Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 22
SUÐURNES 22 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁTTA ÁR Á BESSASTÖÐUM Umfjöllun um viðburðaríkan forsetaferil Ólafs Ragnars Grímssonar, um helgina. ÍS LE NS KA A UG L† SI NG AS TO FA N HF ./S IA .IS – M O R 24 50 4 0 4/ 20 04 Reykjanesbær | Tíundu bekkingar í Njarðvíkurskóla stóðu fyrir mara- þonlestri í skólanum um síðustu helgi en átakið var liður í að safna fyrir vorferð nemenda til Vest- mannaeyja sem farin verður strax að loknum samræmdum prófum í maí. Notuðu nemendurnir tækifær- ið og lásu undir prófin sem hefjast með samræmdu prófi í íslensku 3. maí nk. Að sögn Sveins Enoks Jóhanns- sonar, formanns nemendafélagsins, lásu nemendur í skólabókunum frá kl. 20 á föstudagskvöldi til kl. 8 á laugardagsmorgun, klukkutíma í senn með klukkustundarhléi á milli. Í leiðinni söfnuðu þau áheitum en ekki lá endanlega fyrir hve miklu tókst að safna þegar blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Svein. „Þetta var rosalega gaman og ógleymanlegt,“ sagði hann um uppátækið. Nemendur pöntuðu sér kínamat og pitsur sem þau gæddu sér á í hléi, sumir horfðu á myndbönd og nokkrir mættu með kassagítar. Að sögn Sveins hefur vorferð venjulega verið farin til Akureyrar en ákveðið var að bregða út af van- anum og í staðinn verður dvalið þrjár nætur í Eyjum, farið í sigl- ingu umhverfis eyjarnar og stærðar tjaldi slegið upp í Herjólfsdal svo eitthvað sé nefnt. Nemendur í tíunda bekk í Njarðvíkurskóla Bókalest- ursmara- þon fyrir vorferðKeflavíkurflugvöllur | „Það hefurverið mjög mikið að gera hjá okkur og við vorum að bæta við hjá okkur þrjátíu starfsmönnum tímabundið í við- haldsvinnu,“ segir Valdimar Sæmundsson, fram- kvæmdastjóri Tækniþjónustu Flugleiða, en fyr- irtækið hefur haft gnótt verkefna undanfarið ár. Nú starfa um 185 fastir starfsmenn hjá fyrirtæk- inu, þar af eru um 120 flugvirkjar. „Við erum búnir að gera nú í vetur fjórtán stór- skoðanir á 757-vélum, sem er mun meira en verið hefur,“ segir Valdimar. „Það athyglisverða er að við höfum verið með tvær vélar í skoðun í einu, sem er nýtt. Það má segja að við séum með tvær framleiðslulínur, en þannig er ástandið búið að vera í þrjá mánuði. Stórskoðanir eru mjög mis- jafnar að umfangi og geta tekið allt frá fimm dög- um upp í mánuð.“ Agað vinnuumhverfi Viðhald á flugvélum fer fram eftir mjög öguðum aðferðum. Hvert einasta verk sem snýr að skoðun og viðhaldi flugvéla er skjalað í því skyni að koma í veg fyrir skekkjur eða villur, enda er bæði gríð- arlegt verðmæti og ekki síður hundruð mannslífa í húfi. „Verðmæti eins hreyfils í 757-vél er um sjö hundruð milljónir króna. Það að setja hreyfilinn á verkstæði kostar um þrjú hundruð og fimmtíu milljónir,“ segir Valdimar. „Því er gríðarleg papp- írsvinna í kringum hverja skoðun. Ef eitthvað finnst að þá er það skráð, auk verklýsingar á því hvernig gert var við það og samkvæmt hvaða heimild. Þetta er geysilega agað umhverfi og stundum líkt við lyfjaframleiðslu, svo mikilvæg er skjölunin.“ Höfuðáhersla er lögð á öryggi flugvéla og fyrir hvert lykilkerfi eru a.m.k. tvö aukakerfi. „Það er til dæmis þrefalt rafkerfi í vélunum og tvær til þrjár talstöðvar. Þótt einhver hlutur bili á það ekki að geta haft nein gríðarleg áhrif.“ Árið í fyrra var fyrsta starfsár Tækniþjónust- unnar sem sérstakt fyrirtæki og sá reynslutími hefur að sögn Valdimars gengið afar vel. Verk- efnum hefur fjölgað til muna hjá Tækniþjónust- unni og hefur hún tekið að sér fjölda verkefna utan þjónustunnar við Flugleiðir. „Flugleiðasamstæðan hefur verið að stækka og við önnumst núna viðhald á fimmtán 757-vélum fyrir Flugleiðasamstæðuna og tveimur 767. Við önnumst auk þess allt viðhald fyrir Air Finland, en það er með þrjár 757,“ segir Valdimar og telur upp fjölmörg önnur flugfélög sem njóta þjónustu fyrirtækisins. „Það er skýr stefna hjá okkur að við þjónum öllum sem hér þurfa þjónustu. Þau viðbótarverkefni sem við höf- um fengið í vetur hafa skaffað okkur að minnsta kosti tvö hundruð milljónir fram yfir rekstr- aráætlun, sem hljóðar í ár upp á 2,6 milljarða, þetta er ágæt búbót.“ Traust verkefnastaða Valdimar segir verkefnastöðuna næstu tvö árin mjög trausta og gefa góðar horfur fyrir framtíðina. Skýringuna á þessum vexti í verkefnum telur hann meðal annars þá að flugvirkjar og verkfræðingar Tækniþjónustunnar séu sérhæfðir í viðhaldi bæði 757- og 767-véla. Smærri flugfélög, sem ekki hafa efni á eigin viðhaldsstöðvum, leiti að þriðja aðila til viðhalds á vélum og Tækniþjónustan hafi t.d. haft samband við finnska flugfélagið að fyrra bragði og boðið þjónustu sína. „Við höfum mikla reynslu af rekstri 757-flugvéla, eigum allt sem til þarf, vara- hluti, þjálfað fólk og ekki síst þau kerfi sem þarf til að halda utan um þetta,“ segir Valdimar og bætir við að það séu ekki bara skoðanir sem Tækniþjón- ustan selji, heldur einnig varahlutaþjónusta, eft- irlit, skipulagning og verkfræðiþjónusta. „Auk þess erum við með viðhaldsvakt sem er mönnuð allan sólarhringinn og getur stjórnað viðhaldi flug- véla um allan heim. Minni flugfélög kaupa mikið af þessari þjónustu af öðrum og við teljum okkur vera sterka á þessu sviði. Það er mjög mikil reynsla saman komin hér,“ segir Valdimar og bæt- ir því við að lokum að hann telji að aldrei hafi verið framleidd flugvél og hreyflasamstæða sem er eins áreiðanleg í rekstri og Boeing 757. Tækniþjónusta Flugleiða á Keflavíkurflugvelli með góða verkefnastöðu Fyrirtækið býr yfir dýr- mætri reynslu Morgunblaðið/Eggert Við skoðun vélanna er öll áhersla lögð á það að klára verkið á réttum tíma, þar sem tapaðir dagar eru dýrir í flugi. Því er nauðsynlegt að allar ferðir séu liprar og snöggar. Fjárfesti Valdimar í forláta sendilshjólum til afnota í húsið og hafa þau reynst gríðarlega vel í þessu rými.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.