Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ laugardaginn 1. mai klukkan 12.00 á 1. hæð Háskólans í Reykjavík Til umræðu er eignarhald á fjölmiðlum Framsögumenn: Fundarstjóri: Lögrétta efnir til málÞings Davíð þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og formaður fjölmiðlanefndar. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins. þórlindur Kjartansson blaðamaður hjá Fréttablaðinu og ritstjóri deiglan.com Egill Helgason Þá ætti nú Íslands-army að geta hlotið fullnaðarþjálfun á ástkæru fósturjörðinni áður en lagt er í hann til að bjarga heiminum. Tónleikar Vox Feminae á sunnudag Boðskapur en ekki bara bull Kvennakórinn VoxFeminae heldurtónleika í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 2. maí og hefjast þeir klukk- an 15. Morgunblaðið sló á þráðinn til Margrétar Pálmadóttur, stofnanda og stjórnanda kórsins, og lagði fyrir hana nokkrar spurningar um kórinn, kvennakóra og tónleikana. Margrét sagði, að á efn- isskrá tónleikanna væru kórar og aríur eftir heims- þekkt óperuskáld svo sem Mozart, Wagner, Tsjaj- kovskí, Rossi, Verdi og Puccini. Einsöngvari væri Inga Backman og píanisti Arnhildur Valgarðsdóttir. – En hvað um kórinn sjálfan? „Vox Feminae var stofnaður 1993 og fagnaði því tíu ára afmæli á síðasta ári. Markmið með stofn- un kórsins á sínum tíma var að syngja eldri tónlist, andlega og veraldlega, en efnisskráin hefur síðan þróast smátt og smátt yfir í að ná yfir alla tónlist sem skrifuð er og útsett fyrir kvennakóra. Vox Feminae heldur sjálfstæða tónleika einu sinni til sex sinnum á ári og fer í tónleikaferðir bæði innanlands og utan. Í kórnum eru 35 konur. Vox Feminae hefur víða komið við, við höfum sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Alba-hópnum og einnig tekið þátt í Kristnitökuhátíðinni á Þingvöll- um um árið og í nóvember 2000 vann kórinn til silfurverðlauna í VIII. alþjóðlegu kórakeppninni í flutningi trúarlegrar tónlistar, keppni sem kennd er við tón- skáldið Palestrina og er haldin í Páfagarði í Róm. Kórinn hefur gefið út tvo diska, Mamma geym- ir gullin þín, árið 2000, sem inni- heldur íslensk þjóðlög, og síðast- liðið haust kom út diskurinn Himnadrottning með trúarlegri tónlist.“ – En hvað skilur Vox Feminae frá öðrum kórum? „Að mínu viti hefur Vox Fem- inae þrenns konar yfirburði yfir aðra kóra. Í fyrsta lagi vil ég nefna hinn tæra flutning á ís- lenskum þjóðlögum, sérstaklega þegar viðfangsefnin eru vöggu- ljóð. Þá breytast allir söngvararn- ir í mjúkar mömmur og maður sér næstum sjálfa Maríu mey birtast. Í öðru lagi vil ég nefna sókn kórs- ins í og afgreiðslu hans á erfiðum og spennandi og umfram allt krefjandi verkefnum. Loks vil ég nefna flutning kórsins á trúar- legri/kirkjulegri tónlist, gamalli og nýrri. Geta Vox Feminae á því sviði sannaðist áþreifanlega í Páfagarði árið 2000, sem ég gat um áðan.“ – Nú eru kvennakórar afar áberandi á Íslandi, hver er þín hugmyndafræði um þá? „Hvað mig varðar, þegar mað- ur hefur einu sinni heyrt sam- hljóm radda í góðum kvennakór, þá gleymir maður því aldrei. Svo einfalt er það. Ég lít á kvennakór sem eitt hljóðfæri. Kvennakór- ar eru ekki sauma- klúbbar, heldur hópar kvenna með sameigin- legan faglegan metnað. Auðvitað er félagsskapurinn frábær auka- grein, en það er fyrst og fremst verið að flytja einstaka og vand- aða tónlist. Þú vilt ekki sjá hundr- að konur bara standa og bulla, heldur viltu sjá þær flytja þér boðskap í gegnum túlkun sína. Og annað, kvennakórar eru allt ann- að tónteppi heldur en t.d. karla- kórar, stúlkna- eða drengjakórar. Konur eru rétt að byrja að láta á sér kræla sem kórar og eiga eftir að færast í aukana. Ég spáði þessu alltaf og taktu eftir, spáin er að rætast.“ – Deila aðrir þessari skoðun með þér? „Ja, að minnsta kosti færist það mjög í vöxt að tónskáld og aðrir listamenn beinlínis útsetji tónlist, bæði nýja og gamla, fyrir kvenna- kóra. Það segir nokkuð.“ – Er endalaust hægt að setja saman kvennakóra á Íslandi? „Ég hef starfað við kóra í þrett- án ár og ég fann það strax þegar ég var að byrja að kenna kórsöng og stofna kóra, að áhuginn var gíf- urlegur. Þetta byrjaði í 30 konum, rauk svo á skömmum tíma í 120 og var svo óðar komið í 240. Þetta var nánast eins og nifteinda- sprengja. Síðan hefur hægst að- eins á eins og búast mátti við, en eigi að síður er geysilega mikill áhugi viðvarandi hjá fjölda kvenna. Mikill fjöldi stúlkna og kvenna deilir þessum sameigin- lega áhuga og einlæga metnaði og fær nokkurs konar félagslega full- nægju með í kaupbæti.“ – Hvernig er að reka kvenna- kór á Íslandi? „Já, það er gott að þú spyrð að því. Kvennakórar eru sko ekkert grín. Það er af- ar erfitt að reka kvennakór og varla að það sé pláss fyrir þá í Reykjavík. Ég held að þeir sem huga að jafn- réttismálum megi þakka fyrir að við höfum ekki gert opinbera þá mismunun sem felst í því hversu margfalt betur er gert við karla- kóra á svæðinu, bæði hvað varðar aðstöðu, aðbúnað allan, styrki og þess háttar. En ég er sama bar- áttukonan og áður og er enn að læra.“ Margrét Pálmadóttir  Margrét Pálmadóttir fæddist á Húsavík 28. apríl 1956. Stúdent frá Flensborg 1975 og nam kór- söng og einsöng í Tónlistarhá- skólanum í Vínarborg 1976–81 og ennfremur einsöng í Tónlist- arskóla Kópavogs og í Söngskól- anum í Reykjavík. Starfaði sem raddþjálfari Pólýfónkórsins og Söngsveitarinnar Fílharmoníu auk ýmissa annarra kóra. Auk Kvennakórs Reykjavíkur stofn- aði hún og stjórnaði ýmsum kór- um, en starfandi kórar í dag und- ir stjórn Margrétar eru: Gospelsystur, Vox feminae, Stúlknakór Reykjavíkur og Aurora. Margrét á fimm börn, Maríus (30), Hjalta Þór (26), Sig- ríði Soffíu (14), Matthildi (9) og Kristján Helga (6), en maki henn- ar er Hafliði Arngrímsson leik- listarráðunautur. Kvennakórar eru sko ekkert grín FORSETI Suður-Afríku, Thabo Mbeki, þakkaði íslenskum stjórn- völdum fyrir þróunaraðstoð við sunnanverða Afríku, sérstaklega þegar kæmi að aðstoð vegna fisk- veiða, þegar hann nýverið tók við trúnaðarbréfi Benedikts Ásgeirs- sonar, sendiherra Íslands í Suður- Afríku. Mbeki bauð Benedikt velkominn til Suður-Afríku í Pretoríu, höfuð- borg landsins, á þriðjudag í síðustu viku. Hann sagði að lönd í syðri hluta Afríku hefðu verulegt gagn af aðstoð frá Íslandi, sér í lagi lönd eins og Mósambík sem hefði mjög langa strandlínu. Forsetinn sagði að Ís- land væri að gera margt til að vinna gegn ójafnvægi á svæðinu sem væri mjög mikilvægt við framtíðarþróun svæðisins. Þakkaði Íslandi þróunaraðstoð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.