Pressan - 15.10.1992, Page 35
FIMMTUDAGUR PKESSAN 15. OKTÓBER 1992
35
VINSSOLUMET
AORJÓTINU
6 R iTTU
INN
HRUK
Gleðiballettirw Concerto
grosso verður frumfluttur á
Islandi 25. október. Ballettinn er
í léttum dúr, eftir Charles
við tónlist eftir stórtónskáldið
Haydn.
Athygli vekur að aðeins einn ís-
lenskur karldansari tekur þátt í
uppfærslunni og verður í miðl-
ungsstóru hlutverki. Viðar
Maggason heitir hannog er 23
ára, því yngsti meðlimur Islenska
dansflokksins og jafnframt eini ís-
lenski karlmaðurinn I öllum
flokknum. Hann stundaði nám
við Listdansskóla Þjóðleikhússins
og lauk síðan BA-prófi frá kenn-
aradeild Dansháskólans í
Stokkhólmi.
„Það varhún móðirmín
sem stakk upp á því
að ég iegði ballett-
innfyrirmigog
hjá mér var
Viðar Maggason er í
iðlungsstóru hlutverki í
ballettinum Concerto
grosso sem frumsýndur
verður 25. október.
UT
Brynja Nordquist var mjög
eftirsótt fyrirsæta á sínum
yngri árum. Hún þótti hafa
eitthvað við sig sem aðrarstúlkur höfðu ekki. Myndin til hægri var
tekin fyrir framan Kastalann; tískuvöruverslun sem var mjög vin-
sæl um miðjan áttunda áratuginn þegar slegist var um útvíðar
denímbuxur eins og hún er /'. Denímbuxur fengu skömmu síðar
hið virðulega íslenska nafn gallabuxur og hafa síðan verið mjög
margbreytilegar ísniði. Eins og sjá má hefur Brynja ekki mikið
breyst; hún er enn sama tískudrottningin, þó að óhætt sé að segja
að hún hafi orðið bjartariyfirlitum með árunum. Konum er ein-
mitt ráðlagt að lýsa hár þegar aldurinn færistyfir, það er að segja
efnáttúran sjálftekurekki barayfirhöndina, til að andlitsviprur
ýmiss konar verði ekki eins áberandi. En tískan hefur tekið stakka-
skiptum, sem betur fer, enda er tíska áttunda áratugarins einhver
sú flatasta og Ijótasta sem um getur.
þetta aðallega forvitni. Ég hafði verið í fimleikum
áður, en 18ára tók ég endanlega ákvörðun um að
leggja ballett fyrir mig."
Hann segir vini sína hafa verið sérlega jákvæða gagnvart
ballettnáminu. „Ég var eiginlega alveg hissa hve vel þeir
tóku þessari ákvörðun minni."
Er þetta fyrsta sýningin sem þú tekur þátt í?
„Já, það má segja að þetta sé fyrsta alvöruhlutverkið, en ég
var þó notaður af danshöfundarnema úr skólanum mínum
til að sýna í Danshuset í Stokkhólmi og heftekið þátt í skóla-
sýningum."
Munnviprur og sýnilegar andlitsgrettur aðrar
gefa til kynna að þú hafir eitthvað að segja. Hafir
skoðun. Meiningu. Sért töfftýpa. Slíkar grettur
má túlkaáýmsa vegu; tákn einbeitingar, ólundar
eða umhyggju, auk þess sem það er gáfulegt að
hvössum augum undan hnykluðum augabrúnum. Sér-
<ar í sálarfræðum segja að grettur hefti blóðstreymi til
luta andlitsins og auki þar með á neikvæða hugs-
un einstaklingsins. Einnig hefur verið bent á að
óhjákvæmilegur fylgifiskur þessa sé víðtæk
hrukkumyndun sem komi í Ijós fyrren síðar.
Töffararnir, bæði menn og konur, leitaýmissa
leiða til að losna við hrukkurnar, ófögnuðinn
þann. Þekktareru húðstrekkingar afýmsu
tagi, uppfylling með sílikoni eða öðrum efnum
og stundum eru hrukkur hreinlega fjarlægðar
með skurðaðgerð. Ákaflega óþægilegar leiðir
allar saman. Núer nýjung á þessu sviði
væntanlega að ryðja sér til rúms því
taugasérfræðingar hafa uppgötvað efni
sem þeirhafa verið að gera tilraunir
með ísambandi við andlitskæki. Hafa
þeir komist að því að með þvi að
sprauta efninu Botox í vöðva andlitsins
slaknar ekki bara á þeim heldur hverfa
hrukkur einnig að miklu leyti. Galdrar?!
Virkni meðferðarinnar kemur í Ijós eftir
nokkra daga og dugir í fjóra til sexmán-
uði. Enn ermeðferðin á tilraunastigien allt
eins líklegt er að efnið fari á almennan
markað innan tveggja ára. Grettur inn t
— hrukkur út. í
Jötunuxarnir eru demónskir popparar sem ungur íslenskur kvikmyndagerðar-
maður og erlendur umboðsmaður hafa fengið augastað á.
Jötunuxarnir eru rokkgrúppa samsett
á hefðbundinn hátt af þeim Rúnari Frið-
rikssyni söngvara, Hlöðveri Ellertssyni
bassaleikara, Guðmundi Gunnlaugssyni
trommara og Jóni Óskari gítarleikara.
Þeir virðast hafa eitthvað við sig sem
höíðar til púkans í fólki því aldrei í sögu
rokkbúllunnar Grjótsins hefur selst eins
mikið af áfengi á einu kvöldi og þegar
þeir spiluðu. Þeir hafa oftar en einu sinni
sett met í áfengissölu.
Þeir munu enn og aftur spila á Grjót-
inu og nú í kvöld, fimmtudagskvöld, til
að safna fyrir nýjum gítar fyrir einn með-
lim hljómsveitarinnar, Jón Óskar, sem
varð fyrir þeirri ógæfu að bijóta gítarinn
sinn. Nýi gítarinn kostar 115 þúsund
krónur og inn á staðinn mun kosta 300-
kall.
„Við höfum hingað til spilað lög Red
Hot Chili Peppers, Guns’n’Roses, Metall-
ica, Bowie og fleiri en ætlum nú að flytja
ffumsamið efhi sem ekki er hægt að líkja
við efni þessara hljómsveita,“ sagði
söngvari Jijómsveitarinnar í samtali við
PRESSUNA.
Þess má geta að kunnur útlendur um-
boðsmaður hefur fengið augastað á Jöt-
unuxum og hefur í hyggju að koma þeim
á ffamfæri erlendis. Málið er enn á frum-
stigi og vilja þeir því ekki gefa meira upp
að svo komnu máli. Þá hefur heyrst að
ungur kvikmyndagerðarmaður, sem
ætlar að fara að gera stuttmynd, hafi hug
á að hafa Jötunuxana í stórum hlutverk-
um í myndinni. Tökur hefjast í október-
lok.
Tíu prósent þjóðarinnar
halda uppi börum og mat-
sölustöðum bæjarins
Svo virðist sem aðeins rétt
rúmlega 10% þjóðarinnar haldi
uppi bæði börum og matsölu-
stöðum bæjarins, ef marka má
nýlega könnun sem Skáfs gerði
fyrir PRESSUNA. Þó er ekki vit-
að hvort sömu 10% sækja bæði
barina og matsölustaðina. Ríf-
lega 80% þjóðarinnar segjast
einungis hafa farið fimm sinn-
um og sjaldnar út að borða und-
anfama tólf mánuði og 7,5% að-
spurðra hafa ekki svo mikið sem
einu sinni stungið inn nefi sínu á
matsölustað á undanfömu ári. f
ljósi þess að í Reykjavík einni
em yfir eitthundrað veitingahús
með vínveitingaleyfi, sem þýðir
jafnframt að þau verða — að
minnsta kosti samkvæmt lögum
— að bjóða einnig upp á eitt-
hvað matarkyns, verður það að
teljast ansi þung byrði fyrir þessi
10% þjóðarinnar að halda uppi
öllum þessum veitingahúsum.
Utlendingarnir hjálpa þó aðeins
til þegar þeir slæðast hingað til
lands yfir sumartímann. Þá era
ótaldir allir þeir matsölustaðir
sem hafa ekki vínveitingaleyfi.
Trúir því nokkur á þessa
miklu leikhúsþjóð að yfir íjórð-
ungur þjóðarinnar hafi ekki far-
ið í leikhús undanfarið ár? Sama
hlutfall heíur ekki svo mikið sem
farið á einn bar á sama tímabili,
rúmlega helmingur þjóðarinnar
segist fara sjaldnar en tvisvar í
bíó á ári og rúmlega þriðjungur
hefur ekki farið neitt í bíó.
f könnuninni kom einnig
fram, að þrátt fyrir að ekki megi
hér á landi rísa fimm húsa pláss í
eyðidölum, án þess að þar rísi
einnig vígaleg kirkjubygging,
segjast um 65% þjóðarinnar fara
þrisvar eða sjaldnar til kirkju ár-
lega.
Þrátt fyrir að miklu fé sé veitt
til íþróttamála segjast aðeins
15% þjóðarinnar fara á íþrótta-
kappleiki og 25% segjast aldrei
fara og innan við 1% fer oftar en
fimm sinnum á ári í leikhús.
B I O B O R G I N
Hinir vægðarlausu Unforgiven
★★★★ Clint Eastwood er vernd-
ari hins vestræna heims — að
minnsta kosti þess villta. Þegar
engum dettur lengur í hug að
bjóða upp á vestra kemur hann
með þetta meistarastykki.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg þrátt fyrir augljósa
hnökra.
Ferðin til Vesturheims Far and
Away ★★★ Rómantísk stórmynd,
ákafíega gamaldags en oft stór-
skemmtileg.
Á hálum ís The Cutting Edge ★★
Ástir og afrek íshokkímanns oq
skautalistdanskonu. Dálítið sérhæft
og ekki vantar klisjurnar.
B I O H O L L I N
Lygakvendið Housesitter ★★
Myndin er spunnin út frá bráð-
snjallri hugmynd, en það er líka allt
og sumt. Goldie Hawn og Steve
. Martin leika eins og þau séu grín-
sjálfsalar. Hvorugt þeirra virðist
hafa neina tilfinningu, en bæði
þurfa þau að fara að hafa áhyggjur
afferlinum.
Kaliforníumaðurinn California
Man ★ Mynd sem hefði ekki átt að
fara út fyrir fylkismörk Kaliforníu.
Rush ★★ Fíknó eru líka bóhemar
og fikta við eiturlyfjaneyslu. Dálítið
skemmtilega hrá og stundum trú-
verðug mynd. En aðalpersónurnar
ná ekki að lifna við.
Hvítir geta ekki troðið White
Men Cati’t Jutnp ★★★ Glúrin
mynd og oft stórsniðug um hvítan
mann og svertingja sem iðka
körfubolta á götum Los Angeles.
Tveir á toppnum 3 Lethal Wea-
pon 3 ★★ Minni hasar og minna
grín en í fyrri myndum en meira af
dramatískum tilburðum.
Burknagil — síðasti regnskógur-
inn ★★ Mynd fyrir umhverfis-
væna aðdáendur teiknimynda á
öllum aldri.
HASKOLABIO
Háskalcikir Patriot Games ★ ★
Stundum æsileg, en oftar stirð-
busaleg. Fátt kemur á óvart; smá-
smugulegheit eru helsti kostur
reyfara eftir Tom Clancy, þegar þau
vantar verður söguþráðurinn helsti
fátæklegur.
Sódóma Reykjavflc ★★★ (mynd-
aðir undirheimar Reykjavíkur eru
uppfullir af skemmtilegum kjánum
og aulahúmor.
Svo á jörðu sem á himni ★★★ í
heildina séð glæsileg kvikmynd og
átakanleg. Varla hefur sést betri
leikur I (slenskri biómynd en hjá
Álfrúnu litlu Örnólfsdóttur.
Gott kvöld, herra Wallenberg
★★* Átakanleg og mikil saga, en
dálítið þunglamaleg.
Veröld Waynes Wayne’s World
★★ (flokki mynda sem gera út á
geðveikan húmor. Gallinn er að
húmorinn er ekki nógu geðveikur
og of sjaldan fyndinn.
Steiktir grænir tómatar Fried
green tomatoes ★★★ Konumynd;
um konur og fyrir konur. Góðir eig-
inmenn láta undan og fara með.
mÆÍMfMMÆÆMÆad
Lygakvendið Housesitter ★★ Góð
hugmynd, en Hawn og Martin eru
eins og grínsjálfsalar.
Töffarinn Cool as lce Finnst ein-
hverjum gaman að Vanilla lce? Ef
svo er getur hann farið í bíó. Við
hin sitjum heima.
Kristófer Kólumbus Christopher
Columbus: The Discovery ★ Ágæt
fyrir þá sem vita ekki að búið er að
finna Ameríku.
Ferðin til Vesturheims Far and
Away ★★★ Rómantísk stó.rmynd,
ákafíega gamaldags en oft stór-
skemmtileg.
REGNBOGINN
Sódóma Reykjavík ★★★ Álappa-
legir og hlægilegir smákrimmar í
höfuðborginni.
Hvítir sandar. White Sands ★
Mickey Rourke er orðinn vöru-
merki á vondum myndum. Nokkrir
listrænir tilburðir ná ekki að draga
fjöður yfir kjánalegt plott og holar
persónur.
Prinsessan og durtarnir ★★★
Myndin er tal- og hljóðsett af mik-
illi kostgæfni og ekkert til sparað.
Að öðru leyti frekar meinlítið ævin-
tvri.
Ógnareðli Basic Instinct ★★
Markaðsfræðingarnir fá báðar
stjörnurnar. Annað við myndina er
ómerkilegt.
Lostæti Delicatessen ★★★★
Hugguleg mynd um mannát.
STJORNUBIO
Sódóma Reykjavík ★★★ Fyndin
íslensk bíómynd.
Ruby ★ Mynd fyrir þá sem enn
eru ekki búnir að fá sig fullsadda af
samsæriskenningum um Kenne-
dy-morðið. Danny Aiello fær hins
vegar stjörnu fyrir góðan leik.
Ofursveitin Universal Soldier ★★
Mynd um karlmenni, fyrir stráka
sem kannski pína kærusturnar
með.
Börn náttúrunnar ★★★ Rómað-
asta íslenska bfómyndin.
S O G U B I O
Fyrir strákana For the Boys ★ ★
Bette Midler fer fjarskalega vel með
x músíkina sem er frá tímanum áður
en rokkið tröllreið öllu. En ailt verð-
' \ur frekar útþynnt þegar tónlistinni
sleppir. Þokkaleg konumynd.
Alien3 ★★★★ Meistaralegur loka-
l'þáttur þessarar trílógíu, gerir Bat-
man-veröldina að hálfgerðu Legó-
landi.
Mjallhvít og dvergarnir sjö ★★★
Yfirleitt hugljúf, en nornin er býsna
hræðileg og hefur valdið mörgum
börnum andvökunóttum.