Morgunblaðið - 30.04.2004, Side 28
UMRÆÐAN
28 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞAÐ verður að teljast hreint með
ólíkindum hve víðtækt skotleyfi
(blessun ráðherra) sumir embættis-
menn ríkisins hafa til niðurrifs á
starfsemi og öryggismálum Land-
helgisgæslu Íslands
(LHG). Nú síðast með
því að setja í algera
óvissu læknisþjónustu
um borð í þyrlum LHG.
Starfsemi sem í yfir tvo
áratugi hefur verið
byggð upp af starfs-
mönnum LHG og lækn-
um sem í mörg ár unnu í
sjálfboðavinnu af ótrú-
legri fagmennsku og
metnaði við að skapa
læknisþjónustu um
borð í björgunarþyrlum
LHG. Þjónustu sem ég
get fullyrt að er með því besta sem
gerist í heiminum.
Og hver eru svo laun erfiðisins, jú
uppsögn og í framhaldinu eru lækn-
arnir ekki virtir viðlits eða spurðir
álits um framhald þjónustunnar. Og
hverjar eru svo hugmyndir embættis-
mannanna, jú að manna þyrlurnar
með hjúkrunarfræðingum, sjúkra-
flutningamönnum og læknum, allt
eftir þörfum hverju sinni, og stíga
þannig skref áratugi aftur í tímann.
Hver ætlar að taka ákvörðun í bráða-
útkalli hvern á að senda, með þær oft
á tíðum óljósu upplýsingar sem liggja
fyrir í útkalli, útkalli sem þess vegna
gæti varað í allt að 5 til 6 tíma út á
Reykjaneshrygg eða jafnvel lengur ef
fara þarf á haf út fyrir austan land.
Áhafnir þyrlnanna hafa af því
langa reynslu að oft er ástand sjúk-
linga miklu alvarlegra en álitið var í
fyrstu og þá er of seint að snúa við til
að sækja lækni sem hefur faglegan
bakgrunn og reynslu til að takast á
við ástandið, og einnig eru atvik þar
sem þyrlu á leið í útkall hefur verið
beint að öðru slysi sem talið hefur
verið alvarlegra og brýnna að fara í.
Læknar í áhöfn þyrlna LHG hafa í
gegnum árin bjargað fjölda mannslífa
með inngripum sínum í lífshættulega
áverka sjúklinga um borð í þyrlunum.
Þá hafa flugstjórar á þyrlunum
reitt sig á læknisfræðilegt mat
læknanna, sem margir
hverjir eru með langt
sérfræðinám að baki, til
að meta þörf á sjúkra-
flugi við tvísýnar að-
stæður í vondum veðr-
um, og hafa þeir þannig
lagt sitt af mörkum við
að viðhalda háum
öryggisstaðli í flug-
rekstrinum.
Ég vil vara menn við
að vega að þeirri fag-
legu uppbyggingu og
öryggisstaðli sem við-
hafður hefur verið í þyrl-
urekstri LHG með einhverjum
skammtímasamningum og viðhalda
þannig óvissu um framhald þeirrar
mikilvægu öryggis- og sjúkraþjón-
ustu sem LHG veitir.
Fram að þessu hefur allt
frumkvæði og framþróun í þyrl-
urekstrinum komið frá starfs-
mönnum LHG og læknum sem hafa
af elju og metnaði barist við
vindmyllur í kerfinu. Má þar nefna
baráttu við að fullmanna þyrlurnar
og koma á bakvöktum allan
sólarhringinn. Fyrir kaupum á öfl-
ugri björgunarþyrlu. Uppbygging ör-
yggis- og þjálfunarmála. Kaup á næt-
ursjónaukum og svo mætti lengi
telja.
Það væri nú hressileg tilbreyting
ef dómsmálaráðherra og embætt-
ismenn einhentu sér nú í að byggja
Landhelgisgæsluna upp eins og for-
sætisráðherra landsins hefur ítrekað
bent á að þurfi að gera, í stað þess að
leggja stein í götu stofnunarinnar og
rífa niður það sem vel hefur verið
gert.
Fyrir síðustu kosningar kom
frambjóðandinn Björn Bjarnason,
núverandi dómsmálaráðherra, á fund
starfsmanna LHG og sagðist hafa
beðið sérstaklega um að fá að koma á
þann fund vegna mikils áhuga síns á
Landhelgisgæslunni og tilkynnti að
ekkert væri að vanbúnaði að bjóða út
smíði á nýju varðskipi strax að
afloknum kosningum, en nú er biðin
orðin eitt ár í viðbót við þau sex ár
sem liðu frá því að nefnd var skipuð
1997 sem átti að semja forsendur og
hafa eftirlit með smíði á nýju
varðskipi. Ráðherrann hafði heldur
ekki fyrir því að tryggja Land-
helgisgæslunni nægjanlegt
rekstrarfé í fjárlögum þrátt fyrir að í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
stæði að Landhelgisgæslan gegndi
einu af lykilhlutverkum í að tryggja
öryggi borgaranna og að henni ætti
að skapa nauðsynleg starfsskilyrði.
Það hlýtur að vera svolítill
tvískinnungur í því að krefja
Bandaríkjamenn um að halda hér úti
kostnaðarsömum öryggis- og
varnarviðbúnaði þegar ekki er betur
staðið að málum hjá íslenskum
stjórnvöldum.
Enn vegið að
Landhelgisgæslunni
Jakob Ólafsson fjallar
um þyrluflugdeiluna ’Það væri nú hressilegtilbreyting ef dóms-
málaráðherra og emb-
ættismenn einhentu sér
nú í að byggja Land-
helgisgæsluna upp eins
og forsætisráðherra
landsins hefur ítrekað
bent á að þurfi að gera.‘
Jakob Ólafsson
Höfundur er þyrluflugstjóri
og flugöryggisfulltrúi
Landhelgisgæslu Íslands.
MIKIL reiði hefur gripið um sig
í kjölfar væntanlegs lagafrum-
varps sem Davíð Oddsson ætlar að
leggja fram um eignaraðild að fjöl-
miðlum. En þegar ég spyr hina
reiðu einstaklinga um
ástæðu reiði þeirra þá
verður fátt um svör.
Helstu svörin hafa
verið í formi spurn-
inga eins og: „Til
hvers að setja lög um
eignaraðild fjöl-
miðla?“ og „Hver er
ógnin sem verið er að
reyna að verjast með
þessu frumvarpi?“
Það mætti halda að
þeir sem spyrja þess-
ara spurninga lifi ekki
á sömu plánetu og ég
því hvernig hafa eigendur fjöl-
miðlana farið með vald sitt und-
anfarin ár? Bæði eigendurnir, rit-
stjórarnir og starfsmenn Stöðvar
2, Fréttablaðsins og DV hafa
traðkað þannig á sannleikanum og
vegið að æðru manna að ógeðfellt
hefur verið að fylgjast með því.
Á hverjum degi verður maður
vitni að því þegar þessir mjög svo
aumu miðlar skrumskæla stað-
reyndir og setja málin þannig
fram að eini tilgangurinn með
ákveðnum fréttaflutningi virðist
vera að koma höggi á Sjálfstæð-
isflokkinn og fyrirsvarsmenn hans
þannig að þeir standi óvígir á eft-
ir.
Það eru ótal dæmi um þetta og
þau gerast daglega en til að nefna
einhver þá get ég nefnt þegar
Fréttablaðið dró Eirík Tómasson
fram til umsagnar um ráðningu
Björns Bjarnasonar á Ólafi Berki í
stöðu hæstaréttardómara þó svo
að Eiríkur Tómasson hafi sjálfur
verið umsækjandi um
stöðuna!
Annað dæmi og það
augljósasta var nátt-
úrulega fyrir kosn-
ingar í fyrra þegar
lekið var trún-
aðargögnum úr Baugi
til Fréttablaðsins til
þess eins að koma
höggi á og fella Davíð
Oddsson forsætisráð-
herra. Þetta atvik
leiddi m.a. til þess að
stjórnarmenn úr
Baugi sáu sér ekki
annað fært en að segja af sér
stjórnarsetu í félaginu. Með öðrum
orðum: Nánustu samstarfs-
mönnum Jóns Ásgeirs blöskraði
svo starfshættir hans að þeir
sögðu upp trúnaðarstörfum sínum
á vegum félagsins.
Síðan þá hefur misbeitingunni
og óþverranum síst farið þverr-
andi og hafa Jón Ásgeir og co.
meðal annars stóraukið eign sína á
íslenskum fjölmiðlum. Áróður
gegn Sjálfstæðisflokknum hefur
haldið áfram dag frá dagi auk þess
sem gagni með persónuníð að leið-
arljósi hefur verið bætt við. Þetta
er ekki mín skoðun heldur blá-
kaldur íslenskur veruleiki.
Ég spyr því: Kemur þessi laga-
setning Jóni Ásgeiri og félögum
e-ð sérstaklega á óvart? Eru þeir
ekki bara að uppskera eins og þeir
hafa sáð?
Starfshættir þeirra eru einfald-
lega með þeim hætti að þeim er
ekki treystandi til þess að eiga eða
reka fjölmiðla og hvað þá nánast
alla fjölmiðla landsins.
Viðskiptahömlur eru sjaldnast af
hinu góða en til eigenda fjölmiðla
þarf að gera ríkar kröfur og á
herðum fjölmiðla hvílir ábyrgð,
ábyrgð til þess að upplýsa og
fræða þjóðfélagsþegnanna. Ef þeir
standa ekki undir þeirri ábyrgð þá
hlýtur það að vera skylda ráða-
manna að grípa í taumana og gera
viðeigandi ráðstafanir. Það hafa
Davíð Oddsson og hans fríða föru-
neyti gert og ég þakka guði fyrir
að þeir hafi bein í nefinu til þess
að þola þá pressu sem fylgir því
að standa í fremstu víglínu og
standa vörð um hagsmuni allra Ís-
lendinga.
Eru Íslendingar alltaf
svona fljótir að gleyma?
Heiðar Lár Halldórsson skrifar
um fjölmiðlafrumvarp ’Starfshættir þeirraeru einfaldlega með
þeim hætti að þeim er
ekki treystandi til þess
að eiga eða reka fjöl-
miðla …‘
Heiðar Lár Halldórsson
Höfundur er í stjórn sjálfstæðis-
félagsins Miðgarðs við
Viðskiptaháskólann á Bifröst.
Þar er nú komiðbíókvöldum aðtilviljunin tókvöldin alfarið
þegar verið var að skoða
sig um í Bédarieux, tals-
verðum fjallabæ, fimmtíu
mínútur í austur frá Mont-
pellier.
Við vorum nýkomin yfir
eina af þeim veglegu brúm
sem einkenna bæinn – en
hann er í miðri nátt-
úruparadís, umlukinn
hæðum og klettabeltum
–þegar Stjörnubíóskiltið
blasti við okkur, STAR, úr
rauðu neonljósi. Nánar tiltekið
við St. Louis götu.
Aðdragandinn að bíóinu var
betri en nokkurt bíó, því leiðin
liggur meðfram stórum bakgarði
þangað sem minnst tíu hestar
gætu fengið magafylli af fögru
grasi, undir tveimur stórum
trjám. Á það gætu horft íbúar á
mörgum hæðum í húsalengju
með ómáluðum gluggahlerum við
garðinn, og svo listamennirnir
með verkstæði sín þeim megin
sem gengið er inn í bíóið.
Hér eru þrír salir, og eingöngu
sýndar nýjar myndir sem eru of-
arlega á listum um þessar mund-
ir. Veggir uppi og niðri eru fóðr-
aðir með plakötum. Allt er þetta
svo bíómatarlegt að það var ekki
hægt annað en skella sér á eina,
þótt það hefði alls ekki verið
meiningin á þessum degi í þessari
ferð.
Bíófélagar eru sammála um að
STAR beri þess merki að þarna
eigi að reka bíó hvað sem hóar og
allur metnaður í það lagður. Ég
sé mest eftir að hafa ekki rætt
ennþá meira við konuna í miða-
sölunni, spurt hana um sögu bíós-
ins og hvernig gengi. Þegar ég
spurði hana hvort Mariages!
(Hjónabönd!) væri vinsæl sagði
hún: Já, eins og allt sem hjóna-
böndum viðkemur, hvort sem það
er til hins betra eða verra.
Ég ákvað að mennta mig að-
eins betur á þessu sviði, og skoða
hvað tiltölulega ungur franskur
kvenleikstjóri, Valérie Guigna-
bodet, er að hugsa um hjónaband,
í þessari splunkunýju mynd.
Mér þótti ég hins vegar þegar
upp var staðið fræðast síður um
hjónabönd heldur en um franska
hugsun og kvenlega – enda er út-
koma ferðar alltaf önnur en ætl-
aður tilgangur hennar.
Mariages! reyndistnokkuð sófistíkeruðog á köflum níðang-urslega fyndin sápa
um framhjáhald og hjónabönd og
frelsi. Það er hægt að mæla með
henni sérstaklega fyrir konur því
leikstjórinn hefur fiskað upp
óvenju sjarmerandi og fagra
karlleikara, og bera þeir á þann
hátt af kvenfólkinu í myndinni –
en hins vegar ekki um karakt-
erstyrk.
Það sniðugasta þótti mér hins
vegar spilaborgin sem hrundi.
Þegar upp komst um eitt
framhjáhald í brúðkaupsveisl-
unni (en myndin er veislan og allt
kringum hana) þá hratt það af
stað keðjuverkun svo ekki stóð
steinn yfir steini í morgunsárið.
Í lokin var þó unnið uppbygg-
ingarstarf, og gekk það hratt fyr-
ir sig. Bíófélagar voru því síður
en svo niðurbrotnir þegar þeir
leituðu sér að veitingastað í Béd-
arieux og lentu á La Forge
(Smiðjunni) á av. Abbé-Tarroux
númer 22.
Veitingasalurinn er sér-
staklega fallegur, með háum
steinhvelfingum, og stórum arni
fyrir miðjum sal sem eldur brann
í þetta bíókvöld. Þetta er gömul
járnsmiðja og fá ýmsir fylgihlutir
úr henni að njóta sín – allt út-
hugsað og flott, og mikil stemn-
ing í þessu stóra rými.
Þá var sérstök heppni að við
sátum ein að þessu öllu í svona
stundarfjórðung, áður en kvöldið
brast á um áttaleytið. Þrjár ung-
ar stúlkur gengu um beina og
fannst ekki arða á þeirra fram-
göngu allt kvöldið.
Við völdum okkur ódýr-asta matseðil, á fimm-tán evrur. Bæði borð-uðu nýjan geitaost í
forrétt. Annað borðaði í aðalrétt
nautagellu (kinn) með sósu úr
rauðvíni frá Faugeres, sem er
þarna rétt í grennd – og hitt fisk-
rétt úr lotte (holdgóðum vatna-
fiski sem ég kann ekki að nefna á
íslensku). Í eftirrétt var svo fyrir
annað bökuð pera, og fyrir hitt
sjarlottukaka með kremi úr hesli-
hnetum (marron). Með þessu öllu
var tilbehör, og er skemmst frá
því að segja að matreiðsla og útlit
á matnum var í háum gæðaflokki.
Nautakjötsrétturinn var mesta
nýmælið fyrir mér, bragðsterkur
og meyr. Ég hefði reyndar ekki
áttað mig á því hvaðan af skepn-
unni hann kom nema af því ég
spurði og ein af gengilbeinunum
góðu kleip í kinnina á sér til út-
skýringar.
Þar sem við bíófélagar erum
ekki vínþekkjarar reynum við yf-
irleitt að ráðfæra okkur lauslega
við þjóninn þegar við veljum vín.
Hér tókum við það sem hafði
höfðað mest til okkar nafnsins
vegna, Chateau Caussiniojouls,
2001, frá Faugeres. Enda kom
það á daginn að nafnið skrautlega
hefur sögu, sem hægt er að rekja
alveg aftur til ársins 804, eins og
á flöskunni stendur. Þar fyrir ut-
an er þetta sérlega ljúft vín, á 17
evrur, þótt við kunnum sem sagt
ekki að lýsa því með orðaforða at-
vinnufólks. En við komum okkur
saman um að það hefði ýmsa und-
irtóna.
Allt þetta kostaði 57 evrur fyrir
tvo, með fordrykk og kaffi. Ég
mundi segja um þessa stofnun,
eins og Michelin segir um tveggja
stjörnu staði: vel þess virði að
taka á sig krók. En það mundi
ekki endilega þýða að vaða inn án
þess að eiga frátekið, og síst um
helgar.
B í ó k v ö l d í B é d a r i e u x
Atriði úr kvikmyndinni Mariages.
Stjörnubíó-
kvöld kringum
hjónabönd
Eftir Steinunni Sigurðardóttur