Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 1
sitt á þessa leið: „Ja, hérna. Hvað gerum við núna?“ þegar ljóst var í hvað stefndi. Haustið 1995 höfðu ýmsir helstu banda- menn Ólafs farið að ræða pólitíska framtíð hans eftir að hann léti af for- mennsku í Alþýðubandalaginu. Grundvöllur nýrrar innkomu Heimildir meðal samverkamanna útiloka ekki að sjálfur hafi hann orðið fyrstur til að viðra þá hugmynd að bjóða sig fram til forseta. Hugmyndin kom til umræðu m.a. í hópi í kringum Einar Karl Haraldsson, Svan Krist- jánsson og Mörð Árnason. Þeir sáu í framboði til forseta „grundvöll undir nýja innkomu í stjórnmálin“, eins og Einar Karl, sem nú er varaþingmaður Samfylkingarinnar, orðar það, jafnvel þótt það fengi aðeins 20–30% fylgi; slíkt hafi nægt t.d. Albert Guðmunds- syni til að endurnýja pólitíska stöðu sína. HUGMYNDIN að framboði Ólafs Ragnars Grímssonar til embættis forseta Íslands virðist hafa verið póli- tísk tilraun, sem leiddi til annarrar niðurstöðu en til var stofnað. Þegar hann tilkynnti framboð sitt formlega 28. mars 1996 reiknuðu hvorki hörð- ustu stuðningsmenn hans né and- stæðingar með að hann fengi nægi- legt fylgi til að eiga möguleika á að hljóta kosningu. Framboðið var hugs- að sem pólitískt baráttutæki fyrir hans hönd, sameiningarmálstaðar vinstri manna og áframhaldandi þátt- töku hans í landsmálapólitíkinni. Það hafi átt að verða eins konar varða á sameiningarleið sem stuðningsmenn hans, og væntanlega einnig hann sjálfur, sáu framundan, ferli sem síð- ar lauk með stofnun Samfylkingar- innar. Þetta kemur m.a. fram í fyrri hluta umfjöllunar Árna Þórarinssonar í Tímariti Morgunblaðsins í dag um að- draganda forsetaframboðs Ólafs og átta ára embættisferil. Í könnunum hélst fylgi Ólafs nokkuð stöðugt frá því um miðjan maí, eða kringum 40%. Fylgið kom Ólafi í opna skjöldu og mun hann hafa sagt við samstarfsfólk Einar Karl segir að þeir félagar hafi litið svo á að framboð Ólafs til for- seta hafi einnig verið „góð leið til að halda saman því fólki sem hafði áhuga á að sameina vinstrimenn. Við litum svo á að Ólafur Ragnar hlyti að verða einn af burðarásunum í þeirri fram- tíðarsýn. Og sjálfur leit hann á það sem sitt hlutverk.“ Ekki hafi þurft að beita hann fortölum til að gefa kost á sér í forsetaembættið þótt það þætti, samkvæmt hefð, ekki sérlega at- kvæðamikið. „Þar sem hann var á hverjum tíma var merkilegasti vett- vangurinn, fannst honum,“ segir Ein- ar Karl og bætir við síðar: „… væri Ólafur Ragnar kjörinn forseti Íslands yrði það embætti í hans huga aðal- embættið í landinu. Stjórnmálamenn eru yfirleitt þess eðlis að þeir sækjast eftir ýtrustu völdum; annars væru þeir á niðurleið. Ef hann næði kjöri leit hann á forsetaembættið sem leið til að halda áfram í pólitík, enda er það auðvitað pólitískt embætti.“ Svo fór að tæplega 70 þúsund ís- lenskir kjósendur kusu Ólaf Ragnar Grímsson. Og nú hefur hann boðið sig fram til forseta þriðja kjörtímabilið í röð. Mikið fylgi í aðdraganda forsetakosninganna sumarið 1996 kom Ólafi Ragnari Grímssyni í opna skjöldu Framboðið var hugsað sem pólitískt baráttutæki Ólafur Ragnar Grímsson Tímaritið og Atvinna í dag Tímaritið | Tíu mínútna hamingja daglega  Dagur í lífi popp- stjörnu Nautnin í fyrirrúmi Atvinna | Lognmolla í umræðum um atvinnumál Hvað gerir flugvirki? STOFNAÐ 1913 119. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Ráma röddin hljómar Kris Kristofferson ræðir um sönginn og kvikmyndirnar | 10 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 BRESKA varnarmálaráðuneytið hefur hafið rannsókn á ásökunum um að breskir hermenn hafi pyntað íraskan fanga sem handtekinn var fyrir þjófnað nálægt borginni Basra í Suður-Írak. Breska dagblaðið Daily Mirror birti myndir þar sem hermenn sáust berja fangann til óbóta og niður- lægja hann, meðal annars með því að kasta af sér vatni á hann. Breskir hermenn afhentu blaðinu myndirnar og sögðu að þeim hefði ofboðið með- ferðin á fanganum sem hefði verið kvalinn í átta klukkustundir. Her- mennirnir hefðu hótað honum lífláti, kjálka- og tannbrotið hann. Að lok- um köstuðu þeir honum út úr bíl á ferð og athuguðu ekki hvort hann hefði dáið. Hermennirnir sögðust hafa afhent myndirnar til að sýna hvers vegna hernámsliðið í Írak mætti svo harðri andstöðu í landinu. Slíkt athæfi græfi undan tilraunum hernámsliðs- ins til að vinna hugi og hjörtu Íraka. „Ekki hæfir til að klæðast herbúningnum“ Breska varnarmálaráðuneytið og sir Mike Jackson, yfirmaður breska heraflans, fordæmdu framferði her- mannanna. „Verði þetta sannað er þetta hræðilega athæfi ekki aðeins lögbrot heldur brýtur það einnig gegn ströngum hegðunarreglum hersins. Rannsókn hefur þegar verið hafin á þessum ásökunum. Illvirkj- arnir eru ekki hæfir til að klæðast breska herbúningnum.“ Jackson bætti þó við að ekki ætti að dæma allt hernámsliðið í Írak af framferði fárra hermanna. Áður höfðu myndir af föngum, sem bandarískir herlögreglumenn pyntuðu og auðmýktu, vakið hörð viðbrögð víða um heim. Bretar hefja rann- sókn á pyntingum AP Forsíða Daily Mirror í gær með mynd af fanga sem breskir her- menn eru sagðir hafa pyntað. London. AFP. ÞESSIR kiðlingar, sem Laufey Karítas og Arnar Elí klappa svo blíð- lega, komu í heiminn í Húsdýragarðinum í síðasta mánuði. Þau heita Pjakkur og Perla og virðast kunna athyglinni vel. Alls eru þrír kið- lingar í garðinum, Píla, sem er elst kiðlinganna, fæddist með hjarta- galla en hefur nú bæst í hópinn þar sem hjartað hefur þroskast betur. Sauðburður hófst fyrir viku, þá komu hrútur og gimbur, sem ekki hefur verið gefið nafn enn þá. Sæunn Jóhannesdóttir fræðslufulltrúi segir að von sé á fleiri lömbum og þau muni líklega vera ansi skraut- leg þar sem um blöndu af forystukyni sé að ræða. Kiðlingarnir og lömbin veki mikla kátínu hjá börnum og eins virðist dýrin vera ánægð með lífið og tilveruna. Þau hoppi og skoppi af gleði og séu alltaf til í smáklapp og knús frá börnunum. Morgunblaðið/Golli Fjölgun í Húsdýragarðinum AÐ MINNSTA kosti sex Vesturlandabúar, þeirra á meðal Bandaríkjamenn, biðu bana í árás í bænum Yanbu í Sádi-Arabíu í gær, að sögn vestrænna stjórnarerindreka. Sádi-arab- ískir fjölmiðlar sögðu að þrír árásarmenn hefðu verið skotnir til bana þegar lögreglumenn veittu þeim eftirför. Fyrstu fregnir hermdu að árásarmennirnir hefðu ráðist inn á skrifstofu þar sem Vest- urlandabúar starfa og hafið þar skothríð. Þeir hefðu síðan flúið inn í íbúðahverfi og skotið á vestrænar verslanir og veitingahús, meðal ann- ars McDonalds. Árásin var gerð í bænum Yanbu á vesturströnd Sádi-Arabíu, við Rauða- haf. Þrír árásarmenn féllu Sádi-arabíska ríkissjónvarpið hafði eftir emb- ættismanni í innanríkisráðuneytinu í Riyadh að fjórir tilræðismenn hefðu flúið á stolnum bíl. Lögreglumenn hefðu veitt honum eftirför, skot- ið þrjá mannanna til bana og handtekið þann fjórða. „Bandaríkjamenn eru á meðal fórnarlamb- anna,“ sagði talsmaður bandaríska sendiráðsins í Riyadh. Sádi-arabíska lögreglan vildi ekki veita upplýsingar um málið. Sjónarvottar sögðu að lögreglan hefði sett upp vegatálma víða í borginni til að stöðva bíla og leita í þeim. Haft var eftir sjónarvottum að einn tilræð- ismannanna hefði sprengt sig í loft upp í árás- inni en það var ekki staðfest. Árás á Vest- urlandabúa í Sádi-Arabíu Riyadh. AFP, AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.