Morgunblaðið - 30.04.2004, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Síldarvinnslunnar kl.
15.30 í Egilsbúð í Neskaupstað.
Í DAG
HAGNAÐUR KB banka á fyrsta
fjórðungi ársins nam 2.650 milljón-
um króna, sem er 93% aukning frá
sama tímabili í fyrra og tæplega 6%
meiri hagnaður en greiningardeildir
hinna bankanna höfðu spáð. Arðsemi
eigin fjár var 24,4% en var 17,5% á
sama ársfjórðungi í fyrra.
Í tilkynningu frá KB banka segir
að aðstæður á þeim mörkuðum sem
bankinn starfi á hafi verið hagfelldar
á fyrsta fjórðungi. Hlutabréfavísitöl-
ur hafi hækkað og velta aukist um-
talsvert. Af helstu hagvísum megi
sjá að efnahagsbati sé hafinn og
horfur séu góðar.
Einnig segir að rekstur bankans í
Svíþjóð gangi sífellt betur og rekst-
urinn í Lúxemborg, Finnlandi, Dan-
mörku og á Englandi gangi mjög vel.
Áform séu uppi um að auka í nánustu
framtíð við starfsemi bankans í fjór-
um síðastnefndu löndunum.
Ríflega 40% aukning tekna
Hreinar rekstrartekjur jukust um
41% milli ára og námu 9.571 milljón
króna. Hreinar vaxtatekjur jukust
um 46% og námu 3.501 milljón
króna.
Vaxtamunur, þ.e. hlutfall hreinna
vaxtatekna af meðalstöðu heildar-
fjármagns, var 2,4%, en vaxtamun-
urinn fyrir allt árið í fyrra var 2%.
Þóknanatekjur jukust um 60% milli
ára, en gengishagnaður dróst saman
um 8%.
Rekstrargjöld jukust um 16% frá
fyrsta fjórðungi í fyrra og hlutfall
rekstrargjalda af hreinum rekstrar-
tekjum, kostnaðarhlutfallið, lækkaði
úr 65% í 53% milli ára.
Lagðar voru 1.150 milljónir króna
inn á afskriftareikning útlána, sem
er 83% aukning frá sama tímabili í
fyrra en heldur lægri fjárhæð en á
þriðja og fjórða fjórðungi fyrra árs.
Afskriftareikningur útlána sem hlut-
fall af útlánum og veittum ábyrgðum
hækkaði úr 2,4% um áramót í 2,5% í
lok mars. Í tilkynningu bankans er
haft eftir Sóloni R. Sigurðssyni for-
stjóra, að afskriftir séu enn of miklar
en ætla megi að þær fari minnkandi.
Eignir aukast um
43 milljarða króna
Eignir KB banka jukust um 43
milljarða króna, 8%, á fyrsta fjórð-
ungi ársins og námu 601 milljarði
króna í lok mars. Útlán jukust um
6% og innlán um 2%.
Eiginfjárhlutfall KB banka, reikn-
að á CAD-grunni, lækkaði úr 14,2%
um áramót í 11,2% í lok mars. Bank-
inn jók hlut sinn í Singer & Fried-
lander um helming í tæp 20% á tíma-
bilinu og í tilkynningunni segir að án
þessarar fjárfestingar hefði eigin-
fjárhlutfallið verið 13,9%.
Hagnaður eykst um 93%
Vaxtatekjur KB banka aukast um 46%
SALA Össurar hefur aldrei verið
meiri í einum ársfjórðungi en á
fyrsta fjórðungi þessa árs. Hagn-
aður félagsins eftir skatta nam um
3,3 milljónum bandaríkjadala, um
230 milljónum íslenskra króna.
Þetta er yfir 130% aukning frá
sama tímabili í fyrra en þá var
hagnaðurinn um 1,4 milljónir dala.
Hagnaður fyrir skatta nam um 4,3
milljónum dala á fyrsta fjórðungi
þessa árs en um 1,8 milljónum í
fyrra.
Tekjur Össurar jukust um 41%
milli ára og voru um 30,7 milljónir
dala á fyrsta fjórðungi þessa árs,
sem er um 2,1 milljarður íslenskra
króna. Þegar tillit hefur verið tekið
til gengisáhrifa voru tekjurnar 34%
meiri á fyrsta fjórðungi þessa árs
en á sama tímabili í fyrra. Þetta er
mesta sala samstæðu Össurar á
ársfjórðungi frá upphafi og 11%
aukning frá fjórða ársfjórðungi
2003. Kaup Össurar á Generation
II fyrirtækjunum á síðasta ári vega
mest í söluaukningunni en fyrir-
tækið kom að fullu inn í samstæðu
Össurar á fjórða ársfjórðungi 2003.
Söluaukning milli ára að teknu til-
liti til gengisáhrifa og fyrirtækja-
kaupa var rúm 4% milli ára en
kaupin á Generation II fyrirtækj-
unum skiluðu ein og sér 50% sölu-
aukningu samstæðunnar á milli ára.
Hagnaður Össurar fyrir afskrift-
ir, fjármagnsliði og skatta,
EBITDA, á fyrsta fjórðungi þessa
árs nam 5,7 milljónum dala sam-
anborið við 2,6 milljónir dala á
sama tímabili árið áður. Sem hlut-
fall af veltu batnaði EBITDA milli
ára úr 12% í 19%.
Samþætting gekk vel
Í tilkynningu Össurar segir að
rekstur félagsins hafi gengið vel á
fyrsta fjórðungi þessa árs. Sam-
þætting Generation II fyrirtækj-
anna að rekstri Össurar hafi gengið
áfallalaust og endurskipulagning og
strangt kostnaðaraðhald hafi skilað
árangri. Vegna söluaukningar hafi
verið talsverður þrýstingur á afköst
framleiðslueininga fyrirtækisins og
nýting á föstum framleiðsluþáttum
hafi verið hagstæð. „Meiriháttar
skipulagsbreytingar og hröð sam-
þætting Generation II fyrirtækj-
anna inn í rekstur Össurar skilar
sér nú í rekstrarhagræðingu. Þess-
um breytingum fylgdi óhjákvæmi-
lega verulegur kostnaður undir lok
síðasta árs,“ segir í tilkynningu fé-
lagsins. Þá segir að horfur í sölu
séu þokkalegar.
Sala Össurar aldrei meiri
● SAMKEPPNISRÁÐ telur ekki
ástæðu til aðgerða vegna ADSL-
tilboða Og fjarskipta og Landssíma
Íslands, en fyr-
irtækið eMax
hafði óskað eftir
því að tilboðin yrðu
tekin til skoðunar.
eMax taldi að til-
boðin, sem stóðu
einstaklingum til
boða, fælu í sér
ólögmæta nið-
urgreiðslu og sam-
tvinnun á ADSL-þjónustu og módem-
búnaði. Fyrirtækið krafðist þess að
Og fjarskiptum og Símanum yrði gert
að reikna út heildarfjárfestingu sem
væri að baki hverjum viðskiptavini og
raunverulegan kostnað við að tengja
hann inn á kerfið. Jafnframt yrðu
kannaðir samningar sem fyrirtækin
gerðu við þá sem selja ADSL-
þjónustu áfram og hvort þeim væri
mismunað vegna eignarhalds eða
samkeppnisstöðu. Erindið var sent í
ágúst í fyrra og samkeppnisráð ákvað
fyrr í þessari viku að aðhafast ekki.
ADSL-tilboð
ekki ólögmæt
● BANKARNIR Bank Austria Credit-
anstalt, Citigroup
og Þróunarbanki
Evrópu eru að
ganga frá fjár-
mögnun vegna
kaupa Viva Vent-
ures á 65% hlut
búlgarska ríkisins
í símafyrirtækinu
BTC, að því er
segir í frétt Reu-
ters. Björgólfur Thor Björgólfsson
fjármagnar fjórðung verkefnisins í
samstarfi við fleiri íslenska fjárfesta.
Lokafrágangi einkavæðingarsamn-
ingsins hefur verið frestað fram í júní.
Nú er m.a. verið að endurfjármagna
lán sem BTC hefur tekið með rík-
isábyrgð og nema um 70 millj. evra,
að sögn búlgarskra miðla. Markmiðið
er að losa ríkið undan ábyrgðinni.
Gengið frá fjár-
mögnun á BTC
UNDIRLIGGJANDI rekstur KB
banka batnaði á fyrsta fjórðungi
ársins frá því sem var í fyrra, sama
við hvaða fjórðung þess árs er mið-
að. Með þessu er átt við að sveiflu-
kenndi hluti rekstrarins, aðallega
gengishagnaður vegna verðbréfa-
eignar, ræður ekki jafnmiklu um
góða afkomu og áður. Þetta má
meðal annars sjá með því að skoða
kostnaðarhlutfall bankans án geng-
ishagnaðar. Kostnaðarhlutfallið án
gengishagnaðar var 66% á fyrsta
fjórðungi þessa árs, en 80% til 92% í
fyrra. Þetta gefur vísbendingu um
aukinn stöðugleika í rekstri og að
bankinn sé ekki jafnháður góðri af-
komu af verðbréfaviðskiptum og
áður. Þá hefur afkoman erlendis
batnað sem einnig ætti að auka
stöðugleika í rekstri.
Afskriftir valda vonbrigðum
Vonbrigðum veldur í uppgjörinu
að framlag í afskriftareikning út-
lána hélst hátt á fyrsta fjórðungi
ársins, en það jókst mjög á seinni
hluta síðasta árs frá því sem áður
var og stjórnendur bankans hafa
lagt áherslu á að þetta framlag
þyrfti að lækka.
Meirihluti framlags í afskrifta-
reikning kom frá viðskipta-
bankasviði, sem er vegna útlána til
einstaklinga og smærri rekstr-
araðila, en minnihluti var vegna út-
lána fyrirtækjasviðs til meðalstórra
og stærri fyrirtækja. Þá vekur at-
hygli að afskriftaframlag fyr-
irtækjasviðsins dregst saman um
33% frá síðasta fjórðungi fyrra árs,
en á viðskiptabankasviðinu eykst
framlagið um 63% milli fjórðunga
og er mun hærra en í nokkrum
fjórðungi fyrra árs.
Afkomutilkynning KB banka var
birt í gærmorgun og lækkaði gengi
bréfanna um 2,6% í viðskiptum
dagsins. Úrvalsvísitalan lækkaði
um 0,9%.
INNHERJI | KB banki
Undirliggjandi rekstur batnar
innherji@mbl.is
AFKOMA Össurar hf. á fyrsta
fjórðungi þessa árs er töluvert yfir
meðalspá greiningardeilda bank-
anna, sem gerði ráð fyrir að hagn-
aður félagsins yrði 93 milljónir ís-
lenskra króna. Niðurstaðan varð
um 230 milljónir, eða rúmlega tvö-
falt meiri hagnaður en meðalspáin
gerði ráð fyrir. Sú greiningardeild
sem spáði bestri afkomu félagsins
gerði ráð fyrir að hagnaðurinn yrði
132 milljónir.
Ljóst er af uppgjöri Össurar að
félagið hefur ekki orðið fyrir
óvæntum kostnaði vegna samþætt-
ingar starfseminnar við Generation
II fyrirtækin, sem keypt voru á síð-
asta ári. Í fyrra settu óvenjulegir
gjaldaliðir nokkuð mark sitt á af-
komu félagsins, s.s. málarekstur og
kostnaður við endurskipulagningu
og starfslokasamninga. Þessu er
ekki fyrir að fara nú. Þá er jákvætt
að rannsóknar- og þróunarkostn-
aður félagsins hefur lækkað, var
10% af sölu á síðasta ári en 8% á
fyrstu þremur mánuðum þessa árs.
Kostnaðurinn hefur m.a. lækkað
vegna hagræðingar og þess að
stórum þróunarverkefnum er að
ljúka eða er lokið.
Uppgjör Össurar var birt fyrir
hádegi í gær og voru fyrstu við-
brögð markaðarins þau að gengi
hlutabréfa í félaginu hækkuðu
strax. Lokaverðið í Kauphöll Ís-
lands í gær var 57,00, sem er 6,5%
hækkun frá deginum áður, en
gengi bréfanna hækkaði mest allra
félaga í Kauphöllinni í gær.
INNHERJI | Össur hf.
Afkoma vel yfir væntingum
innherji@mbl.is
!
"#
$%
&
"#
'
!
( (%
(
(
(
(
)
!
"#
$%
&
"#
*+"* JOHN Watkinsson, forstjóri breska
leikfangafyrirtækisins Hamleys, og
Derek Lovelock, forstjóri breska
tískufyrirtækisins Oasis, voru á
einu máli um það að samvinnan við
Baug Group um uppkaup á fyr-
irtækjum þeirra hefði verið
ánægjuleg í alla staði. Þetta kom
fram í máli þeirra á Baugsdeginum
sem haldinn var í Háskólanum í
Reykjavík í gær.
Á síðasta ári tók Baugur þátt
ásamt helstu stjórnendum Hamleys
í að kaupa félagið og færa það í
einkaeigu en félagið hafði verið
skráð á markað í Bretlandi. Oasis
aftur á móti hafði verið tekið af
markaði árið 2001 þegar PPM
Ventures tók þátt í yfirtöku stjórn-
enda á félaginu. Baugur keypti síð-
an félagið í fyrra í samstarfi við
stjórnendur þess og KB banka.
Watkinson sagði meðal annars að
Baugsmenn væru einbeittir, hefðu
yfir mikilli þekkingu að ráða og
styddu vel við bakið á sínum sam-
starfsmönnum. Þá sagði Watkinson
að Baugur hefði sömu markmið og
stjórnendur Hamleys og horft væri
til framtíðar með rekstur félagsins.
Oasis stefnir að yfirtöku
Í pallborðsumræðum eftir erindi
forstjóranna tveggja kom það fram
í máli Lovelocks að Oasis stefndi að
yfirtöku annarra fyrirtækja í sömu
grein og vildi bæta við sig vöru-
merkjum í framtíðinni, en félagið
rekur í dag verslanir undir merkj-
um Oasis og Coast. Félagið vildi
þannig stækka og sækja fram á al-
þjóða markaði. Þá sagði Lovelock
spurður um það hvort félagið
myndi hugsanlega fara aftur á
hlutabréfamarkað í framtíðinni, að
hann byggist við því að sú þróun
sem verið hefur í Bretlandi um
hríð, að verslunarfyrirtæki séu tek-
in af markaði og færð í einkaeigu,
myndi snúast við einn daginn og
fyrirtæki myndu fara aftur á mark-
að, en þó ekki, eins og í tilfelli Oas-
is, fyrr en félagið er búið að stækka
og styrkjast.
Stjórar Oasis og Haml-
eys ánægðir með Baug
Forstjórar Kristján Kristjánsson ræddi við þá John Watkinson og Derek
Lovelock í pallborðsumræðum á Baugsdeginum í Háskólanum í Reykjavík.
● SAMHERJI hefur gert samning
við Marel um kaup á beinat-
ínslukerfi og röntgentækni sem er
stærsta breyting sem orðið hefur í
vinnsluháttum á bolfiski í áraraðir
að því er fram kom í máli Þor-
steins Más Baldvinssonar, for-
stjóra fyrirtækisins, á aðalfundi
þess sem haldinn var í gær. Hann
sagði að í raun væri um að ræða
byltingarkennda nýjung sem hvergi
hefði verið reynd áður. Ef vel tæk-
ist til myndi breytingin auka vöru-
gæði, bæta nýtingu hráefnis og
hækka verð afurða. Röntgen-
tæknin sem kostaði um 30 millj-
ónir króna gerði að verkum að
tryggt væri að viðskiptavinir fyr-
irtækisins fengju beinlausan fisk.
„Samherji hefur haft bolmagn og
fjármuni til að leyfa sér að þróa og
fjárfesta í nýjum tækjum og búnaði
og þannig hjálpað íslenskum iðn-
og hugbúnaðarfyrirtækjum við að
gera framleiðslu sína að al-
þjóðlegri markaðsvöru. Samning-
urinn við Marel um kaup á beinat-
ínslukerfinu er enn eitt dæmið um
slíkt þróunarstarf Samherja sem
ég held að verði ekki unnið hér á
landi nema til séu öflug og stór
sjávarútvegsfyrirtæki,“ sagði Þor-
steinn.
Samherji kaupir beina-
tínslukerfi af Marel
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI