Morgunblaðið - 30.04.2004, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÍBÚUM Seltjarnarness voru í gær-
kvöld kynntar hugmyndir að deili-
skipulagi á síðustu byggingarlóð-
unum í bænum, en þar eru uppi
hugmyndir um að reisa íbúðar-
húsnæði fyrir 450 til 500 íbúa.
Skipulagið nær til tveggja svæða,
Hrólfskálamels og Suðurstrandar.
Myndin sýnir hornið á Nesvegi og
Suðurströnd, þar sem verslun Bón-
uss stendur í dag, séð frá suðaustri,
en myndina unnu Hornsteinar arki-
tektar ehf., Schmidt, Hammer &
Lassen og VSÓ ráðgjöf. Hugmyndir
hönnuðanna eru að hafa blandaða
byggð auk knattspyrnuvallar á
Hrólfskálamel, en eingöngu íbúða-
byggð á Suðurströnd.
Kynna skipulag á Seltjarnarnesi
Kynna/20
SAMIÐN og Samtök atvinnulífsins undirrit-
uðu nýjan kjarasamning á níunda tímanum í
gærkvöld. „Ég er þokkalega sáttur. Við þurf-
um að taka mið af samningum sem hafa verið
gerðir og þeir rammað okkur svolítið mikið
inn,“ sagði Finnbjörn Hermannsson, formaður
Samiðnar, í gærkvöld.
Samninganefnd Samiðnar lagði áherslu á að
minnka bilið á milli launataxta og raunveru-
legra launa. Finnbjörn segist hafa orðið var við
misnotkun þannig að erlendum starfsmönnum
er borgað samkvæmt töxtum þótt fáir innlend-
ir félagsmenn séu á þeim launum í raun. Taxt-
arnir séu bara notaðir sem lágmarkstaxtar.
Hæsti taxtinn í 163.000 krónur
Við undirskrift samnings hækka laun fé-
lagsmanna Samiðnar um 3,25%. Finnbjörn
nefnir sem dæmi að hæsti taxtinn hækki úr 134
þúsundum í 163 þúsund krónur. Það þýði þó
ekki að allir hækki svo mikið þar sem taxtarnir
færist nær raunlaunum.
Samningurinn er nú kynntur félagsmönnum
sem síðan samþykkja hann eða hafna. Það
verður að gerast innan 28 daga frá undirritun.
Innan Samiðnar eru byggingarmenn, málm-
iðnaðarmenn, bíliðnamenn, netagerðarmenn,
garðyrkjumenn og hárgreiðslufólk. Þessi
samningur snertir fimm þúsund manns.
Finnbjörn á von á því að þessir samningar
verði samþykktir af félagsmönnum. „Það var
samhljómur innan allra félaganna hjá okkur að
færa taxtana upp og okkur tókst það allveru-
lega. Ég á von á því að menn séu sáttir við
það.“
Samiðn og SA semja
Taxtarnir
færðir nær
raunlaunum
HAGNAÐUR Landsbankans
fimmfaldaðist og hagnaður KB
banka nær tvöfaldaðist frá fyrsta
fjórðungi í fyrra til sama tímabils í
ár. Hagnaður Landsbankans nam
4,1 milljarði króna og hagnaður
KB banka 2,65 milljörðum króna,
sem er í báðum tilvikum í ágætu
samræmi við spár. Sé hagnaður
bankanna lagður saman ríflega
þrefaldaðist hann milli ára.
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir að
stærsta skýringin á góðum hagn-
aði Landsbankans sé mikill geng-
ishagnaður en vaxtatekjur og
þóknanatekjur hafi einnig aukist
mikið. Sigurjón segir aukinn geng-
ishagnað endurspegla mikla hækk-
un hlutabréfa og lækkun vaxta á
fyrsta fjórðungi ársins. Þá hafi
hvers kyns þóknanatekjur af
verðbréfastarfsemi aukist, en
þóknanatekjur af viðskiptum við
einstaklinga hafi nánast staðið í
stað. Vaxtatekjur af lánastarfsemi
hafi einnig aukist mikið. Þetta
hvort tveggja endurspegli mikla
aukningu umsvifa, en bankinn hafi
stækkað um 82% á tólf mánuðum.
Landsbanki og KB banki
þrefölduðu hagnað
Hagnaður/12
Fimmfaldur/14
SLÖKKVILIÐSMENN æfðu í gær viðbrögð
við eiturefnaslysi á námskeiði fyrir slökkviliðs-
menn í Hafnarfirði. Sett var á svið slys þar sem
tunna með klór átti að hafa dottið af vörubíls-
palli og farið að leka og gasský að myndast af
völdum klórsins. Æfingin gekk út á það að æfa
viðbrögðin allt frá því að slökkviliðið fékk til-
uðborgarsvæðisins (SHS). Brunamálaskólinn
hefur staðið fyrir námskeiðinu Atvinnuslökkvi-
liðsmaður fyrir slökkviliðsmenn sem hófu störf
á árunum 2000 til 2002, og setti SHS á svið
þrenns konar slys í gær, umferðarslys, bruna
og eiturefnaslys, sem þátttakendur á nám-
skeiðinu glímdu við.
kynningu þar til búið var að hreinsa vettvang-
inn. Bílstjóri vörubílsins reyndist meðvitund-
arlaus á jörðinni þegar að var komið og þurftu
slökkviliðsmennirnir að skola eiturefnin af
honum og reyna svo að stöðva lekann og
hreinsa upp, segir Birgir Finnsson, fram-
kvæmdastjóri útkallsdeildar Slökkviliðs höf-
Morgunblaðið/Júlíus
Æfðu viðbrögð við eiturefnaslysi
SKOTVEIÐIFÉLAG Íslands
(SKOTVÍS) hefur sótt um styrk í
veiðikortasjóð til þess að fá er-
lenda sérfræðinga til að yfirfara
rjúpnarannsóknir Náttúrufræði-
stofnunar og rannsóknaráætlanir
og vonast eftir svari umhverf-
isráðuneytisins fyrir 1. maí. Þá
telur félagið veiðikortasjóð vera
að hruni kominn vegna rjúpna-
veiðibannsins.
Veiðibann ekki góð aðferð
Sigmar B. Hauksson, formaður
félagsins, segir rjúpnaveiðibann
mjög umdeilt, bæði af hálfu ann-
gefið um 100 milljónir. En við lít-
um ekki síður á að veiðikorta-
sjóður sé geysilega mikilvægur
gagnagrunnur. Við höfum ekki
betri gagnagrunn um veiðidýr en
veiðikortasjóðinn. Núna þegar
menn í fyrsta lagi senda ekki
upplýsingar í hann og svo í öðru
lagi þegar brögð eru að því að
menn sendi inn rangar upplýs-
ingar þá er sjóðurinn bæði óvirk-
ur sem gagnagrunnur og lamaður
fjárhagslega. Þannig að þegar
upp er staðið verður tjónið af
rjúpnaveiðibanninu meira en
ávinningurinn.“
Sigmar segir veiðikortasjóð,
sem fjármagnaður er með veiði-
kortafé frá veiðimönnum, vera að
hruni kominn. „Það er 25% sam-
dráttur í fjárstreymi í sjóðinn.
Frá árinu 1995 hefur sjóðurinn
arra náttúrufræðinga, s.s vísinda-
manna á Hafrannsóknastofnun
og svo annarra fuglafræðinga á
borð við dr. Arnór Þór Sigfússon
og prófessor Arnþór Garðarsson.
„Við höfum rætt þetta við er-
lenda fuglafræðinga. Þeir virðast
vera sammála um að þetta sé
ekki góð aðgerð. Eftir því sem
liðið hefur á veturinn hafa menn
orðið meira gagnrýnir á þessar
niðurstöður og rannsóknir. Við
viljum því fá erlenda fuglafræð-
inga, sem eru með reynslu á
þessu sviði, til að yfirfara þessar
rannsóknir.“
Erlendir sérfræðingar fari
yfir rjúpnarannsóknirnar
VINNA er að hefjast við akademíska úttekt á
Háskóla Íslands og mun það vera í fyrsta
skipti sem slík úttekt, sem tíðkast víða við
skóla erlendis, er framkvæmd hér á landi. Þá
vinnur Ríkisendurskoðun að fjármála- og
stjórnsýsluúttekt á HÍ. Þessi þríþætta úttekt
er gerð að frumkvæði menntamálaráðherra,
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, og er
niðurstaðna að vænta fyrir októberlok.
Inga Dóra Sigfúsdóttir félagsfræðingur
hefur yfirumsjón með akademísku úttektinni
í samstarfi við Allyson Macdonald, forstöðu-
mann Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla
Íslands, og Irwin Feller, bandarískan sér-
fræðing í mati á háskólastarfi. Að sögn Ingu
Dóru mun úttektin snúa að því að skoða rann-
sóknarstörf skólans og framlag hans í þágu
íslenskra vísinda sem og vísindaiðkunar á er-
lendum vettvangi með samanburði við skóla
erlendis og innanlands. Þá verða skoðuð
tengsl skólans við ýmsa aðila í íslensku sam-
félagi og framlag hans í því tilliti.
Þríþætt úttekt á
Háskóla Íslands
♦♦♦