Morgunblaðið - 30.04.2004, Blaðsíða 46
DAGBÓK
46 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
vefnaður og frjálst að
spila í sal, kl. 13.30 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað, kl. 14
söngstund.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið, Furu-
gerði 1. Félagsstarfið,
Furugerði 1, og nem-
endur Hvassaleitisskóla
halda samsýningu á
handverki í Furugerði 1
laugardaginn 1. maí kl.
13.30 til 17. Kórar
beggja staðanna syngja
um kl. 14.30. Kaffiveit-
ingar. Allir velkomnir.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa kl. 9–16.30, göngu-
hópur kl. 9.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10–
12 verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 14.30
kemur Grettir Björns-
son tónlistarmaður með
nikkuna og leikur vor-
lög. Lokað í Garðabergi
frá kl. 13–19.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Kl. 11.30 leikfimi, kl. 13
útskurður og brids.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10 létt ganga, frá
hádegi spilasalur opinn,
kl. 13 bókband, kl. 14
leggur Gerðubergskór í
söngferðalag að Vífils-
stöðum.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlist, kl. 10
ganga.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, kl. 11
spurt og spjallað, kl. 14
bingó.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
14.30 handavinna,
kl.10–11 kántrýdans.
Kl. 13.30 sungið við
flygilinn, kl.14.30 dans-
að í kaffitímanum.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 myndlist, kl.
9. 30 bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi,
kl. 12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl. 21
í Konnakoti, Hverfis-
götu 105. Munið göng-
una mánu- og fimmtud.
Ferðaklúbbur eldri
borgara. Hringferð á
Reykjanes þriðjudag-
inn 4. maí: Garðskagi,
Stafnes, Reykjanesviti,
Grindavík, Krýsuvík.
Upplýsingar í síma
892 3011.
Félag áhugamanna um
tréskurð. Vorsýning
verður í safnaðarheimili
Háteigskirkju v/ Há-
teigsveg laugardaginn
1. maí og sunnudaginn
2. maí kl. 13–17. Heið-
ursgestur sýning-
arinnar er Matthías
Andrésson.
Söngvinir, kór aldraðra
í Kópavogi. Vor-
tónleikarnir verða í
Digraneskirkju sunnu-
daginn 2. maí kl. 17.
Skaftfellingafélagið í
Reykjavík árlegt kaffi-
boði aldraðra Skaftfell-
inga verður í Skaftfell-
ingabúð sunnudaginn 2.
maí, klukkan 14. Örlyg-
ur Hálfdánarson bóka-
útgefandi les úr bókinni
„Úr torfbæjum inn í
tækniöld“, Söngfélagið
tekur lagið og í lokin
verður dansað undir
harmonikkuleik.
Talsímaverðir. Hádeg-
isverðarfundur
á Loftleiðum laug-
ardaginn 1. maí.
Kvenfélag Háteigs-
sóknar. Fundur verður
þriðjudaginn 4. maí
kl. 20 í Setrinu.
Í dag er föstudagur 30. apríl,
121. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Beinum sjónum vorum til
Jesú, höfundar og fullkomnara
trúarinnar. Vegna gleði þeirrar,
er beið hans, leið hann þol-
inmóðlega á krossi, mat smán
einskis og hefur nú sest til hægri
handar hásæti Guðs.
(Hebr. 12, 2.)
Ef hið umdeilda fjöl-miðlafrumvarp verður
að lögum nú á næstunni
hefur það gerst tvisvar
sinnum á þessu þingi að
stjórnmálamenn hafa sett
lög sem er sérstaklega
beint gegn ákveðnum að-
ilum eða gjörningi. Fyrra
dæmið er að sjálfsögðu hið
meingallaða sparisjóða-
frumvarp sem varð að lög-
um í febrúar,“ segir Þórð-
ur Heiðar Þórarinsson á
Deiglunni.
Það virðist eitthvað geraþað að verkum að
stjórnmálamenn telja sig
vita betur hvernig hlutum
skuli hagað en þorri þjóð-
arinnar. Kannski er það
vegna þess að þjóðin kýs
þetta fólk til að taka slíkar
ákvarðanir fyrir sig. Þrátt
fyrir það er að sjálfsögðu
hægt að misbeita þessu
valdi með því að setja lög
eða ólög beinlínis til að
hygla aðilum sér þókn-
anlegum. Það er einnig
hægt misbeita þessu valdi
með því að setja lög sem
grafa undan ákveðnum
aðilum. Lögin um spari-
sjóðina sem voru sam-
þykkt í febrúar og fjöl-
miðlalögin sem eru til
umræðu þessa stundina
eru skýrt dæmi um mis-
beitingu slíks valds. Það
dylst engum, sem er ekki í
skollaleik með bláan
borða með mynd af for-
ingjanum fyrir augunum,
að fjölmiðlafrumvarpið
beinist gegn Baugs-
samsteypunni og Jóni Ás-
geiri. Sömuleiðis fór aldr-
ei á milli mála að
sparisjóðafrumvarpið
varð að lögum gagngert
til að koma í veg fyrir
ákveðinn gjörning – kaup
KB banka á SPRON. Inn-
grip stjórnmálamanna í
eðlilegan og frjálsan gang
þjóðfélagsins með þessum
hætti eru óþolandi og
ólíðandi.
Spurningin er því súhvort stjórnmálamenn
þurfi ekki að semja leik-
reglur um sjálfa sig líkar
þeim sem þeir telja að allir
aðrir þurfi að hlíta. Er
ekki eðlilegt og sann-
gjarnt, með hliðsjón af
umræddum sparisjóðalög-
um og fjölmiðlafrumvarp-
inu að lög, sem samþykkt
eru á hinu háa Alþingi,
þurfi að vera almenns eðl-
is? Þarf ekki að reyna að
koma í veg fyrir að stjórn-
málamenn beiti valdi sínu
gegn mönnum eða gjörn-
ingum sem þeir hafa mein-
bugi á? Telji menn brotið á
sér í þessu samhengi og
lög séu augljóslega sett
gegn sér eða samningum
sem þeir standa að; ættu
þeir ekki að hafa rétt á að
fara fyrir Hæstarétt, sem
gæti þá ógilt lögin eða
t.a.m. frestað gildistöku
þeirra, líkt og þekkist í
hinum vestræna heimi?
Það er erfitt að hefjaleik þegar það má bú-
ast við því að stjórn-
málamenn grípi inn í og
breyti reglunum í miðjum
leik. Er nema vona að
maður spyrji hvort það
þurfi ekki að herða aðhald
með þeim þegar þeir haga
sér svona?“ spyr Þórður
Heiðar.
STAKSTEINAR
Lög um
stjórnmálamenn?
Víkverji skrifar...
Söngvakeppni evrópskra sjón-varpsstöðva er jafnöruggt merki
um að sumarið sé á næsta leiti og að
lóan og krían séu mættar hingað
norður í Atlantshafið. Víkverji hefur
alltaf haft lúmskt gaman af þessari
keppni og öllu því sem henni fylgir.
Hann hefur ekki heyrt framlag Ís-
lendinga til keppninnar að þessu
sinni en er viss um að Jónsi á eftir að
verða landi og þjóð til sóma.
x x x
Á þessu kvöldi eru haldin „Euro-vison-partí“ um allt land og um
alla álfuna, því það eru ekki bara Ís-
lendingar sem flykkjast að sjón-
varpsskjánum þetta kvöld. Víkverji
hefur fylgst með keppninni í hinum
ólíklegustu löndum, Belgíu, Frakk-
landi, Makedóníu og Kúbu. Eðli
málsins samkvæmt var lítið um
keppnina fjallað á Kúbu, en Víkverji
hefur komist að því að smáþjóðir,
eða fólk sem er víðs fjarri heimkynn-
unum sínum, eru fyrst og fremst
þeir sem fylgjast með þessari
keppni.
Þannig var mikill áhugi fyrir
keppninni í Makedóníu. Makedónar
komast, eins og Íslendingar, sjaldan
í sjónvarp erlendis og hafa því mik-
inn áhuga á því hvernig þeirra fólki
reiðir af. Í Frakklandi hafði enginn
áhuga nema útlendingar sem ekki
voru heima hjá sér og sömu sögu má
segja af Belgíu.
Þar komst Víkverji reyndar í
ótrúlega skemmtilegt „Eurovision-
partí“, skipulagt einmitt af partíljóni
sem var langt að heiman. Í þessu
partíi voru saman komnir ein-
staklingar víðs vegar að úr heim-
inum, sem gerði keppnina óneit-
anlega meira spennandi.
Annað sem gerði partíið eft-
irminnilegt var að húsráðandi hafði
þá reglu að gestir hans skyldu
drekka þjóðardrykk hvers lands á
meðan lagið hljómaði. Þannig var
bergt á rauðvíni þegar Frakkar
spreyttu sig, bjór meðan Belgar
kyrjuðu sitt lag og Ouzo meðan
Grikkir sýndu hvað í þeim bjó.
Stundum voru gestirnir ekki vissir
hvað væri við hæfi og þá drukku
þeir bara það sem þá langaði í.
Reyndar myndu fæstir mæla með
drykkju af þessu tagi, þar sem hún
er ávísun á mikinn hausverk og
timburmenn og ekki víst að fólk
haldi rænu út kvöldið. En þetta var
óneitanlega mikið stuð.
x x x
Víkverji rakst á ótrúlega spaugi-legan þátt í Ríkissjónvarpinu
fyrr í þessari viku. Þar voru saman
komnir spekúlantar Norður-
landanna, sem ræddu möguleika
hvers lags. Það var eitthvað svo
yndislegt og súrrealískt við það að
heyra þessar þjóðir ræða Eurovis-
ion-lög af fullri alvöru á norsku,
sænsku og dönsku þótt viðstaddir
virtust hafa nokkurn húmor fyrir
keppninni.
Morgunblaðið/Golli
Það gæti verið við hæfi að kneyfa
íslenskt brennivín á meðan framlag
Íslands er flutt í Istanbul.
Ráðherraræði?
FJÖLMIÐLAR birtu ný-
lega þá frétt að ríkis-
stjórnin hefði samþykkt
lagafrumvarp. Það fylgdi
fréttinni að ráðherra hefði
skipað nefnd til að athuga
viðkomandi málefni,
nefndin hefði skilað ráð-
herra skýrslu um verkefni
sitt og ríkisstjórnin samið
frumvarp á grundvelli
skýrslunnar og síðan
samþykkt sitt eigið frum-
varp! Þingmenn svöruðu
aðspurðir að þeir hefðu
hvorki séð skýrsluna né
frumvarpið. Síðar kom
frétt þess efnis að rík-
isstjórnin hefði lagt málið
fyrir stuðningsflokka
sína. Þegar þetta er skrif-
að hefur frumvarpið enn
ekki verið lagt fyrir al-
þingi.
Er það svo að ríkis-
stjórnin álíti Alþingi að-
eins máttlausa kjafta-
stofnun sem gerir það eitt
sem henni er sagt? Ég
hélt að við byggjum við
þingræði. Ef svo væri
hefði Alþingi skipað nefnd
til að kanna málið. Nefnd-
in skilað þinginu skýrslu
og alþingi látið semja
lagafrumvarp sem það
hefði síðan afgreitt sem
lög frá Alþingi og sent
ríkisstjórninni sem fram-
kvæmdastjórn þingsins.
Allt vekur þetta þá spurn-
ingu hvort við búum við
ráðherraræði en ekki
þingræði?
Jón frá Pálmholti.
Þyrnar og rósir
ER einhver sem getur út-
vegað mér bókina Þyrna
og rósir eftir Ágúst Jóns-
son, útg. 1930. Þeir sem
gætu liðsinnt mér hafi
samband við Einar Má í
síma 869 1230.
Frábær
þjónusta
ÉG fékk mjög góða þjón-
ustu hjá Margréti sem
vinnur hjá Trygginga-
stofnun ríkisins. Hún
upplýsti mig um ýmislegt
sem ég ekki vissi áður. Vil
ég þakka henni mikla
kurteisi og frábæra þjón-
ustu.
Ívar.
Tapað/fundið
Hringurinn
og stúlkan
SL. ÞRIÐJUDAG hringdi
ung stúlka á Lögreglu-
stöðina í Kópavogi og var
hún að spyrjast fyrir um
hring sem hún týndi.
Hringurinn hafði ekki
fundist en síðdegis sama
dag var komið með hring
á lögreglustöðina sem lík-
lega er hringurinn sem
stúlkan var að leita að. Er
því stúlkan beðin að hafa
aftur samband við lög-
regluna í Kópavogi.
Dýrahald
Snúra
er týnd
SNÚRA er 5 mánaða
kettlingur, læða, hvít með
röndótt skott og brönd-
óttan blett á höfði milli
eyrna.
Hún týndist frá Dal-
brekku í Kópavogi 26.
apríl sl. Þeir sem hafa
orðið varir við hana hafi
samband í síma 554 2090
eða 698 5472.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 hefur hönd á, 8 skaða, 9
tuskan, 10 kvíði, 11
girnd, 13 ýlfrar, 15 hrist-
ist, 18 sjá eftir, 21 blóm,
22 fljótið, 23 tóbaki, 24
farangur.
LÓÐRÉTT
2 rándýrs, 3 streymi, 4
mauks, 5 líkamshlutar, 6
sæti, 7 röskur, 12 ginn-
ing, 14 sefa, 15 vera við-
eigandi, 16 örlög, 17
höfðu upp á, 18 erfiði, 19
kæns, 20 fædd
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 sópum, 4 eikur, 7 ljúft, 8 rytju, 9 trú, 11 maur,
13 hrat, 14 ískur, 15 hrak, 17 álag, 20 frú, 22 refur, 23
nagar, 24 kerið, 25 afræð.
Lóðrétt: 1 selum, 2 prúðu, 3 mett, 4 edrú, 5 kutar, 6
raust, 10 rekur, 12 rík, 13 hrá, 15 horsk, 16 arfar, 18 lýg-
ur, 19 gerið, 20 frið, 21 únsa.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html