Morgunblaðið - 30.04.2004, Qupperneq 23
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 23
TERRANO
Einn stóran
Nýi Terrano jeppinn er einn sá
sprækasti sem Nissan
fjölskyldan hefur alið af sér.
Terrano er ekki aðeins rúmgóður
og kröftugur heldur skipta
smáatriðin líka máli: Hágæða
hljómflutningstæki með tengdri
þjófavörn, þrjú 12 volta
rafmagnsúrtök og ný vörn gegn
útfjólubláum geislum sólarinnar.
Nissan Terrano – stórkostlegur
bíll fyrir stórhuga fólk. Komdu
við hjá Ingvari Helgasyni og
kynntu þér málið nánar.
takk
Sævarhöfða 2 · 525 8000 · ih@ih.is
Verð frá 3.380.000 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
3
4
6
Þórshöfn | Aðalfundur Sparisjóðs Þórshafnar og ná-
grennis var haldinn sumardaginn fyrsta og var venju
fremur hátíðlegur þar sem 60 ár eru liðin frá stofnun
hans sem var hinn 17. septemer 1944.
Gestafyrirlesari á á fundinum var Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Rekstrarafkoma Sparisjóðsins var góð líkt og fyrri ár
og var hagnaður síðasta árs 15 milljónir króna. Eigið fé í
árslok 2003 nam 252,4 millj.kr. samkvæmt efnahags-
reikningi og er eiginfjárhlutfallið 28,9% en lögum sam-
kvæmt má hlutfallið ekki vera lægra en 8%. Eignir sjóðs-
ins í árslok 2003 voru samtals 1.126 milljónir kr.
Aðalstjórn Sparisjóðsins var endurkjörin á fundinum
og er stjórnarformaður Kristín Kristjánsdóttir og spari-
sjóðsstjóri Guðni Örn Hauksson.
Sparisjóðurinn hefur í gegnum tíðina stutt ýmis mál-
efni í heimabyggðinni og á síðastliðnu ári runnu tæpar 6
millj. króna til slíkra málefna en það er hátt hlutfall mið-
að við stærð sjóðsins. Á þessum afmælisfundi var Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga afhent gjafabréf til kaupa á
fullkomnu tölvutengdu ómskoðunartæki til notkunar á
heilsugæslustöðvunum í N-Þingeyjarsýslu og er það til
fjölbreyttra nota, s.s. við mæðravernd og margt fleira.
Guðrún Hildur Bjarnadóttir ljósmóðir tók við gjafa-
bréfinu fyrir hönd Heilbrigðisstofnunarinnar og þakkaði
höfðinglega gjöf því vel búnar heilsugæslustöðvar eru
hverju byggðarlagi stoð.
Morgunblaðið/Líney
Kristín Kristjánsdóttir stjórnarformaður afhendir
Guðrúnu Hildi Bjarnadóttur, ljósmóður í N-Þingeyjar-
sýslu, gjafabréf fyrir ómskoðunartæki.
Hátíðlegur aðalfundur
Hrunamannahreppur | Fimleikasýn-
ing hjá fimleikadeild Ungmenna-
félags Hrunamanna var haldin á
sumardaginn fyrsta en það er þriðja
árið í röð sem slík sýning er haldin.
Alls voru það 62 börn sem sýndu
hæfni sína og mörg hver með góðum
árangri. Hafa börn á aldrinum 5 til
12 ára stundað fimleikaæfingar einu
sinni til tvisvar í viku nú síðustu þrjá
vetur. Leiðbeinendur hafa verið
Bente Hansen og Sigríður Bogadótt-
ir. Krakkarnir í eldri hópnum hafa
farið á nokkur byrjendamót í fim-
leikum. Fjöldi foreldra og fleiri
fylgdust með börnunum. Formaður
fimleikadeildarinnar er Halldóra
Hjörleifsdóttir á Fossi. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Fimleikasýning á Flúðum
LANDIÐ
Egilsstaðir | Handverkssýningu
eldri borgara á Fljótsdalshéraði
lauk á mánudag, en hún var
haldin á Egilsstöðum og stóð í
þrjá daga.
Á sýningunni mátti sjá sýn-
ishorn af vinnu handa-
vinnuhópa í félagsstarfi eldri
borgara á Héraði og er það af-
rakstur tveggja ára tímabils.
Helga Jóna Þorkelsdóttir og
Sigríður Ingimarsdóttir kenna
handavinnuhópunum. Að sögn
Helgu Jónu eru bæði karlar og
konur í hópunum, sem eru tveir
og segir hún meðalaldurinn há-
an. Fjölbreytni einkenni handa-
vinnuna og sumir séu að læra
handtökin í fyrsta sinn.
Vandvirkni og eljusemi
Á sýningunni, sem var heil-
mikil veisla fyrir augað og bar
eljusemi og vandvirkni fagurt
vitni, mátti m.a. sjá harðangurs-
og klaustursaum, þræðidúka,
satínbandapúða, skuggasaum,
brugðnar gjarðir, hekl og prjón
af marvíslegum toga.
Munirnir voru ekki til sölu, en
gestum bauðst kaffi og dáind-
isgott bakkelsi.
Aðsókn var þokkaleg, að sögn
Helgu Jónu og meðal gesta má
telja Össur Skarphéðinsson, for-
mann Samfylkingarinnar, sem
brá sér af flokksfundi til að líta
á sýninguna.
Handverkssýning heldri borgara
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Það var margt sem gladdi augað á handverkssýningu eldri borgara á
Héraði: Helga Jóna handavinnukennari sýnir gestum fallega muni.
Dásamlegt fyrir augað
Geitagerði | Um síðustu helgi var opnuð á
nýjan leik kynningarsýning í Végarði í
Fljótsdal, á vegum Landsvirkjunar. Sýning-
in hefur undanfarna mánuði verið í Upplýs-
ingamiðstöð ferðamanna á Egilsstöðum og
var flutt um set frá Végarði þegar miklar
framkvæmdir og endurbætur hófust við hús-
ið.
Sýningin fjallar um framkvæmdirnar við
Kárahnjúkavirkjun og verður opin almenn-
ingi fram á haustið. Er hún nokkurskonar
framhald á sýningu frá s.l. sumri, sem þótti
takast mjög vel og var sótt af um fimmþús-
und manns.
Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar við
Kárahnjúkavirkjun, Hrönn Hjálmarsdóttir,
kynnti sýninguna og bauð gesti velkomna, en
hún verður sýningarstjóri í sumar. Þá flutti
stjórnarformaður Landsvirkjunar, Jóhannes
Geir Sigurgeirsson ávarp, bauð gesti vel-
komna og kynnti fyrir þeim stöðu mála varð-
andi virkjunarframkvæmdirnar.
Samkór Norður-Héraðs söng við opnunina
nokkur lög undir stjórn Suncönu Slamnig.
Sveitarstjóri Norður-Héraðs, Jónas Þór
Jóhannsson, færði Fljótsdalshreppi að gjöf
mynd af Snæfelli, sem verður sett upp í Vé-
garði. Þá afhenti hann Landsvirkjun mynd af
Herðubreið. Oddviti Fljótsdalshrepps,
Gunnþórunn Ingólfsdóttir, og Jóhannes Geir
þökkuðu gjafirnar. Hátíðargestur var iðnað-
arráðherra, Valgerður Sverrisdóttir og var
fjölmenni við opnunina. Til stendur að vígja
Végarð formlega í sumar.
Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar
Málverk af konungi íslenskra fjalla fær
inni í Végarði: Jónas Þór Jóhannsson af-
hendir Gunnþórunni Ingadóttur málverk
af Snæfelli. Viðtökuna votta Kári Ólason
og Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Virkjunarsýn-
ing opnuð að
nýju í Végarði