Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN | FJÖLMIÐLAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 41 Í KASTLJÓSI í sjónvarpinu 25. apríl sl. var rætt um lög ríkisstjórn- arinnar um eignarhald á fjölmiðlum. Mörður Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar, sagði í þættinum að forsætisráðherra væri í nöp við Bónusfeðga og þess vegna vildi hann lög um eignarhald á fjölmiðlum sem í raun væri stefnt gegn Norð- urljósum einum. Mörð- ur sagði að Davíð Oddsson væri að gera Ísland að „banana- lýðveldi“. Fréttamaður sjónvarpsins hrökk við þegar Mörður talaði um Ísland sem banana- lýðveldi. Hvað veldur því að alþingismaður tekur svo sterkt til orða um forsætisráðherra landsins? Ástæðan er sú að þingmaðurinn tel- ur að forsætisráðherra láti afstöðu sína til einstaks fyrirtækis ráða gerðum sínum varðandi lagasetn- ingu um eignarhald á fjölmiðlum. Eða með öðrum orðum: Þingmað- urinn telur að geðþóttaákvörðun ráði afstöðu forsætisráðherra. Það er alvarleg ásökun. En jafnvel þó að ásökun þing- mannsins væri rétt ættu samráð- herrar að geta tekið í taumana svo og þingmenn stjórnarflokkanna. En gera þeir það? Svo virðist ekki vera. Í fyrstu virtist vera ágreiningur milli formanna stjórnarflokkanna um frumvarp forsætisráðherra um eign- arhald á fjölmiðlum. En svo var ekki lengi. Glíma forsætisráðherra við ut- anríkisráðherra stóð stutt. For- sætisráðherra hafði betur í þeirri glímu eins og ávallt áður. Utanrík- isráðherra og formaður Framsókn- arflokksins átti um tvennt að velja: Að samþykkja frumvarp forsætis- ráðherra og fá stól oddvita rík- isstjórnarinnar 15. september nk. eða að standa á eigin sannfæringu varðandi fjölmiðlana og missa af stól forsætisráðherra í haust. Hann valdi fyrri kostinn. Var einhver hissa? Eftir að formenn stjórnarflokk- anna náðu saman virtist enginn í stjórnarliðinu hafa sjálfstæða skoð- un á máli þessu nema Kristinn Gunnarsson, þingmaður Fram- sóknar. Það er þess vegna sem Jón Ásgeir Jóhannesson segir í viðtali við DV 26. apríl sl. að svo virðist sem hér á landi sé dulbúið einræði. Einn maður taki ákvörðun fyrir alla hina í stjórnarliðinu. Jón Ásgeir segir að lögin um fjölmiðlana feli í sér eigna- upptöku og ofbeldi gegn Norður- ljósum. Málið verði lagt fyrir dóm- stólana strax daginn eftir lögfestingu þess. Fullyrðing Jóns Ásgeirs felur í sér alvarlega ásökun á hendur forsætisráðherra. Hvers vegna lagði Sjálfstæð- isflokkurinn svona mikla áherslu á það að setja skyndilega nú í vor lög um eignarhald á fjölmiðlum? Hvað hefur breyst í fjölmiðlaheiminum sem gerði slíkt nauðsynlegt? Í raun- inni hefur sáralítið breyst. Sjálf- stæðismenn áttu áður tvö útbreidd- ustu dagblöðin, þ.e. Morgunblaðið og DV. Eftir að flokksblöðin, Al- þýðublaðið, Tíminn og Þjóðviljinn gáfu upp öndina voru sjálfstæð- ismenn einráðir á blaðamarkaðnum. Enginn hafði áhyggjur af því. Ekki var talað um nauðsyn þess að setja lög um eignarhald þessara fjölmiðla til þess að koma í veg fyrir að þeir væru misnotaðir. Síðan kom Frétta- blaðið til sögunnar. Svo virðist sem einhver skjálfti hafi byrjað í Sjálf- stæðisfokknum eftir að Baugur eða Jón Ásgeir Jóhannesson eignaðist Fréttablaðið. Ekkert liggur þó fyrir um pólitískar skoðanir eigenda Fréttablaðsins. Talað hefur verið um að sennilega væri Jón Ásgeir sjálf- stæðismaður! En það virðist ekki duga Sjálfstæðisflokknum. Jón Ás- geir verður að hlýða flokksforustu Sjálfstæðisflokksins og það gerir hann ekki. Reiðarslagið fyrir Sjálf- stæðisflokkinn kom þegar Baugur eða Jón Ásgeir keypti ráðandi hlut í DV. Ef Mbl. hefði eignast DV hefði Sjálfstæðisflokkurinn ekkert minnst á nauðsyn þess að takmarka eign- arhald á fjölmiðlum! Nú munaði það litlu að bæði Fréttablaðið og DV hættu að koma út. Bæði þessu blöð urðu gjaldþrota og það var ekki sjálfgefið að nýir aðilar kæmu til skjalanna til þess að halda rekstri þeirra áfram. Ef Baugur hefði ekki keypt Fréttablað- ið hefði það líklega hætt að koma út. Ef Baugur hefði ekki keypt DV hefði Mbl. keypt það eða blaðið hætt útkomu. Svo virðist því sem Baugur hafi tryggt fjölbreytni á blaðamarkaðnum með því að kaupa bæði DV og Fréttablaðið. Menn virðast einkum hafa áhyggj- ur af fréttaflutningi og skrifum dag- blaðanna. Nú veldur það Sjálfstæð- isflokknum t.d. miklum áhyggjum að DV er mjög hvasst í allri gagnrýni og ræðst hart að öllum, einnig vald- höfum. Hins vegar hafa menn minni áhyggjur af Stöð 2 og Norðurljósum. Baugur hefur eignast stóran hlut í Norðurljósum. Og það hentar Sjálf- stæðisflokkum í áróðrinum að draga það fram að Baugur eigi nú orðið ráðandi hlut í tveimur dagblöðum og sjónvarpsstöð. Að mínu mati skiptir eignarhaldið ekki höfuðmáli. Það sem skiptir hins vegar mestu máli í þessu sambandi er hvernig eigendur þessara fjölmiðla fara með þá. Eig- endur Mbl. hafa undanfarin ár farið vel með blaðið. Það er opið fyrir mis- munandi sjónarmiðum og þess verð- ur ekki vart að það sé misnotað í þágu eigenda eða Sjálfstæðisflokks- ins. Hið sama er að segja um Stöð 2. Hún er ekki misnotuð í þágu eigenda eða í þágu ákveðins stjórn- málaflokks. Á meðan þessir fjöl- miðlar eru ekki misnotaðir þarf eng- in sérstök lög um þá. Samkeppnislög duga. Hvers vegna lög um eignarhald á fjölmiðlum? Björgvin Guðmundsson skrifar um fjölmiðlafrumvarpið ’Menn virðast einkumhafa áhyggjur af frétta- flutningi og skrifum dagblaðanna.‘ Björgvin Guðmundsson Höfundur er viðskiptafræðingur. Heimili fyrir þig - þinn hagur er okkar metnaður sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 FRAMNESVEGUR 44 - Opið hús í dag Nýjar og glæsilegar 2ja herb. íbúðir Vorum að fá í sölu tvær sérlega glæsileg- ar „nýjar“ 2ja herbergja íbúðir. Íbúðirnar eru 74 fm og 61 fm að stærð. Allt er nýtt í íbúðunum, t.d. vandað parket og inn- réttingar. Glæsilegt flísalagt baðherbergi o.fl. Íbúðirnar geta verið til afhendingar strax. Opið hús í dag frá kl. 16 - 18 Sími 533 4040 • Fax 533 4041 Opið í dag frá kl. 12.00-14.00 TRAUST OG ÖRUGG ÞJÓNUSTA jöreign ehf Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali Hákon R. Jónsson, sölumaður Ólafur Guðmundsson sölustjóri, 2JA HERB. GRENIMELUR Vorum að fá í einka- sölu glæsilega íbúð á jarðhæð m/sérinng. og sérverönd. Fallegar innréttingar og glæsilegt baðherbergi. Gullfalleg eign á frábærum stað. Verð 13,9 millj. 3JA HERB. ÁLFTAMÝRI - M/BÍLSKÚR. Rúmgóð mikið endurnýjuð 3ja herb. íbúð um 87,0 fm á 4. hæð. Glæsilegt útsýni. Suðursvalir. Nýl. bílskúr 21 fm. Örstutt í skóla og fl. þjónustu. Verð 13,5 millj. Nr. 3407 GRETTISGATA Góð og líflega innréttuð íbúð í góðu húsi. Stutt í miðbæinn. Gott skipulag í íbúðinni. Rúmgóð herbergi. Svalir. Frábær staðsetning. Stærð 88,2 fm. Verð 14,0 millj. 4RA HERB ÁLFATÚN - BÍLSKÚR Vorum að fá þessa íbúð í sölu í fjögurra íbúða húsi. Góð íbúð á jarðhæð með bílskúr. Stór geymsla fylgir. Flísalagt baðherbergi. Glæsilegt útsýni. Verð 19,7 millj. SUMARBÚSTAÐIR RUNNABYGGÐ - Hvítársíða Vorum að fá í einkasölu 60 fm sumarhús á þessum vinsæla stað. Bústaðurinn er fokheldur að innan en tilbúinn að utan. Afhending strax. Uppl. veitir Ólafur. Ármúla 21 • Reykjavík Netfang: kjoreign@kjoreign.is Heimasíða: www.kjoreign.is Opið hús - Opið hús Frakkastígur 12 - Laus Gullfalleg 3ja herb. íbúð á 1. hæð í þessu glæsi- lega húsi. Hús og íbúð mikið endurnýjuð þar sem sjarmi liðinna ára hefur haldið sér. Bjarni sýnir í dag milli kl. 14.00 og 16.00. Sími 894 1870. BORGARTÚN 28 Verslunar- og skrifstofuhúsnæði og byggingarréttur Vorum að fá til sölu gott verslunar- og skrifstofuhúsnæði í fram- húsi við Borgartún 28 samtals að gólffleti um 600 fm. Á baklóð er í dag um 1.200 fm geymsluhúsnæði, en skv. deiliskipulagi er heimilt að reisa 2.300 fm skrifstofu- og þjónustubyggingu þar auk bílastæðahúss. Traustur langtímaleigusamningur er fyrir hendi um framhúsið og um geymsluhúsnæðið á baklóðinni þar til byggingarfram- kvæmdir hefjast við nýbyggingu. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu af Jóni Guðmundssyni. FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Vorum að fá í sölu glæsilegt 242 fm einbýlishús með tvöföldum innbyggðum bílskúr. Húsið, sem er teiknað af Vífli Magnússyni, skiptist m.a. í stofu, borð- stofu, stóra sólstofu/gróðurhús, tvö bað- herbergi, snyrtingu, þrjú herbergi og fleira. Mikil lofthæð er í húsinu. Arinn í stofu. Sérstaklega falleg gróin lóð með verönd. Mjög góð staðsetning en húsið stendur í litlum botnlanga. Verð 33 millj. SKRIÐUSEL - EINBÝLI ARKITEKT VÍFILL MAGNÚSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.