Morgunblaðið - 30.04.2004, Page 36
MINNINGAR
36 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Guðbjörg Krist-jana Guðmunds-
dóttir Waage, Gugga
eins og hún var oft-
ast kölluð, fæddist á
Lónseyri við Arnar-
fjörð 31. desember
1918. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Garðvangi 16. apríl
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjón-
in Guðmundur
Magnússon Waage,
sjómaður, sonur
Magnúsar Guð-
mundssonar Waage
og Himinbjargar Jónsdóttur, f. á
Skógum í Arnarfirði 30.desember
1894, d. 12. júlí 1977, og Sigurlaug
Jónína Jóhannesdóttir, dóttir Jó-
hannesar Oddssonar og Þórunnar
Halldórsdóttur, f. á Hjaltabakka í
Torfulækjarhreppi í A-Húnavatns-
sýslu 17. júní 1894, d. 1. maí 1967,
en alin upp af Jóhannesi og konu
hans Oddnýju Sigríði Bjarnadótt-
ur. Alls voru börn þeirra átta. Lát-
in eru, auk Guðbjargar, Himin-
björg, Magnús, Jónína Sigríður,
Jóna og Jensína. Á lífi eru Jóhanna
Oddný, þríburasystir hennar,
Rakel Dögg, f. 8.maí 1980, sam-
býlismaður hennar er Auðunn
Baldvinsson, og Kári Örn, f. 28.
júlí 1982, unnusta hans er Guðrún
Arna Ásgeirsdóttir.
Guðbjörg fluttist tíu ára gömul
úr Arnarfirðinum til Reykjavíkur.
Hún fór snemma í vist en 16 ára
var hún vígð inn í Hjálpræðisher-
inn þar sem hún starfaði mikið, s.s.
við matseld jafnframt því sem hún
sá um sunnudagaskólann. Hún
vann m.a. á Landspítalanum og við
bókband. Eftir giftingu fluttu þau
til Ytri-Njarðvíkur. Þar byggði
Karl hús að Þórustíg 5, þar sem
þau bjuggu upp frá því. Eftir að
Karl andaðist bjó Guðbjörg ein þar
til í upphafi þessa árs.
Í Njarðvík vann Guðrún m.a. á
leikvelli, í mjólkurbúð og í 28 ár
vann hún við þrif í barnaskólanum
í Njarðvík. Síðan vann hún við
ræstingar á Keflavíkurflugvelli í
mörg ár og hætti ekki vinnu fyrr
en hún var komin vel yfir sjötugt.
Guðbjörg tók virkan þátt í starfi
fyrir sitt stéttarfélag, m.a. sem
trúnaðarmaður á vinnustað.
Útför Guðbjargar verður gerð
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Kjartan og systir sam-
feðra Guðríður Jóna.
Árið 1951 giftist
Guðbjörg Karli Ög-
mundssyni, húsa-
smíðameistara, f. í
Bervík á Hellissandi 8.
apríl 1912, d. 19. októ-
ber 1993, syni Ög-
mundar Andréssonar
bónda á Snæfellsnesi
og Sólveigar Guð-
mundsdóttur hús-
freyju. Börn Guð-
bjargar og Karls eru :
1) Elísabet, f. 28. maí
1952, framhaldsskóla-
kennari, hún var gift Andrési
Magnússyni, f. 27. desember 1951,
þau skildu. Börn þeirra eru Guð-
björg, f. 7. nóvember 1977, sam-
býlismaður hennar er Brynjulf
Mortensen, Ásta, f. 23. febrúar
1980, kærasti hennar er Ámundi
Fannar Sæmundsson, og Anna, f.
25. apríl 1987. 2) Óskar, varðstjóri
í Slökkviliðinu á Keflavíkurflug-
velli, f. 6. júlí 1954, kona hans er
Drífa Jóna Sigfúsdóttir f. 8. júlí
1954. Börn þeirra eru Daníel líf-
upplýsingafræðingur, f. 17. októ-
ber 1972, unnusta hans er Li Tang,
Þegar ég settist niður til að setja
saman þessa grein, þá komu mér í
hug orð vinar sem sagði að hún
hefði verið engill. Mér finnst það
góð lýsing.
Gugga var trúuð kona og sjálfri
sér samkvæm til orðs og athafna.
Hún var besta konan sem ég hef
kynnst og ég var svo lánsöm að hún
var tengdamóðir mín.
Frá fyrsta degi var mér vel tekið
af tengdaforeldrum mínum. Ég
hitti þau fyrst 16 ára gömul og var
feimin að koma í heimsókn en
tengdapabbi sló á létta strengi og
þá dró úr feimninni. Við Gugga urð-
um fljótlega trúnaðarvinkonur og
aldrei féll skuggi á þann vinskap.
Hún sagði margt fallegt við mig en
einna vænst þykir mér um orð
hennar: ,,mér gæti ekki þótt vænna
um þig, þótt þú værir dóttir mín.“
Gugga var ástrík og umhyggju-
söm og fylgdist vel með hvernig
börnum og barnabörnum vegnaði í
námi og starfi. Hún hafði yndi af því
að umgangast börn og þau löðuðust
að henni. Gugga hefði viljað eiga
stærri fjölskyldu og því reyndist
fyrsta barnabarnið henni dýrmæt
gjöf. Ef henni fannst að of langt liði
á milli þess sem hún fékk að hafa
barnabörnin þá bað hún um að fá
þau í heimsókn. Hún kenndi þeim
margt og þau eiga fallegar minn-
ingar um góða ömmu.
Gugga fylgdist vel með þjóðmál-
um og þau eru ófá kvöldin sem við
sátum og ræddum saman um allt
milli himins og jarðar. Það voru
góðar stundir enda var hún vel gef-
in, minnug og vel að sér um fjöl-
margt jafnframt því sem hún var
gædd ríkri réttlætiskennd.
Hún bar þjáningar sínar af æðru-
leysi og bar ekki kala til nokkurs
manns og aldrei talaði hún illa um
fólk. Þá daga sem hún var verst af
verkjunum, þá nefndi hún gjarnan
að ýmsir ættu erfiðara daga en hún.
Síðustu þrjá mánuðina dvaldi hún á
Hjúkrunarheimilinu Garðvangi.
Þar er einstaklega vel hugsað um
heimilisfólkið og vil ég færa starfs-
mönnum Garðvangs kærar þakkir
fyrir hjartahlýju og góða ummönn-
un.
Ein mesta gæfan sem mér hefur
hlotnast í lífinu er að hafa átt
Guggu að og ég mun ylja mér við
minningar um góða konu um
ókomna framtíð.
Drífa Sigfúsdóttir.
Elsku amma mín, þá er komið að
síðasta bréfinu til þín. Það er svo
skrýtið að þurfa að kveðja þig. Þó
mig hafi grunað að það væri komið
að kveðjustund núna um páskana
þá er ég ekki alveg tilbúin til að
segja bless.
Það verður tómlegt að koma aft-
ur heim til Íslands án þess að koma
við á Þórustígnum. Ég var aldrei
komin heim fyrr en ég var búin að
banka upp á hjá þér. Þú varst alltaf
sá fasti punktur sem ég tengdi við
það að vera heima, hvort sem það
var þegar við bjuggum í Svíþjóð,
fyrir norðan eða núna hérna úti.
Það var alltaf svo gott að sjá þig.
Mér leið alltaf svo vel í kringum
þig, ég gat verið ég sjálf og ég fann
hversu mikinn kærleika þú barst til
okkar.
Þær eru margar minningarnar
sem koma upp í hugann þegar ég sit
hér og hugsa um þig. Hvort sem
það var að sitja og spjalla um ástina
og tilveruna yfir kaffibolla inni í
eldhúsi eða að reyna að tileinka mér
hæfileika þína við eldamennsku.
Margar af mínum bestu minningum
úr barnæsku eru tengdar við Þóru-
stíginn og þig. Það var aldrei nein
hætta á að manni leiddist í heim-
sókn hjá þér. Og þvílík þolinmæði!
Þú hækkaðir ekki einu sinni róminn
þegar við vorum búin að umturna
stofunni og gera heilu virkin úr
stofuhúsgögnunum þínum, eða þeg-
ar við systurnar settum sjálfar
plötu á fóninn og príluðum upp á
allt. Ég man líka þegar þú spilaðir
kínaskák við mig heilan dag þegar
ég eyddi páskunum hjá þér fyrir
allmörgum árum síðan, þú varst
aldrei of upptekin og komst alltaf
fram við okkur sem jafningja þína
og með virðingu.
Já, það eru margir mannkostir
sem þú varst búin. Þú vildir allt
gera fyrir aðra, þú varst svo heið-
arleg og fín, jákvæð og traust. Það
var heldur aldrei langt í húmorinn
hjá þér. Við Ásta töluðum um það
oftar en einu sinni. Okkur langaði
nú bara mest til þess að hafa kynnst
þér þegar þú varst á okkar aldri, en
við erum nú samt afar þakklátar
fyrir það að hafa fengið að eiga þig
sem ömmu og fyrir það að njóta
góðs af nærveru þinni.
Elsku amma mín, ég vil þakka
þér fyrir það að hafa alla tíð verið
til staðar fyrir mig, fyrir að trúa á
mig og passa upp á mig og fyrst og
fremst fyrir það að hafa verið til.
Nú verð ég bara að ná fram Pollý-
önnunni í mér og hugsa til þess að
þú hafir fengið frið og þurfir ekki að
þjást lengur í stað þess að hugsa
um hversu sárt það er að fá ekki að
sjá þig aftur.
Guð veri með þér.
Þín nafna
Guðbjörg Andrésdóttir.
Það var alltaf gott að koma til
ömmu Guggu. Hún var svo óeigin-
gjörn og mér fannst alltaf jafngam-
an að gera eitthvað fyrir ömmu því
hún var svo þakklát fyrir allt sem
maður gerði fyrir hana. Þó það væri
nú ekki meira en það að koma inn á
réttum tíma þegar ég gisti hjá
ömmu, þá fékk ég alltaf faðmlag og
miklar þakkir. Það var gott að tala
við ömmu og mér fannst líka gaman
að segja henni frá því sem ég var að
gera, því hún var alltaf svo áhuga-
söm og hrósaði manni ef vel gekk.
Svona var amma, sama hversu lítið
maður gerði fyrir hana maður fékk
það alltaf margfalt til baka.
Amma kunni svo sannarlega að
hugga litla sál. Þegar ég kom grát-
andi til hennar á mínum yngri árum
var hún ekki lengi að bjarga mál-
unum, hún dró fram þríhyrninga-
spilið sem ég kallaði það eða sagði
mér sögu af Villa viðutan og þá var
ég nú ekki lengi að hressast.
Mig langar til að láta þennan
texta eftir Vilhjálm Vilhjálmsson
fylgja með, en ég hlustaði stundum
á þetta lag þegar ég var í heimsókn
hjá ömmu:
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef þú værir hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið það líður allt of fljótt.
Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum.
Er rökkvar, ráðið stjörnumál.
Gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað, sameinað beggja sál.
Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin;
nú einn ég sit um vetrarkvöld.
Ég gái út um gluggann minn,
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifuna,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er. Það næðir hér
og nístir mig.
Elsku amma, þín verður sárt
saknað en núna veit ég að þú ert á
betri stað og þér líður mikið betur
og er ég þakklát fyrir að þú sért nú
loksins laus við kvalirnar og veik-
indin. Hvíl í friði, elsku amma mín.
Þín ömmustelpa,
Anna Andrésdóttir.
Elsku amma
Í andartaks þögn ég átta mig
að lífsneistinn er farinn þér frá.
Ég græt og hugsa um tómarúmið
í hjarta mínu en geri mér svo ljóst
að mitt lífsins tré er laufgað
fögrum minningum um þig.
Þær verða aldrei frá mér teknar
né heldur kærleikur þinn og trú.
(R. D. Ó.)
Morguninn sem þú kvaddir þessa
jörð, þetta líf komstu til mín í
draumi. Þú sagðir mér að allt yrði í
lagi og við ræddum þó nokkuð sam-
an. Ég vaknaði, leit á klukkuna og
fór aftur að sofa. Ég áttaði mig ekki
á því þá, að þú værir að kveðja mig
en ég er þér þakklát fyrir að hafa
komið til mín. Svona er þér best
lýst, alltaf að passa upp á að öðrum
líði vel.
Sumarið 2001 er mér mjög minn-
isstætt, heilsa þín var slæm og ég
dvaldi hjá þér sumarlangt. Ég var
svo lánsöm að fá að vera til staðar
þegar þú þurftir á neyðaraðstoð að
halda og verð ég ævinlega þakklát
fyrir það. Þessi þrjú ár sem síðan
eru liðin hafa verið mér mikils virði
og geymi ég margar fallegar minn-
ingarnar um þig í hjarta mínu.
Upp í huga minn koma öll þau
skipti sem þú vaktir eftir mér, ég
var oft að vinna fram eftir nóttu og
þegar ég kom heim þá varst þú uppi
í rúmi, með bók í hönd og gleraugun
á þér, þú áttir það til að sofna en ég
settist alltaf á rúmið hjá þér þegar
ég kom heim og við spjölluðum
saman, þú þurftir að vita að ég væri
komin heim svo þú gætir sofið vært.
Nú ert þú komin heim og komið
er að mér að sofa vært, því ég veit
að þín trú var sterk og þú sagðir að
þú værir tilbúin að fara heim.
Ég enda svo kveðjuna á bæninni
okkar ömmu:
Drottinn láttu mig dreyma vel
sem dyggan þjón þinn Ísrael.
Þegar á steini sætt hann svaf
sætan varð honum náð Guðs af.
Rakel Dögg Óskarsdóttir.
Karl Ögmundsson, föðurbróðir
minn, og eiginkona hans, Guðbjörg
Waage, bjuggu á Þórustíg 5 í Ytri-
Njarðvík. Kalli gekk mér nánast í
föðurstað þegar faðir minn dó og
þar sem móðir mín vann mikið varð
heimili þeirra mitt annað heimili.
Gugga og Kalli komu alltaf fram við
mig eins og ég væri eitt af börn-
unum þeirra.
Gugga var mjög greind og íhugul
kona. Hún fylgdist vel með þjóð-
málum og myndaði sér sínar eigin
skoðanir. Hún var engu að síður
hógvær og lítillát.
Gugga var stundum alvörugefin
en ég man samt hvað hún hló þegar
ég var hrædd við tunglið og þorði
varla að hlaupa stuttu vegalengdina
heim til mín.
Reyndar eru minningar mínar
um þessi barngóðu hjón og börnin
þeirra, Elsu og Óskar, fjölmargar.
Ég sé Guggu alltaf fyrir mér sívinn-
andi enda féll henni aldrei verk úr
hendi.
Löngu eftir að flest fólk hafði
eignast sjálfvirkar þvottavélar sauð
Gugga enn þvott í stórum þvotta-
potti í kjallaranum hjá sér. Út um
opinn gluggann bárust gufa og ilm-
ur af grænsápu. Finni ég slíka lykt í
dag fyllist ég værð og öryggiskennd
og mér verður hugsað til Guggu.
Gugga var mjög trúuð kona. Hún
hafði ung gengið í Hjálpræðisher-
inn og ég man hvað mér þótti það
merkilegt þegar vinir hennar í
Hernum komu einkennisklæddir í
heimsókn í Njarðvíkurnar. Ég fékk
að taka þátt í þeim gestaboðum eins
og flestu sem fram fór á heimili
Guggu.
Gugga gætti þess að við krakk-
arnir ynnum heimavinnuna okkar,
hlýddi okkur yfir og hrósaði í há-
stert þegar vel gekk á prófum. Allt-
af var líka ilmandi kakó og ristað
brauð tilbúið handa okkur í löngu
frímínútunum.
Síðast þegar ég heimsótti Guggu
á Hjúkrunarheimilið Garðvang í
Garði, þar sem hún bjó undir lokin,
þá sagði hún: „Sérðu myndina
þarna? Þarna ert þú. Á litlu borði
við rúmið hennar voru myndir af af-
komendum hennar og þar var einn-
ig mynd af mér. Það var eins og
Gugga vildi leggja áherslu á að í
hennar huga væri ég eins og eitt af
börnunum hennar. Ég horfði á
myndirnar af þessum fríða flokki
afkomenda Guggu og sagði við hana
að það kæmi mér ekki á óvart hve
greind og dugleg þau væru. Þau
ættu það ekki langt að sækja. Hún
tók hjartanlega undir orð mín og
augu hennar urðu aftur eins og
forðum, skýr og tindrandi. Mér
þótti vænt um viðbrögð hennar því
ég hefði allt eins átt von á að hún
hefði af sínu meðfædda lítillæti
andmælt mér.
Ég votta börnum og barnabörn-
um Guggu samúð og þakka þeim í
leiðinni fyrir að hafa fengið að deila
með þeim móðurfaðmi hennar.
Hulda Karen Daníelsdóttir.
Þegar ég var barn gat ég alltaf
leitað til þín, Gugga frænka. Þú
varst mér eins og önnur móðir. Eft-
ir að mamma fór að vinna aftur eftir
slysið gátum við systkinin alltaf
leitað til þín því þú varst heima með
börnin á þeim tíma.
Ég kom oft grátandi heim úr
skóla til þín, Gugga frænka. Ein af
ástæðunum var sú að ég var
skömmuð fyrir að vera ekki búin að
læra ljóðin mín heima. Mér gekk
það mjög illa þar til þú gafst mér
gott ráð. Þú sagðir við mig: Guðný
mín, lærðu bara tvær línur í einu
utanbókar því það er miklu auð-
veldara en að læra allt ljóðið. Ég
prófaði það og það gekk strax miklu
betur að læra ljóðin. Þessa lexíu
flutti ég áfram til barnanna minna
sem auðveldaði þeim ljóðalærdóm-
inn.
Það var alltaf gaman að heim-
sækja þig, Gugga frænka. Þú varst
alltaf svo jákvæð, brosmild og
skemmtileg. Þú varst mikil fé-
lagsvera og mér þótti alltaf gaman
að koma til þín og spjalla og fá upp-
lýsingar um gömlu tímana ykkar
mömmu, því þú mundir allt svo vel
og gerðir frásögnina lifandi og
skemmtilega. Ekki skemmdi fyrir
GUÐBJÖRG KRISTJANA
GUÐMUNDSDÓTTIR WAAGE
Samúðarblóm
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is