Pressan - 15.10.1992, Qupperneq 34
34
Popp
FIMMTUDAGUR
Móeiður Júníus-
dóttir ásamt djasstríói
skemmtir á bjórhátíðinni
Októberfest á Berlín í
n af bjór kostar einungis
sexhundruð krónur. Þeir sem hafa
ekki sterka handleggi ættu að halda
sig við hálfan lítra í einu.
• Viðar og Þórir sem eru Jóns- og
Úlfarssynir leika aftur á Borgarvirkinu
eftir andlitslyftinqu. Ekki eigin and-
litslyftingu, þrátt fyrir að það væri nú
kannski ekki svo galin hugmynd,
heldur andlitslyftingu Borgarvirkisins,
sem hefur nú stærra dansgólf og ný
rúðugler.
• Guðmundur Rúnar er hreint
ágætur trúbador og andsk.. flottur á
hjólinu. Hann verður sem fyrr á Fóg-
etanum.
• Fánar eru gleði- og skemmtisveit
með ágætan húmor, — að minnsta
kosti að eigin dómi. Þeir skemmta á
Feita dvergnum við Höfðabakka-
brúna.
• George Grossman og Rut Reg-
inalds eru nýr dúett. Þau blúsa af
mikilli tilfinningu á Blúsbarnum.
• Megas og Risaeðlan. Megas
syngur um þrifalegar, þröngar og
þrettán á útgáfutónleikum sínum á
Púlsinum. Megas er ágætur, sérstak-
lega þegar hann er svolítið dónaleg-
ur, óg Risaeðlan getur verið ansi
skemmtileg — þegar hún er ekki
mjög dónaleg. Bein útsending verð-
ur á Bylgjunni sem Holtakjúklingar
styðja, en hvers vegna er óljóst.
• Diarmuíd O'Leary and the
Bards eru írsk þjóðlagagrúppa sem
hefur átt topplög á írska þjóðlagavin-
sældalistanum. Þeir eru veraldarvanir
strákarnir, enda í þriðja sinn sem þeir
spila á íslandi.
• Jötunuxar halda gítarstyrktartón-
leika á Grjótinu fyrir gítarleikara
hljómsveitarinnar sem varð fyrir því
óhappi að brjóta gítarinn sinn fyrir
skömmu. Þeir ásamt
• KFUM and the andskotans og
• Bleeding Volcano ætla að
skemmta í hljómsveitarveislu á Grjót-
inu ásamt landsþekktum skemmti-
kröftum sem ekki er hægt að nefna á
prenti því þeir taka offjár fyrir slíkar
nafnbirtingar. Allar þessar hljóm-
sveitir eru í þyngri kantinum og spila
ekkert vælupQþp.
• Svartur pipar er orðinn hafnfirsk
útflutningsvara í Reykjavík með þau
Margréti Eir og Gylfa Má í broddi fylk-
ingar. Þau gala á Gauknum í kvöld.
• Nýdönsk er nýkomin úr fimm
vikna dvöl á Englandi þar sem þeir
piltarnir voru í einangrun að semja
og syngja lög fyrir væntanlega
hljómplötu. Að auki hefur kyntáknið
Björn Jörundur Friðbjörnsson sýnt á
sér nýja og forvitnilega hlið með
túlkun sinni á aulanum í Sódómu
Reykjavík. Hann, Daníel, Jón Ólafs og
allir hinir mæta því ferskir til að
skemmta glamorliðinu í Ingólfscafé í
kvöld. Líklegt þykir að þeir leiki lög af
væntanlegri hljómplötu og auk þess
munu þeir flytja gamalkunnugt og
geðþekkt efni, kannski Alelda, eða
jafnvel Steypireið.
• Fánar flagga sínu besta á Feita
dvergnum.
• Af lífi og sál er stærsta rokk-
grúppa landsins og syngur meðal
annars um blóð, svita og tár af lífi og
sál — lög Chicago, James Brown og
fleiri. Þeir verða á Púlsinum í kvöld.
• Gömlu brýnin leika jafnvel gam-
alt rokk á Dansbarnum.
• Redhouse er blúsband samsett
af tveimur útlendingum, þeim
Sammy George og James Olsen,
sem er barþjónn í aukavinnu, og
Pétri Kolbeinssyni á Blúsbarnum.
• Rokkvalsinn er tveir gítarar og
ein rafmagnsnikka. Það er bannað að
dansa gömlu dansana á Fógetanum.
• Viðar og Þórir leika nú á öðrum
stað í Borgarvirkinu eftir stóraðgerð
sem framkvæmd var á staðnum á
dögunum. Það er sveitatónlist sem
þar dynur. Hún heyrist væntanlega
ekki lengur út á götu, því tvöfalt
rúðugler hefur verið sett í Borgarvirk-
ið.
• Tveir Logar eru enn timbraðir
eftir stórfýllerí síðustu helga á Rauða
Ijóninu.
• Fánar verða feitir og fínir á Feita
dvergnum.
• Svartur pipar með hafnfirskt
han^stélspopp á Púlsinum.
• Todmobile og Die Fidlen
Múnchener skemmta á lokakvöldi
Októberhátíðar á Hressó. Mikið verð-
ur um að vera á Hressó í kvöld; mikið
jóðlað, mikið drukkið og mikið etið.
Opið verður út í garð og saltkringlur
á hverju borði. Og síðasti séns er að
láta ofan í sig ódýran bjór, því senni-
lega er ár í að menn fái aftur svo
ódýran bjór — nema auðvitað þeir
sem eru í klíkunni.
• Gömlu brýnin leika alls ekki vals
heldur gömul Bítla- og Kinks-lög. Þeir
eru semsagt ekki mjög gömul brýni.
• Redhouse eða þeir Pétur Kol-
beins, Sammy George og James 01-
sen á Blúsbarnum.
• Rokkvalsinn samanstendur af
gítar, nikku og gítar og er mjög raf-
magnaður.
• Viðar og Þórir eru væntanlega
farnir að venjast breytingunum á
Borgarvirkinu og fastagestirnir einn-
ig-
• Tveir Logar tendra hjörtu Seltirn-
inga á Eiðistorginu, nánar tiltekið á
stórbarnum Rauða Ijóninu. Þeir eru
svolítið írskir í eðli sínu, enda frá Vest-
mannaeyjum.
SUNNUDAGUR
• Diarmuid O'Leary and the
Bards eru írsk þjóðlagahljómsveit
sem spilar í fjórða sinn á íslandi og
nú á Púlsinum. Þeir eiga lagið Lan-
igan's Ball sem er af einni mest seldu
breiðskífu sem gefin hefur verið út á
írlandi.
• Rut Reginalds og George
Grossman mynda nýjan blúsdúett
á Blúsbarnum.
• Guðmundur Rúnar trúbador
fúnar enn á Fógetanum. Hann þyrfti
á fúavörn að halda.
• Sálln hans Jóns mfns tekur
rispu á Gauknum í kvöld og reyndar
einnig á mánudagskvöld.
• Viðar og Þórir enn í Borgarvirk-
inu en eru að fara í nokkurra daga frí.
Sveitaböll
• Þotan í Keflavík býður
upp á nágranna sína;
Svartan pipar úr Hafnar-
firðinum.
LAUGARDAGUR
• Sjallinn á Akureyri ætlar að bjóða
Nýdanska velkomna, sérstaklega ef
þeir spila nýtt popp af plötunni sinni.
• Hótel Selfoss: Hin írska þjóð-
lagagrúppa Diarmuid O'Leary
and the Bards og Ingimar Eydal
skemmta í kompaníi.
• Höfði í Vestmannaevjum verður
með stórsveitina Af lífi og sál í
kvöld — grúppa sem tekur meðal
annars góð James Brown-lög.
• Þotan í Keflavík er með Sauðár-
krókspopparann Geirmund Val-
týsson á sínum snærum í kvöld.
Barir
Drykkjumaður PRESS-
UNNAR á það til að
detta inn á Café Ro-
mance, yfirleitt vegna
þess að hann er of þreyttur eða
þyrstur til að ganga upp Bakar-
abrekkuna á vit staða sem hon-
um finnst bæði skemmtilegri og
þægilegri. Því hin raunverulega
gullöld Café Romance er liðin
og það fyrir löngu, mælt á líf-
tíma íslenskra veitingahúsa.
Hún var í fyrra þegar staðurinn
var ekki orðinn næstum þvf eins
vinsæll og hann er nú og
drykkjumaður gat setið þar og
drukkið kaffi og koníak í friði
og spekt. Öðruvísi en nú þegar
menn þurfa oft að olnboga sig
gegnum mannþröng til að kom-
ast á barinn þar sem þeir eru
látnir greiða drykkina allmiklu
dýrara verði en gengur og ger-
ist á veitingahúsunum í mið-
bænum. Úrvalið á barnum er
heldur ekki ýkja merkilegt og ef
menn gæta sín ekki er hætt við
að kaffið í bollanum sé hland-
volgt. Romance hefur semsagt
breyst úr því að vera þægileg
koníaksstofa yfir í að vera há-
vaðasamur og þröngur bar. Það
eru léleg býti fyrir flesta, nema
kannski starfsmenn útvarps-
stöðva sem virðast líta á staðinn
sem nokkurs konar klúbb...
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15. OKTÓBER 1992
Skemmtitrióíð
Fánar — sérfræð-
ingar í aö gleðja
fitlu hjðrtun í saln
um.
INO BLU$
vetrinum lifnaryfir næturstemmningu borgarinnar og ígleðipakkan-
um er sífellt fjölbreyttara tónlistarlíf. Til dæmis hefur skotið upp kollinum
skemmtitríó eitt sem nefnir sig Fána.
Berasteinn Biöraúlfsson, sem sér bæði um að tromma og syngja, segir að
þeir séu svo skemmtilegir að fólk geti ekki annað en brosað þegar það
hlustar á hljómsveitina og horfir. „Við spilum gamla sving-rokk-slagara en
flesta íeigin útsetningu og eru „orginalarnir"
þvi töluvert breyttir frá þvi sem fólk á að
venjast. Við getum kallað tónlistina
„jollý-sving-blús","segirhann. Viðbrögð
áheyrenda hafa, að hans sögn, verið
með miklum ágætum en svolítið erfitt
hafi verið að koma sér i gang.
„Við stefnum að þvíað gefa út
plötu bráðlega sem kemur
óefað til með að breyta við-
horfi Jóa í stofu."
Með Bergsteini i tríóinu eru
Þórður Höanason. sem spilar
á kontrabassa, og Maanús
Einarsson. sem spilar á gítar
og syngur. Sá síðarnefndi er
Rásar 2-hlustendum að góðu
kunnur en Þórður er tónlistar-
maður að atvinnu og hefur
lengst afhaldið sig við klassík-
ina. Þó hefur hann djassað
töluvert og var meðal annars i
Cling gló-tríóinu. Að öðrum
meðlimum hljómsveitarinnar
ólöstuðum má svo geta þess, í
framhjáhlaupi og trommaran-
um til hróss, að hann er
óhemjufyndinn og ákaflega
lifandi músíkant. Fánar eru að
koma sér i gang næstu vikurn-
ar og hyggjast spila bæði á
Gauknum og Hressó seintí
þessum mánuði og fram í
þann næsta.
Brynja Vífils til
Austurríkis
Brynja Vífilsdóttir er módel
PRESSUNNAR þessa vikuna
en hún er nemandi í Kvenna-
skólanum í Reykjavík, auk
þess að starfa sem fyrlrsæta
hjá lcelandic Models. Hún er
orðln töluvert þekkt andlit
hér heima vegna vinnu sinn-
ar en erlendis hefur hún ekki
enn reynt fyrir sér, enda að-
eins nítján ára. „Ég fer til
Austurríkis nú í nóvember til
að taka þátt í keppninni um
„Queen of the World"," segir
Brynja, sem fer utan ásamt
annarri stúlku sem keppti
um tilnefningu sem forsíðu-
stúlka Vikunnar. „Ég sé til
hvernig mér gengur og mað-
ur veit aldrei hvað verður.
Hér hef ég unnið við það
sem til hefur fallið, sýningar
og annað." Það eru margir
kallaðir en fáir útvaldir.
Sinfónían nær
fólkinu
Eitt sinn var Sinfóníuhljómsveit
íslands í hugum alls almennings eitt-
hvað upphafið og fjarlægt, eitthvað
fyrir annað fólk — annað fólk í
þröngum hópi. Þetta viðhorf hefur
breyst mjög hin síðari ár og eru það
ekki síst aðstandendur hljómsveitar-
innar sjálfrar sem hafa unnið að því
að gera tónlistina aðgengilegri íyrir
stærri hóp manna og kvenna.
Hljómsveitin hefur verið í harðri
samkeppni við fjölmiðla og önnur
svið afþreyingar en hefur unnið
markyisst að því að gera tónleika-
ferðir að réglulegum viðburði í hug-
um fólks og tilveru. „Ég býst við að
Sinfónían sé orðin meiri almenn-
ingseign en áður,“ segir Helga Hauksdóttir, tónlistarmaður og starfsmaður
hljómsveitarinnar. „Við höfum reynt að höfða til fólks með því að skipta
verkefhum niður í raðir og viðtökur hafa verið einstaklega góðar. Á tónleika
koma því stöðugt nýir hópar fólks. Með því að skipta tóníistinni í raðir verð-
ur hún aðgengilegri og að öðrum ólöstuðum verður að segjast að sú græna
hefyr reynst einna eftirsóttust.“
1 kvöld spilar einleik með Sinfóníunni Ungverjinn Gyorgy Pauk. Hann er
með þekktari fiðlurum sinnar kynslóðar en hingað hefur hann komið
nokkrum sinnum áður. „Hann er mjög eftirsóttur fiðluleikari og hefur spil-
að um heim allan,“ segir Helga. „Hann er einkar geðugur og skemmtilegur
spilari og tilheyrir þessum fágaða evrópska kúltúr og leggur því ekki stund á
forseraða spilamennsku þar sem bensínið er stöðugt í botni.“ Hljómsveitar-
stjórinn Tamas Vetö er landi Pauks en þetta er í fýrsta sinn sem hann kemur
hingað til lands.
Gyor-gy Pauk,
sem spilar með
Sinfóníunni í
kvöld, er með
þekktarifiðlur-
um sinnar kyn-
slóðar og hefur
komiðfram um
heim allan.
Símalög segja margt
Það er misleiðinlegt að bíða í síma fyrirtækja og stofnana landins,
Erfitt er að geta sér til um hvaða kenndir ráða því hvaða tölvupopp,
dægurlög eða sinfóníur berast manni til eyrna á meðan beðið
er eftir að ná sambandi við upptekna menn. Það er til
dæmis afar róandi að hringja á Alþingi íslendinga, því
þar hljómar lagið Fram iheiðanna ró.fann égbólstað
ogbjó... þótt maðurímyndiséraðinnandyraríki
ekki mikill ffiður eða ró, en þar hafa ýmsir þingmenn
hins vegar fundið sér endanlegan bólstað. Á annarri
stofnun, Ríkisútvarpinu, hljómar hins vegar vægast
sagt ömurlegt þunglyndisstef; gamla biðstefið sém var
á undan öllum fréttatímum gufunnar hér á árum áður
og reyndar ailtaf þegar millibilsástand skapaðist milli
dagskrárliða. Ef einhver er fljótur að tengja hljómar það
svona: Du, du, du, du, DU, du, du, du, du, du, du, du.
tölvupoppið. Og um jólin koma svo hreinir hvítir tónar frá Bing
Crosby og öðrum álíka.
Á þeirri virðulegu stofnun Rauða Ijóninu, þar sem
bjórhátíðin var haldin um síðustu helgi, og út-
gerðarfyrirtækinu Eldey í Keflavík hljómar
enskt þjóðlag frá 16. öld; Greensleeves, sem
margir íslendingar ættu að kannast við, en
þetta var kynningarlag enskukennsluþátta
frá því snemma á ferli Sjónvarpsins. Það er
skemmst frá því að segja að hjá Vífilfelli,
sem framleiðir Coca-Cola, heyrist lagið I’d
like to teach the world to sing, in perfect
hannony...
Á Bæjarleiðum hljómaði til skamms tíma feikna-
leiðinlegt tölvupopp sem var tekið af vegna kvartana
Hjá leigubiffeiðastöðinni Hreyfli heyrast sinfóníur í léttum dúr eftir viðskiptavinanna, en það gerist hjá æ fleiri fyrirtækjum, enda fer tölvu-
að símastúlkan hefur sagt: „Hreyfill borð níu, augnablikÞað skal tístið verulega í taugarnar á mörgum sem taka þögnina langt ffamyfir.
viðurkennt að ýmsar þeirra eru hreint ágætar, mun skemmtilegri er