Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Sverrir
Gísli Tryggvason og Halldóra Friðjónsdóttir frá BHM (t.v.) andspænis Magnúsi Péturssyni, forstjóra LSH, og
Guðríði Þorsteinsdóttur, lögfræðingi í heilbrigðisráðuneytinu. Fyrir borðsendanum situr Jón Kristjánsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sem tók við tillögum um sameiginleg áhersluatriði við rekstur LSH.
1. Verkefnafjármögnun í fjárlögum: Mjög mikilvægt er að tengja
greiðslur til spítalans við unnin verk, þ.e. að hverfa frá kerfi
fastra fjárlaga og taka upp blandaða fjármögnun sem byggist á al-
þjóðlegum framleiðslumælingarkerfum sem verið er að innleiða á
LSH, þ.e. DRG (Diagnosis Related Groups)-kerfið.
2. Hagstæðustu kostir í lyfjakaupum: Nauðsynlegt er að finna
leiðir til þess að hægja á þeim útgjaldavexti sem hefur verið til
margra ára á lyfjakostnaði. Málið snýr annars vegar að stjórnvöld-
um og þeirri reglugerðarumgjörð sem snýr að innflutningi og
skráningu lyfja á Íslandi og hins vegar að notkun lyfjanna á spít-
alanum.
3. Mannúðleg og hagkvæm vistunarúrræði: Þá er hinn svo kall-
aði útskriftarvandi sem þýðir að sjúklingar sem lokið hafa meðferð
á spítalanum og bíða eftir meðferðarúrræðum annars staðar í heil-
brigðiskerfinu, s.s. vist á hjúkrunarheimili, þurfa í flestum til-
fellum að bíða mánuðum saman.
4. Fasteignir og umsýsla þeirra: Stjórnvöld komi til móts við
LSH í hagkvæmri og gagnsærri lausn fasteignamála og að við
ákvörðun um fjárveitingar verði tekið sýnilegt tillit til þess veru-
lega kostnaðar sem er af fjárbindingu við stofnkostnað og útgjöld
við viðhald, rekstur og umsýslu fasteigna LSH.
Sameiginlegar tillögur
BHM og LSH
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Tvöfaldir
Vildarpunktar
til 1. maí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
24
12
5
0
4/
20
04
FORSVARSMENN Bandalags há-
skólamanna og Landspítala – há-
skólasjúkrahúss gengu í gærmorg-
un á fund Jóns Kristjánssonar
heilbrigðisráðherra til að kynna
fyrir honum sameiginleg áherslu-
atriði BHM og LSH. Þar er bent á
fjórar leiðir til betri árangurs við
rekstur spítalans en með uppsögn-
um starfsfólks, skv. upplýsingum
BHM.
KPMG-Ráðgjöf skilaði BHM
fyrr á árinu matsgerð á hagræðing-
araðgerðum LSH. BHM ákvað ný-
lega að í stað þess að láta reyna á
lögmæti hópuppsagnanna á LSH
sem áttu sér stað í janúar, væri
rétt að leita samstarfs við spítalann
um leiðir til að forðast frekari að-
gerðir á þessu svði. BHM og spít-
alinn hafa nú komist að samkomu-
lagi um fjögur meginatriði úr
skýrslu KPMG Ráðgjafar, sem að
mati þeirra gætu skilað meiri ár-
angri. Voru ráðherra kynntar þess-
ar áherslur á fundinum í gær.
Ákváðum að ganga í lið
með stjórnendum spítalans
„Í staðinn fyrir að fara í mál
ákváðum við að ganga í lið með
stjórnendum spítalans í þeirri von
að geta ýtt við stjórnmálamönn-
um,“ segir Halldóra Friðjónsdóttir,
formaður BHM, en hún óttast að til
frekari sparnaðarákvarðana komi
við fjárlagagerðina næsta haust að
óbreyttu.
Að sögn hennar felst í samkomu-
lagi BHM og LSH í fyrsta lagi að
lögð er höfuðáhersla á að greiðslur
til spítalans verði tengd við unnin
verk. Bent er á að verkefnafjár-
mögnun hafi gefist vel víða annars
staðar í almannaþjónustu. Mæling-
ar á hjúkrunarþyngd hafi t.a.m.
verið grundvöllur greiðslna í vist-
unarkerfi öldrunar- og hjúkrunar-
mála um langt árabil og gefist vel.
Hægja á útgjaldavexti
vegna lyfja
Í öðru lagi eru settar fram hug-
myndir um leiðir til að hægja á út-
gjaldavexti í lyfjamálum. Halldóra
bendir m.a. á að sömu reglur gilda
um lyfjainnkaup fyrir sjúkrahúsin
og fyrir almenna notendur, sem
þýðir m.a. að spítalinn má ekki
kaupa inn lyf nema leiðbeiningar á
fylgiseðli hvers lyfs séu þýddar á
íslensku.
Bent er á að stjórnvöld þurfi að
beita sér fyrir endurskoðun á við-
skiptaumhverfi lyfjamála á Íslandi
sem hamli því að LSH geti notið
bestu kjara við lyfjainnkaup, m.a. í
samræmi við sjónarmið um sam-
keppni og jafnræði á EES-svæðinu.
Talið er að sameiginlegar hug-
myndir sem lagðar eru fram í lyfja-
málum gætu falið í sér sparnað upp
á 4–500 milljónir kr. á ári.
Í þriðja lagi er í þessum sameig-
inlegu áhersluatriðum sett fram
áskorun á stjórnvöld um að finna
mannúðlegri og hagkvæmari vist-
unarúrræði fyrir sjúklinga á spít-
alanum, sem lokið hafa meðferð og
bíða eftir meðferðarúrræðum ann-
ars staðar, að sögn Halldóru.
Bent er á að meira en 100 sjúk-
lingar bíða nú eftir slíkri vist á
deildum spítalans. Spítalinn getur
því ekki sinnt hlutverki sínu sem
skyldi, m.a. ekki kallað inn sjúk-
linga af biðlistum í þau rúm sem
teppt eru vegna útskiftarvandans.
Sjúklingarnir sem bíða fá ekki þá
þjónustu sem er markvissust fyrir
þá á meðan þeir bíða, þ.e. þeir bíða
í umhverfi hátæknisjúkrahússins
en þurfa oft á tíðum á heimilislegu
umhverfi hjúkrunarheimila að
halda.
Fasteignafélag sjái
um eignir spítalans
Þá er í fjórða lagi hvatt til þess
að fundin verði hagkvæmari lausn í
húsnæðismálum spítalans.
„Það eru 14 milljarðar bókfærðir
sem eign spítalans í ársskýrslu á
hverju ári. Það fer líka mikill pen-
ingur í viðhald og bendum við á að
hægt væri að finna hagkvæmari
mögulegar leiðir, með því að búa til
einhvers konar fasteignafélag, sem
sæi um reksturinn,“ segir Halldóra.
Hún segir að af þessum fjórum
atriðum sé megináherslan lögð á
sameiginlegar hugmyndir BHM og
LSH um verkefnafjármögnun og að
heilbrigðisráðherra kynni þessa að-
ferð fyrir ríkisstjórn og fjárlaga-
nefnd.
BHM og LSH leggja sameiginleg áhersluatriði fyrir ráðherra um lausnir á vanda sjúkrahússins
Greiðslur til
spítalans verði
tengdar við
unnin verk
NOTENDUM mbl.is gefst nú
kostur á að panta fríar smáaug-
lýsingar sem birtast á smáauglýs-
ingavef mbl.is. Hver auglýsing
birtist í sjö daga en að þeim tíma
loknum er auglýsandanum sendur
tölvupóstur þar sem honum er
boðið að framlengja birtingu um
aðra sjö daga eða bóka nýja aug-
lýsingu.
Margir nýttu sér þennan mögu-
leika og voru yfir 500 smáauglýs-
ingar pantaðar í gær.
Á vefnum má nú finna um
1.400 auglýsingar í 72 flokkum
þar sem boðið er til kaups margt
áhugaverðra hluta. Hægt er að
leita eftir leitarorðum og/eða
velja flokka til að finna það sem
leitað er að.
Hægt er að panta auglýsingu
með því að smella á hnappa sem
staðsettir eru efst í hægra horni
á forsíðu mbl.is, á Viðskiptavef,
Íþróttavef og vefnum Fólkið. Þá
er hægt að tengjast smáauglýs-
ingavefnum og smella á hnappinn
Panta auglýsingu.
Rúmlega 500 smáauglýsingar
pantaðar á mbl.is í gær
LÖGREGLAN á Blönduósi hefur
upplýst fíkniefnamál og handtekið
þrjá menn, sem viðurkennt hafa
kannabisræktun og vörslu kanna-
bisefna á sveitabæ í nágrenni
Blönduóss.
Lögreglan gerði tvær húsleitir
vegna málsins á miðvikudag vegna
gruns um kannabisræktun. Í fyrri
leitinni, sem gerð var í íbúðarhúsi í
einum af þéttbýliskjörnum lög-
gæslusvæðisins, var lagt hald á lít-
ilræði af kannabis og áhöld til
neyslu. Í seinni húsleitinni sem
gerð var á sveitabænum, var lagt
hald á um 50 kannabisplöntur á
mismunandi ræktunarstigi auk
kannabislaufa og -stöngla. Einnig
var hald lagt á lampa til ræktunar
plantnanna.
Þá voru tekin á annað hundrað
grömm af kannabisefnum. Þeir
sem handteknir voru viðurkenndu
aðild sína sem fyrr segir og eru
þeir lausir úr haldi. Mál þeirra
verður að lokinni rannsókn sent
ákæruvaldinu til frekari meðferð-
ar.
Þrír teknir fyrir kanna-
bisræktun í heimahúsi
Lögreglan á Blönduósi Stjórnendur Norður-
ljósa um væntanlega
lagasetningu
Telja sig
skaðast um
2,5 til 3
milljarða
FORSVARSMENN Norðurljósa
telja að verði fjölmiðlafrumvarp rík-
isstjórnarinnar að lögum muni fyrir-
tækið verða fyrir skaða sem geti num-
ið á bilinu 2,5 til 3 milljarða króna.
„Þegar við fórum í þessa fjárfest-
ingu var það gert á grundvelli ákveð-
innar viðskiptaáætlunar,“ segir
Skarphéðinn Berg Steinarsson,
stjórnarformaður Norðurljósa, um
endurfjármögnun Norðurljósa, sam-
einingu Norðurljósa og Fréttar o.fl.
aðgerðir sem ráðist var í.
„Við sjáum fyrir okkur ákveðna
framtíð í þessu, m.a. með skráningu á
hlutabréfamarkað og við skuldsetjum
þennan rekstur. Þessi viðskiptaáætl-
un er lögð til grundvallar þegar bank-
inn og hluthafarnir koma inn í þetta
og menn hafa ákveðnar væntingar
um framtíðina. Ef fótunum er hins
vegar kippt undan þessu öllu með
þeim hætti sem verið er að gera ef
frumvarpið verður að lögum, þá telj-
um við að munurinn á þeim verðmæt-
um sem við erum með í höndunum og
það sem við hefðum getað fengið fyrir
þetta, sé á bilinu 2,5 til 3 milljarðar,“
segir hann.