Pressan - 15.10.1992, Blaðsíða 30
30
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. OKTÓBER 1992
í Þ R Ó T T I R
Hnignun enska fótboltans
Eftir hrakfarir enska
& * landsliðsins í knatt-
spyrnu á Evrópumeist-
aramótinu í Svíþjóð í sumar hafa
enskir sparksérfræðingar mikið
pælt í því hvað sé að í enskum fót-
bolta. Niðurstaða þeirra er sú að
enskur fótbolti sé hreinlega leiðin-
legur og lélegur. Leikmenn hafi
ekki sömu tækni og leikmenn
annarra þjóða og ekki sama auga
fyrir spili. Þjálfun fótboltamanna
sé mjög ábótavant; lítil áhersla sé
lögð á tækni og spil en þeim mun
meiri á langhlaup og armbeygjur.
Englendingar spili kraftabolta
sem byggist upp á því að sparka
boltanum langt fram á völl og
hlaupa eins og andskotinn á eftir
honum og vona það besta. Enska
landsliðið hugsaði íyrst og fremst
um það í Svíþjóð að koma í veg
fyrir að andstæðingurinn næði að
spila fótbolta en ekki að spila fót-
bolta sjálft.
Þeir sem bera hag enskrar
knattspyrnu fyrir brjósti segja að
þessu verði að breyta. Fótbolti eigi
undir högg að sækja á Englandi
og ensk landslið og félagslið nái
ekki árangri á alþjóðavettvangi
með þeim bolta sem þau spila
núna. „Kick and run“-bolti gangi
ekki, leikni og samspil sé það eina
sem vænlegt sé til árangurs.
Það var árið 1988 að Wimbled-
on sigraði Liverpool, eitt/núll, í
úrslitum bikarkeppninnar. Li-
verpool spilaði skemmtilega
knattspyrnu enda með marga
hæftleikaríka leikmenn í sínum
Gervihnattasport
IjMBÚlúMM'M’jr.mtíl'Mil
11.30 Hornabolti Screensport.
Þetta er [þrótt sem við
þekkjum helst úr b(ó-
myndum en líkist einna
helst kýló sem stundað var
(og er kannski enn) I skóla-
portum I gamla daga.
16.30 Manchester United Sky
Sports. Uppáhaldsfótbolta-
félag margra (slendínga.
Skyggnst bak við tjöldin,
en liðið hefur ekki orðið
Englandsmeistari I tuttugu
ár.
20.30 Brasiliskur fótbolti Scre-
emport. Brassarnir eru liprir
með knöttinn.
11.30 Þríþraut Eurosport. Frá
Hawaii. Keppendur synda
3,8 kllómetra, hlaupa 42
kílómetra og hjóla litla 180
kílómetra. Þægilegt að
vera bara áhorfandi I sóf-
anum heima.
13.00 Golf Screcnsport. Bein út-
sending frá öðrum degi
golfmóts I Skotlandi. Lið
frá mörgum löndum reyna
með sér.
13.00 Dans Eurosport. Heims-
meistarakeppnín I dansi I
Kolding ( Danmörku. Eru
(slendingar með?
12.00 Körfubolti Screettsport.
Fréttir, upplýsingar og brot
úr leikjum viða að.
13.00 fþróttir i laugardegi Sky
Sports Fimm tima Iprótta-
páttur og áherslan verður
mest á fótbolta að þessu
sinni.
19.00 FjölbragBaglima Sky
Sports. Þeir llta út eins og
teiknimyndafígúrur og peir
slást lika eins og teikni-
myndafigúrur. En það er
gaman að peim.
EM'M t' ■ >' K'M ’MJA'M il
13.00 Golf Screettsport. Fjórði og
síðasti dagur mótsins í
Skotlandi.
13.00 Fótbolti Sky Sports. Bein
útsending frá úrvalsdeild-
inni ensku, Manchester
United leikur gegn Li-
verpool.
14.00 Strandblak I Parfs F.uro-
sport. Einhverjir velta pvl
sjálfsagt fyrir sér hvar
ströndin í Parls er. Þvi er til
að svara að Frakkar bjuggu
tii eitt stykki og þar er
keppt.
19.00 Evrópuþátturinn Euro-
sport. Úrslit og svipmyndir
frá mörgum íþróttagrein-
um í flestum löndum Evr-
ópu.
Graham Taylor landsliðsþjálfari hefur verið gagnrýndur
mjög og er talinn munu hætta bráðlega. Howard Wilkin-
son hefur verið nefndur sem arftaki hans.
I handknattleiksbók
HSl fyrir þetta timabil
má finna marga
skemmtilega og fróð-
lega mola. Þar er með-
al annars sagt frá því
að fæst mörk í lands-
leik sem Islendingar
hafa leikið til þessa
voru gerð ileik íslend-
inga og Finna í Reykja-
vík 23. maí árið 7 950.
Leikurinn endaði með
jafntefli; hvort lið
gerðiþrjú mörkl Þá er
líka athyglisvert að frá
árinu 1972 eða i tutt-
ugu ár hafa einungis
þrjú lið hampað ís-
landsmeistaratitlin-
um; Valur, Víkingur og
FH.
Gascoigne komst ekki til Svíþjóðar vegna
meiðsla.
röðum. Leikmenn Wimbledon
voru grófir, höfðu litla tækni og
dagskipun þeirra var: Ekki leyfa
Liverpool að spila knattspymu og
vonum það besta! Það bar árang-
ur og Wimbledon- leikmennimir
hömpuðu bikarnum. Allt í einu
varð það ljóst að lið þurfti ekki að
vera gott til að vinna titla í enskri
knattspymu. Hún hefur ekki bor-
ið sitt barr síðan.
Englendingar hafa bent á að að
ástæðan fyrir slöku gengi í Svíþjóð
sé sú að þeirra leiknustu og bestu
leikmenn voru ekki með; Paul
Gascoigne og John Barnes, þeir
voru meiddir. En Chris Waddle,
sem er afar teknískur og hefur
plumað sig vel í meginlandsbolt-
anum, var ekki valinn í landsliðið.
Landsliðsþjálfarinn Graham Tayl-
or sagði að hann passaði ekki inn í
Chris Waddle var klár í slaginn í
Svíþjóð en Taylor vildi hann
ekki í landsliðið. Sagði að leik-
stfll hans passaði ekki fyrir
enska liðið.
leikstíl enska liðsins! Af hverju
ekki? Sennilegast af því að Taylor
ætlaði sér langt í keppninni með
sömu aðferð og Wimbledon vann
bikarinn á. Fyrir þetta hefiir Tayl-
or verið óspart gagnrýndur og
sennilega verður hann ekki lands-
liðsþjálfari miklu lengur.
Þjálfarar og fótboltaspekúlantar
skiptast nú í tvær fylkingar; ann-
ars vegar segja menn að vænlegast
sé að dæla boltanum ffam og láta
framherjana hlaupa og vona að
varnarmenn andstæðinganna geri
mistök; spila dæmigerðan enskan
bolta. Hins vegar eru þeir sem
segja að grunnþjálfun og hugsun-
arhætti þurfi að breyta. Englend-
ingar verði að læra að spila knatt-
spymu eins og hún er leikin víðast
hvar annars staðar; leika boltan-
um á milli sín, láta boltann vinna
og skapa með því færi.
Charles Hughes, ffammámaður
í enskum fótbolta sem gefið hefur
út bók um hvernig eigi að spila til
að vinna, er í fyrrnefnda hópnum.
Hann hefur reiknað út að áttatíu
prósent marka á Englandi komi
eftir fjórar sendingar á milli sam-
herja eða færri. Hvað segir það?
Ekkert, segja andstæðingar hans
og benda á að níutíu prósent
enskra Uða spila bolta sem gengur
út á það að dæla boltanum inn í
vítateig andstæðinganna og óhjá-
kvæmilega hljóti einhver mörk að
koma útúrþví.
„Við þurftum að hlaupa í þessa
átt og hina áttina þindarlaust, og
svo var okkur sagt að gera eins og
eittþúsund armbeygjur! Áherslan
var öll á líkamlegu hliðina," segir
John Fashanu. Hann segist hafa
verið orðinn 25 ára þegar hann
uppgötvaði að tæknilega var hann
aftarlega á merinni og þá hafi ver-
ið of seint að gera eitthvað í því
sem almennilega mætti að gagni
koma. Frá árinu 1984 hafa verið
starfræktar þjálfunarbúðir fyrir
unglinga víðsvegar um England,
sem stór hópur drengja hefur sótt.
Á hveiju ári hafa síðan sextán þeir
efnilegustu verið valdir og farið í
sérstakan fótboltaskóla þar sem
þeir hafa numið í tvö ár. Þetta var
talið snjallt í upphafi og Englend-
ingar töldu sig vera að ffamleiða
ffábæra fótboltamenn. En það var
öðru nær. Afþeim 137 drengjum
sem þarna hafa lært hafa aðeins
sjö komist í undir 21 árs landslið-
ið! John Ebbrell hjá Everton og
Mark Robbins hjá Manchester
United eru þekktastir þessara pilta
og eru reyndar ekki nema 22 ára
enn. Þetta starf virðist því hafa
brugðist.
Enskir þjálfarar sitja undir
ámæli fyrir að fylgjast ekki nægi-
lega vel með því sem er að gerast í
fótboltaheiminum. Þeir eru til að
mynda ákaflega latir við að sækja
stórviðburði eins og heimsmeist-
ara- og Evrópukeppni. Þeir eru
ánægðir með að félagsliðin skuli
spila kraftabolta — sem er hvorki
áferðarfallegur né skemmtilegur
— meðan það skilar árangri á
Englandi. í stað þess að leita leiða
til að bæta spilið og fótboltann um
leið beygja þeir sig undir þessa
staðreynd. Meira að segja George
Graham, framkvæmdastjóri Ar-
senal, sem oft hefur spilað knatt-
spymu eins og hún gerist best, tók
um daginn nokkra leikmenn út úr
liði sínu — meðal annars Anders
Limpar, sem sennilega er einn
besti leikmaður á Englandi. Hann
gaf þá skýringu að hann yrði því
miður að taka þá út og setja inn
leikmenn sem væru harðari og
meiri sparkarar því menn hefðu
einungis áhuga á hversu mörg stig
liðið halaði inn en ekki hversu
skemmtileg knattspyrnan væri.
En hver er framtíð enskrar
knattspymu? Munu ensk landslið
halda áfram að verða sér til
skammar á alþjóðavettvangi? Eitt
er víst: Meðan kraftafótboltinn
■ skilar árangri á Englandi verður
erfitt að fá enska þjálfara til að
breyta hugsunarhætti sínum. Og
meðan hugsunarhátturinn breyt-
ist ekki munu landsliðin og félags-
liðin ekki vinna marga Evrópu-
eða heimsmeistaratitla.
ætlar til Bandaríkjanna
„Þú getur enn leikið í úr-
& slitum heimsmeistara-
keppninnar. Þú hefur
hæfileikana. Það er þitt að koma
þér í nógu gott líkamlegt form en
ef þú vilt keppa þá geturðu það.“
Þetta segist snillingurinn Pele hafa
sagt við Diegó Maradona síðast
er þeir hittust. Pele hvatti Marad-
ona til að skella sér á fiillu í barátt-
una á ný og knattspyrnugoðið
Maradona ætlar að taka hann á
orðinu.
Maradona leikur nú með Se-
villa á Spáni. Hann hefur einhvern
tímann verið í betra líkamlegu
formi en töffamir búa enn í fótum
hans og Argentínumenn geta ekki
hugsað sér betri fréttir en þær að
Maradona gefi kost á sér í argent-
ínska landsliðið að nýju.
VIGGÓ SIGURÐSSON
Hálfatvinnumennska staðreynd
m ,J Nú liggur ljóst fýrir
v4yV hvaða lið mæta FH og
^ Val í annarri umferð
Evrópukeppninnar í handknatt-
leik. I fyrstu umferð afgreiddi FH
Kyndil frá Færeyjum léttilega,
Valsmenn voru ekki í vandræð-
um með norska liðið Stafangur
en Víkingar féllu fyrir fimasterku
liði Runar frá Noregi. Það má því
segja, að úrslit fyrstu umferðar-
innar hafi verið „eftir bókinni".
Runar hefur styrkt lið sitt frá í
fyrra og voru þeir þó sterkir fyrir.
Víkingar hafa hins vegar misst
mannskap og því var við ofurefli
að etja. Norðmenn hafa endur-
skipulagt alla þjálfun undanfarin
ár og lagt mikla peninga í bolt-
ann. Norskur karlahandbolti,
sem hefur lengi verið í öldudal,
virðist vera að sigla ffam úr þeim
Peningamálin skipta miklu máli í upp-
byggingu handboltans. Það er morgun-
Ijóst, að sum tslensku félaganna fara sér
alltofgeyst hvað varðar greiðslur til leik-
manna.
íslenska.
Mótherjar FH í annarri um-
ferð, Ystad, eru mjög sterkir og
verðugir andstæðingar. Fyrri
leikurinn verður í Hafnarfirði,
sem er slæmt, því möguleikar
FH-inga eru mildir. Að fenginni
reynslu, FH-ingar: Ef þið vinnið
þá úti.og sláið þá út úr keppninni,
alls ekki mæta í veislu hjá þeim
eftir leikinn. Þar nota nefnilega
Wadmark (hann býr í Ystad) og
félagar tækifærið til að láta þriðja
leikinn fara fram. („Ystad-málið"
er geymt en ekki gleymt hjá Vík-
ingum!)
FH-Iiðið er mjög gott um þess-
ar mundir, mjög góð blanda af
reyndum og efnilegum leik-
mönnum. Það sem ég held að
geri útslagið er spurningin um
það hvort Kristján Arason verð-
ur orðinn góður af meiðslum sín-
um eða ekki. Valsmenn eiga að
komast áfram. Þeir eru með mjög
skemmtilegt lið, horna- og línu-
mann í heimsklassa auk þess sem
Guðmundur Hrafnkelsson
markvörður bregst ekki þegar á
reynir. Veikleiki Vals er, að þeir
hafa reynslulida leikmenn í lykil-
stöðum. Leikmenn eins og Dagur
Sigurðsson og Ólafur Stefánsson
eru mikil efni og leikimir því góð
prófr aun fyrir þá.
Það má segja að lið FH og Vals
eigi að geta staðist öðrum félags-
liðum snúning fyrir utan
spænsku og þýsku liðin. í Þýska-
landi og á Spáni eru peningar
ekki vandamái í boltanum og for-
ráðamenn stóru liðanna setja
stefnuna ekki síður á Evrópu-
meistaratítil en landstitil. Ég veit,
að til dæmis leikmenn FC Barcel-
ona á Spáni fá geysilega háar
greiðslur fyrir hverja umferð sem
þeir komast áfram í Evrópu-
keppninni - að ekki sé nú talað
um fyrir Evrópumeistaratitilinn
sjálfan.
Peningamálin skipta miklu
máh í uppbyggingu handboltans.
Það er morgunljóst, að sum ís-
lensku félaganna fara sér alltof
geyst hvað varðar greiðslur til
leikmanna.
Það er spurning hvort ekki
þurfi að skoða þessi mál frá
grunni, en það er ljóst að hálfat-
vinnumennska er nú þegar stað-
reynd í íslenskum íþróttum.
Hötundur er handknattleiksþjáltari.