Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 48
ÍÞRÓTTIR 48 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ KAREN Burke, enska landsliðskonan í knatt- spyrnu, er komin til liðs við kvennalið ÍBV á ný og leikur með því í sum- ar. Karen er 33 ára og var valin í lið ársins í úr- valsdeildinni í fyrra en hún lék þá 11 leiki og skoraði 5 mörk fyrir Eyjaliðið. Í vetur hefur hún spilað með Fulham í ensku úrvalsdeildinni, og þá lék hún að nýju með enska lands- liðinu eftir nokkurt hlé en með því á hún um 70 landsleiki að baki. Þrír erlendir leikmenn með ÍBV Þar með er ljóst að þrír af fjórum erlendum leikmönnum sem spiluðu með ÍBV í fyrra, þegar liðið varð í öðru sæti í deild og bikar, verða áfram með í ár. Skosku landsliðskonurnar Mich- elle Barr og Mhairi Gilmour leika áfram með liðinu en enski landsliðs- markvörðurinn Rachel Brown er úr leik vegna meiðsla. Í hennar stað er komin Claire Johnstone frá Hibernian, varamark- vörður skoska landsliðsins. Þá hef- ur ÍBV fengið tvo öfluga íslenska leikmenn í sínar raðir. Bryndís Jó- hannesdóttir er komin aftur til Eyja frá ÍR og Elín Anna Steinarsdóttir er komin til liðs við ÍBV frá Breiða- bliki. Karen Burke komin aftur til knattspyrnuliðs ÍBV Karen Burke ÍSLENSK knattspyrnufélög geta ekki fengið til sín ótakmarkaðan fjölda leikmanna frá ríkjunum sem fá inngöngu í Evrópska efnahags- svæðið hinn 1. maí. Íslensk stjórn- völd hafa ákveðið að ákvæði um frjálsa för launafólks frá þessum ríkjum taki ekki gildi hér á landi að sinni, nema í tilfelli Kýpur og Möltu. Hin ríkin eru Eistland, Lettland, Litháen, Pólland, Slóvakía, Slóven- ía, Tékkland og Ungverjaland. KSÍ tilkynnti í vikunni að vegna þessa myndu leikmenn frá þessum átta ríkjum áfram falla undir tak- mörkun á hlutgengi erlendra leik- manna hér á landi, en samkvæmt því má mest nota þrjá leikmenn frá ríkjum utan EES. Geir Þorsteinsson, framkvæmda- stjóri KSÍ, sagði við Morgunblaðið að með þessari tilkynningu væri ekki verið að bregðast við tilraun- um íslenskra félaga til að fá til sín fleiri erlenda leikmenn en mögu- legt væri. Vildum koma í veg fyrir misskilning hjá félagsliðum „Nei, við höfum ekki orðið varir við að slíkt væri í gangi. Það hefur reyndar ein fyrirspurn um þetta mál borist okkur en ég veit annars ekki til þess að lið hér á landi hafi verið í þeim hugleiðingum. Við vild- um hins vegar kynna þetta fyrir fé- lögunum svo ekki væri neinn mis- skilningur í gangi um þessi mál,“ sagði Geir. Áfram takmarkað hlutgengi leikmanna ODDALEIKIR Vals og ÍR ann- ars vegar og Hauka og KA hins vegar verða báðir á sunnudag samkvæmt dagskrá Handknattleikssambandsins. Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, sagði í gær að það þyrfti mikið að gerast til þess að annar oddaleik- urinn yrði færður til og leik- inn á laugardag í beinni sjón- varpsútsendingu. „Okkur er illa við að færa til leiki á þessu stigi keppninnar. Það getur hins vegar farið svo að tímasetningar á leikjunum á sunnudag myndu breytast, en það yrði þá gert í samráði við þá aðila sem sýna beint frá þessum leikjum,“ sagði Einar. Oddaleik- irnir verða á sunnudag Vörnin var ágæt hjá okkur á köfl-um og mér fannst við vera með ágæt tök á þeim þegar við náðum að stilla upp vörninni, fyrir utan að Diddi [Ingimundur Ingi- mundarson] var sjóð- andi heitur. Svo þeg- ar við fórum í aðgerðir til að stöðva hann þá kom Bjarni Fritzsson sterk- ur inn. ÍR er með mjög gott lið þann- ig að það eru alltaf menn til að taka af skarið þegar á þarf að halda. Þetta var gríðarlega erfiður leikur, rétt eins og fyrri leikurinn á þriðjudag- inn. Því miður tókst okkur ekki að sigra og komast í úrslitaleikinn. Ég er stoltur fyrir hönd ÍR-inga að ná að koma til baka, en það verður skamm- góður vermir fyrir þá,“ sagði Óskar Bjarni. Þegar honum var bent á að liðið væri komið lengra en í fyrra, en þá tapaði það 2:0 í einvíginu við ÍR, sagði hann: „Já, kannski, en ef við förum að hugsa svoleiðis þá höldum við að við séum orðnir saddir, og við erum það ekki. Við ætlum að vinna á sunnudaginn og komast í úrslitin. Það verður frábær leikur enda hafa þessir strákar spilað hver á móti öðr- um frá því þeir voru tólf ára og þekkj- ast mjög vel. Þeir höfðu betur í dag. Mér finnst við eiga helling inni ennþá miðað við þennan leik. Við bjuggumst við flatri vörn ÍR enda er- um við dálítið skyttulausir eftir að Markús Máni meiddist. En við eigum inni í nokkrum leikmönnum, Heimi Erni, Hjalta Pálma og Atla Rúnari Steinþórssyni og fleirum.“ Hann var langt frá því að vera sátt- ur við dómarana. „Við töpuðum ekki vegna dómgæslunnar, en mér fannst við fá ansi lítið frá þeim í 45 mínútur. Svo fóru þeir að rétta við stöðuna undir lokin, svona til að bjarga andlit- inu.“ Brottvísun kærkomin hvíld! Júlíus Jónasson, varnarjaxl og þjálfari ÍR, var ángæður með leik sinna manna og sagði að vörnin hefði verið sterk. Júlíus stóð vaktina þar af stakri prýði eins og svo oft áður og að þessu sinni var hann aldrei rekinn út- af. „Ég er svo prúður leikmaður og það hefur komið fyrir í vetur að ég hef sloppið við að vera rekinn útaf,“ sagði Júlíus grafalvarlegur. Hann glotti síðan og bætti við: „Þegar menn eru komnir á þennan aldur þá er það kærkomin hvíld að vera rekinn útaf í tvær mínútur!“ Á síðustu leiktíð var ekki um nein-ar hömlur að ræða á þessu sviði, en liðin áttu þess í stað að vinna með 500.000 kr. launaþak og semja við leikmenn sína með þeim hætti að heildarlaunagreiðslur hvers mánaðar færu ekki yfir hálfa milljón. Að auki er lagt til að liðum verði ekki heimilt að bæta við erlendum leikmönnum eftir 5. janúar ár hvert. Félögum verður þó heimilt að skipta um erlenda leikmenn hvenær sem er á tímabilinu. Í tillögu stjórnnar KKÍ er lagt til að launaþakið sem sett var á síðast- liðið sumar verði útfært með öðrum hætti en áður. Liðum verður gert að starfa undir 300.000 kr. launaþaki á mánuði og er þá miðað við laun og hlunnindi samningsbundinna leik- manna. Miðað er við 10 mánaða tímabil ár hvert, frá júli og fram til loka apríl, ekki er heimilt að færa greiðslur á milli mánaða. Mörg lið voru með allt að þrjá bandaríska leikmenn í sínum röðum á síðustu leiktíð og er markmiðið með tillögu KKÍ að auka vægi ís- lenskra leikmanna á ný án þess að skerða möguleika liða til þess að sækja liðsstyrk frá Evrópu, Banda- ríkjunum eða öðrum löndum.  UMSK leggur til að aðeins einum erlendum leikmanni verði leyft að leika með liðum í úrvalsdeild og að bannað verði að hafa erlenda leik- menn í röðum liða sem leika í 1. deild.  ÍBR leggur til að reglugerð um þátttöku í úrvalsdeild verði felld úr gildi.  Stjórn KKÍ leggur einnig til breytingar á venslasamningum á milli liða. Lið A getur þar með lán- að tvo leikmenn til liðs B, og eru þeir leikmenn gjaldgengir með báðum liðum á viðkomandi leiktíð. Breytingin er sú að skila þarf inn öllum samningum fyrir 5. janúar ár hvert og geta lið því ekki fengið „liðsstyrk“ frá öðrum liðum rétt fyrir úrslitakeppni eða lokabarátt- una í viðkomandi deild.  Lagt er til af ÍBR að lið í efstu deild karla og kvenna ásamt liðum í 1. deild karla sé skylt að senda inn tölfræðiupplýsingar til KKÍ eigi síðar en 3 klst. eftir að leik lýkur. Það sama á að gilda um bik- arkeppni KKÍ og fyrirtækjabikar KKÍ.  Tvær breytingatillögur eru lagðar fyrir þingið um keppnisfyrir- komulag 1. deildar karla. ÍBR leggur til að efsta liðið að lokinni deildarkeppni öðlist sjálfkrafa rétt til þess að leika í úrvalsdeild en að liðin sem verða í 2.–5. sæti leiki til úrslita um eitt laust sæti til viðbótar. Lagt er til að sæmdar- heitið Íslandsmeistari í 1. deild karla verði lagt af enda getur að- eins eitt lið orðið Íslandsmeistari ár hvert.  ÍBR leggur til að tekið verði upp fastanúmerakerfi á búningum leikmanna í efstu deild . Leikmenn velja sér númer frá 0–99 og þarf að skila leikmannalista inn til KKÍ fyrir 1. október ár hvert.  Að auki leggur ÍBR til að sekt- argreiðslur verði hækkaðar vegna liða sem ekki ná að uppfylla dóm- arakvóta sína ár hvert. Stjórn KKÍ leggur til að reglugerð um úrvalsdeild karla verði breytt á ný Hömlur sett- ar á erlenda leikmenn? ÁRSÞING Körfuknattleikssambands Íslands fer fram á Selfossi um næstu helgi og á þinginu verða bornar upp fjölmargar tillögur um breytingar á ýmsum reglugerðum KKÍ. Hæst ber tillögu frá stjórn KKÍ um breytingar á reglugerð um þátttöku í úrvalsdeild karla. Þar er lagt til að liðum í úrvalsdeild geti aðeins teflt fram tveimur leik- mönnum hverju sinni sem eru með ríkisborgararétt utan Evrópu. Morgunblaðið/Árni Torfason Bandaríkjamennirnir Nick Bradford úr Íslands- og bik- armeistaraliði Keflavíkur og Darrell Lewis úr Grindavík létu mikið að sér kveða með liðum sínum í vetur. Eigum ennþá mikið inni „MÉR fannst vanta of mikið hjá okkur í þessum leik. Sóknin var fremur stirð hjá okkur, sérstaklega í fyrri hálfleiknum og við eigum mjög mikið inni ennþá og það er ekki spurning að við ætlum okkur áfram í úrslit og vinnum heima á sunnudaginn,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Valsmanna, eftir að ÍR-ingar höfðu jafnað metin í einvígi félaganna í undanúrslitum í handknattleik karla. Eftir Skúla Unnar Sveinsson  LETTAR eru mjög áhyggjufullir vegna meiðsla sóknarmannins Mar- ians Pahars og telja óvíst að hann verði klár í slaginn með Lettum í úr- slitakeppni Evrópumótsins sem fram fer í Portúgal í júní. Pahars, sem leikur með Southampton, kom inná sem varamaður í leik Letta og Íslendinga í fyrrakvöld en þurfti að fara af velli nokkrum mínútum síðar vegna meiðsla.  PAHARS, sem nýkominn var aftur á ferðina og skoraði eina mark Southampton í 2:1 ósigri gegn Bolt- on um síðustu helgi, meiddist á nára og óttast Aleksandrs Starkovs, þjálfari Letta, að Pahars kunni jafn- vel að missa af EM sem yrði gríð- arlegt áfall fyrir lið Letta.  SUNDKAPPINN Mark Spitz, sem vann til sjö gullverðlauna á Ólympíu- leikunum 1972, sagði í samtali við út- varp BBC í gær að svo gæti farið að Bandaríkin hættu við að senda keppendur á Ólympíuleikana í Aþenu í sumar, vegna ótta við hryðjuverk. Spitz sagði að stjórn Bush Bandaríkjaforseta myndi sennilega ekki vilja hætta lífi banda- rískra íþróttamanna enda væru for- setakosningar í nóvember.  BIRMINGHAM vill fá Alan Smith, framherja Leeds United, í sínar rað- ir fyrir næstu leiktíð en Smith hefur gefið það út að hann telji afar ólík- legt að hann verði áfram í herbúðum Leeds. Forráðamenn Birmingham eru sagðir reiðubúnir að punga út 7 milljónum punda fyrir Smith en full- víst má telja að fleiri félög eigi eftir að falast eftir Smith, sem er 23 ára.  MARION Jones og Tim Montgom- ery verða ekki meðal keppenda á Grand Prix-frjálsíþróttamótinu sem fram fer í Japan um aðra helgi. Turt- ildúfurnar ætla hins vegar að keppa á móti á Jamaíku daginn áður. Í síð- ustu viku var sagt frá meintu sam- bandi þeirra við Victor Conte, sem framleiðir lyf sem auka á getu íþróttamanna og hermdu fréttir að Conte hefði sagt að hann hefði gefið þeim slík lyf. Íþróttamennirnir og Conte neita því alfarið.  KOBE Bryant fór fyrir LA Lakers í sigri liðsins á Houston, 97:78, í úr- slitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik í fyrrinótt. Með sigr- inum tryggði Lakers sér sæti í und- anúrslitum vesturdeildarinnar og andstæðingar liðsins þar verða meistarar San Antonio Spurs sem slógu Lakers út á síðustu leiktíð og bundu þar með enda á þriggja ára sigurgöngu Lakers í NBA-deildinni.  BRYANT skoraði 31 stig og tók 10 fráköst og áttu liðsmenn Houston engin svör við stórleik hans. Karl Malone átti einnig mjög góðan leik, skoraði 18 stig, tók 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Shaquille O’Neal skoraði 12 stig og tók 9 fráköst. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.