Pressan - 15.10.1992, Side 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.0KTÓBER 1992
19
E R L E N T
Engin takmörk voru fyrir því upp á hverju Mengele tók við tilraunir sínar á börnum.
Tvíburarnir í Auschwitz
Fórnaflömb hins illræmda fangabúðalæknis nasista Josefs_Mengele varpa ljósi á viðbjóðslegar tilraunir
hans á börnum
Hann var ýmist kallaður
„Engill dauðans“ eða „Slátr-
arinn frá Auschwitz“. í síðari
heimsstyrjöldinni gerði hann
viðurstyggilegar læknisfræði-
tilraunir á föngum í útrým-
ingarbúðum nasista og var
jafnframt sakaður um að eiga
aðild að morðum á 400.000
manns, einkum gyðingum.
Hinn illræmdi fangabúða-
læknir nasista, Josef Mengele,
hafði takmarkalausan áhuga
á ungum tvíburum og gerði
óhugnanlegar tilraunir á
þeim á stríðsárunum. Þús-
undir barna létu lífið af hans
völdum og þau sem lifðu til-
raunir læknisins af biðu
óbætanlegt líkamlegt og and-
legt tjón og mörg hver hlutu
örkuml. Allar skýrslur um til-
raunir Mengeles eru glataðar
en fórnarlömbin sem lifðu
ömurlega fangavistina af hafa
engu gleymt. Nýverið komu
þau fram í þýska sjónvarpinu
og höfðu átakanlega sögu að
segja.
sem búsett eru víðs vegar um
heiminn, meðal annars í Ung-
verjalandi, fsrael, Póllandi,
Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Öll voru þau að koma fram opin-
berlega í fýrsta sinn og höfðu lengi
safhað kjarki áður en þau treystu
sér til að segja sögu sína. Það
reyndist fólkinu þó ekki sársauka-
laust að rifja upp ömurlega fortíð-
ina, sem legið hefur á því eins og
mara í tæp fimmtíu ár, og brustu
margir í grát.
Hinn vitfirrti og samviskulausi
Mengele vann sleitulaust við
læknisfræðilegar tilraunir á föng-
um í Auschwitz. Mestar „mætur“
hafði hann þó á bömum og kall-
aði reyndar sjálfan sig „Föður tví-
buranna“. Samkvæmt frásögn
fómarlambanna var Mengele óút-
reiknanlegur enda gat hann
brugðið sér í þijú ólík hlutverk.
Suma daga mætti hann í hvítum
slopp sem þýddi að bömin höfðu
ekki ástæðu til að óttast, því þá
fékkst hann við almennar lækn-
ingar. Verra var ef hann klæddist
bláum slopp því þá vann hann að
Fangi númer 35117, eitt fórnarlamba Mengeles, sem ekki lifði
tilraunir hans af.
fjarlægði líffæri. Oft var tíu til
fimmtán tvíuburasystkinum stillt
upp allsnöktum í upplýstum sal,
þar sem þau þurftu að standa
hreyfmgarlaus í sex til átta
klukkustundir, á meðan Mengele
og aðstoðarfólk hans rannsökuðu
þau hátt og lágt.
Saumaði systumar saman
Pólsk kona sem fram kom í
þættinum sagði frá skelfilegu
uppátæki Mengeles og hryllti
hana við að rifja atburðinn upp.
Mengele fýsti að fræðast nánar
um síamstvíbura og þar sem hann
hafði enga við höndina bjó hann
Fólk á leiðinni í útrýmingarbúðir nasista.
Þegar ljóst varð að Þjóðverjar
voru sigraðir og hersveitir Rússa
lagðar af stað í átt að fangabúðum
nasista í Auschwitz í Póllandi
lagði Mengele á flótta og hafði á
brott með sér öll sín gögn um
læknisfræðitilraunir á tvíburum.
Enginn veit hvað síðan varð af
gögnunum og útséð er um að
Mengele sjálfur geti varpað ljósi á
málið, þar sem nú þykir fullsann-
að að hann sé látinn. Margir voru
vantrúaðir á að jarðnesku leifarn-
ar sem fundust í Brasilíu árið 1978
væm af lækninum eftirlýsta, sem
farið hafði huldu höfði allt frá
stríðslokum. Nákvæmar erfða-
fræðilegar rannsóknir sem gerðar
voru á líkamsleifunum og skýrt
var frá fýrr á þessu ári hafa þó tek-
ið af allan vafa um að hinn látni sé
„Engill dauðans".
„Faðir tvíburanna"
í þýska sjónvarpsþættinum var
rætt við fórnarlömb Mengeles
rannsóknum sem gátu haft af-
drifaríkar afleiðingar. Verst var þó
ef hann klæddist gráum einkenn-
isbúningi því það þýddi að hann
væri í „vísindahugleiðingum“ og í
því hugarástandinu gerði hann
viðbjóðslegar .tilraunir sínar á tví-
bumm.
Mengele sveifst einskis við
kvalafullar tilraunir sínar og var
meðferð hans á börnunum svo
hrottaleg að þúsundir tvíbura
lifðu hörmungarnar ekki af.
Mengele vann mikið við blóð-
flutninga frá einum tvíbura til
annars og dældi úr börnunum
blóði uns þau féllu í yfirlið. Lék
honum mikil forvitni á að vita hve
mikið blóð væri hægt að taka úr
bami áður en það léti lífið og hik-
aði ekki við að ganga allaleið til að
fá úr því skorið. Erfðafræðilegum
rannsóknum Mengeles voru eng-
in takmörk sett; hann sprautaði
bakteríum inn í blóðrás fórnar-
lambanna, opnaði höfuðkúpur og
þá til. Þannig saumaði hann sjö
ára tvíburasystur saman á baki og
höndum og fylgdist svo með því
hvernig þeim vegnaði, tveimur
sálum í einum líkama. Stúlkumar
vom viðþolslausar af sársauka en
ofan á bættist að sýking komst í
sárin og greri í þeim. Sársauka-
vein telpnanna heyrðust dögum
saman um allar fangabúðirnar.
Foreldrarnir, sem voru sígaunar,
gátu ekki afborið að hlusta á þær
kveljast og gripu frávita af skelf-
ingu til þess örþrifaráðs að kæfa
dætur sínar til að binda enda á
þjáningar þeira.
Annað fórnarlamb Mengeles,
frá Ungveijalandi, missti röddina
í kjölfar tilrauna hans. Mengele
heillaðist af þeirri staðreynd að
hann og tvíburabróðir hans höfðu
gjörólíkar raddir; hann var gjör-
samlega laglaus en bróðirinn söng
aftur á móti í kór. Mengele var
óþreytandi við tilraunir sínar og
sprautaði viku effir viku eitmðum
vökva inn í barkakýli þess bróður-
ins sem laglaus var. Afleiðingin
varð sú að drengurinn missti
röddina fyrir fullt og allt.
Tvíburasystur frá Þýskalandi
höfðu sömuleiðis ljóta sögu að
segja af Mengele, en þær urðu
fórnarlömb þrotlausra tilrauna
hans á augum. Mengele var sífellt
að fást við augu stúlknanna; skar í
þau og hellti í þau alls kyns vökva.
Fyrir algjöra mildi héldu systumar
sjóninni en augun em þó svo illa
farin að þær þola ekki dagsbirtu
og þurfa alltaf að ganga með
skyggð gleraugu. önnur systranna
ef auk þess 100 prósent öryrki í
kjölfar tilraunanna og því algjör-
lega ósjálfbjarga.
Aðrar systur frá Bandaríkjun-
um, sem fram komu í þættinum,
hafa ekki gengið heilar til skógar
eftir að Mengele notaði þær sem
tilraunadýr. Önnur er geðklofi og
illa á sig komin líkamlega og hin
að 2/3 hlutum fötluð auk þess sem
hún er haldin flogaveiki. Tvíbur-
arnir sem rætt var við höfðu allir
beðið alvarlegan skaða af völdum
tilrauna Mengeles, bæði á líkama
og sál, og átt erfiða og jafnvel öm-
urlega ævi.
Áttu öll að fara í gasklefann
f raun ér það fyrir algjöra mildi
að einhverjir tvíburanna lifðu
fangavistina í Auschwitz af, því til
stóð að taka þá alla af h'fi, og var
nöfn þeirra er ffarn kömu í þætt-
inum að finna á „dauðalista“ nas-
ista. Þegar stríðið var tapað
og Mengele vissi að hann
yrði að flýja á brott skipaði
hann svo fyrir að allir tví-
burarnir skyldu teknir af
lífi. Börnin höfðu verið
rekin inn í gasklefann þar
sem þau biðu allsnakin
dauða síns þegar í ljós kom
að gasbirgðirnar vom upp-
urnar, enda höfðu nasist-
amir verið ósparir á gasið í
stríðinu. Vildi þetta börn-
unum til lífs, en hefðu gas-
kútarnir ekki verið tómir
væri enginn til frásagnar
um viðbjóðslegar tvíbura-
rannsóknir nasistalæknis-
ins í Auschwitz.
Fórnarlömb Mengeles
bundust samtökunum sem
nefnast CANDLES (Childr-
en of Auschwitz Nazi De-
adly Lab Experiments Survivors)
og stofhuð vom til höfuðs Meng-
ele. Samtökin hafa meðal annars
haft það að markmiði að fá end-
anlega úr því skorið hvort líkams-
leifar þær sem fundust í Brasilíu
1978 væru í raun og veru Josefs
Mengele, en margir höfðu dregið í
efa að svo væri. Reyndist gmnur-
inn á rökum reistur skyldi leitinni
að hinum eftirlýsta stríðsglæpa-
manni haldið áfr am í þeirri von að
hann fyndist. Þá yrði loks hægt að
láta hann taka út refsingu sína fyr-
ir viðbjóðslegar læknisffæðilegar
tilraunir og mörg hundruð þús-
und morð.
Þótt tjónið verði vissulega
aldrei bætt og sárin aldrei að fullu
grædd geta fórnarlömb Josefs
Mengele nú ef til vill fundið ein-
hvem frið í sálinni, því enginn vafi
er lengur talinn leika á því að
„Slátrarinn frá Auschwitz" sé all-
ur.___________________
Bergijöt FriOriksdóttir
Diplómat
afgreiðir
í stór-
markaði
Hann er ekki aldeilis af baki
dottinn, bandaríski diplómat-
inn Felix Bloch, sem vikið var
úr starfi fyrir tveimur árum
vegna gruns um stórfelldar
njósnir í þágu sovésku leyni-
þjónustunnar. Bloch, sem er 57
ára að aldri og gegndi áður
stöðu sendiherra Bandaríkj-
anna í Austurríki, hefur ráðið
Felix Bloch: Ánægður af-
greiðslumaður í Chapel Hill
sig til starfa sem afgreiðslu-
maður í stórmarkaði í heima-
borg sinni, Chapel Hill í Norð-
ur-Karólínu. Hljótt var haft um
hin meintu föðurlandssvik
Blochs, enda uppákoman
neyðarleg og því aldrei dæmt í
málinu. Var diplómatinn svik-
uli fjarlægður svo lítið bar á og
refsað fyrir athæfið með því að
hann var sviptur ellilífeyrisrétt-
indum sínum. Ljóst var að ekki
gat maðurinn lifað á loftinu
einu og því ekki annað að gera
fyrir hann en leita sér að nýrri
vinnu. Hana fann Bloch úti í
búð og þótt ótrúlegt megi virð-
ast er hann að eigin sögn hæst-
ánægður með nýja starfann.
Dóttir Stalíns í
skugga fortíðar
Lana Peters, 66 ára fráskilin þriggja barna móðir á Englandi,
á sér enga venjulega fortíð. Konan, sem heitir fullu nafni Svetl-
ana, er dóttir sovéska einræðisherrans Josefs Stalin og sú eina
þriggja barna hans sem enn er á lífi. Svetlana, sem var í æsku
uppáhald föður síns, lifir nú öllu fábreyttara lifi en áður og býr
í fjölbýli fyrir einstætt fólk í niðurníddu hverfi í Lundúnabcrg.
Svetlana hefur ekki átt auðvelda ævi en auk þess að eiga þrjú
misheppnuð hjónabönd að baki hvílir skuggi fortíðar stöðugt
á henni. Haft hefur verið eftir Svetlönu, sem reyndar forðast
fjölmiðla eins og heitan eldinn, að hún sé hætt að blekkja sig
með draumnum um að sér takist einn daginn að þvo afsér
stimpilinn „dóttir Stalíns". Það sé ekki hægt að gráta örlög sín,
en þó geti hún ekki neitað þvi að hún hafi oft óskað þess að
móðir sín hefði frekar náð sér i smið. Víst er að móðirin hefði
þannig að minnsta kosti átt hamingjuríkari ævi, en hún fyrir-
fór sér þegar Svetlana varsexára að aldri, örvilnuð vegna mis-
heppnaðs
hjónabands og
harðræðis eig-
inmannsins.
Svetlana hefur
lýstþvíyfir, að
húnsé ham-
ingjusömust
þarsem hún sé
sem allra
minnst minnt á
fortið sína. Hún
bíðurþessnú
að einhversýni
áhuga á að
gefaútævi-
sögu hennar,
en þannig
hyggsthún
reyna að sann-
færa heiminn
um aðhúnsé
blásaklaus af
gjörðum föður
síns, Stalíns.