Morgunblaðið - 30.04.2004, Side 2

Morgunblaðið - 30.04.2004, Side 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ NÝIR ÁFANGASTAÐIR Icelandair áformar að bjóða upp á beint flug milli Íslands og nýrra áfangastaða í Bandaríkjunum og Kanada. Í athugun er að bjóða upp á flug til Denver, Seattle og Vancouv- er. Á ráðstefnu um flugstöðv- arekstur og horfur í ferðaþjónustu í gær kom jafnframt fram að Iceland Express áformar að tvöfalda far- þegafjölda á árinu, í 270 þúsund. Mannfall í Írak Tíu bandarískir hermenn féllu í Írak í gær, þar af átta þegar sprengja sprakk suður af Bagdad. Barist var í borginni Fallujah en bandarískir hermenn hafa setið um borgina frá 5. apríl sl. Samkomulag hafði áður verið sagt vera í burð- arliðnum sem hafa myndi í för með sér að bandarískir hermenn hyrfu frá Fallujah og að í staðinn tækju vopnaðar sveitir Íraka við hlutverki öryggissveita í borginni. Bush fyrir þingnefnd George W. Bush Bandaríkja- forseti sagðist í gærkvöldi hafa svar- að öllum spurningum sem fyrir hann voru lagðar fyrr um daginn á lok- uðum fundi þingnefndar sem rann- sakar orsakir þess að al-Qaeda- samtök Osama bin Ladens gátu gert árás á Bandaríkin 11. september 2001. Bush kom fyrir nefndina ásamt Dick Cheney varaforseta en þeir hafa m.a. verið gagnrýndir fyrir að krefjast þess að fundurinn með nefndinni yrði lokaður. Rjúpan rannsökuð nánar Skotveiðifélag Íslands, SKOTVÍS, hefur sótt um styrk í veiðikortasjóð svo unnt verði að fá erlenda sérfræð- inga til að yfirfara rjúpnarannsóknir Náttúrufræðistofnunar og rann- sóknaáætlanir. Vonast félagið eftir svari umhverfisráðuneytisins fyrir 1. maí nk. Telur félagið ennfremur að veiðikortasjóður sé að hruni kominn vegna rjúpnaveiðibannsins. Þrefaldur hagnaður Hagnaður Landsbankans fimm- faldaðist og hagnaður KB banka nær tvöfaldaðist frá fyrsta fjórðungi í fyrra til sama tímabils í ár. Nam hagnaður Landsbanka 4,1 milljarði króna og hagnaður KB banka 2,65 milljörðum. Sé hagnaður bankanna lagður saman ríflega þrefaldaðist hann milli ára. Í báðum tilvikum er hagnaðurinn í ágætu samræmi við spár. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 35/40 Viðskipti 12/14 Staksteinar 46 Erlent 16/18 Bréf 44 Höfuðborgin 20 Skák 57 Akureyri 21 Dagbók 46/47 Suðurnes 22 Brids 41 Landið 23 Leikhús 52 Listir 26/28 Fólk 52/57 Umræðan 28/34 Bíó 54/57 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 58 Viðhorf 34 Veður 59 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport- @mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Á SUNNUDAGINN  Þjóðhöfðingi með einum eða öðrum hætti  Edith Piaf á fjalirnar  Dagur í lífi Jónsa  Norræn hönnun í Washington  Flottir skór fyrir karlmenn  Nautnin í fyrirrúmi  Freyðivín frá Frakklandi  Stjörnuspá fyrir maí FRÁ 1. maí 2004 hækkar áskrift- arverð blaðsins úr 2.100 krónum í 2.400 krónur á mánuði. Helgaráskrift, sem er föstu- dagar, laugardagar og sunnudag- ar hækkar úr 1.215 krónum í 1.390 krónur. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í tveggja ára fangelsi fyr- ir kynferðisbrot með því að hafa haft samræði við tvær stúlkur gegn vilja þeirra, en ákærði var talinn hafa notfært sér það að stúlkurnar gátu ekki spornað við kynferðis- brotunum sökum ölvunar og svefndrunga. Auk fangelsisrefsing- ar var ákærði einnig dæmdur til að greiða hvorri stúlkunni um sig hálfa milljón króna í bætur. Ákærði viðurkenndi að hafa haft samræði við báðar stúlkurnar en neitaði sök og kvað stúlkurnar hafa tekið þátt í því sem fram fór af fús- um og frjálsum vilja. Héraðsdómur taldi hins vegar sannað, að stúlk- urnar hefðu báðar verið þannig á sig komnar að þær hefðu ekki sök- um ölvunar og svefndrunga getað spornað við samræðinu. Fram kom að stúlkurnar þekktu báðar ákærða og báru fullt traust til hans. Báru þær að ekkert kynferð- islegt hefði vakað fyrir þeim er þær fóru á heimili hans og ekkert slíkt hefði þar átt sér stað með þeirra samþykki. Í héraðsdómi segir, að vitnisburður stúlknanna beggja sé stöðugur, trúverðugur og í góðu innbyrðis samræmi og sé því lagður til grundvallar um, að það sem fram fór hafi ekki gerst með samþykki þeirra. Styðjist þessi niðurstaða dómsins við það sem fram kom við læknisskoðun beggja stúlknanna og að hluta með sálfræðivottorðum beggja. Með dómi Hæstaréttar var dóm- ur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 7. október 2003 staðfestur. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Guðrún Erlendsdóttir, Garðar Gíslason, Hrafn Bragason, Ingi- björg Benediktsdóttir og Pétur Kr. Hafstein. Verjandi ákærða var Jó- hannes Rúnar Jóhannsson hrl. og sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari hjá ríkissaksóknara. Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot FRAMKVÆMDASTJÓRN Samfylkingarinnar hefur sam- þykkt að óska eftir viðræðum við stjórnir þeirra stjórnmála- flokka sem eiga fulltrúa á Al- þingi um tillögur sem leggja mætti til grundvallar við setn- ingu laga er taki til fjárreiðna stjórnmálaflokka. Tillögurnar hafi það að markmiði að tryggja gagnsæi er varðar fjár- öflun og fjárrreiður stjórn- málaflokka. Viðræður miði einnig að því að flokkarnir komi sér saman um reglur er varða kostnað við kosningabaráttu. Í frétt frá Samfylkingunni segir að stjórnmálaflokkar séu mikilvægar stofnanir í lýðræð- isskipun landsins, ekki síður en fjölmiðlar. Því sé mikilvægt að trúnaður sé ríkur gagnvart al- menningi um fjárreiður flokk- anna, gagnsæi ríki um fjáröflun og leikreglur séu skýrar um fjármögnun og kostnað við kosningabaráttu. Vilja viðræð- ur um fjár- mál stjórn- málaflokka HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá nóvember í fyrra þar sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar og samkeppnisráð voru sýknuð af kröfum Íslensks markaðar hf. um að ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála frá sl. vori vegna forvals á rekstr- araðilum í flugstöðinni. Taldi dóm- urinn að sérlög um stöðina gengju framar samkeppnislögum. Íslenskur markaður áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar sem komst að þeirri niðurstöðu að dómur Héraðsdóms skyldi vera óraskaður. Að sögn Höskuldar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, staðfestir dómur Hæstaréttar að flugstöðin hafi ekki misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Kæruferli sem staðið hafi í tvö ár sé nú loks á enda og flugstöðin geti hafist handa að nýju við forval á rekstraraðilum. Forvali komið aftur í framkvæmd „Héraðsdómur stendur óraskaður sem þýðir að við höfum frjálsar hendur varðandi útdeilingu á plássi í byggingunni og útdeilingu á vöru- flokkum. Forvalið stendur og við höfum ekki misnotað markaðsráð- andi stöðu.“ Að sögn hans hefur kæruferlið gert það að verkum að flugstöðin hefur þurft að bíða með breytingar á brottfararsvæði í norðurbyggingu flugstöðvarinnar. Stefnt verði að því að fjölga verslunaraðilum, endur- skipuleggja þjónustusvæðið og koma upp nýjum veitingaaðilum o.s.frv. „Næstu skref eru að koma forval- inu aftur í framkvæmd og dusta rykið af þeim umsóknum sem voru lagðar fram í forvalinu haustið 2002.“ Hæstiréttur staðfestir sýknudóm Héraðsdóms í máli Íslensks markaðar gegn Flugstöð Leifs Eiríkssonar Stefnt að fjölgun versl- unar- og veitingaaðila ÞAÐ gengur mikið á á vinnusvæðinu við Almanna- skarðsgöng. Ingjaldur Ragnarsson, verkstjóri hjá Hér- aðsverki, segir að búið sé að grafa um 20 þúsund rúm- metra frá berginu en í allt verði um 35 þúsund rúmmetrar fluttir til. Stór hluti þessa efnis mun hylja vegskála og er því mokað upp í stóra hauga báðum megin fyrirhugaðs gangamunna. Ingjaldur segir að nú í lok vikunnar verði allt klárt fyrir fyrstu sprengingar. Reyndar er það ekki fyrr en um miðjan júní sem norski verktakinn byrjar að bora sjálf göngin en fyrst þarf að sprengja lóðrétt stál, eða svokallað „splitt“, í bergið báðum megin Almannaskarðs. Aðalverktaki er Héraðs- verk hf. á Egilsstöðum sem er í eigu fjölmargra verk- taka þar um slóðir. Því eru menn og tæki frá nokkrum fyrirtækjum að störfum undir Almannaskarði. Menn frá Myllunni hf. á Egilsstöðum sprengja splitt- ið að vestan en norðanmegin er það Hryðjuverk ehf. sem sér um að sprengja. Menn frá norska verktakafyr- irtækinu Leonhard Nielsen og sønner koma um miðjan júní og hafa meðferðis borvagn sem étur sig í gegnum fjallið. Í byrjun maí verða reistar vinnubúðir fyrir um 30 manns á svæðinu og fjölgar starfsmönnum einnig um það leyti. Malarvinnslan hf. hefur reist steypustöð á svæðinu og á næstunni verður sett upp malbikunarstöð sem að sögn Ingjalds var keypt frá norskum olíuborpalli. Þá munu Norðmennirnir reisa stóra dúkskemmu sem not- uð verður sem verkstæði fyrir borvagninn. Í byrjun maí verða reistar vinnubúðir fyrir 30 manns á svæðinu og í kjölfarið fjölgar í vinnuflokknum. 35 manns munu vinna við framkvæmdina þegar flest er. Vinna í fullum gangi við jarðgöng við Almannaskarð Klárt fyrir fyrstu sprengingarnar Morgunblaðið/Sigurður Mar Gröfur Héraðsverks eru nú búnar að grafa ríflega 20 þúsund rúmmetra af efni frá fyrirhuguðum ganga- munna Almannaskarðsganga. Hornafirði. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.