Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Riseðlugrín © DARGAUD JÁ!! BÍDDU NÚ VIÐ ... HVERNIG NÆR MAÐUR ... ELSKAN! GERÐU SVO VEL ÉG GAT EKKI OPNAÐ SKELJARNAR EN ÉG LOFA ÞÉR ÞVÍ AÐ ÞAÐ ERU PERLUR Í ÖLLUM SKELJUNUM EN ... EN ... Svínið mitt © DARGAUD HLUSTIÐ Á ÞETTA! HEIMSMEISTARAKEPPNI Í SNIGLASKRIÐI VERÐUR HALDIN Í VATNASKÓGI SNIGLAR ERU EKKI VERRI EN FORMÚLA 1 OG ER ÞVÍ BÚIST VIÐ METAÐSÓKN Í ÁR, EN KEPPNIN ER HALDIN NÚ Í 15. SKIPTI HEIMSMETIÐ ER 51cm Á 2 MÍNÚTUM OG MUNU EFLAUST MARGIR KEPPENDUR REYNA AÐ SLÁ ÞAÐ MET Í ÁR MAGNAÐ! GÆTUM VIÐ HALDIÐ SVONA KEPPNI? VIÐ EIGUM ENGA SNIGLA VIÐ GETUM NOTAÐ SVÍN Í STAÐINN! GROIN! FRÁBÆR HUGMYND! BYRJUM STRAX! HEY! VIÐ ERUM ASNAR! VIÐ HUGSUÐUM EKKI ÚT Í ÞAÐ AÐ VIÐ ERUM BARA MEÐ EITT SVÍN NEI! ÉG ER BÚIN AÐ LESA ALLT... SEGJA ÞEIR EKKI HVAR ÞEIR FINNA KEPPENDUR? STÓR SVÍNAKEPPNI ...OG ÞEIR SEGJA AÐ Í LOK KEPPNINAR ER HALDIN KEPPNI ÞAR SEM ALLIR BORÐA SNIGLA GROIN? MÉR SÝNIST FYRSTA KEPPNIN STRAX BÚIN ÞAR SEM EINI KEPPNADINN OKKAR HEFUR ÁKVEÐIÐ AÐ HÆTTA KEPPNI GROIN! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Í MORGUNBLAÐINU er kveðið fast að orði í leiðaraskrifum dagana 3. og 22. apríl. „Áfengi hefur verið þjóðarböl á Íslandi og er það enn“. Morgun- blaðið hvetur Al- þingi í þessum orðum að hvika hvergi frá mark- miðum sem sett voru fyrir þremur árum „enda eru þau heilbrigð og eðlileg“. Varað er við því að aðgengi að áfengi í versl- unum verði gert auðveldara og lýst yfir áhyggjum yfir tveimur frum- vörpum sem liggja fyrir Alþingi og virðast ganga þvert á þau markmið sem þingið sjálft setti. Leiðaraskrif Morgunblaðsins, laugardaginn 3. apríl, fjallaði um glórulausa afgreiðslu Borgarráðs og Hverfisráðs í Grafarvogi um að mæla með vínveitingaleyfi til veit- ingastaðar sem staðsettur er á milli anddyris og leikvangs, inni í hinu glæsilega íþróttamannvirki Egils- höll. Börn og unglingar sækja að meirihluta þessa glæsilegu íþrótta- höll enda mannvirkið byggt til að skapa unga fólkinu okkar fullkomnar aðstæður til íþróttaæfinga. „Áfengi og íþróttir eiga enga samleið“ segir í leiðara Morgunblaðsins. Það er hálf- niðurlægjandi að ritstjórar Morgun- blaðsins þurfi að áminna þá sem ábyrgðina hafa, þ.e. borgarfulltrúa, þegar starf og stefna íþróttahreyf- ingarinnar, foreldrasamtaka og skólamanna kveður á um hið gagn- stæða. Það er dapurlegt að fylgjast með félögum mínum, nýkjörnum þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins á Al- þingi, berjast fyrir frumvörpum um lækkun aldurs til áfengiskaupa og að leyft verði að selja áfengi í matvöru- verslunum hér á landi. Hefur áfeng- isbölið gersamlega farið framhjá þessum „hugsjónamönnum“ eða átta þeir sig ekki á því að „frelsi getur snúizt upp í andhverfu sína“ eins og Morgunblaðið minnir alþingismenn á í leiðaraskrifum? Ég vona að eldri og reyndari þing- menn og leiðtogar þjóðarinnar sjái til þess að glapræði áðurnefndra frumvarpa nái ekki fram að ganga. Sem foreldri og skólamaður vil ég þakka ritstjórum Morgunblaðsins fyrir þeirra árvekni í leiðaraskrifum á sama tíma og hætta virðist á að nokkrir af kjörnum alþingismönnum og borgarfulltrúum „fljóti sofandi að feigðarósi“. HELGI ÁRNASON, skólastjóri Rimaskóla. Athyglisverð leiðaraskrif Frá Helga Árnasyni: STORMUR í vatnsglasi, það vildi ég segja. Þetta frumvarp á fullan rétt á sér og er ekki stefnt gegn einum eða neinum sérstökum. Þetta er bara kall tímans á skipulögð vinnubrögð, svo einfalt er það. Í nútímaþjóðfélagi, með allan þennan möguleika á blokkamyndun og einokun, er það sjálfsagt að setja leikreglur svo hinn saklausi borgari geti verið öruggur um sig í síflókn- ari heimi. Heimi þar sem auglýs- ingar og fjölmiðlar ráða skynsemi einstaklinga og fá þá oft á tíðum til að gera það sem ráðandi afl vil að það geri. Einstaklingarnir eru ber- skjaldaðir fyrir áreiti af hvaða toga sem er. Því vil ég segja það að þetta frum- varp er kall tímans á kringumstæð- ur sem verður að koma böndum á. Því fyrr því betra. Þó að það sé orðið aðkallandi nú má segja að þeir mega ekki láta undan þessum stormi, sem er í vatnsglasinu. BJARNI ÞÓR ÞORVALDSSON, Hraunbæ 182, 110 Reykjavík. Nokkur orð vegna fjölmiðlafrumvarps Frá Bjarna Þór Þorvaldssyni: JÓN Baldvin Hannibalsson sendir vini sínum Ólafi afmæliskveðju í Morgunblaðinu sl. fimmtudag. Þó sendiherrann telji sig vera salt jarð- ar þá er hann ekki Eystrasalt eins og hann heldur sig vera. Helsinki, höf- uðborg Finnlands og aðsetur Jóns Baldvins, er við Finnskaflóann, sem tengist Eystrasalti við straumhvörf en ber annað heiti. Þetta þarf sendi- herrann að vita. Hann þarf einnig að festa sér í minni að til er annað og miklu fegurra orð um sáttmála eða samkomulag sem tveir menn binda fastmælum heldur en það sem hann hefir notað. Hann þýðir enskt mál- tæki sem haft er um slíkan sáttmála og kallar „heiðursmannasamkomu- lag“ „gentlemans agreement“. Ís- lendingar höfðu annað orð. Þeir ræddu um drengskaparheit. Íslend- ingar ætlast til þess af fulltrúum sín- um að þeir kunni að koma fyrir sig orði á sinni eigin þjóðtungu. Að lokum: Hvenær ætlar Jón Baldvin að sýna þann drengskap að rétta hlut Jóns Blöndal og fornvinar Hannibals og Finnboga Rúts? Því fyrr því betra. Kveðja til Bryndísar. PÉTUR PÉTURSSON þulur. Fyrirspurn til Jóns Baldvins Hannibalssonar Frá Pétri Péturssyni þul:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.