Pressan - 15.10.1992, Síða 37
FIMMTUDAGUR PRESSAN 15.0KTÓBER 1992
LÍFID EFTIR VINNU
37
„Sýningarnar á verkum
Jóhanns Eyfells íListasafninu
og Galleríi 11 eru opinherun,
ekki aðeins vegna þess að nú
gefst okkur loks tœkifæri til
að sjá verk hans í öllu sínu
veldi, heldur einnig
vegna þess að þœr stað-
festa að hann er einn
allrafremsti lista-
maður íslendinga
í dag og einn
mesti skúlptúristi
afíslensku bergi
brotinnfrá upp-
hafi. “
GUNNAR J. ÁRNASON
Góð afþreying Handritin heim
með því að þjóðin fái sér vænan
slurk. Það verður enginn þunnur
afSilfurtónum. Vei!
Gunnar Hjálmarsson
Framúrskar-
andi
DEEE-LITE
INFINITY WITHIN
ELEKTRA
★★★
PANTERA
VULGAR DISPLAY OF POWER
ATCO
★★★★
Tríóið Deee-lite gerir listadans-
popp sitt út frá New York. Þar
lágu saman leiðir Úkraínumanns-
ins Dimitri, bandarísku skvísunn-
ar Kier Kirby og Japanans Towa
Tei. Fyrsta plata þeirra, „World
Clique", vakti verðskuldaða at-
hygli og ekki síst hið frábæra
danslag „Groove is in the Heart“.
önnur platan, „Infinity Within“,
er í alla staði mjög vel heppnuð
þótt að vísu vanti jafnaugljósan
smell og „Groove is in the Heart“.
Platan líður áfram í stanslausu
stuði; tónlistin er vitræn danstón-
list, rík að grípandi andartökum
sem eru orðin fátíð í færibanda-
mennsku tölvuvinnslunnar. öfiigt
við flesta nútímadanstónlist, þar
sem mest er lagt upp úr töktum og
endurteknum „riffurn", spilar
Deee-lite „venjuleg“ lög sem söng-
konan Kier gefur sterkt yfirbragð
með frábærum söng.
Samkvæminu er borgið með
Deee-lite og í þynnkunni daginn
eftir er Infinity Within vænlegur
kostur til að lina mestu þjáning-
arnar.
Líkt og Deee-lite skarar ffam úr
í danspoppinu skarar Pantera
fram úr í þungarokkinu. Þeim
hefur á undraverðan hátt tekist að
troða frumlegum hlutum inn í
þungarokkið — hið staðnaðasta
af öllu stöðnuðu.
Pantera hafði rembst um árabil
og lítið orðið framgengt en á plöt-
unni „Cowboys from Hell“, sem
kom út í fyrra, hittu þeir loks nagl-
ann á höfuðið og slógu í gegn. Á
„Vulgar Display of Power“ halda
þeir áfram að þróa hið ferska
þungarokk sitt. Þeir eiga margt
sameiginlegt með Metallica en eru
þó ögn pönkaðri og minna jafnvel
stundum á Nirvana. Krafturinn er
rosalegur, samhugurinn algjör,
það er keyrt í hvert topprokklagið
af fætur öðru og aldrei hægt á.
Textamir em góðir; hvergi bólar á
hinni margnotuðu þungarokks-
þvælu um satan eða skrímsli,
heldur tjáir sköllóttur söngvarinn
okkur skoðanir sínar á lífinu og
ástinni með hásu hvæsi.
Þungarokkið er ekki alveg
dautt úr öllum æðum. Þau sýnis-
horn sem flutt hafa verið til fs-
lands á undanförnum árum gefa
að vísu ákveðinn heila- og elli-
dauða í skyn, en Pantera er frá-
bært dæmi um hið andstæða;
kraft og mikið líf.
Gunnar Hjálmarsson
JOHN GRISHAM
FYRIRTÆKIÐ
(SLENSKI BÓKAKLÚBBURINN
IÐUNN
1992
★★
□ Þeir sem vilja hvíld frá
bókmenntaverkum þar
sem sífellt er verið að
kryfja tilvistarvandann af alvöru-
þunga ættu að hafa ánægju af
lestri þessa hörkuspennandi reyf-
ara. Hann fjallar um ungan metn-
aðarfullan lögfræðing sem fær
draumastöðu hjá fyrirtæki en
flækist um leið í svikavef mafí-
unnar, kemst að því að setið er
um líf hans og leggur á flótta
hundeltur af mafíósum og alríkis-
lögreglunni.
Þetta er langur reyfari, líklega
lengri en honum er hollt. Á ein-
staka stað hefði mátt þétta verkið
með því að kippa út óþarfa. Gris-
ham hefur þá áráttu, líkt og marg-
ir reyfarahöfundar, að lýsa mál-
tíðum af stakri nákvæmni, segja
lesandanum hvernig kjötið hafi
verið steikt og hvað hafi verið sett
í salatið og hvernig allt hafi nú
bragðast. Þetta verður þreytandi
ef ekki beinlínis klaufalegt. Það
sama á við um áreynslufullar til-
raunir höfundar til að gæða sam-
töl húmor eða léttleika. Það er fátt
jafn vandræðalegt í skáldverki og
þvingaðurhúmor.
Persónusköpun er í svipuðum
dúr og í öðrum reyfiirum af þessu
tagi. Með einstaka undantekning-
um eru persónur algóðar eða al-
slæmar. Aukapersónur eru meira
sannfærandi en aðalpersónurnar,
ung hjón í einu af þeim fullkomnu
hjónaböndum sem hvergi fyrir-
finnast nema í hugum unglinga
og blekkingarfullum endurminn-
ingum gamlingja.
Þrátt fýrir nokkra annmarka er
hér kominn góður reyfari sem
hefur það fram yfir marga jafn
raunsæa eða raunsærri reýfara að
vera gæddur spennu. Það er
nokkuð um liðið síðan ég hef lesið
reyfara sem jafn mikil ánægja er
að lesa.
Ekki veit ég hvort bókin hefur
verið kvikmynduð en hún býður
sannarlega upp á það því hug-
myndin er snjöll og útfærsla höf-
undar minnir einatt á afar ná-
kvæmt kvikmyndahandrit.
Bókin er bók októbermánaðar
hjá Islenska bókaklúbbnum en er
einnig væntanleg á almennan
markað innan skamms. Ég mæli
með henni sem góðri afþreyingu á
drungalegum haustdögum.
Þýðing Nönnu Rögnvaldar-
dóttur og Ólafs Grétars Kristjáns-
sonar er á köflum flaustursleg og í
heildina ekki meira en þokkaleg.
Kolbrún Bergþórsdóttir
SILFURTÓNAR: SKÝIN ERU HLÝ
SKÍFAN
★★★★
Það ríkti rosaleg gleði á
höfninni um árið þegar
danska freigátan kom
með handritin heim. Þjóðin felldi
gleðitár þegar ormétnar skræð-
urnar voru teknar úr kössunum.
Nú er svipuð gleði ríkjandi í
plötubúðum því ormétin lög Silf-
urtóna hafa verið fægð og pússuð
og sett á plötu — popphandritin
eru komin heim!
Bardús Silfurtóna síðustu tutt-
ugu árin er tíundað á umslaginu
og áhugafólk um íslenska popp-
tónlist hlýtur að taka gleði sína því
löngu gleymdar lummur sveitar-
innar hljóma betur en á gömlu
plötunum og umbúðirnar eru
smekklegar.
Silfurtónar eru skemmtileg
hljómsveit. Böllin með þeim eru
lífleg og fyndin, lögin þeirra dúnd-
urgóð og textarnir skondnir —
háífvitalegir og eggjandi í senn.
Framlína Silfurtóna, þeir Magnús
og Júlíus (má ekki rugia saman
við Magnús og Jóhamí), eru frá-
bærir lagahöfundar með fínstillt
innsæi í íslenska poppsögu. Næmi
þeirra fyrir grípandi lögum er
mikið; lögin líkt og límast við
minnið eftir örfá skipti. Lög eins
og „Töfrar“ og „f dyragættinni“
geta ekki talist annað en sígild, og
önnur lög eru Iítt síðri.
Hvergi er veikan blett að finna.
Hinn nýdanski Björn Jr. stýrir
hljóðmennsku plötunnar af metn-
aði og spilamennskan er tipptopp
— sérstaklega trommuleikur
Bjarna. Magnús og Júlíus hafa
nettar raddir, silkimjúkar á köfl-
um, en geta þó ffamkallað óhljóð
þegar með þarf. Árni gítarleikari
hefúr tálgað fmgralipurð sína og
pússast niður í lipurt gítarséní og
Hlynure r alltaf jafnþéttur á gamla
upphandleggnum.
„Skýin eru hlý“ er gamalt vín á
nýjum belg. Ég mæli eindregið
16.00 Landsleikur í fótbolta. Islendingar tóku Rússa í
bakaríið á miðvikudagskvöldið. Nú verður leikurinn
sýndur. Loksins.
18.00 Babar
18.30 39 systkini i Úganda
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Úr riki náttúrunnar Engirella er fugl sem unir sér
best á írlandi.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður
20.00 Fréttir
20.35 Nýbúar úr austri Þáttur um fólk sem hefur flutt til
íslands frá Austurlöndum fjær. Svona þættir hafa ver-
ið gerðir áður, oft og mörgum sinnum.
21.15 Skuggsjá. Ágúst Guðmundsson fer í bíó.
21.35 ★★ Eldhuginn
22.25 Tappas á Skotlandi Tappas Fogelberg er frekar
óhefðbundinn sjónvarpsmaður. Það sást vel þegar
hann kom hingað og gerði gys að (slendingum.
23.00 Fréttir og skákskýring Helga Olafssonar.
23.20 Þingsjá. Þátturinn er á dagskrá ef ekki verða neinir
stóratburðir.
17.40 Þingsjá. E
18.00 Sómi kafteinn
18.30 Barnadeiidin
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Magni mús
19.25 ★ Sækjast sér um líkir. Lokaþáttur.
20.00 Fréttir.
20.35 Kastljós.
21.05 ★★ Sveinn skytta. Danski gunguhöfðinginn; það
er frekar erfitt að tengja saman Dani og hetjuskap.
21.35 ★★ Matlock
22.25 ★★★ Kjarnorkuleyndarmálið. Ground Zero.
Áströlsk, 1987. Pólitískur þriller um mann sem kemst
að því að faðir hans hefur fest á filmu þegar Bretar
gerðu tilraunir með kjarnorkuvopn í ástralskri eyði-
mörk. Donald Pleasence er mátulega klikk í auka-
hlutverki.
00.05 Á tónleikum með Simply Red. Rauðhausinn Mick
Hucknall er frægur fyrir hvað hann er óstjórnlega
montinn. Samt hefur honum tekist að búa til hljóm-
sveit sem höfðar til margra aldurshópa og selur reið-
innar býsn af plötum.
LAUGARPAGUR
13.25 Kastljós. E
13.55 Enska knattspyrnan. Everton og Coventry leika á
Goodison Park í Liverpool. Everton hefur stundum
spilað ágætan fótbolta.
16.00 íþróttaþátturinn
18.00 Múmínálfarnir
18.25 Bangsi besta skinn
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 ★ Strandverðir
20.00 Fréttir.
20.35 Lottó.
20.40 ★★ Leiðin til Avonlea
21.30 Manstu gamla daga? Margraddað og mjúkt —
kvartettarnir. Helgi Pé mætir í dressinu frá Hanz í
Kringlunni og kynnir þekkta kvartetta. Eða hver man
ekki eftir Smárakvartettnum, Leikbræðrum, Tígul-
kvartettnum og MA- kvartettnum?
22.00 Borgarstjórinn og Lórelei Honorin et la Lorelei.
Fronsk, 1991. Sjónvarpsmynd um þýska konu sem
dagar uppi í sveitaþorpi í Suður-Frakklandi ásamt
dóttur sinni. Annars fer litlum sögum af myndinni.
23.30 ★ Gráa svæðið. No Man’s Land. Amerísk, 1987.
Hugmyndin er ágæt. Lögreglumaður eltir uppi bíla-
þjóf, en fær sjálfur áhuga á bílastuldi og líka systur
þjófsins. En útfærslan er daufleg og ekki er að vænta
mikilla tilþrifa í leik frá Charlie Sheen.
SUNNUPAGUR
15.00 Vefurinn hennar Karlottu. Bandarísk teiknimynd,
gerð eftir barnasögu.
16.30 Landakot í 90 ár. Þáttur um sögu og starf Landa-
kotsspítala.
16.50 Mið-Evrópa. Lokaþáttur. Tímabilið frá 1953 til okkar
daga. Semsé uppreisnin í Ungó, vorið í Prag og hrun
kommúnismans. Myndefnið í þáttunum er stór-
merkilegt.
17.50 Sunnudagshugvekja
18.00 Ævintýri úr konungsgarði
18.30 Sjoppan
18.40 Birtingur. Norræn klippimyndaþáttaröð. E
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Tréhesturinn. Velskur myndaflokkur í fjórum hlut-
um fyrir börn og fjallar um ungan galdramann.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður
20.00 Fréttir.
20.35 Hvíti víkingurinn. Þriðji þáttur. Hrafn heldur áfram
að skopstæla víkingaöldina. Allt virðist þetta bráð-
fyndið. Soðnirfoglar.
21.50 Dagskráin. Verður hún betri í næstu viku en þessari?
22.00 ★ Vínarblóð. Púkalega þáttaröðin frá Austurríki. Þeir
hefðu átt að fá Hrafn til að hjálpa sér.
22.55 Kvöldstund með Guðbergi Fáir vildu líklega láta
rifja upp orð fyrir orð samtal sem þeir áttu fyrir fimm
árum. Guðbergur Bergsson verður að sætta sig við
það, en þátturinn er frá 1987. E
23.45 Sögumenn. Ævintýri frá Egyptalandi.
17.00. Undur veraldar. I dagskrárkynningu segir að hér
verði fjallað um „hitabeltis-paradísið Cocos-eyjar".
Svo er nú það.
18.00 Spánn í skugga sólar. E
SUNNUPAGUR
17.00 Skýjakljúfar. E
18.00 Dýralíf. Náttúrulífsþættir frá Nýja-Sjálandi. Hér er
fjallað um mörgæsir.
16.45 Nágrannar
17.30 Með afa. E
19.1919.19
20.15 Eiríkur. Eiki.
20.30 Eliott-systur. Breskur framhaldsmyndaftokkur sem
fjallar um systur sem komast að því við fráfall föður
þeirra að þær eru slyppar og snauðar.
21.25 Aðeins ein jörð. Þættirnir eru fimmtíu og tveir, en
þessi er númer tvö. Þá eru fimmtíu eftir.
21.40 Laganna verðir
22.10 ★ Tvífarinn. The Lookalike. Amerísk, 1990. Melissa
Gilbert, vinkona okkar úr Húsinu á sléttunni, er orðin
fullorðin og tekst ekki að verða kvikmyndastjarna.
Þess vegna leikur hún í mynd eins og þessari, sem er
í mildu hryllingsdeildinni.
23.40 ★★ Mistækir mannræningjar. Ruthless People.
Amerisk, 1986. Ágætlega geggjaður farsi þar sem
Danny de Vito og Bette Midler leika frekar ógeðfellt
fólk. Hann vill losna við hana og er því mátulega
harmi sleginn þegar henni er rænt. E
FÖSTUPAGUR
16.45 Nágrannar
17.30 Á skotskónum
17.50 Litla hryllingsbúðin
18.15 Eruð þið myrkfælin?
18.30 Eerie Indiana. E
19.1919.19
20.15 Eiríkur.
20.30 KæriJón
21.00 ★ Stökkstræti 21
21.50 ★ Skjaldbökurnar. Teenage Mutant Ninja Turtles.
Amerísk, 1990. Mynd sem ber ábyrgð á einhverju
asnalegasta æði sem hefur gripið um sig meðal
barna. Annars er þetta flatneskjuleg og frekar hroð-
virknislega gerð mynd, teiknimyndaseríurnar voru
talsvert betri.
23.20 ★ Nýliðinn. The Rookie. Amerísk, 1990. Það er ótrú-
legt að hugsa til þess að sami maður skuli hafa gert
þessa mynd og vestrann The Unforgiven, sem nú er
sýndur í Reykjavík — nefnilega sjálfur Clint East-
wood. Hann leikur gamla löggu sem þarf að skóla til
unga löggu, sem er ákaflega illa leikin af Charlie She-
en. Án efa ein versta mynd Clints.
01.15 ★★★ Aftur til framtíðar III. Back to the Future III.
Amerísk, 1990. Lokakaflinn í einhverri bráðskemmti-
legustu framhaldsmyndaröð kvikmyndasögunnar. E
LAUGARPAGUR
09.00 Með afa
10.30 Lísa í Undralandi
10.50 Súper Maríó-bræður
11.15 Sögur úr Andabæ
11.35 Merlin
12.00 Landkönnun National Geographic
12.55 Bílasport. E
13.25 Visasport E
13.55 Kossar. Leikkonan Lauren Bacall segir frá nokkrum
frægustu kossum kvikmyndanna. E
15.00 Þrjúbíó. Hundasaga. Teiknimynd frá Ástralíu. Um
hund.
16.10 Árstíðirnar. Sumar, vetur, vor og haust. Margspilað
_ tónverk Vivaldis í flutningi ítölsku kammersveitarinn-
ar I Musici. E
17.00 Hótel Marlin Bay. Þar gengur allt á afturfótum.
17.50 Simply Red. Þáttur um fræga hljómsveit. E
18.40 ★★ Addams-fjölskyldan
19.19 19.19
20.00 ★ Falin myndavél
20.30 Imbakassinn. Spaugstofa þeirra á Stöð 2.
20.50 ★★ Morðgáta
21.40 ★★★ Á barmi örvæntingar. Postcards from the
Edge. Amerísk, 1990. Það er nógu frægt fólk sem
kemur við sögu í þessari mynd. Meðal leikara eru
Meryl Streep, Shirley MacLaine, Gene Hackman og
Richard Dreyfuss, en leikstjóri er Mike Nichols. Mynd-
in er byggð á sögu leikkonunnar Carrie Fisher um
mæðgur sem báðar eru kvikmyndaleikkonur, en
eiga í vandræðum með brennivín og dóp.
23.20 ★★★ Örvænting. Frantic. Amerísk, 1988. Kannski
ekki ein af stórbrotnustu myndum Romans Polanski,
en að ýmsu leyti sú fjörlegasta og afslappaðasta.
Harrison Ford fer á kostum í hlutverki læknis sem
dregst inn í njósnir og undirferli í Parísarborg. Á móti
honum leikur Emmanuelle Seigner, sem er kyn-
bomba og kona Polanskis.
00.55 ★★ Hetjur í háloftunum Miracle Landing. Amer-
ísk, 1990. Sjónvarpsmynd um frægt flugslys. E
SUNNUPAGUR
09.00 Regnboga-Birta
09.20 össi og Ylfa
09.45 Dvergurinn Davíð
10.10 Prins Valíant
10.35 Maríanna fyrsta
11.00 Lögregluhundurinn Kellý
11.30 Blaðasnáparnir.
12.00 ★★★ Foreldrahlutverk Parenthood. Amerísk,
1989. Notaleg og trúverðug gamanmynd um for-
eldra. Leikarar eru góðir og leikstjórn Rons Howard
traust. E
13.55 ítalski fótboltinn Bein útsending.
15.50 Líf eftir þetta líf. Bresk gamanmynd um þjón sem
er sendurá elliheimili.
17.00 Listamannaskálinn. Um ástralska rithöfundinn
Thomas Keneally. E
18.00 60 mínútur. Bandarískurfréttaskýringaþáttur.
18.50 Aðeins ein jörð. Ómar, Sigurveig og umhverfið. E
19.19 19.19
20.00 ★ Klassapíur
20.25 ★★ Lagakrókar. L.A. Law.
21.15 ★★★ Látlaus og hávaxin. Sarah, Plain and Tall.
Anerisk, 1991. Glenn Close þykir leika af mikilli snilld
í þessari hugljúfu sjónvarpsmynd sem fjallar um
nokkurs konar ameríska Mary Poppins.
22.50 Arsenio Hall
23.35 ★★ Vankað vitni. The Stranger. Amerísk/'argent-
ínsk, 1987. Þriller um stúlku, minnisleysi og morð-
ingja. Tekið í Buenos Aires.E
★ ★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni