúttó kostn.
1991 157.000 30.400 6.665 15.300 698
1990 141.200 25.500 6.470 14.700 681
1989 125.200 24.600 6.520 15.100 806
1988 106.200 22.600 6.975 15.400 640
1987 91.200 19.100 6.565 14.300 576
1986 78.300 15.800 5.280 12.100 487
1985 67.300 13.100 4.520 10.100 432
1984 61.000 11.400 4.210 9.200 373
1983 51.100 11.600 4.090 9.600 362
1982 47.400 12.700 4.460 10.700 404
1981 41.000 12.800 3.980 10.500 358
1980 34.500 11.600 3.360 9.100 340