Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 51

Morgunblaðið - 30.04.2004, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 51 ÞÝSKA handknattleiksliðið Tus N- Lübbecke, betur þekkt sem Nettel- stedt, hefur sýnt áhuga á að fá landsliðsmanninn Ásgeir Örn Hall- grímsson úr liði Hauka í sínar raðir fyrir næstu leiktíð. Félagið er með átta stiga forskot í 2. deild nyrðri og á sæti í Bundesligunni víst á næstu leiktíð og hyggjast forráða- menn liðsins styrkja leikmannahóp sinn fyrir átökin næsta vetur. Þá hefur hefur franska liðið Par- is borið víurnar í Ásgeir en liðið er í fimmta sæti frönsku 1. deildar- innar. „Ég hef fengið fyrirspurnir bæði frá liðum í Þýskalandi og Frakk- landi en ég ætla að klára tímabilið áður en ég gef mér tíma til að velta hlutunum fyrir mér. Það blundar auðvitað í manni að fara út og það kemur vel til greina að gera það og eins það að vera hér heima í eitt ár til viðbótar,“ sagði Ásgeir við Morgunblaðið í gær en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við Haukana. Fregnir bárust af því í fyrra að spænska stórliðið hefði áhuga á að semja við Ásgeir en þegar ljóst var að þjálfarinn Valero Rivera hætti eftir tímabilið hefur Ásgeir ekkert heyrt frá Börsungum. Ásgeir Örn er einn af burðarás- unum í liði Hauka en þessi tvítuga vinstrihandarskytta hefur leikið sérlega vel með Íslandsmeisturun- um á leiktíðinni og því ekkert skrýtið að erlend félög séu með hann undir smásjánni. Nettelstedt og Paris sýna Ásgeiri Erni áhuga DAVID Gill stjórnarformaður enska knattspyrnusliðsins Manchester United segir við enska dagblaðið Manchester Evening News að hollenski landsliðsframherjinn Ruud van Nistelrooy sé ekki á förum frá félaginu til spænska liðsins Real Madrid í sumar. En spænska íþróttadagblaðið Marca birti frétt þess efnis í fyrradag og hafði blaðið heim- ildir fyrir því að umboðsmaður leikmannsins, Rodger Linsem, hefði fundað að undanförnu með forsvarsmönnum Real Ma- drid. „Ég endurtek það sem ég hef sagt áður, Nistelrooy er ekki til sölu, svo einfalt er það,“ sagði Gill en hinn 27 ára gamli Nistelrooy gerði samning við félagið í janúar sl. sem rennur ekki út fyrr en árið 2009. „Slík- ur samningur er ekki gerður í skyndi og án vandlegrar um- hugsunar. Hann verður á Old Trafford þar til samningur hans rennur út,“ segir Gill. Nistelrooy ekki til sölu Leikurinn var hin ágætastaskemmtun og bauð upp á mikil og fjölbreytt tilþrif. Haukar byrj- uðu með sína rammgerðu flötu vörn og varnar- menn KA héldu sig líka við línuna nema Jónatan Magnússon sem tók Ás- geir Örn Hallgrímsson úr umferð nánast allan leikinn. Mikið mæddi því á Andra Stefan og Halldóri Ingólfssyni fyrir utan í sókn Hauk- anna en Robertas Pauzuolis lék að- eins í vörninni, væntanlega vegna meiðsla. Fyrri hálfleikur var jafn og harður. Leikmönnum KA var 6 sinnum vikið af velli og Haukum fjórum sinnum. Gestirnir gengu á lagið og náðu 3 marka forskoti eftir ríflega 20 mínútna leik en heima- menn jöfnuðu. Staðan var 13:13 þegar 3 mínútur voru eftir af hálf- leiknum. Þá voru tveir KA-menn sendir út af með stuttu millibili en samt sem áður tókst KA að skora tvö síðustu mörkin og breyta stöð- unni í 15:13 fyrir leikhlé. Sjálfstraust drengjanna í KA virðist hafa tútnað út eftir þennan laglega endasprett í fyrri hálfleik því þeir komu dansandi til leiks eftir hressingu í hléinu og röðuðu inn 5 mörkum í röð. Staðan skyndi- lega orðin 20:13 og góð ráð dýr fyr- ir Hauka. Haukar reyndu ýmsar varnir Björn Viðar Björnsson kom í markið í stað Birkis Ívars Guð- mundssonar. Haukar reyndu ýmis varnarafbrigði. Þeir höfðu byrjað á því að taka Arnór Atlason úr um- ferð en þá losnaði um Jónatan Magnússon og það sem eftir lifði leiks reyndu Haukar ýmist að taka þá báða eða annan hvorn úr umferð og undir það síðasta voru þeir farn- ir að leika vörnina framar en ekk- ert gekk. Þeim tókst þó að minnka muninn niður í 3 mörk á tímabili en komust ekki lengra og sigur KA var öruggur. Arnór Atlason skoraði 10 mörk fyrir KA og réðu Haukar lítið við þennan fjölhæfa handboltamann í fyrri hálfleik. Stefán Guðnason varði mjög vel í fyrri hálfleik og varnarleikurinn var öflugur eins og sést t.d. á því að Haukar skoruðu aðeins 1 mark af línu. Jónatan Magnússon og Einar Logi Frið- jónsson tóku létta spretti í seinni hálfleik og röðuðu inn mörkum og raunar átti Jónatan stórleik í vörn og sókn. Þá var Andrius Stelmokas sterkur að vanda. Hjá Haukum var Andri Stefan öflugur og skoraði 9 mörk. Halldór Ingólfsson læddi inn slatta af mörkum af gömlum vana en aldrei þessu vant skorti breidd í liðið og fleiri afgerandi markaskorara. Birkir Ívar varði ágætlega í fyrri hálfleik og vörnin var góð á köflum.  ÓLAFUR Örn Haraldsson, annar dómarinn í leik ÍR og Vals, notaði einu sinni körfuknattleikstakta í gær. ÍR-ingar náðu boltanum við eigin vítateig og brunuðu í sókn. Ólafur sá svitapoll á gólfinu við teig ÍR, gaf manninum á þveglinum merki um að koma inná og þurrka á meðan leikurinn hélt áfram hinum megin á vellinum. Þetta er iðulega gert í körfunni og mættu handbolta- dómarar taka þetta til athugunar því ef þetta er hægt í körfu hlýtur það að ganga í handbolta, sem er hægari íþrótt á stærri velli.  GUNNLAUGUR Jónsson fyrirliði Skagamanna verður í leikbanni þeg- ar ÍA mætir FH í undanúrslitum í deildabikarnum í knattspyrnu á sunnudaginn. Gunnlaugur fékk að líta rauða spjaldið á 40. mínútu í sigri ÍA á Fylki í fyrrakvöld en áður hafði Valur Fannar Gíslason, Fylki, feng- ið reisupassann á 13. mínútu leiksins.  FORRÁÐAMENN danska kvennahandknattleiksliðsins Slag- else hafa lagt á hilluna áform um að leika fyrri úrslitaleik liðsins í Meist- aradeildinni gegn Krim Ljubljana á Parken í Kaupmannahöfn. Slagelse leikur fyrri leik liðanna í Bröndby- höllinni 15. maí en forsvarsmenn liðsins sáu sér ekki fært að uppfylla allar kröfur EHF á þeim 18 dögum sem liðið hafði til stefnu fyrir leikinn.  HANDKNATTLEIKUR hefur ekki farið fram á Parken fram til þessa en þar leikur danska knatt- spyrnulandsliðið heimaleiki sína en hægt er að loka Parken með því að draga þak yfir völlinn. Rúmlega 40 þúsund áhorfendur hefðu getað fylgst með Slagelse á Parken en mun færri komast í Bröndby höllina.  MARCELLO Lippi mun hætta sem þjálfari ítalska knattspyrnuliðs- ins Juventus í lok leiktíðarinnar en hinn 56 ára gamli þjálfari var með samning við félagið allt fram til loka næsta keppnistímabils. Lippi greindi frá ákvörðun sinni á fundi með fréttamönnum í Tórínó í gær. „Loka- kaflinn í frábærri sögu er nú á enda, Juventus verður ávallt í hjarta mínu og ekkert mun koma í veg fyrir það,“ sagði Lippi.  LIPPI segir að hann hafi ekki hug á því að taka við félagsliði, en að ítalska landsliðsþjálfarastaðan væri áhugaverður kostur. „Ég gæti ekki afþakkað slíkt boð, en það hefur enn ekki borist til mín,“ sagði Lippi sem stýrði Juventus til sigurs í deildar- keppninni á Ítalíu tvö sl. keppnis- tímabil, en liðið er sem stendur í þriðja sæti deildarinnar, 13 stigum á eftir AC Milan sem er í efsta sæti.  FORSVARSMENN NBA-liðsins Boston Celtic staðfestu í gær að Doc Rivers hefði verið ráðinn þjálfari liðsins. Rivers var áður þjálfari Or- lando Magic. FÓLK Morgunblaðið/Kristján Arnór Atlason, skytta KA, skorar eitt marka sinna gegn Haukum, en alls skoraði hann 10 mörk. KA of stór biti fyrir Hauka að kyngja KA-MENN stóðu við loforð sitt um að skemmta áhorfendum á heimavelli og sigra Hauka í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Ís- landsmótsins. Mikil stemmning var í KA-heimilinu og eftir jafna byrjun tóku heimamenn rækilegan fjörkipp undir lok fyrri hálfleiks og í upphafi seinni hálfleiks. Þessi frábæri kafli skilaði KA 7 marka forystu og það var of stór biti fyrir Hauka að kyngja. Lokatölur urðu 33:29 og ljóst að barist verður til þrautar í oddaleik eins og flestir höfðu búist við. Stefán Þór Sæmundsson skrifar   $%&'() *%+ () $,$+--./$+- (  0$ 0)1 1 710 2 5 5 6 3   3  6 4 1 710 2 $+'$ %" %' !! $( $& " 63 3 68 # .  . //& % %  $' $& # 47 66 6 9             Ásgeir Örn Hallgrímsson, stórskytta Hauka, var oftar en ekki tekinn föstum tökum af varnarmönnum KA. ÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.