Pressan - 15.10.1992, Side 24
24
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. OKTÓBER 1992
PRESSAN
Útgefandi Blað hf.
Ritstjóri Gunnar Smári Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar Egill Helgason
Sigurður Már Jónsson
Auglýsingastjóri Sigríður Sigurðardóttir
Dreifingarstjóri Haukur Magnússon
Spákaupmennska
endurskoðenda
Hvergi í heiminum eru verðbréfa- og hlutabréfaviðskipti
án nokkurrar áhættu. Gengi slíkra bréfa sveiflast eftir trú
manna á efnahagslífið. Það á einnig til að rísa eða falla
vegna spákaupmennsku. Og slíkar sveiflur geta jafnvel
magnast vegna taugaveiklunar sem grípur um sig á mark-
aðinum.
Það er hins vegar séríslenskt fyrirbrigði að þeir sem hafa
umsýslu með verðbréfasjóðum sjái sjálfir um að skapa
áhættuna í þessum viðskiptum. Sjálfsagt þekkist það hvergi
í heiminum að endurskoðendur slíkra sjóða og helstu
stjórnendur taki að sér hlutverk markaðarins og fram-
kvæmi sveiflurnar á gengi bréfanna án aðstoðar utanað-
komandi afla.
Því miður virðist þetta vera raunin hjá Fjárfestingarfélag-
inu Skandia. Frameftir síðasta ári skráðu stjórnendur fé-
lagsins samviskusamlega hækkun á gengi bréfanna ffá degi
til dags. Allt þar til endurskoðun leiddi í ljós að þessar
hækkanir áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Um mitt
sumar var gengi bréfanna látið falla um tæp 5 prósent. Að
því loknu tóku stjórnendurnir aftur til við að skrá gengis-
hækkanir, allt þar til sagan endurtekur sig nú í haust og þeir
átta sig á að engin innstæða er fyrir þessum hækkunum.
Svo virðist sem í hvert sinni sem þessir menn líta yfir eignir
sjóðanna sem þeim er trúað fyrir komi það þeim í opna
skjöldu hversu margt af þeim eru ónýtir pappírar og glötuð
útlán. Þess á milli hafa þeir á tilfmningunni að allt gangi
þeim og sjóðunum í haginn. Og þeir skrá gengi bréfanna
samviskusamlega eftir þessari tilfinningu þar til þeir neyð-
ast til að dúnka því þegar endurskoðandinn áttar sig á
ósköpunum.
En þessi leikur með sparifé viðskiptavinanna virðist ekki
nógu spennandi fyrir stjórnendurna. í haust gripu þeir til
þess ráðs að loka sjóðunum skyndilega. Þessi lokun mun án
efa skerða verðgildi bréfanna enn frekar. Ef stjórnendurnir
ætla að mæta auknum innlausnum á bréfunum verða þeir
að koma einhverjum eignum sjóðanna í verð. Til þess verða
þeir að selja fyrst auðseljanlegustu og þar af leiðandi bestu
eignirnar. Það er því hætt við að það sem eftir verður í sjóð-
unum verði verðminna en sjóðirnir voru fyrir lokun.
Eins og kunngt er urðu eigendaskipti á Fjárfestingarfélag-
inu í vor. í tengslum við endurskoðunina á sjóðunum nú í
haust og lokun þeirra í kjölfar hennar hafa fyrrverandi og
núverandi eigendur sakað hver annan um hvernig komið
er. Það hnútukast er í raun hlægilegt. Báðir aðilar eiga fyrst
og fremst að hafa hagsmuni þess fólks, sem hefur treyst
þeim fýrir sparifé sínu, að leiðarljósi. Viðskiptavinir sjóð-
anna eiga í raun ekki að verða varir við eigendaskiptin. Nú-
verandi og fyrrverandi eigendum er skylt að jafria misklíð
sína með þeim hætti að það skaði ekki þetta fólk. Hvorugur
aðili hefur gætt þess.
Ef menn sætta sig ekki við þá varkárni og nákvæmni sem
er nauðsynleg við umsýslu verðbréfasjóða eiga þeir ekki að
taka hana að sér. Ef menn vilja meiri hasar en þetta starf
býður upp á eiga þeir að leita fyrir sér á öðrum starfsvett-
vangi.
Ritstjóm, skrifstofur og auglýsingar:
Nýbýlavegi 14-16, sími 64 3080
Faxnúmer:
Ritstjórn 64 30 89, skrifstofa 64 31 90, auglýsingar 64 30 76
Eftir lokun skiptiborðs:
Ritstjórn 64 30 85,
dreifing 64 30 86, tæknideild 64 30 87.
Áskriftargjald
700 kr. á mánuði ef greitt er með VISA/EURO/SAMKORT en 750 kr. á mánuði annars.
PRESSAN kostar 230 krónur í lausasölu
BLAÐAMENN: Andrés Magnússon, Bergljót Friðriksdóttir,
Friðrik Þór Guðmundsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Haraldur Jónsson, Jón Óskar Hafsteinsson útlitshönnuður, Jim Smart Ijósmyndari,
Karl Th. Birgisson, Sigríður H. Gunnarsdóttir prófarkalesari, Telma L Tómasson.
PENNAR: Stjórnmál og viðskipti; Birgir Árnason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
Hreinn Loftsson, Jeane Kirkpatrick, Mörður Árnason, Ólafur Hannibalsson, Óli Björn
Kárason, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Össur Skarphéðinsson.
Listir; Gunnar Árnason myndlist, Gunnar Lárus Hjálmarsson popp, Kolbrún
Bergþórsdóttir bókmenntir, Lárus Ýmir Óskarsson leiklist.
Teikningar; Andrés Magnússon, Ingólfur Margeirsson, Jón Óskar, Kristján Þór Árnason.
V I K A N
ROSALEGA GOTT
ALÞÝÐUBANDALAG
Mikið svakalega eru forystu-
menn Alþýðubandalagsins klárir.
Þeir þurftu ekki að sitja saman
nema fáeina klukkutíma þegar
þeir voru búnir að skapa 1.200 til
1.800 störf. Og ekki nóg með það.
Þeir voru búnir að skipta nýju
störfunum bróðurlega á milli ein-
stakra atvinnugreina. Sjávarút-
vegurinn fékk 100, skipaiðnaður-
inn 150 og þar fram eftir götun-
um. Ef allir Islendingar væru jafn-
klárir og þessir níu þingmenn Al-
þýðubandalagsins þyrfti þjóðin
ekki að örvænta. Og alþýðu-
bandalagsmenn eru þegar farnir
að búa sig undir að taka við ein-
hveijum afþessum 1.800 störfum.
Að minnsta kosti lá rifrildið á
fundi kjördæmaráðs flokksins
nánast niðri á sunnudaginn og
hefur flokkurinn þar með sparað
nokkur mannárin. Þau má nota til
að sinna einhverjum af nýju störf-
unum.
GLEÐIGLEYPAR
Lögreglan á Reykjavíkursvæð-
inu virðist hafa skorið
upp herör gegn hvers-
konar skemmtun sam-
borgara sinna. Fyrir
tveimur vikum lokaði
löggan í Kópavogi
næturklúbbnum
Gúlíver og um síð-
ustu helgi lokaði
löggan í
Reykjavík
tveimur
s p i 1 a -
klúbbum. Þó er
-e'rfitt að sjá að' á
þessum stöðum hafi ver-
ið framin einhver ódæði
sem kölluðu á afskipti hins opin-
bera. Þótt starfsemi klúbbanna
kunni að brjóta í bága við lög er
það lögbrot án fórnarlamba. Ef
fólk vill ekki fara í næturklúbb
neyðir enginn það til þess og ef
fólk vill ekki spila á spil og jafnvel
leggja eitthvað undir er enginn til
þess að pína það til þess. Ef ein-
hver armur hins opinbera ætti að
hafa afskipti af þessum stöðum
væri það skatturinn sem
ætti að mæta á staðinn
með löggiltar sjóðsvélar
svo eigendum stað-
anna væri gert kleift að
gjalda keisaranum
það sem hans
HLÝÐNIR
FRAMBJÓÐENDUR
Ríkissjónvarpið sýndi ffá kapp-
ræðum forsetaframbjóðendanna
bandarísku á sunnudagskvöldið.
Fyrir utan fýndni Ross Perot var
fátt merkilegt sem þeir sögðu;
nema helst að Bush ætlar að láta
Baker taka til í innanlandsmálun-
um á næsta kjörtímabili þar sem
honum gekk svo vel í utanríkis-
málunum á því síðasta. Það er
spurning hvers vegna þessi Baker
er ekki frekar í kjöri en Bush. En
hvað um það. Það sem íslenskum
sjónvarpsáhorfendum hefur sjálf-
sagt þótt sérkennilegast við þessar
kappræður var hversu hlýðnir
frambjóðendurnir voru. Enginn
þeirra talaði framyfir skammtað-
an tíma. Enginn þeirra virtist
þurfa hálfa mínútu til viðbótar til
að ljúka máli sínu og enginn
þeirra kvartaði undan því að tvær
mínútur væru of skammur tími til
að fjalla um einstök mál. Þetta er
annað en íslenskir sjónvarps-
áhorfendur mega þola af sínum
stjórnmálamönnum. Þeir geta
sjálfsagt ekki ímyndað sér Olaf
Ragnar eða Jón Baldvin þagna um
leið og tími þeirra er úti. Þessir og
aðrir stjórnmálamenn eru vanir
að hækka bara róminn ef einhver
reynir að temja orðaflauminn sem
rennur þeim úr munni.
HVERS VEGNA
Er ekki hœtta á að íslenskt
efnahagslífbíði álíka skipbrot
og það fœreyska?
SIGURÐUR B. STEFÁNSSON, FRAMKVÆMDASTJÖRIVERÐBRÉFAMARKAÐAR fSLANDSBANKA HF.
Styrkur íslenska þjóðarbúsins er sá
stöðugleiki sem við höfum notið
síðustu misseri.
Það væri óhyggilegt að mínum
dómi að svara þessari spurningu
afdráttarlaust á þá leið að engin
hætta sé á því að skuldir Islend-
inga verði þjóðinni ofviða. En lík-
urnar á því að við missum sjálf-
ræði í efnahagsmálum á sama hátt
og Færeyingar eru sem betur fer
hverfandi.
Styrkur íslenska þjóðarbúsins
er sá stöðugleiki sem við höfum
notið síðustu misseri. Verðbólga
er nú minni en víðast hvar í ná-
lægum löndum, tekjur eru góðar
og landsframleiðsla okkar er mikil
í samanburði við flest ríki heims
þótt hún hafi ekki aukist að marki
síðan árið 1987. Kjölfestan í efna-
hagsmálum núverandi stjórn-
valda er fast gengi. Með stöðugu
verðlagi hafa orðið margþættar
umbætur í íslenskum atvinnu-
rekstri, ekki síst í sjávarútvegi, til
að styrkja stöðu fyrirtækja. Hægt
og bítandi eru stöðugleikinn,
samkeppni og aukin framleiðni að
styrkja íslensk fýrirtæki en ekki
veikja þau eins og oft er látið í
veðri vaka.
En þegar verðbólga er dauð og
hætt að rugla menn í ríminu
endalaust kemur þó veikleiki
þjóðarinnar einnig í ljós á ýmsum
sviðum. Hættumerki eru langvar-
andi fjárlagahalli (sem þó er hætt-
ur að aukast), vaxandi atvinnu-
leysi með aukinni framleiðni fyr-
irtækja og hækkandi skuldir
heimilanna. Margt bendir til þess
að almenningur í landinu geri sér
ekki glögga grein fyrir þeim breyt-
ingum sem eru að verða á bú-
skaparháttum okkar við að verð-
bólga er horfin og festa hefur færst
yfir stjómarfar. Einhverjum kann
að vera hætta búin af þeim sök-
um.
Þjóðartekjur íslendinga eru í
reynd ekki samanlagt söluverð-
mæti allra okkar afurða heldur
samanlagt söluverðmæti að frá-
dregnum aðföngum og ýmsum
öðrum kostnaði. fslenska þjóðar-
búið á því í vændum umtalsverða
tekjuaukningu (t.d. 5 til 8 prósent)
með því einu að framleiða það
sama eða svipað og við geram nú
en með minni tilkostnaði. Mat
mitt á aðstæðum nú er því á þá
leið að íslensku efnahagslífi sé
ekki sú hætta búin að bíða skip-
brot á sama hátt og það færeyska.
Framundan kunna þó að vera fá-
ein mögur ár. Þau notum við til að
hreinsa til, auka framleiðni og
borga niður skuldir verðbólgu-
umrótsáranna. Við lærum af ör-
lögum færeysks efnahagslífs — og
af ráðleggingum sérsveita Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins sem þang-
að eru væntanlegar á næstu dög-
um.
FJÖLMIÐLAR
Vísindi og list blaðamennskunnar
Blaðamennska er að hálfu leyti
nokkurskonar vísindi og að hálfu
leyti einhverskonar list. Blaða-
maðurinn þarf því að notast við
vasaútgáfu af vísindalegum
vinnubrögðum við öflun gagna
og einhvern snefil af listfengi við
framsetningu niðurstaðna.þeirr-
arvinnu.
Þessi tvö þekktu grundvallar-
atriði blaðamennskunnar eru
brotin í nýjasta hefti Heims-
myndar; það fyrra í grein Þóru
Kristínar Ásgeirsdóttur um álit
kvenna og karla á konum og það
síðara í grein dr. Ivars Jónssonar.
Eins og vísindamaðurinn þarf
blaðamaðurinn að leggja upp
með kenningu. Ef hann hefði
ekki kenninguna mundi hann
renna blint í sjóinn án þess að
vita að hverju hann leitaði. Hann
mundi drukkna. Þetta veit Þóra
Kristín og hefur því búið sér til þá
kenningu að karlar líti fyrst og
fremst á konur sem kynverur
(sem í sjálfu sér er ef til vill ekki
svo sjokkerandi). Með þessa
kenningu í farteskinu spyr Þóra
síðan sextíu manns; helminginn
konur og hinn helminginn karla,
hvaða konur standi upp úr í
þjóðfélaginu.
Allt er þetta gott og blessað.
Gallinn er hins vegar sá að Þóru
Kristínu þykir svo vænt um
kenningu sína að hún birtist á
síðum Heimsmyndar sem niður-
staða könnunarinnar. Þar er birt
mynd af tfu ungum konum sem
allar hafa á undangengnum árum
lent á lista yfir kynþokkafyllstu
konur landsins. Þrátt fyrir að
spurt hafi verið hvaða konur
stæðu upp úr í þjóðfélaginu er
þar engin Vigdís og engin Guð-
rún Erlends. Þar er ekki einu
sinni Vigdís Gríms, sem körlun-
um þykir þó voðalega sæt.
Ég er tilbúinn að hengja mig
upp á að þó svo að Þóra Kristín
hefði í byrjun valið sér mestu
kynlífsmeiníaka þjóðlífsins og
spurt þá ofangreindrar spuming-
ar hefði hún ekki getað fengið
þessa niðurstöðu. Við á PRESS-
UNNI höfum staðið fyrir það
mörgum sambærilegum skoð-
anakönnunum; bæði í gegnum
Skáls og eins með beinum sam-
tölum blaðamanna, að ég veit al-
veg hvað ég er að tala um. Þó svo
Þóra Kristín hefði beint hagla-
byssu að karlpeningnum í könn-
uninni hefði hún ekíd getað kom-
ið Vígdísi Finnbogadóttur af list-
anum yfir þær konur sem karlar
telja að standi upp úr í þjóðfélag-
inu.
Fyrst Þóru Kristínu þykir
svona vænt um kenningu sína
hefði henni verið nær að reyna að
sanna hana með öðrum hætti
þegar þessi leið reyndist ófær í
stað þess að laga niðurstöðurnar
að kenningunni.
Þetta var um vísindalegu hlið-
ina á blaðamennskunni. Um brot
dr. fvars Jónssonar gegn listrænu
hliðinni þarf ekki að fjölyrða.
Nægir að birta stutt brot úr grein
hans;
„Nýsköpunarvænlegri fyrir-
tækjatengsl má finna með því að
kanna tengsl sjávarútvegsfyrir-
tækja og fyrirtækja í eftirtöldum
atvinnugreinum: rafmagnsvöru-
og tækjagerð og viðgerð (370),
smíði og viðgerð vísinda- og
mælitækja (391), tölvuþjónustu,
forritun og hugbúnaðarstarfsemi
(atvinnugrein númer 848),
málmsmíði, málmvörugerð og
vélsmiðjur (350), skipasmíði og
viðgerðir (381), kaðla-, línu-,
færa-, tauma- og netagerð (233)
og loks sápugerð, lyfjagerð, kem-
ísk ffamleiðsla (319).“
Þar hafið þið það og verði ykk-
ur að góðu.
G unnar Smári Egilsson
Setning og umbrot: PRESSAN Filmuvinnsla, plötugerð og prentun: ODDI