Pressan - 15.10.1992, Blaðsíða 21
HVÍTA HÚSID / SlA
FIMMTUDAGUR PRÍSSAN 15. OKTÓBER 1992
21
Þátttaka í ferðum til Dublinar hefur þegar slegið öll
fyrri met. Þúsundir íslendinga streyma til þessarar
glaðværu höfuðborgarfrænda okkar. Við bjóðum
dvöl á tveim frábærum hótelum, Gresham og
Burlington, og innifalið í verði er góður írskur 1
morgunverður. Leyndarmálið við töfra Dublinar er
falið í mannlífinu sjálfu. Gestrisni íra er rómuð og í
Dublin rekur hvern menningarviðburðinn annan.
Meðal þess sem þar er á döfinni má nefna tónleika
óperusöngkonunnar heimsfrægu Tlrl Te Kanawa
13. nóvember, Tom Jones hinn eini og sanni,
treður upp 14. október, Shlrley Bassey heldur
tónleika 18. nóvember. Mikil leiklistarhátíð stendur
yfir mestan hluta októbermánaðar, jass og
þjóðlagatónlist ómar á hverju götuhorni og svo
mætti lengi telja.
AUKAFERÐ IMEÐ
ÍRSK-ÍSLENSKU BALLI!
Ferðir í október eru að seljast upp, það eru örfá sæti laus 18. og 25.
Því höfum við ákveðið að fara enn eina aukaferð 29. október. Og það sem meira er - við
sláum upp dúndrandi balli þar sem íslenskir og írskir skemmtikraftar stíga á svið!
Sannkölluð hátíð fyrir alla þá (slendinga sem verða staddir í Dublin - og írana að sjálfsögðu!
Allt að
seljast
upp!
18. okt. Orfá sæti laus
25. okt. Örfá sæti laus
UPPSELT ER í AÐRAR
FERÐIR í OKTÓBER.
22. nóv. Laus sæti.
26. nóv. Örfá sæti laus
27. nóv. Laus sæti.
29. nóv. Laus sæti.
UPPSELT ER í AÐRAR
FERÐIR í NÓVEMBER
HANDHAFAR VISA FAR-
OG GULLKORTS NJÓTA
STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTAR, ENDA
BERIST ANDVIRÐI GREIÐSLU TIL
FERÐASKRI FSTOFU N N AR 4 VIKUM
FYRIR BROTTFÖR.
wsm
41.4/U Kr. staðgreitt. Gisting í tvíbýli á Gresham hótelinu í
þrjár nætur. Ekki innifalið: íslenskur og erlendur flugvallarskattur —
2.350 kr. og forfallagjald -1.200 kr.
Við höfum tekið saman bækling með
handhægum upplýsingum fyrir þá sem ætla að
versla í Dublin. Honum verður dreift meðal
farþega okkar. Þar er að finna upplýsingar um
helstu verslanir og verslunarmiðstöðvar
iborgarinnar. Einnig eru þar ítarlegar upplýsingar
um endurgreiðslu á virðisaukaskatti. Farþegar
okkar geta fengið endurgreiðsluna í beinhörðum
peningum við brottförfrá Dublinarflugvelli.
NYR
1. DUBLIN. Þótttíminn séfljóturað líða í Dublin og margt hægt að geraá eigin vegum,
viljum við benda farþegum okkar á tveggja klukkustunda skoðunarferð um Dublin. Stefnt er að því
að fara á öðrum degi dvalarinnar. Verð: 1.000 kr.
2. VlSKÍIÐ Á HORNINU. í Dublin eru framleiddar margar gerðiraf guðaveigum og
er írskt viskí ein þeirra. í miðborginni er safn, „The Irish Whiskey Corner", þar sem sýndar eru
aldagamlar aðferðir við gerð á þessum heimsfræga drykk. Gestum safnsins er boðið að smakka á
framleiðslunni og bera saman við aðrar gerðir af viskíi. Verð: 900 kr.
3. KVÖLDSKEMMTUN MEÐ MAT. Við nýtum okkur þá möguleika sem Dublin
hefur upp á að bjóða í mat, drykk og skemmtun.
4. DAGSFERÐ í GLENDALOUGH. Við ökum í Glendalough, dalinn fallega,
skammt vestur af höfuðborginni. Þarna er einstaklega fagurt um að litast og mikið um gamlar hallir
og kastala. Komið verður við á sveitakrá. Verð: 2.000 kr.
5. KvÖLDFERÐ Á KRÁ. Þeir sem vilja geta slegist íför með okkur í kvöldferð út á
meðal íranna sjálfra. Reykmettað loft, spjall og söngur fram eftir kvöldi. Verð: 1000 kr. -1 drykkur
inn'^'nn' Brottför í hverja ferð verður auglýst í anddyrum hótelanna.
25. október verður stefnan tekin á hinn nýja og stórglæsilega
St. Margret's golfvöll rétt við Dublin. Kjartan L. Pálsson
skipuleggur þessa ferð og verður fararstjóri.
Reykjavík: Austurstræti 12 - S. 91 -69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96- 1 10 35
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Slmbréf 92 - 1 34 90